Morgunblaðið - 11.12.2003, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 11.12.2003, Qupperneq 8
lifun Er fjölskyldan mikið jólafólk og komin í jólaskap? „Við erum frekar mikið jólafólk og það eykst eftir því sem börnin okkar eldast því þetta er jú þeirra tími. Jólin hefjast nú frekar snemma hjá okkur en við skreytum búðirnar okkar í nóvember og síðan fá krakkarnir okkar að skreyta heima í byrjun desember þannig að jólaskapið er komið.“ Markast jólaundirbúningurinn af því að þið hjónin eruð verslunarfólk og háannatími fyrir jólin? „Við reynum að vera frekar tímanlega í því sem við þurfum að gera því þegar nær dregur jólum eykst viðvera okkar í búðunum og þá gott að vera búin að ljúka öllum jólagjafakaupum og því sem snýr að heimilinu.“ Hvernig nýtið þið þann tíma sem þið hafið lausan fyrir jólin? „Við eyðum að sjálfsögðu öllum þeim frítíma sem við höfum í desem- ber með krökkunum okkar og þá er líka oft ýmislegt að gerast bæði í skólanum og leikskólanum hjá þeim sem við viljum taka þátt í. Einnig sækjum við ýmsar uppákomur sem þau hafa áhuga á. Þetta snýst í raun um hvað þau vilja gera. Við bökum saman piparkökur sem þau skreyta og nú síðustu ár höfum við bakað og skreytt piparkökuhús.“ Er mikið gert til að færa heimilið í jólalegan búning? „Við skreytum alltaf eitthvað en við sækjum í látlaust jólaskraut og notum mikið köngla, greni og kerti. Reyndar finnst krökkunum okkar þetta full einfalt og lítið spennandi þannig að þau fá að skreyta að vild sín herbergi svo allir eru sáttir.“ Hver er jólamaturinn? „Ég og maðurinn minn, Gunnar Hilmarsson, höfum bæði alist upp við hamborgarhrygg á aðfangadagskvöld þannig að hann er okkar jóla- matur. Ég held að það sé ekkert að breytast.“ Leggið þið mikið upp úr borðhaldinu og fallega skreyttu borði? „Við höfum gaman af því að hafa fallegt í kringum okkur og því skreytum við alltaf jólaborðið. En það breytist milli ára hvernig það er skreytt.“ Haldið þið í hefðirnar? „Við getum ekki sagt að við höldum í einhverjar ákveðnar hefðir þar sem okkur finnst hlutirnir breytast frá ári til árs. Við frekar leikum þetta eftir eyranu og reynum að njóta hverrar stundar eins og hún er á hverjum tíma.“ jólaborðið Jólin hefjast snemma hjá okkur Þegar verið er að leggja meira en venjulega í matinn er einnig um að gera að leggja meira en venjulega í að gera matarborðið huggulegt. Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir, eigandi verslunarinnar GK, dekkaði upp jólaborðið heima.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.