Morgunblaðið - 18.12.2004, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 C 3
INGEMAR Linnéll, landsliðsþjálfari Svía í hand-
knattleik, hefur valið landsliðið sem leikur á heims-
meistaramótinu í Túnis í lok janúar, en þetta verður
fyrsta stórmótið sem hann stýrir liðinu á. Linnéll tók
við af Bengt Johansson í vor. Íslenska landsliðið
leikur tvo leiki við það sænska í byrjun janúar og
marka leikirnir upphaf beggja landsliða á undirbún-
ingi þeirra fyrir heimsmeistaramótið.
Liðið er skipað eftirtöldum leikmönnum, mark-
verðir eru þeir Tomas Svensson, Hamburg, og Fred-
rik Ohlander, GWD Minden. Útileikmenn eru Martin
Boquist, Kiel, Pelle Linders, Kolding, Sebastian Sei-
fert, Kolding, Robert Arrhenius, Nordhorn, Mathias
Franzén, Nordhorn, Ljubomir Vranjes, Nordhorn,
Kim Andersson, Sävehof, Jonas Larholm, Sävehof,
Jonas Källman, Ciudad Real, Johan Pettersson, Kiel,
Stefan Lövgren, Kiel, Marcus Ahlm, Kiel, Fredrik
Lindahl, Redbergslid og Kristian Svensson, IFK
Skövde.
Sænski HM-
hópurinn tilbúinn
BOBAN Savic, knattspyrnumarkvörður frá Serbíu/
Svartfjallalandi, er væntanlegur til Grindavíkur um
miðjan janúar. Savic er 25 ára gamall, uppalinn hjá
Rauðu stjörnunni en lék síðan með FK Belgrad og
Radnik Pozarevac í næstefstu deild í Júgóslavíu, Obi-
lic í efstu deild og síðan Dinamo Pancevo í næstefstu
deild. Þaðan fór hann til Rapid Búkarest í Rúmeníu og
var þar varamarkvörður í rúmt ár en lék síðan í sex
mánuði á þessu ári í Íran. Hann kom þaðan í ágúst og
hefur að undanförnu æft undir handleiðslu Rajko
Stanicic sem var markvarðaþjálfari hjá Keflavík í ár.
„Hann verður til reynslu hjá okkur til að byrja með
en við fáum hann með það fyrir augum að hann leiki
með okkur í deildabikarnum og síðan áfram ef hann
reynist vel,“ sagði Jónas Þórhallsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Grindavíkur, við Morgunblaðið í gær.
Jónas sagði ennfremur að Grindvíkingar ætluðu að fá
þrjá leikmenn til viðbótar og líklegast væri að þeir
kæmu einnig að utan.
Serbi í markið hjá
Grindvíkingum
Bjarni sagði við Morgunblaðið ígær að hlutirnir hefðu gengið
hratt fyrir sig síðdegis á fimmtudag
eftir að hann var laus
undan samningnum.
Aðdragandinn að
málinu væri þó tals-
verður. „Williamsson
reyndi að fá mig til Hibernian þegar
hann var knattspyrnustjóri þar og ég
lék með Stoke. Þegar hann vissi að ég
væri ekki í liðinu hjá Coventry hafði
hann samband við landa sinn, Eric
Black, sem fékk mig til Coventry í
fyrra og er nú aðstoðarþjálfari hjá
Birmingham, til að leita eftir upplýs-
ingum um mig. Hann sýndi í fram-
haldi af því mikinn áhuga á að fá mig
og það er gott að koma til félags þar
sem knattspyrnustjórinn hefur trú á
manni,“ sagði Bjarni, sem fór til
Plymouth seint í fyrrakvöld, mætti á
fyrstu æfingu sína í gær og er í leik-
mannahópnum fyrir leik gegn Derby
County á heimavelli í dag.
Plymouth er nýliði í 1. deild og er í
15. sætinu, með sömu stigatölu og
Watford og Preston. Félagið er frá
samnefndri borg á suðurströnd Eng-
lands og liggur sunnar en nokkurt
annað lið í Englandi. Það hefur af og
til leikið í næstefstu deild en vann 3.
deildina 2002 og 2. deildina í fyrra.
Sextíu þúsund vilja
sjá Plymouth og Everton
„Þetta er lítið félag en samt með
góða aðstöðu. Heimavöllurinn, Home
Park, tekur 21 þúsund manns eins og
er en það er unnið að uppbyggingu á
síðasta fjórðungi stúkunnar og þegar
því er lokið, tekur hann 33 þúsund
manns. Plymouth leikur gegn Ever-
ton í bikarnum í byrjun janúar og það
hafa 60 þúsund manns óskað eftir
miða á þann leik. Áhuginn er gífurleg-
ur, bæði í borginni og í nágranna-
byggðunum, en það er langt héðan í
næstu alvörulið og því er stuðning-
urinn mikill ef vel gengur hjá liðinu.
Forráðamenn Plymouth segja að
þeirra markmið sé að festa liðið í sessi
í 1. deildinni á næstu árum og þrýsta
síðan á um að koma því í úrvalsdeild-
ina í framhaldi af því. Mér líst mjög
vel á mig hjá félaginu og það yrði
gaman að fá að spreyta sig strax á
morgun gegn Derby, sem er
skemmtilegt lið og spilar góðan fót-
bolta,“ sagði Bjarni.
Reid vildi ekki nota mig
Hann hefur ekkert fengið að spila
með Coventry í tæpa tvo mánuði, og
ekki verið í leikmannahópnum í und-
anförnum leikjum. „Það var orðið
greinilegt að Peter Reid vildi ekki
nota mig, sama hvernig ég stæði mig,
og því ekkert annað fyrir mig að gera
en að reyna að losna frá félaginu. Ég
er mjög sáttur við að það skyldi tak-
ast og bíð spenntur eftir því að byrja
að spila með Plymouth,“ sagði Bjarni,
sem var í byrjunarliðinu í þremur
fyrstu leikjum liðsins á tímabilinu en
kom sjö sinnum inn á sem varamaður
eftir það. Síðasti leikur hans var gegn
Middlesbrough í deildabikarnum í lok
október. Coventry er í 19. sæti, fjór-
um sætum neðar en Plymouth, og
hefur árangur liðsins valdið miklum
vonbrigðum því það hafði sett stefn-
una á úrvalsdeildarsæti eftir að Reid
kom til félagsins í maí.
Plymouth er sjötta félagið sem
Bjarni leikur með frá því hann yfirgaf
Skagamenn 18 ára árið 1997. Hann
var hjá Newcastle í tvö ár, síðan Genk
í Belgíu, Stoke í Englandi, Bochum í
Þýskalandi, þá Coventry og nú
Plymouth. Bjarni hefur leikið 191
deildaleik erlendis, þar af 132 fyrir
Stoke City þar sem hann lék í rúm-
lega þrjú ár.
Bjarni með rétt hugarfar
Bobby Williamsson sagði á vef
Plymouth í gær að Bjarni hefði þegar
sýnt félaginu mikla hollustu þó hann
hefði enn ekki klæðst búningi þess.
„Hann var tilbúinn til að koma til okk-
ar á þessum tíma, rétt fyrir jólin, en
hann hefði hæglega getað tekið því
rólega yfir hátíðirnar og komið eftir
það. Hann sýnir af sér rétt hugarfar,
vill fyrst og fremst spila fótbolta, og
ég er himinlifandi yfir því að hafa
fengið hann í okkar raðir. Bjarni get-
ur bæði leikið á miðjunni og á kant-
inum og það er kostur þegar hópurinn
er lítill að fá leikmann sem er fjölhæf-
ur,“ sagði Bobby Williamsson.
Bjarni fékk í gær úthlutað treyju
númer 10 hjá Plymouth.
Bjarni Guðjónsson til Plymouth og leikur í treyju nr. 10
Gekk hratt en að-
dragandinn langur
BJARNI Guðjónsson gekk í gær til liðs við enska knattspyrnufélagið
Plymouth Argyle, sem leikur í 1. deild, og samdi við það til 18 mán-
aða, eða til vorsins 2006. Hann fékk sig lausan undan samningi sín-
um við Coventry seint á fimmtudag, en áður hafði Peter Reid, knatt-
spyrnustjóri, hafnað beiðni frá Bobby Williamsson, knattspyrnu-
stjóra Plymouth, um að fá Bjarna að láni.
Bjarni Guðjónsson er í leik-
mannahópi Plymouth sem
mætir Derby County í dag.
Eftir
Víði
Sigurðsson
Ljósmynd/Jason Green
dug-
vörn
i að
og
ir á
rnir
tinu
afna
með
ðari
tafl-
ekki
ið á
agði
það
röð.
o að
otið
stal
ann
R og
ókn
koti
enn
mm-
ingum í vetur og nú vantaði okkur
Hjalta Pálmason í kvöld en það
koma alltaf nýir menn, sem þýðir að
við höfum mikla breidd og því var
þetta sigur liðsheildarinnar,“ sagði
Guðmundur Árni Sigfússon, aðstoð-
arþjálfari Vals, en hann tók vaktina
fyrir Óskar Bjarna Óskarsson þjálf-
ara sem tók út leikbann. Þrátt fyrir
að sveiflur í leiknum var Guðmund-
ur Árni hvergi smeykur. „Við vorum
farnir að stytta sóknir okkar og
skotin ekki nógu góð en um leið og
við löguðum það vorum við komnir
fram úr þeim aftur. Ég var eiginlega
aldrei hræddur um að vinna ekki
leikinn, var alltaf viss um að við
hefðum hann í höndum okkar.“ Vil-
hjálmur byrjaði vel en fékk síðan lít-
ið svigrúm og Friðrik Brendan Þor-
valdsson sýndi einnig tilþrif í
byrjun. Heimir Örn Árnason skilaði
sínu en Sigurður Eggertsson og
Kristján Karlsson voru einnig
drjúgir. Sjúkralisti Vals er orðinn
æði langur en þar kemur maður í
manns stað, stundum jafnvel dreng-
ir í manns stað en þeir virðast reiðu-
búnir og fá góða reynslu. „Það er
ekki víst hvernig liðið verður sam-
sett í úrvalsdeildinni, til dæmis eru
Ægir okkar stóri og Bjarki Sigurðs-
son með slitin krossbönd. Það kem-
ur í ljós með meiðslin en við vonum
það besta,“ bætti Guðmundur Árni
við.
Breiðhyltingar voru heldur niður-
lútir eftir leikinn enda haldið efsta
sæti riðilsins lengst af. Dómar féllu
ekki þeirra megin í lokin en Ólafur
Gíslason markvörður var ánægður
með baráttuna. „Þetta var skelfi-
legt. Við sýndum góða vörn en bara
á köflum þegar við þurftum þess og
þegar við vorum fimm mörkum und-
ir og fimm mínútur ætluðum við að
gefa í. Það virðist alltaf þurfa að slá
okkur utan undir til að við hefjumst
handa, það hefur loðað við okkur í
vetur og ótrúlegt að þess þurfi í
svona leik en okkur hefur ekki tekist
að finna bót á því. Við ætluðum
sannarlega að vinna þennan leik því
við töpuðum fyrri leiknum enda ætl-
uðum við okkur að vera efstir í riðl-
inum,“ sagði Ólafur eftir leikinn, en
hann hefur átti betri daga. Ingi-
mundur Ingimundarson var sterkur
en var vel gætt svo að Hannes Jón
Jónsson og Fannar Þorbjörnsson
létu meira til sín taka. Ragnar
Helgason sýndi tilþrif í byrjun.
Morgunblaðið/Kristinn
n, Valsmaður, sækir að marki ÍR en Ragnar Helgason er til varnar.
nur lokaði
smarkinu
svona spennandi leiki og ef maður er
lengur eftir skotinu og er þá alveg klár
ég hvernig ÍR-ingar ætluðu að skjóta,“
markvörður Vals, sem sá til þess með
stu mínútu að ÍR tapaði 29:28 þegar
gærkvöldi í suðurriðli Íslandsmótsins í
puðu bæði þremur leikjum í riðlinum en
ðureignir liðanna og er því í efsta sæti.
g í úrvalsdeildina.
ÍÞRÓTTIR