Vikublaðið

Eksemplar

Vikublaðið - 15.12.1995, Side 6

Vikublaðið - 15.12.1995, Side 6
6 Vinstripólitíkin VIKUBLAÐIÐ 15. DESEMBER 1995 eftir Ögmund Jónasson þingmann Alþýðubandalagsins og óháðra ogformann BSRB Samræðan um samstarf félags- hyggjufólks er að mínu mati að kom- ast í góðan farveg. Málefhi og inni- hald setja í sífellt ríkari mæli svipmót á þessa umræðu og í ífamhaldinu er spurt hverjir eigi samleið til þess að vinna pólitískum markmiðum og hugsjónum brautargengi og á hvaða forsendum skuli reisa slíkt samstarf. Um nokkurra áratuga skeið hafa hugtökin hægri og vinstri þótt duga sæmilega sem skilgreiningartæki í pólitík bæði hér á landi og með grannþjóðum okkar og hefur þá ver- ið sett samasemmerki á milli vinstri stefhu og jafnaðar- eða félagshyggju annars vegar og hægri stefnu og markaðshyggju hins vegar. Þannig hafa vinstri menn starfað samkvæmt þeirri formúlu að félagslegur jöfnuð- ur sé jafnan settur í öndvegi, það höf- uðmarkmið sem stefha beri að. Fyrir þessu hafa þeir síðan fært efnahagsleg og siðferðileg rök. Hægri menn hafa á hinn bóginn talið að það komi samfélaginu í heild sinni best að láta markaðinn sem mest sjálffáðan og hafa gefið minna fyrir þann ójöfnuð sem skapast þegar stjómvöld takmarka gerðir sínar við það eitt að smyrja gangverk mark- aðslögmálanna. Látum ekki kjara- misrétti í þjóðfélaginu villa okkur sýn, sagði Hayek, einn helsti postuli hægri manna, það er ffjáls samkeppni sem hefur fært þjóðimar ffam á við. Vissulega ganga menn mislangt í því að fylgja þessum höfuðmarkmið- um ffam og á það að sjálfsögðu við bæði um vinstri vænginn og hægri. A félagshyggjuvængnum hafa menn um langt skeið verið sammála um að blandað hagkerfi sé eftirsókn- arvert, en áherslur hafa hins vegar verið ólíkar varðandi blönduna, sam- setningu einkareksturs og ríkisrekst- urs. Menn hafa þannig deilt um það að hvaða marki rétt sé að nýta hin margvíslegu skipulagsform samfé- lagsins, svo sem launakerfin, til að jafna kjörin með beinum hætti og svo einnig hitt að hvaða marki menn skuli nýta markaðslögmálin en síðan jafna kjörin eftir á með tilfærslum í gegnum skattakerfið. Þessi áherslu- munur hefur birst í ýmsum litbrigð- um hjá Alþýðubandalagi, Alþýðu- flokld, Framsóknarflokld og Kvenna- lista í áranna rás. Það sem sameinar Tvennt hefur þó til skamms tíma sameinað þessa flokka og að mínu mati réttlætt það að skírskota til þeirra sem félagshyggjuflokka. I fyrsta lagi er það sú grundvallaraf- staða að skipa jafnaðarsjónarmiðum í öndvegi og í öðru lagi er það afstað- an til velferðarþjónustunnar. Þar hafa flokkamir verið með þá afdráttar- lausu skoðun að hleypa markaðslög- málum hvergi nærri, einfaldlega vegna þess að slíkt væri til þess fallið að mismuna fólki - skapa félagslegt misrétti. Þama hefur semsé víglínan á milli hægri og vinstri stefnu legið. Hún hefur legið á milli þeirra sem vilja skilyrðislaust setja jöfnuð í öndvegi og standa vörð um velferðarþjónustu fyrir alla þegna þjóðfélagsins og svo hinna sem trúa á markaðinn og vilja nýta lögmál hans sem víðast í efna- hagslífinu, einnig innan velferðar- þjónustunnar, jafiivel þótt það leiði til félagslegrar mismtmunar. Á undanfömum áratugum hefur oft kastast í kekki á milli manna og flokka á félagshyggjuvæng stjómmál- anna. Annað veifið hafa Alþýðu- flokksmenn og Framsóknarmenn gengið til stjómarsamstarfs við Sjálf- stæðismenn og átök hafa oftsinnis orðið um pólitískar lausnir. Gagnvart velferðarþjónustunni hefur þó fyrst og fremst verið teldst á um það hve hratt skuli gengið í uppbyggingu vel- ferðar- og jafiiaðarsamfélags. Vaknað upp við vondan draum Hröð og markviss sókn til velferð- ar og jafnaðar hefur einkennt tækni- samfélög norðursins. Svo ákafar í uppbyggingunni hafa þjóðimar verið og svo bjartsýnar á framtíðina að slegin hafa verið lán á lán ofan þar til nú að menn vakna upp við þann vonda draum að halli á ríkissjóði er orðinn landlægur og aðkallandi úr- lausnarefni um allan heim. Með kreppu og samdrætti undangengins hálfs annars áratugar hefur þessi vandi ágerst og skapað keðjuverkandi vandamál með fjöldaatvinnuleysi sem svo aftur hefur reynst ávísun á enn ffekari útgjöld, skuldasöfnun og rík- issjóðshalla. Hægri menn hafa boðið upp á lausnir gagnvart þessum vanda og einkenndist m'undi áratugurinn af markvissum áróðri fyrir hægri lausn- um. Þessum áróðri var haldið mjög rækilega að íslendingum. Hingað til lands vom hugmyndafræðingar frjálshyggjunnar fluttir í stómm stíl. Hver man ekki eftir komu þeirra Hayeks, Buchanans, Friedmans og fleiri. Þær lausnir sem þessir menn buðu upp á gengu allar út á að efla markaðinn, gefa fyrirtækjunum aukið svigrúm með því að létta af þeim sköttum. Þegar til lengri tíma væri litið myndu fyrirtækin eflast, færa út kvíamar og bjóða upp á fleiri störf. Þessi stefna var á síðasta áratug oft kennd við Thatcher forsætisráðherra Bretlands og Reagan Bandaríkjafor- seta og var stundum talað um Reaga- nomics í þessu sambandi, eða Reag- an-hagfræði. Undir stjóm Reagans í Bandaríkjunum og Thatchers í Bret- landi var létt sköttum af fyrirtækjum og efriafólkd og gengið svo langt í því efni að tekjutapi ríldssjóðs var mætt með vaxandi ríkissjóðshalla og bull- andi lántökum sem síðan skrúfuðu upp vextina, ekki aðeins í Bandaríkj- unum þar sem stefnunni var fylgt fram af mestu offorsi, heldur víðs vegar um heiminn. Af hækkandi vöxtum höfðu tals- menn peningafrjálshyggjunnar ekki þungar áhyggjur. Þegar allt kæmi til alls væm vextir ekkert annað en verð á peningum. Peningar væm vara á markaði og ættu lögmál markaðarins, ffamboð og efitirspum, að sjálfsögðu að sjá um verðlagið á þeim vamingi eins og öðmm. Þetta var gjaman við- kvæðið og minnist ég þess hvemig talsmenn Vinnuveitendasambands- ins íslenska höfðu allt ffarn á síðustu ár á takteinum nákvæmlega þennan talsmáta þegar bankavexti bar á góma. ^ Hafnað var öllum samanteknum ráðum um að hafa afsldpti af efna- hagslífinu nema þeim einum sem beinlínis vom sniðin til þess að greiða fyrir opnari markaðsviðskiptum. Vinstri vængurinn var að sjálf- sögðu á öndverðum meiði. Þar á bæ vom bæði siðferðileg og efhahagsleg rök færð fyrir því að jafhaðarstefna væri happasælli í alla staði. í fyrsta lagi væri ekld boðlegt að bjóða þegn- unum upp á aukna missldptingu og félagslegan ójöfnuð sem markaðs- hyggjan Ieiddi af sér. Þá væri jöfnuð- ur beinlínis forsenda efriahagslegra ffamfara. Eftir því sem missldptingin ykist og þeim fjölgaði sem hefðu lítil efni - væri vísað á dyr í neyslusamfé- laginu - þeim mun meir drægi úr eft- irspum effir þjónustu og neysluvam- ingi, sem síðan leiddi til sámdráttar og auldns atvinntdeysis. Jafnaðar- þjóðfélagið væri aftur á móti kröff- ugra á alla lund, stuðlaði í senn að jafnvægi og leikgleði sem síðan leiddi til ffamfarasóknar. Þetta em kenningar og stefnur í allra grófustu dráttum. Lítum nú á vemleikann einsog hann hefur birst okkur hér á landi síðustu árin. Kveður við jafnaðartón Árið 1988 var mynduð ríldsstjóm félagshyggjuflokka undir forsæti Steingríms Hermannssonar. Bundu margir miklar vonir við hana. Á vor- dögum 1989 vom gerðir kjarasamn- ingar á vegum BSRB og ASI þar sem kvað við mjög ákveðinn jafhaðartón. Og í upphafi næsta árs vom svo enn gerðir samningar serh náðu til yfirT gnæfandi meirihluta launafólks. Svo víðtæk samstaða myndaðist um þessa samninga að þeir vom kenndir við þjóðarsátt. Að þeim stóð nær öll Iaunaþjóðin að háskólamönnum undanskildum, en það átti vissulega effir að draga dilk á eftir sér. Þjóðarsáttarsamningamir gengu í stuttu máli út á það að keyra niður verðbólgu sem þá var um 30% og komast út úr ferli óðaverðbógu og tíðra gengisfellinga. Á árinu 1989 einu hafði gengið verið fellt um 30% sem ætla má að hafi rýrt kaupmátt launa um 15 af hundraði. Ut úr þessu fari vildu menn ólmir komast og hefja sókn til bættra lífskjara. Menn vildu reisa launataxtann við og efla velferðarþjónustu landsmanna. Forsendu til að þetta gæti gengið eftir töldu menn vera allsherjar tiltekt urt með höft- in, niður með verðlagið og inn á markaðstorg Evrópu. Allt í þágu alþýðunn- ar. Alþýðuflokk- ur gat hann heit- ið - en jafnaðar- mannaflokkur hefur hann ekki verið undanfarin flögur ár. í þjóðfélaginu. Og menn hófust þeg- ar handa. Tekið var til við að laga landbúnað að vaxandi alþjóðlegri samkeppnisverslun með matvæli, þó þannig að kjör bænda yrðu varin eftir því sem kostur væri. Aðrir þættir efnahagslífsins vom einnig teknir til rækilegrar skoðunar: sjávarútvegur, iðnaður og verslun, hvemig væri hægt að stuðla að framgangi, vexti og uppbyggingu með markvissari menntastefhu og rannsóknum. Rætt var um samræmdar aðgerðir til að ná niður vöxtum og nýjar lausnir í hús- næðismálum vom í deiglumú. I stuttu máli er óhætt að segja að þjóðfélagið hafi allt verið að stilla sig saman í átaki til að lagfæra og hreinsa til hvar sem litið var. Og það sem meira er, þessi mnræða fór fram á forsendum jafnaðar- og félagshyggju. Hvemig væri unnt að ffamkvæma nauðsynlegar skipulagsbreytingar án þess að skapa atvinnuleysi eða félags- lega röskun, hvemig mætti bæta vel- ferðarþjónustu, reisa við lága kaup- taxta og hnika til í skattakerfi til að skapa öllum þegnum þessa lands vel- sæld. Þannig spurðu menn og á þess- um forsendum var leitað eftir svör- um. Bjartsýni og framfarasókn Ekki leikur nokkur vafi ’ á því að þetta jók félagshyggjumönnum bjart- sýni og í kosningunúm 1991 var það viðhorf almennt ríkjandi að auðnað- ist þessum flokkum að ná meirihluta- fylgi færi í hönd uppbyggilegt skeið þar sem félagshyggjuöflin myndu í sameiningu feta sig áffarn til sl$m- samlegra lausna á - ,efy^h^gsvanda þjóðarinnar og búa í haginn fyrir uppbyggingu og ffamfarir. Eg minnist þess að fólk til vinstri í stjómmálum ræddi það af fullri al- vöm að sameining felagshyggjunnar væri nú skammt undan, að þess væri ekki langt að bíða að hún yrði að veruleika. Kosningabandalag væri að fæðast. Þetta byggðist á þeirri sannfæringu að menn gætu gengið að því vísu að ffamhald yrði á stjómarsamstarfinu ef stjómarflokkamir næðu meiri- hluta. Kjósendur gætu hins vegar val- ið þær áherslur sem þeir vildu styrkja innan væntanlegrar ríldsstjómar með því að kjósa Alþýðubandalag, Al- þýðuflokk eða Framsóknarflokk eftir því hver pólitískur smekkur manna væri, hvaða áherslur þeir vildu styrkja innan stjómarinnar. Mörg okkar vom áhugasöm um að fá Kvennalist- ann einnig inn í þetta samstgrf. I umræðunni um, sameiningu vinstri manna var það ofarlega á baugi og viðkvæðið hjá okkur mörg- um sem vorum á þessum buxum að kjósendur flokkanna hefðu þegar sameinast, það væm bara forsvars- mennimir sem ættu eftir að fylgja straumnum. Ekld höfðum við áhyggjur af því að þessir flokkar gætu ekki komist að sameiginlegri niður- stöðu í erfiðum deilumálum því svo lengi sem menn hefðu svipuð h'fsgildi og hugsjónir þá myndu þeir ráða ffam úr erfiðum þrautum og vanda- málum og komast að samkomulagi - vandamálin væm til að leysa, þau væm einfaldlega tæknilegs eðlis, úr- lausnarefni, en ekld pólitískar hindr- anir. Ég veit með hverjum - en ekki hvert! Þessi afstaða minnir ufn margt á viðhorf margra ungra Alþýðubanda- lagsmanna um þessar mundir. „Eg veit með hverjum ég ætla að leggja upp í för þótt ég viti ekki nákvæmlega hvert förinni er heitið", sagði ungur maður á landsþingi Alþýðubanda- lagsins nýlega.

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.