Frjáls þjóð - 08.01.1954, Qupperneq 1
3. árg.
Föstudaginn 8. janúar 1954
1. tbl.
Það, sem allir íhaldsandstæðingar verða a5 gera sér Ijóst:
ÍSLANDS
Þjóðvarnarflokkur-
inn fjárþurfi
Þjóðvarnarflokkur íslands
er snauður að fjármunum,
þótt hann hafi á hinn bóginn
á að skipa góðum liðskosti
fórnfúss og áhugasams fólks.
En kosningar verða ekki háð-
ar án talsverðra peningaút-
láta, og þess vegna snýr
FRJÁLS ÞJÓÐ sér til al-
mennings með beiðni um
fjárframlög til kosningasjóðs
flokksins.
Blaðinu er að vísu full-
ljóst, að borrinn af fylgis-
mönnum f lokksins muni ekki
hafa mikið fé aflögu, þegar
uppfylltar hafa verið þær
daglegar þarfir, sem brýn-
astar eru, en veit hins vegar,
að góður vilji og fórnfýsi
orkar miklu. Þess vegna
treystir það því, að svo marg-
ir verði við þessum tilrnæl-
um, er fram koma af brýnni
nauðsyn, að nauðsynlegasta
kosningaundirbúningi þurfi
ekki að verða áfátt vegna
fjárskorts.
Það cr mjög mikilsvert,
að fljótt verði við brugðið,
og sem flestir leggi fram
þann skerf, er fjárhagsgeta
þeirra leyfir. Framlögum
má koma til skrifstofunnar,
sem komið hefur verið upp
vegna kosninganna að Skóla-
vörðustíg 17, eða afgreiðslu
blaðsins á sama stað.
Baráttan stendur um Gils
Guðmundsson og Jóhann Hafstem
Alþýðublaðið, Þjóðviljinn og jafnvel Tíminn reyna
nú af öllum mætti að telja mönnum trú um, að flokkar
þeirra hvers um sig séu næstir því að fella áttunda
mann íhaldsins í væntanlegum bæjarstjórnarkosning-
um. Heilskyggnir kjósendur munu þó ekki láta glepjast
af þessum áróðri. Þeir vita, að upplausn hefur gripio
um sig í öllum þessum gömlu flokkum. Nú líður ékki
svo vika, að þeim berist ekki fleiri eða færri úrsagnir,
og er Þjóðvarnarflokknum bezt kunnugt um, hvert
straumurmn liggur.
Neðanmálsgreinin
í dag birtist neðanmáls á
annarri og þriðju síðu blaðsins
viðtal við Unnstein Stefánsson
efnaverkfræðing um sjórann-
Unnsteinn Stcfánsson.
sóknir, en hann vinnur nú að
þeim norðanlands og hefur að-
setur á Siglufirði. Sjórannsóknir
geta haft hina mikilvægustu
þýðingu fyrir sjávarútvegiiv.i,
og er því að líkup}, að fqlk
vilji fylgjast jneð því, sem vís-
incjamenp okkar á því sviði
hafa með höndum.
Þeir menn, sem bundu vonir
við stjórnarskiptin í Alþýðu-
flokknum, hafa nú fengið
reynslu af „byltingunni“, og
síðustu vikur hefur borið æ
meira á fráhvarfi manna frá Al-
þýðuflokknum. Allir vita svo
um tap Framsóknar, enda má
heita, að forystumennirnir séu
ærðir af ótta. í þingkosningun-
um í sumar tapaði Sósíalista-
flokkurinn fjórðungi atkvæða-
magns síns í Reykjavík og hef-
ur síðan orðið fyrir mörgum og
stórum áföllum, nú síðast er
Áki Jakobsson, fyrrverandi ráð-
herra, sagði sig úr flokknum.
Verða nú kommúnistar í fyrsta
sinn að heyja kosningar að ný-
afstöðnum stórfelldum ósigri
— og hrunið heldur áfram.
Ekki sigurvænleg
framboð.
Ekki eru horfurnar sigur-
stranglegri, ef litið er á skipun
manna á listum þessara flokka.
Alþýðuflokkurinn auglýsir von-
leysi sitt um að vinna nýtt sæti
með því að setja þekktasta
frambjóðandann í annað sæti,
en lítt kunnan mann í þriðja.
Hjá Sósíalistaflokknum hafa
orðið þau umskipti, að Guð-
mundur Vigfússon hefur setzt í
sæti Sigfúsar Sigurhjartarson-
ar sem forustumaður listans, og
mundi margur mæla, að þar
væri köttur í bóli bjarnar. Hef-
ur það og hvarvetna mælzt illa
fyrir í bænum, að flokkurinn,
sem vill teljast verkalýðsflokk-
ur, býður ekki upp á neinn
mann úr verkalýðsstétt í fjór
um efstu sætum listans, en
skipar þau aftur á móti kontór-
liði Þjóðviljans og réttlínu-
mönnum, og munu fáir telja
það einvalalið í bæjarstjórn.
Framsóknarflokkurinn reyndi
vikum saman að fá líklegan
mann í annað saeti lista síps, en
varð að lokum að sætta sig við
þg ráðstöfun að skipa það rit-
stjóra sínum.
Sigurvilji og sigurvissa
Þjóðvarnarflokks íslands.
En hvað er þá að segja um
Þjóðvarnarflokk íslands? Það
fyrst, að við síðustu þingkosn-
ingar átti hann þegar því fylgi
að fagna með þjóðinni, sem öll-
um kom á óvart. Var flokkur-
inn þó að heita mátti skipulags-
laus með öllu, óþekktur og átti
við óhjákvæmilega byrjunar
örðugleika að stríða.
En eftir kosningar hefur
verið unnið að skipulagi
flokksins og félög verið
stofnuð. Fjöldi manna geng-
ur því nú í fyrsta sinn fram
til skipulegrar baráttu fyrir
kosningasigri flokksins, og
flokknum berst daglega liðs-
auki frá gömlu flokkunum.
Og allur sá fjöldi manna,
sem greiddi ekki hinum nýja
flokki atkvæði við síðustu
kosningar af ótta við að kasta
atkvæði sínu á glæ, mun nú
óhikað veita flokknum lið.
Hin óvæntu úrslit í stúdenta-
ráðskosningunum og stórsig-
ur þjóðvarnarmanna þar, er
ÍWWWWAVVW
þeir veltu íhaldinu frá völd-
■ um, hefur og orðið mikil
uppörvun fyrir alla fylgis-
menn flokksins. Þá veitir það
þjóðvarnarmönnum ekki sízt
stóraúkinn styrk, að í öðru
sæti listans er : Gils Gúð-
mundsson alþingismaður, og
er óþarft að fjölyrða um
það, hversu tójög það eýk-
ur á sigurhorfur listans,
enda sýnir flokkurinn méð
engu betur sigurvilja sinn.
Aðeins Þjóðvarnarflokkur
íslands getur fellt íhaldið.
Samkvæmt úrslitum kosning-
anna á síðast liðnu sumri fóru
til ónýtis, miðað við bæjar-
stjórnarkosningar, hjá flokkun-
um þremur, Alþýðuflokki,
Framsóknarflokki og Sósíal-
istaflokki, samtals 3100 at-
kvæði. Þannig hafði Alþýðu-
flokkurinn um 1200 atkvæði
fram yfir sín tvö sæti, Fram-
4. síða
Ósóttir vinningar
Þriggja vinninga í happdrætti
Þjóðvarnarflokks íslands, er
dregið var í ágústmánuði í
sumar, hefur ekki verið vitjað.
Þetta eru 134797, vörur fyrir
1000 krónur hjá klæðaverzlun
Andrésar Andréssonar, 35497,
vörur fyrir 1000 krónur hjá
Fálkanum, og 29638, vörur fyr
ir 250 krónur hjá Remedíu.
Þeir, sem kynnu að eiga þessa
vinningsmiða, eru vinsamlega
beðnir að framvísa þeim svo
fljótt, sem þeir fá við komið.
Þjóðvamarmenn krefjast
sparnaðar og heiðarleika
Það mun varla finnast sá
bæjarbúi, sem ekki hefur
eitthvert hugboð um það, að
meðferð bæjarstjórnarmeiri-
hlutans á fjármunum þeim,
sem borgararnir greiða í
sameiginlegan sjóð sinn,
muni vera áfátt í ýmsum
greinum. Hinu munu fæstir
gera sér grein fyrir, hversu
gegndarlaus fjáraustur á sér
stað, og hversu lítið í það er
horft, þótt á bæinn leggist
miklu meiri tilkostnaður en
þörf er á, ef réttir aðilar
hagnast persónulega á þeirri
ráðsmennsku.
Þessu til sönnunar má
benda á innkaupastofnun
bæjarins, sem áður hefur
verið vikið að hér í blaðinu,
og er undir stjórn eins heild-
sala, sem er í náðinni, og í
samlögum við fyrirtæki hans
um skrifstofuhúsnæði og
fleiri hluti, eins og þá var
rakið. Svo sýnist sem þessi
stofnun ætti því aðeins rétt
á sér, að hún kæmist að betri
kaupum á því, sem bærinn
og bæjarstofnanir þurfa á að
halda, en hitt er þó hægt að
sýna með skýrum dæmum,
að bessi stofnun beinlínis
ráðstafar viðskiptum í sam-
ræmi við það, hverja hún vill
láta græða á bænum, og lít-
ur ekki við hagfelldari kjör-
um, þótt boðin séu, ef það
dregur spón úr aski þeirra,
sem hafa velvildina. Mætti
láta sig gruna, að innflytj-
andinn, sem veitir stofnun-
inni forstöðu í samlögum við
einkafyrirtæki sitt, bæri þar
ekki skarðan hlut frá borði.
Kunnugt er það einnig, er
Reykjavíkurbær var látinn
kaupa af öðrum vildarvini
bæ j ar st j órnarmeirihlutans
húsið Vesturgötu 9, á 950
þúsundir króna, — gamlan
timburhjall, sem stendur
fram í götuna og verður .að
hverfa innan tíðar, ef ekki á
beinlínis að viðhalda þar
slysahættu, — að því er séð
verður einvörðungu til þess
að tryggja eiganda gróða, er
nam hundruðum þúsunda, af
þessum gamla húshjalli.
Þá er ekki sízt ofboðslegt,
hversu kostnaður við ýfir-
stjórn bæjarmálanna og bæj-
arskrifstofurnar eykst ár frá
ári. Á reikningi Reykjavík
urbæjar árið 1952 nema þess-
ir tveir liðir orðið nær hálfri
áttundu miUjón króna, og er
þó ekki þar talinn kostnaður
við aðrar skrifstofur en skrif
stofu borgarstjóra, bæjar-
verkfræðings, húsameistara,
byggingarfulltrúa og mann-
talsdeildar. Er þá ótalinn
ýms annar skrifstofukostn-
aður bæjarins sjálfs og allra
bæjarstofnana, svo sem raf-
veitu, hitaveitu, vatnsveitu,
strætisvagna, innkaupastofn-
unar og bæjarútgerðar, er
nemur að minnsta kosti 3—4
milljónum króna.
Af þessum tölum má
marka að kostnaður við yfir-
stjóm bæjarmálanna og
sjálfar skrifstofurnar er í-
skyggilega mikill hluti alls
þess, sem bærinn hefur til J
ráðstöfunar og miklu stærri
hluti en viðunandi er. Af
þessum geigvænlegu tölum
verður ekki dregin önnur á-
lyktun en sú, að liér fari all-
mikið í súginn og lausatök
hljóti að vera um varðveizlu
fjármuna bæjarins.
í bæjarmálum sem og
landsmálum er það eitt af
höfuðbaráttumálum Þjóð-
varnarflokksins að koma á
hófsemi og sparnaði um þatí’
útgjöld, sem ekki fara til
arðbærra hluta, svo að létta
megi álögurnar eða meira
verði afgangs til fram-
kvæmda og viðreisnar. Og
umfram allt krefst Þjóð-
varnarflokkurinn fullkom-
ins heiðarleika um meðfcið
almannafjár og jafnréttis til
handa öllum, er við bæinn
skipta, hvar sem þéir eiga
heima og hvaða skoðanir sem
þeir hafa. Vegna þess eins
eiga fulltrúar þjóðvarnar-
manna fullt erindi í bæjar-
stjórnina.
sandi hafinn
Sambandið látið gera
manna á íslandi
á hollenzku vatni og
með erlendum
herstöðvagerð Bandaríkja-
sér að gróðavegi
Á undanförnum árum hefur mörgum ofboðið það,
hvað flutt er til landsins af margs konar varningi, sem
óll skynsamleg rök mæltu með að unninn væn heima
fynr. En einmitt þessa dagana er að hefjast innflutn-
ingur, sem yfirgengur allt, er áður hefur þekkzt. Næstu
vikur mun sem sé koma hingað til lands skip eftir skip,
hlaðið steinsteypuveggjum og gólfplötum úr steypu.
Það er með öðrum orðum í uppsiglingu innflutningur á
vatni og sandi frá Hollandi.
Þessi furðulega innflutnings-
vara á að fara í fyrirhugaðar
bækistöðvar Bandaríkjahers á
Stokksnesi og Heiðarfjalli á
Langanesi, og það er Samband
íslenzkra samvinnufélaga, sem
hefur meðalgöngu um þennan|
innflutning frá Hollandi. I
Erlend skip
í flutningunum.
Fyrsta skipið, sem mun
vera danskt, kemur einmitt
þessa dagana til Hornaf jarð-
ar með fyrsta farminn til
Stokksnesstöðvarinnar. Sið-
an munu fleiri erlend skip,
flest dönsk, koma hvert af
öðru, en þó ráðgert, að Dís-
arfellið verði látið fara eina
ferð eða svo. Erlendu skipin
eru leiguskip á vegum S.t.S.,
sem væntanlega fær nokkurn
ágóða af þessum flutningum,
en þegar siglingar hefjast tíl
Langanesstöðvarinnar, sem
ekki verður langt að bíða,
getur komið til greina, að
eitthvað meira af íslenzkum
skipum verði í þessum sand-
og vatnsflutningum frá Hol-
landi.
Til fyrirhugaðrar herbæki-
stöðvar í Aðalvík múnu að-
flutningar ekki byrja fyrst um
sinn.
150 manns
fyrst í stað.
Á Stokksnesi og Heiðarfjalli
verða reist fyrst í stað ellefu
hús á hvorum stað. Þau verða
nokkuð mismunandi stór, öll
ein hæð, en hin stærstu um
þúsund fermetrar að gólffleti
eða tífalt stærri en rúmgóð í-
Framh. á 3. siðu.