24 stundir - 28.05.2008, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Hjálparstarfsmenn og friðargæslu-
liðar komast margir upp með að
beita börn í stríðshrjáðum löndum
og á hamfarasvæðum kynferðislegu
ofbeldi.
„Börn allt niður í sex ára aldur
þjóna hjálparstarfsmönnum og
friðargæsluliðum kynferðislega í
skiptum fyrir mat, peninga, sápu
og í fáum tilvikum munaðarvörur
líkt og farsíma,“ segir í nýrri skýrslu
bresku hjálparsamtakanna Save the
Children.
Auvirðilegar athafnir
Save the Children byggir rann-
sóknina á viðtölum við um 250
börn frá Fílabeinsströndinni, suð-
urhluta Súdans og Haítí. „Rann-
sóknin sýnir fram á auvirðilegar at-
hafnir mjög fárra brotamanna sem
misnota sum varnarlausustu börn-
in í heiminum, börn sem eiga að
njóta verndar,“ segir Jasmine Whit-
bread, talsmaður samtakanna. Hún
segir erfitt að ímynda sér ógeðfelld-
ari misnotkun á valdi eða brot á
réttindum barna.
Hjálparsamtökin segjast mæla
með að alþjóðleg eftirlitsstofnun
verði sett á laggirnar þannig að
koma megi í veg fyrir brot af þessu
tagi.
Fagna skýrslunni
Í skýrslunni segir að það hörmu-
legasta í þessu öllu saman sé að til-
kynnt sé um fæst tilvikin og að
brotamönnum sé ekki refsað vegna
ótta fórnarlambanna. Ótti við
hefndaraðgerðir, að neyðaraðstoð
verði dregin til baka, að verða út-
skúfaður út samfélaginu og van-
kunnátta á einnig þátt í því að svo
fá brot eru tilkynnt.
Ekkert umburðarlyndi
Sameinuðu þjóðirnar hafa fagn-
að skýrslunni og hyggjast taka mál-
in til gaumgæfilegrar skoðunar.
Save the Children segja alþjóða-
samfélagið hafa samþykkt að ekkert
umburðarlyndi skuli sýnt gagnvart
kynferðisofbeldi gegn börnum, en
að ekki sé nóg gert til að fylgja
þeirri stefnu eftir.
Nick Birnback, talsmaður Sam-
einuðu þjóðanna, segir hins vegar
að ekki sé með nokkru móti mögu-
legt að tryggja að engin tilvik eigi
sér stað innan stofnunar með um
200 þúsund starfsmenn víða um
heim.
Allt of algengt
Rúmlega helmingur þeirra barna
sem rætt var við minntust þess að
hafa verið nauðgað eða áreitt kyn-
ferðislega og af þeim sagði fjórð-
ungur að tilvikin væru fleiri en tíu.
Þó að dæmi séu um að sex ára
börn hafi verið beitt kynferðislegu
ofbeldi af friðargæsluliðum, eru
flest börnin á aldrinum fjórtán til
fimmtán ára.
Fjórtán ára drengur sem starfar í
friðargæslubúðum á Fílabeins-
ströndinni segir friðargæsluliða og
hjálparstarfsmenn oftast biðja um
stúlkur á hans aldri. „Oft eru átta til
tíu menn sem deila tveimur eða
þremur stelpum. Þegar ég bendi á
eldri stelpur segjast þeir kjósa þær
yngri.“
Beita börn kyn-
ferðisofbeldi
Bresk hjálparsamtök segja friðargæsluliða marga komast upp
með að beita börn á stríðssvæðum kynferðislegu ofbeldi
➤ Orðspor friðargæsluliða Sam-einuðu þjóðanna hefur beðið
mikinn hnekki síðustu árin.
➤ Nýlega hefur komist upp aðfriðargæsluliðar í Lýðveldinu
Kongó, Fílabeinsströndinni
og Haítí hafa beitt konur kyn-
ferðislegu ofbeldi.
FRIÐARGÆSLA
NordicPhotos/AFP
Börn í Darfúr Save the Children
vilja að komið verði á alþjóðlegri
eftirlitsstofnun til að koma í veg
fyrir mál sem þessi.
Austrænt samstarf
til stækkunar
Utanríkisráðherrar Póllands og
Svíþjóðar lögðu fyrr í vikunni fram
tillögur um austrænt samstarf Evr-
ópusambandsins og nágrannaríkj-
anna Armeníu, Aserbaídsjan,
Georgíu, Moldavíu og Úkraínu til
umfjöllunar á fundi utanríkisráð-
herra ESB í Brussel.
Radoslaw Sikorski, utanríkisráð-
herra Póllands, segir að slíkt sam-
starf myndi bæði hugmyndafræði-
lega og í reynd efla tengsl ESB við
ríki sem gætu í framtíðinni orðið
aðilar að sambandinu. Umrædd
ríki séu hins vegar nú í ákveðinni
biðstöðu vegna „stækkunarþreytu“
innan sambandsins.
Carl Bildt, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, tekur í sama streng og
sagði tíma vera kominn til að litið
yrði lengra til austurs til að sjá hvað
hægt væri að gera til að styrkja
stoðir lýðræðisins. atlii@24stundir.is
Kerstin Fritzl, nítján ára dóttir Elísabetar Fritzl,
er nú vöknuð úr dái, en henni hefur verið haldið
sofandi frá því að hún var flutt á sjúkrahús í
Amstetten í Austurríki í lok síðasta mánaðar.
Kerstin er elst af sjö börnum sem Elisabeth eign-
aðist með föður sínum í kjallara húss þar sem
henni var haldið fanginni í 24 ár. Upp komst um
voðaverk Josefs Fritzl eftir að Kerstin veiktist al-
varlega og var komið undir læknishendur. aí
Kerstin Fritzl vöknuð úr dái
Anders Fogh Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, á talsvert
meiri möguleika á að verða næsti
framkvæmdastjóri NATO, en að
verða fyrsti forseti ESB. Þetta segir
danska blaðið Politiken, eftir að
hafa rætt við heimildarmenn innan
NATO og utanríkisráðuneyta
bandalagsþjóða Danmerkur. Alls staðar sé bent á Danann sem hinn
fullkomna arftaka Jaap de Hoop Scheffers, núverandi framkvæmda-
stjóra NATO. „Það er á hreinu að röðin er komin að Skandinavíu.
Danski forsætisráðherrann lítur út fyrir að vera alveg rétti maðurinn,“
segir heimildarmaður Politiken innan NATO. Mikið hefur verið rætt
um að Fogh Rasmussen hyggi á frama innan alþjóðastofnana. aí
Fogh líklegur arftaki Scheffers
Stækkar ESB enn lengra til austurs?
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
8
0
8
1
0
Menningarlegir
miðvikudagar í Bláa lóninu
Alla miðvikudaga í maí kl. 19.30
verða menningarlegir viðburðir
í boði fyrir baðgesti Bláa lónsins.
www.bluelagoon.is
Í KVÖLD!
FRUMSAMIN BULLA
Bergur Ingólfsson leikari mun flytja
frumsamda „bullu“ í ákveðnu ljóðaformi.
Bullan byrjar háfleygt en fer svo út í
ruglurím um líðandi stund en inni í því
er sögð saga sem stöðugt fer út úr sér
vegna þess að rímið býður upp á það.
Bullan verður flutt á íslensku og ensku.
Félag sjálfstæðismanna í Árbæ Selási, Ártúns- og
Norðlingaholti efna til opins fundar um efnahagsmál
með Illuga Gunnarssyni alþm.
Fundurinn verður í dag 28. maí kl. 20:00 í
félagsheimili sjálfstæðismanna í Hraunbæ
102B (við hliðina á Skalla).
Allir velkomnir!
Stjórnin.
Opinn fundur með Illuga