Vikublaðið


Vikublaðið - 03.11.1995, Blaðsíða 1

Vikublaðið - 03.11.1995, Blaðsíða 1
223.863.078 Flateyringum sem eiga um sárt að binda vegna snjóílóðsins í síðustu viku. Þótt símasöfnun sé lokið er enn hægt að sýna Samhug í verki. Út nóvember verður tekið á móti framlögum í bönkum, sparisjóðum og pósthúsum um land allt. - Sjá viðtal á bls. 7 við Kristinn H. Gunnarsson þingmann um byggð og snjóflóðavarnir á Vestíjörðum. krónur söfnuðust í sjóð til stuðnings GEVALIA - það er kaffið! sími568 7510 ASKRIFTARSIMI 43. tbl. 4. árg. 3. nóvember 1995 - Ritstjóm og afgreiðsla: sími 551 7500 - 250 kr. instripólitík í fáum dráttum: Bryndís Hlöðversdóttir er gestaskrifari Tilsjár á bls. 2 og er með skilaboð til forystunnar. Á bls. 6 gerir Jóhannes Hlöð- Ragnarsson feú athugasemd við VaJþór versson í tileM af formannskjöri. Umberto Eco ræðir fasismann og baráttuna ævarandi fyrir frelsinu á bls. 8-9. Ingi Rúnar Eðvarðsson M ríður á vaðið og skrifar stóra grein um... lAKtrnenn viD uppftaf nvrrar aldar Sósíalistum ber engin skylda til að trúa því að mannlegt félag geti í rann orðið fullkomið, heldur aðeins að það sé hœgt að gera það miklu betra en það er. Georg Orwell. Ég á mér draum. Ég á mér þann draum að Alþýðubandalagsfólk, Kvennalistakonur, Þjóðvakafólk og vinstri öflin í Alþýðu- og Framsóknarflokki nái að stilla saman strengi og skapa þann styrk sem þarf til að endur- skapa Island í anda aukins lýðræðis og félags- legs jöfnuðar. Þannig að allir þegnar Islands, óháð kyni og þjóðfélagsstöðu, fái sem best tækifæri til að þroskast og menntast. Slík hreyfing byggir á þremur rótum: arfleifð sósí- alismans um rétt allra þegna — verkafólks sem atvinnurekenda — til alhliða þroska mannlegra hæfileika (leiðir sósíalista að þessu marki verður þó að endurskoða), framlagi kvennahreyfingar um nauðsyn jafiiréttisbar- áttu kvenna og rökum umhverfissinna urn haldbæra efnahagsþróun sem ekki teflir auð- lindum jarðar og lífi komandi kynslóða í tví- sýnu. Breyttar forsendur Margvíslegar þjóðfélagsbreytingar hafa átt sér stað hér á landi og erlendis á liðnum árum og áratugum sem kallað hafa á nýjar pólitískar lausnir. Þessi framvinda hefur í mörgum til- vikum veikt stöðu vinstrihreyfingar, en hún felur einnig í sér ný sóknarfæri. Fall Berlínarmúrsins, sem markaði endalok kalda stríðsins, vék til hliðar pólitískum á- greiningi varðandi Austur-Evrópulönd sem klofið hefur vinstrihreyfinguna allt frá rúss- nesku byltingunni 1917. Samfara þessu varð hugmyndafræðileg breyting. Sósíalísk mark- mið og lausnir, eins og t.d. að takmarka at- vinnuleysi með öllum tiltækum ráðum og grípa til félagslegra lausna, var kastað fyrir róða og önnur markmið eins og að berjast gegn verðbólgu fengu forgang stjómvalda. Einkavæðing og niðurskurður ríkisútgjalda fengu jafnffamt vaxandi stuðning þar sem enginn annar valkostur virðist vera til staðar. Smáflokkaflóran á vinstri væng íslenskra stjórnmála angrar marga, dregur úr áhuga á stjómmálum og veldur vonleysi. Engum hef- ur tekist að safha liðinu saman í þjóðmálabar- áttunni og kosningum til Alþingis. Berlega kom ffam í alþingiskosningunum í vor að draumar einstakra flokka um að sópa til sín fylgi em reistar á sandi. Af kosningunum má draga þann lærdóm að velgengni eins vinstri flokks er iðulega á kostnað annarra vinstri framboða. Skýrasta dæmi þess er ffamboð Þjóðvaka sem sótti fylgi sitt einkum til Al- þýðubandalags, Alþýðuflokks og Kvennalista, auk þess sem það stuðlaði að því að atkvæði þúsunda vinstrimanna féllu dauð um land allt. I slíkri stöðu era tveir valkostir til staðar: óbreytt ástand eða samvinna vinstrimanna í einhverri mynd. Framboð og starf R-listans sýnir að vinstrimenn geta unnið saman og aukið völd sín og áhrif. Þróun fjölmiðla og pólitískrar umræðu snertir vinstrihreyfinguna með ýmsu móti. A umliðnum áram hefur dregið mjög úr mildl- vægi flokksblaða og útbreiðsla þeirra er nú nijög takmörkuð. A sama' tíma hefur Morgun- blaðið losað tengslin við Sjálfstæðisflokkinn og aukið útbreiðslu sína, þannig að það berst Höfundur er doktor í vinnufélags- firæði ffá Lundarháskóla í Svíþjóð. Fjallaði doktorsritgerðin um þrótm prentiðnaðarins á Islandi og Sví- þjóð. Hann fæst við stundakennslu við Háskóla Islands og skrifaði bók- ina Prent eflir mennt í ritröðinni, Safh til iðnsögu Islendinga. Ingi Rúnar hefur undanfarin ár skrifað reglulega í blöð og tímarit um stjómmál. ■^^■■■■■■■■■■m nú inn á flest heimili landsins. Auk þess vegn- ar DV vel á íslenskum blaðamarkaði. Ljós- vakamiðlum, sem miðla borgaralegum gild- um, hefur einnig fjölgað á liðnum áram og ber þar mest á Stöð 2 og Bylgjunni. Borgara- leg öfl hafa einnig tögl og hagldir á íslenskum tímaritamarkaði. Alirif þessarar þróunar er sú að hugmyndaffæðileg áhrif vinstrimanna era nú óveraleg. I stað þess að móta pólitíska um- ræðu líkt og áður er staðan nú sú að stöku (- hjáróma) raddir vinsti a fólks heyrast endram og eins í fjölmiðlum þjóðarinnar. Umræður flokksblaðanna haldast í fámennum hópi og tekst sjaldan að vekja athygli almennings. Vandi velferðarkerfisins og þjóðríkisins á mikinn þátt í tilvistarvanda vinstrimanna. Vistkreppa og efnahagsþrengingar hafa víða dregið úr hagvexti á Vesturlöndum þannig að erfitt hefur reynst að fjármagna velferðarkerf- ið í anda jafhaðarstefnunnar. Því hefur víða verið gripið til niðurskurðar ríkisútgjalda og fyFÍrmyndarlönd jafnaðarstefnunnar — Sví- þjóð og fleiri lönd — hafa jafnvel gengið harðast fram í niðurskurði. Margar af lausn- um vinstrimanna hafa auk þess verið bundnar við þjóðríkið, þ.e. gripið hefur verið til geng- isfellingar og skattlagningar til að leysa inn- lendan efhahagsvanda. Það reynist nú æ erfið- ara vegna alþjóðavæðingar atvinnulífsins, þar sem fyrirtæki geta auðveldlega flutt starfsemi sína úr landi, og vegna alþjóðlegra samninga eins og EES og GATT. Margvíslegar breytingar í efhahagslífi hafa breytt stéttaskiptingu þjóðféíagsins. I stað hins hefðbundna iðnaðarsamfélags eða fisk- veiðisamfélags, þar sem verkamaðurinn hefur gegnt lykilhlutverki, telja margir fræðimenn og ffamámenn að þungamiðja efnahagslífsins sé ekki lengur fjármagn og vinna, heldur þekldng og upplýsingar. Aðrir hópar en verkamenn, t.d. þeir sem starfa við upplýsing- ar, rannsóknir, tölvur, ferðamennsku, kennslu og heilbrigðismál muni því hafa lykilþýðingu á næstu áratugum. Margir era ennfremur þeirrar skoðunar að Dagsbrúnarverkamaður- inn verði ekki burðarás 21.aldar líkt og hann var á fyrsta helmingi þessarar aldar. Þetta þýðir að fyrri bakhjarl vinstriflokkanna, verkafólkið, er á hröðu undanhaldi. Því kem- ur annað hvort til með að fekka í ffamtíðinni, eða fjölga mun hægar en öðram hópum launafólks. Vinstri hreyfingin hefur ennffem- ur sótt tákn sín og samsömun (identitet) til verkalýðsstéttarinnar. Nefni ég hér aðeins eitt kvæði Steins Steinars því til áréttingar en ótal dærni önnur væri unnt að tilgreina: Framhald á bls. 4

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.