Frjáls þjóð - 04.12.1953, Blaðsíða 4
Herskálabúar krefjast að-
gerða í húsnæðismákinum
FRjÁLS ÞIÓÐ
Föstudaginn 4. desember 1953.
Oröa belgur
Síðastliðinn sunnudag var
haldinn stofnfundur Samtaka
herskálabúa.
Fundurinn var haldinn í
Camp Knox. í stjórn félagsins
voru kosin: Frú Þórunn Magn-
úsdóttir formaður, búsett í
Camp Knox, Páll Helgason
varaformaður, Camp Knox. •—
Aðrir í stjórn: Anna Kerúlf,
Camp Knox, Jón Hjaltason,
Þóroddstaðakampi, Guðrún
Jónsdóttir, Selbykamp, Krist-
inn Gunnarsson, Camp Knox,
Jens Pálsson, Camp Knox.
Varastjórn: Ólafur Theódórs-
son, Laugarneskamp, Arnfríður
Jónatansdóttir, Camp Knox og
Hjalti Elíasson, Camp Knox.
Mikill áhugi ríkti á fundin-
um fyrir því að vinna að hag's-
munamálum þeirra, sem búa í
bröggum. Eftirfarandi ályktun
var einróma samþykkt sem
stefnuyfirlýsing samtakanna:
— fd' oc
áamnm^af
Viðtalstími kl. 5—7.
Fasteignasala
Sölvhólsgötu 14.
Sími 6916.
„Samtök herskálabúa líta á
það sem höfuðverkefni sitt, að
knýja á yfirvöld Reykjavíkur-
bæjar um byggingu mannsæm-
andi íbúða fyrir það fólk, sem
býr í hermannaskálum og að
braggahverfunum verði út-
rýmt innan tveggja til þriggja
ára.
Samtökunum er Ijóst, að á
meðan þessu marki er ekki náð,
er óhjákvæmilegt að Reykja-
víkurbær sjái um brýnasta við-
hald braggaíbúðanna. Samtök
herskálabúa heita á Leigjenda-
félag Reykjavíkur, B.K.R.,
Fegrunarfélag Reykjavíkur og
verkalýðsfélögin til samstarfs
um þetta mál. Samtökin eru
reiðubúin til samvinnu við
bæjaryfirvöldin og hverja þá
aðila, sem vilja vinna að lausn
húsnæðisvandamálanna og út-
rýmingu braggahverfanna.“
Leiðrétting.
í síðasta blaði var sagt, að
Bjarni Benediktsson hefði skip-
að Sigurgeir Jónsson, tengda-
son Kjartans Thors, fulltrúa í
dómsmálaráðuneytinu, en það
var Finnur Jónsson, er var
dómsmálaráðherra undir for-
sæti Ólafs Thors, sem skipaði
hann.
Œ
□
m
Menningarsaga
Agústs H. Bjarnasonar,
SAGA MANNSANDANS,
er áreiðanlega ein merkasta bókin, sem nú er á ís-
lenzkum bókamarkaði, ánægjulegt rit til lestrar, og
eignar, og einstætt í bókmenntum okkar.
Róm í heiðnum og
kristnum sið
er 4. bindi sögunnar; það er nýkomið út.
Útgáfunni verður lokið að ári með útgáfu 5. bindisins.
Dr. Matthías Jónasson segir í ritdómi:
Höfundur „réðist í það stórvirki að opna augu ís-
lendinga fyrir stórkostlegri þróun, baráttu, tvísýni og
sigrum mannsandans. Það gerðist án skrums og aug-
lýsinga. í ljósri, rólegri frásögn lýsti próf. Ágúst
framsókn mannsandans, baráttu vaknandi og vax-
andi þekkingar við rammt og hefðgróið íhald. Með
kyndli árþúsunda gamallar vizku lýsti hann inn í
leyndustu fylgsni nútíma kreddna, tók okkur unga
sveina, við hönd sér og sýndi okkur tilveruna frá
nýjum og æðri sjónarhól. Saga mannsandans, eins og
próf. Ágúst sagði okkur hana braut af hugsun okkar
margan fjötur og beindi geisla þekkingar inn í það
rökkur, sem við afdalabörn á hjara veraldar vorum
borin í“.
List og fegurð
eftir Símon Jóh. Ágústsson prófessor, er annað rit
nú rétt nýkomið út.
Það er tímabær greinargerð um list og hið eilífa
gildi hennar og þýðingu ofan við dægurþras og tízku-
dóma. — Nauðsynleg bók, fyrir þá, sem vilja átta sig
í umræðum síðustu ára um hefðbundna list og hinar
nýrri stefnur í skáldskap og myndgerð, sem mjög hef-
ur verið deilt um hér á landi.
♦
Herra Jón Arason
Bók Guðbrands Jónssonar er höfuðritið um hinn
svipmikla þjóðskörung, en ævisaga hans á skilið að
vera til í hverju einasta heimilisbókasafni við hliðina
á bókinni um Jón Sigurðsson.
Hlaðbúð
Er samvhmustefnan ekki
að taka stakkaskiptum ?
Á undanförnum árum hefur mörgum þótt sem forsvarsmenn
samvinnuhreyfingarinnar íslenzku væru að halda inn á nokkuð
viðsjárverðar brautir og hneigð til gróðrabralls einkenndi marg-
ar gerðir þeirra meira en sú samhjálp og almenningsþjónusta,
sem á að vera kjarni samvinnustefnunnar. Átakanlegan vitnis-
burð um þessa ískyggilega stefnubreytingu gat að líta í Lög-
birtingablaðinu nýlega. Þar birtust í sama tölublaði svolátandi
tilkynningar um hlutafélög, sem þó eru kennd við samvinnu-
hreyfinguna, en fleira af þessu tagi hafði birzt þar skömmu áður:
A almennum hluthafafundi í
íslendingasagnaútgáfunni h.f.
17. október 1952 var breytt á-
kvæðum samþykkta félagsins
um greiningu hlutafjár í hluti
og atkvæðisrétt með hverjum
hlut. Hlutaféð greinist nú í
hluti að fjárhæð kr. 1000.00 og
kr. 100.00, og fylgir eitt atkvæði
hverjum hlut. Enn fremur hef-
ur félaginu verið kosin ný stjórn
og eiga sæti í henni þessir
menn: Vilhjálmur Þór, Hofs-
vallagötu 1, formaður, Helgi
Pétursson, Smáragötu 11, vara-
formaður, Helgi Þorsteinsson,
Háteigsvegi 32, meðstjórnandi,
Albert J. Finnbogason, Sigtúni
41, varastjórnandi. Á stjórnar-
fundi íslendingasagnaútgáfunn-
ar h.f. 17. október 1952 var
samþykkt að veita Albert J.
Finnbogasyni, Sigtúni 41, Rvík,
prókúruumboð fyrir félagið.
Firmað ritar prókúruhafinn
þannig:
pr. pr. íslendingasagnaút-
gáfan h.f.
Albert J. Finnbogason.
Jafnframt samþykkti stjórnin
að afturkalla prókúruumboð
það, sem Gunnar Steindórsson,
Laugateigi 14, Reykjavík, hef-
ur haft fyrir félagið.
Reykjavík, 13. sept. 1953.
Vilhjálmur Þór.
Helgi Pétursson.
H. Þorsteinsson.
Á aðalfundi Jötuns h.f. 21.
apríl 1952, var breytt ákvæð-
um samþykkta félagsins um
greiningu hlutafjár í hluti og
atkvæðisrétt hluthafa með
hverjum hlut. Hlutafé félagsins
kr. 450 000.00 skiptist nú í hluti,
að fjárhæð kr. 5 000.00, kr. j
100.00, og fylgir eitt atkvæði|
hverjum 100 króna hlut. Á
nefndum aðalfundi voru eftir-
taldir menn kjörnir í stjórn fé-
lagsins: Formaður: Vilhjálmur
Þór, forstjóri, Hofsvallagötu 1,
Rvík. Meðstjórnendur: Helgi
Pétursson, framkvæmdastjóri,
Smáragötu 11, Reykjavík, og
Helgi Þorsteinsson, framkv.stj.,
Háteigsvegi 32, Rvík. — Pró-
kúruumboð það, sem Gunnar
Tómasson, verkfræðingur, hafði
fyrir félagið hefur verið aftur-
kallað frá 1. júlí 1950 að telja.
Reykjavík, 13. sept. 1953.
Stjórn Jötuns h.f.
Vilhjálmur Þór.
Helgi Pétursson.
H. Þorsteinsson.
Á aðalfundi Dráttarvéla h.f.
11. maí s.l. voru eftirtaldir
menn kosnir í stjórn félagsins:
Formaður: Vilhjálmur Þór, for-
stjóri, Hofsvallagötu 1, Reykja-
vík, varaformaður: Helgi Þor-
j steinsson, framkvæmdastjóri,
I Háteigsvegi 32, Rvík, ritari:
Helgi Pétursson, framkv.stjóri,
Smáragötu 11, Reykjavík.
Reykjavík, 13. sept. 1953.
Stjórn Dráttarvéla h.f.
Vilhjálmur Þór.
Helgi Pétursson.
H. Þorsteinsson.
Á aðalfundi Kirkjusands h.f.,
sem haldinn var 21. apríl 1952,
var breytt ákvæðum sam-
þykkta félagsins um hlutaféð
og greiningu þess í hluti. —
Hlutafé félagsins, kr. 708 700.00
greinist nú í hluti að fjárhæð
kr. 5 000.00, kr. 1 000.00, kr.
500.00 og kr. 100.00. Hlutaféð
er að fullu innborgað.
Reykjavík 16. sept. 1953.
Stjórn Kirkjusands h.f.
Vilhjálmur Þór.
Helgi Pétursson.
H. Þorsteinsson.
Svo hljóða tilkynningarnar í
síðasta Lögbirtingablaði. Þær
tala sínu máli p það, hvaða
stakkaskiptum íslenzk sarn-
vinnustefna er að taka, og það
mun ekki heldur fara fram hjá
fólki, að sömu mennirnir hafa
alls staðar öll ráð í hendi sér.
Hernámið —
Framh. af 1. síðu.
aukatekið orð um utanríkis-
málastefnuna, nema í útvarps-
umræðunum, sem þjóðvarnar-
menn knúðu fram með ítrek-
uðum kröfum. Enda þótt tillaga
Alþýðuflokksins hafi tvisvar
verið á dagskrá, hafa þingmenn
Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins ekki sagt stakt
orð, og mun einsdæmi um
stjórnarflokka í umræðum um
utanríkismál. Þeir álíta sýni-
lega, að þögnin hæfi sér bezt.
Bæjarstjórnarkosningar --
Framh. af 1. síðu.
ekki orðið þau, að takast megi
að binda endi á ráðsmennsku
Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjórn Reykjavíkur, án þess að
á komist samvinna með hinum
flokkunum, slík sem hér hefur
verið reifuð. Það væri þess
vegna bein tilraun til þess að
tryggja Sjálfstæðisflokknum á-
framhaldandi völd í bæjarmál-
efnum Reykjavíkur, ef það er
látið hjá líða að koma þessum
samtökum á á víðtækum grund-
velli.,
DR. JURIS
Hafþór Guðmundsson
málflutningsskrifstofa og
lögfræðileg aðstoð.
Laugavegi 27. — Sími 7601.
SIME verði SWFE
i Þá veit maður það, eftir
greinagóða leiðréttingu í Tím-
anum, að starfsemi Framsóknar-
flokksins i Eyjafirði heyrir beint
undir samband nautgripaf"lag-
anna í sýslunni, sem hlýtur lika
að vera einkar hagkvæmt. A
meðan ráðunautur sambandsins
var í Framsóknarflokknum,
þurfti enginn árekstur að verða
i starfi, en öðru máli gegnir,
þegar ráðunauturinn dirfist að
misskilja svo stöðu sina að ganga
í annan stjórnmálaflokk og læt-
ur sín gæta þar, ekki einu sinni
(sem frambjóðandi í þriðja sæti
á lista Þjóðvarnarflokks íslands
i Eyjafirði), lieldur jafnvel tvisv-
ar (í síðara skiptið sem ábyrgð-
armaður blaðs flokksins, Norð-
anfara, er komið hefur út tvisvar
á einu misseri). Er nokkur furða,
að stjórnendum sambandsins þyki
þá, að „störf hans og áhugamál
Iigfi að undanförnu í vaxandi
mæli beinzt til annarra og ó-
skyldra viðfangsefna, er dragi
það mikið úr starfsgetu hans i
þágu starfsins fyrir SNE“, að
þeir „telji nauðsynlegt að fá ann-
an mann í hans stað, sem geti
óskiptur gefið sig við þvi starfi“.
Þetta er ekki láandi og miklu
fremur annálsvert langlundar-
geð stjórnendanna að reka ekki
ráðunautinn fyrirvaralaust frá
starfi, jafnskjótt sem þeir vissu,
hvert hann stefndi.
En væri ekki vissara, áður en
starfið er auglýst á ný, að breyta
lítið eitt skammstöfuninni á heiti
sambandsins, sem er ekki rétt
vel heppileg. Bæði getur hún leitt
til þess, að ruglað verði sarcan
sambandinu og Sameinuðu þjóð-
unum, og hins, sem meira máli
skiptir, að hún kann að villa um,
hvert sé raunverulegt verksvið
þessara samtaka. Rétt skamm-
stöfun samkvæmt eðli sambands-
ins og tilgangi er auðsjáanlega
SNFE (þ. e. Samband nautgripa
og framsóknarmanna í Eyja-
firði).
IMýr varnarsamningur?
★ Eins og kunnugt er,
verja Bandarikjamenn tugum
milljóna dollara til að halda uppi
her á íslandi — til verndar þjóð-
inni, eftir þvi sem hernámsflokk-
arnir kenna. Sýnt hefur þó verið
fram á með Ijósum rökum, nú
síðast i ræðu Jóhanns Sæmunds-
sonar prófessors, að herbúnaður
þessi er svo langt frá því að
vera þjóðinni nokkur vörn, að
hann kallar beinlínis yfir hana
geigvænlega hættu þegar í byrj-
un ófriðar (sbr. árásina á Pearl
Harbor) og er þá a. m. k. 80.000
landsmanna vís voði búinn af
einu kjarnorkuskoti.
★★ Nú hafa Bandaríkja-
menn tilkynnt, að þeim sé um
megn af fjárhagsástæðum að
halda úti þremur veðurathugun-
árskipum í norðanverðu Atlauts-
hafi til móts við Evrópuþjóðir
og muni þvi leggja niður bá út-
gerð. íslenzka veðurstofan hefur
gert kunnugt, að af þessari á-
kvörðun hljótist sú truflun á veð-
urþjónustunni, að íslendingum,
og þá sérstaklega islenzkum sjó-
mönnum, sé búin stórhætta af,
þar sem óveðrin muni nú skella á
liér við land öllum að óvörum.
Hvernig væri, að ríkis-
stjórnin gerði nú nýjan varnar-
samning við Bandarikin, heim-
ilaði þeim að hverfa á brott af
landinu og leysti þá þar ineð
undan þeirri kvöð að búa Is-
lendingum visa tortimingu með
hinum kostnaðarsama vígbúnaði
hér, en í staðinn kæmi, að Banda-
ríkin legðu hluta af herkostnað-
inum, er sparaðist, til að gera
út veðurathugunarskipin á At-
lantshafi, íslenzkum sjómönnum
og öðrum sjófarendum til örygg-
is?
Sauðfjárræktarfélög rísa
upp á fjárskiptasvæðunum
f þeim héruðum landsins, þar
sem fjárskipti hafa nýlega far-
ið fram og ef til vill víðar, er
víða búið að stofna sauðfjár-
ræktarfélög eða verið að vinna
að því. Er mikill hugur í bænd-
um að kynbæta hinn nýja fjár-
stofn og gera hann sem afurða -
mestan. Mun nú í sumum sýsl-
um komið sauðfjárræktunarfé-
lag í svo til hverjum hreppi.
Talar það skýru máli um áhuga
bænda.
Framtíð landbúnaðarins er nú
mjög undir því komin, hvernig
tekst til um sauðfjárræktina
og markað fyrir sauðfjár-
afurðir. Munu bændur einskis
láta ófreistað, er í þeirra valdi
er. En hér þarf farsælt starf
fleiri aðila, og skiptir þá höfuð-
máli, hvort tekst að vinna er-
lendan markað fyrir dilkakjöt,
því að sýnt er, að innlendur
markaður mun skjótlega yfir-
fyllast, ef ekki tekst sala úr
landi. Að því máli þarf því að
vinna af árvekni og festu.
Höfum apnaö
l íibií á Melhaga 2
Simi 82936
Á boðstólum verða allar fáanlegar KJÖTVÖRUR,
ÁSKURÐUR, SALÖT OG NIÐURSUÐUVÖRUR
Allt kapp lagt á góða þjónustu við viðskiptamennina.
REYNIÐ VIÐSKIPTIN!
Virðingarfyllst,
(Hreggviður Magnússon)
SNORRABRAUT 56, símar 2853 og 80253.
NESVEG 33, sími 82653.
MELHAGA 2, sími 82936.
I