Vísir í vikulokin - 10.08.1968, Blaðsíða 1
VÍSIR ÍVIKULORIN
Steikt á teini
Grillsteiking er matreiðsla, sem
mikilla vinsælda nýtur, og nú dett-
ur engri konu í hug að fá sér bak-
araofn, nema hann sé einnig not-
hæfur til grillsteikingar. Og sérstak-
ur grillofn með teinum er margra
draumur. Grillsteiking er hins veg-
ar ekki eins auðveld matreiðsla og
venjuleg steiking, og því er ráðlegt
að kynna sér nákvæmlega þær
reglur, sem gilda, til þess að ná
sem beztum árangri. Uppskriftirnar,
sem fara hér á eftir, eru miðaðar
við grillsteikingu á teini, en verið
óhræddar að líta á þær, enda þótt
þið eigið ekki slíkan útbúnað, þær
ættu samt að geta komið að gagni.
Spánskar kjötbollur á teini
(Myndin til vinstri)
250 g nautahakk
1 egg
2 msk. smátt skorin gúrka
brauðmylsna
salt, pipar
fylltar olívur
sósa:
35 g smjör
1 laukur
2i/2 dl tómatsósa
6 msk. edik
2 msk. púðursykur
1 dl vatn
2 tsk. sinnepsduft
1 msk. Worcestersósa
Hnoðið saman hakk, egg, gúrku,
mylsnu, salt og pipar, mótið bollur
úr deiginu og þræðið þær upp á
teina til skiptis við olívur. Brytjið
laukinn og brúnið í smjöri, hrærið
öll hin efnin saman við og sjóðið
í lokuðum potti í tíu mínútur. Pensl-
ið bollurnar og olívurnar með sós-
unni við og við frá öllum hliðum,
meðan á grillsteikingu stendur.
Kínverskur grillréttur
375 g nautalundir
1 dós af stórum sveppum
4 meðalstórir laukar
4 msk. sojasósa
2 msk. púðursykur
1 msk. olívuolía
V2 tsk. engifer
pipar
saxaður laukur
Búið til lög úr sojasósu, púðursykri,
olíu, kryddi og lauk. Skerið lund-
irnar í allþykka bita og látið liggja
í leginum í 1—2 klukkustundir.
Þræðið kjötbitana upp á teina til
skiptis við sveppi og soðna lauk-
ana, hálfa eða heila eftir stærð.
Grillið í 10—15 mínútur og pensl-
ið alltaf við og við með leginum.
Lifur é teini
(til vinstri á myndinni t. h.)
375 g lifur
125 g flesk
8 laukar
olívuolía
Þræðið lifrarbita upp á teina til
skiptis við fleskræmur og soðna
lauka. Penslið með olíu og grillið
í um 10 mínútur.
Pylsur 3 teini
(til hægri á myndinni t. h.)
150 g spikpylsa
4—6 pylsur
150 g flesk
2—4 tómatar
Brjótið spikpylsusneiðar í fernt,
vefjið flesksneiðuni utan um pylsu-
bita og skerið tómatana í tvennt
eða fernt eftir stærð. Þræðið til
skiptis upp á teina, penslið með
olíu og grillið í u. þ. b. 8 mínútur.
Sósan með spænsku kjötbollunum
hæfir einnig þessum rétti ágætlega.
Smábitasteik á teini
375 g smábitasteik (kindakjöt)
2 græn piparhulstur
4—8 soðnir laukar
1 dl rauðvín
2 msk. edik
l/2 tsk. salt
pipar, saxaður laukur
Búið til lög úr rauðvíni, ediki og
kryddi og látið kjötbitana liggja
í leginum í 1—2 klukkustundir.
Hreinsið piparhulstrin og skerið í
fernt, látið liggja í sjóðheitu vatni
í 5 mínútur. Þræðið kjötbitana upp
á teina til skiptis við pipar og
lauka, penslið með leginum alltaf
öðru hverju, meðan á grillsteikingu
stendur.