Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 08.01.1954, Page 3

Frjáls þjóð - 08.01.1954, Page 3
Föstudaginn 8. janúar 1954 FRJÁLS þjóð 3 WWVVnnnMVVVUWAMMVUWUWVWUWVVAMVUWi QL&L' eóiiecft nýár / j-^öll pyrir viÁiLiptin á td, na arina Bókabúð Lárusar Blöndal. WWtfWWWWVWVSAWWWyVVWtfV^V\WVWWWVW QL&L^t nýár ! ftölh fhyrir uihiliptin á (iÁna árinu ' \ ' Bókabúð Braga Brynjólfssonar. AWAWrtAWWVWWUWVWWVWWWWVVWWWWWW l / QL&Lfi nýár! jPöhh pyrir vi&ihiptin á (i&na ár Agnar Norðfjörð & Co. h.f. "Irtn^VWAJVWW^Í'U’WWWUWWWVWVWWUWVWWW^ AUGLÝSING nr. 2/1954 frá Innflutningsskrifstofunni Samkvæmt heimild í 22. gr. reglugerðar frá 28. desem- ber 1953 um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála, fjár- festingarmála o. fl. hefur verið ákveðið að úthluta skuli nýjum skömmtunarseðlum er gildi frá 1. janúar til og mcð 31. marz 1954. Nefnist hann „FYRSTI SKÖMMTUNAR- SEÐELL 1954“, prentaður á hvítan pappír með brúnum og grænum lit. Gildir hann samkvæmt því, sem hér segir: REITIRNIR: Smjörlíki 1—5 (báðir meðtaldir) gildi fyrir 500 grönnum af smjörlíki, hver reitur. REITIRNIR: SMJÖR gildi hvor um sig fyrir 500 grönnum af smjöri (einnig bögglasmjöri). Verðið á bögglasmjöri er greitt niður jafnt og mjólkur- og rjómabússmjör, eins og verið hefur. „FYRSTI SKÖMMTUNARSEÐILL 1954“ afhendist að- eins gegn því að úthlutunarstjóra sé samtímis skilað stofni af „FJÓRÐI SKÖMMTUNARSEÐILL 1953“ með árituðu nafni og heimilisfangi, svo og fæðingardegi og ári, eins og form hans segir til um. Reykjavík, 2. janúar 1954 Innflutningsskrifstofau Er það í anda sam- vinnumanna? Framh. af 1. síðu. búð, eins og þær gerast nú í all- stórum húsum. Á hvorum stað eiga að vera vistarverur handa 150 manns, og er talið, að 100 eigi að kall- ast starfsmenn radarstöðvanna, en fimmtíu hermenn. Hlutfallslega f jölmennasta herseta. Byggðarlög þau, sem þessar nýju bækistöðvar eru í, eru tiltölulega fámenn, og á það jafnt við um Homafjörð og Langanes og Þórshöfn. Með 150 manna erlendu setuliði á þess- um stöðum verðúr þar því miklu fjölmennari herseta í hlutfalli við íbúatölu byggðar- laganna en nokkru sinni er hér við Faxaflóa. Má þvi ljóst vera, hvað þessum byggðarlögum er að höndum fært og hvaða hlut- verk þeim og íbúum þeirra er ætlað, þegar sandurinn og vatn- ið frá Hollandi er komið í gagn- ið. Getur svo farið, að mörgum bóndanum og fiskimanninum þyki þröngt fyrir dyrum, áður en lýkur, líkt og Einar Þveræ- ingur spáði, þegar erlendur her- konungur vildi sælast til Grímseyjar forðum. Verðug laun meðteldii. Það virðist orðin trú þeirra manna, sem drottna yfir stjórn- málaflokkunum, sem með völd- in fara í dag, að íslenzk þjóð geti ekki bjargazt í landi sínu, án vinnu við hernaðarfram- kvæmdir og knjékrjúpandi snatts í þágu erlends herveldis. En þegar milli þess er að velja, hvort íslendingar eigi að vinna að því að byggja húsin í hin- um nýju bækistöðvum Banda- ríkjahers, eða Vilhjálmur Þór og S.Í.S. eigi að græða á því að flytja inn sand og vatn frá Hol- landi, þá er umsvifalaust horf- ið að því ráði, að fjárhagsleg- ur gróði skuli fremur falla í skaut mönnunum í hvíta húsinu við Sölvhólsgötu. Það er hiklaus skoðun þjóð- varnarmanna að efla eigi ís- lenzka atvinnuvegi, svo að þeir séu færir um að veita öllum ís- lendingum fæði og klæði, og þeir aumka þá dáðlausu ríkis- stjórn, sem ekki sér annað úr- ræði en lifa á betlimennsku og þjónustusemi við erlent her- veldi, er hún hefur léð fang- staðar á fósturjörð sinni, til stóraukinnar árásarhættu fyrir landsins börn. En það vekur ekki aðeins aumkim, heldur einnig reiði, þegar þessi sama ríkisstjórn efnir til innflutnings á hollenzkum sandi og vatni í því skyni einu að þægja flokks- gæðingum og auðga þá sjóði, er annar stjórnarflokkurinn hefur tiltölulega greiðan aðgang að. Til þess að varpa enn skærara ljósi yfir þessa ákvörðun má geta þess, að hin innfluttu hús verða miklu dýrari heldur en ef þau hefðu verið byggð hér á venjulegan hátt, enda er hið hollenzka fyrirtæki, sem S.ÍS. hefur komizt í samband við, ekki samkeppnisfært í heima- landi sínu, hvorki um verð né gæði, þótt í upphafi væri látið heita svo hér heima, að S.Í.S. gerði það í því skyni að notfæra sér reynslu þess við byggingar á íslenzkum sveitabæjum. Andi frumherjanna? Nú er með öðrum orðum svo komið, að Samband íslenzkra samvinnufélaga er látið hafa það að féþúfu að flytja inn steinsteypuhús í bandarískar herstöðvar á íslandi. Frum- herjar samvinnustefnunnar á íslandi sigruðu margfalda crf- iðleika til þess að losna af út- lendum klafa og gera fólkið í byggðum landsins frjálst og ó- háð. Það er markmið og hug- sjón þeirrar samvinnustefnu, sem ekki hefur verið herleidd af óvinum sínum. Og hvað myndu þeir Jakob Hálfdánar- son, Benedikt á Auðnum og Sigurður á Yztafelli segja um þetta nýjasta gróðabragð þeirr- ar hreyfingar, sem þeir helguðu orku sína og anda og fóstruðu af ást og þrautseigju, er aldrei brást, ef þeir væru nú ofar foldu og mættu mæla? Er van- þörf á því að reka út úr must- erinu? arsson og mag. Jón Jónsson. Úr gögnunum frá 1947 hafði Her- mann Einarsson unnið að mestu leyti, er ég réðst að fiski- deildinni sumarið 1948 til þess að annast sjórannsóknir. Ég hef undanfarið unnið að rit- gerð um íslandshafið, en svo nefni ég haf svæðið milli íslands, Grænlands og Jan Mayen. í þessari ritgerð leitast ég við að gera grein fyrir höfuðatriðun- mn í haffræði þessa svæðis á grundvelli allra þeirra gagna, sem fyrir liggja. Að því er snertir norðlenzka síldveiði- svæðið eru niðurstöður meðal annars þessar: 1. Mjög miklar sveiflur eru á ástandi sjávarins við Norður- land og mun meiri en við aðra landshluta. 2. Innstreymi af hlýsæ (atl- antiskum sjó) austur á Norð- urlandsmiðin hefst að vori eða í síðasta lagi í sumarbyrjun. Fer útbreiðsla hlýsævarins vaxandi er líður á sumarið og virðist ná hámarki í lok sumars. Ætla má, að hlýsævarins gæti mjög lítið er líður á veturinn, en athug- anir eru of fáar til þess að full- yrða nokkuð í því efni. 3. Mjög eru áraskipti að magni hlýsævarins. Þannig náði hann í ágúst 1947 austur fyrir Langanes, en á sama tíma 1949 voru austurtakmörkin milli Siglufjarðar og Melrakkasléttu. Þá var útbreiðsla hans norður a bóginn mun meiri 1950 en á sama tíma 1949. Að svo stöddu er mjög erfitt að skýra, hvað veldur slíkum árlegum sveifl- um. 4. Á austur- og norðurmörk- um hlýsævarins lækkar hitinn örar en annars staðar á svæð- inu. Á slíkum stöðum eru hreyf ingar sjávarins vafalaust mjög óreglulegar og straumhvirílar tíðir. Mun hið mikla misdýpi landgrunnsins einnig eiga hér nokkurn hlut að máli. Á slík- um blöndunarsvæðum má gera ráð fyrir betri lífsskilyrðum en annars staðar á landgrunninu. 5. Rannsóknir síðustu ára sýna, að eldri straumkort yfir þetta svæði sem og íslandshafið í heild þurfa að endurskoðast. ★ — Telur þú traustan grund- völl fenginn með þessum rann- sóknum? g hygg, að rannsóknir síð- ustu ára, sem áðurneínd- ar niðurstöður eru fyrst og fremst byggðar á, hafi skapað nægilega traustan gnmdvöll, þannig að nú sé fyrst tímabært að taka fyrir einstök verkefni og reyna að gera þeim nákvæm skil. Frekari rannsóknum, fram kvæmdum á sama hátt og á sömu árstíðum og undanfarin ár, tel ég sjálfsagt að haldið verði áfram að einhverju leyti a. m. k., þar sem þær gefa all- gott yfirlit yfir ástandið á síld- veiðitímanum. Hvað viðkemur síldarrannsóknunum hefur nú skapazt nýtt viðhorf síðan við eignuðust asdic-tæki, sem sett var í Ægi í lok þessa sumars. Er full ástæða til þess að ætla, að það eigi eftir að verða ís- lenzka síldveiðiflotanum til mikils gagns á komandi árum. ★ — Er það ekki nýjung, að haldið sé uppi sjórannsóknum frá Siglufirði að vetrarlagi? I síðari árum hafa rann- sóknirnar víða erlendis færzt í það horf að gera ýtarleg- ar athuganir árið um kring á takmörkuðum svæðum. Þannig er t. d. rannsóknarstarfsemin rekin á rannsóknarstöðinni í Plymouth. í Noregi er safnað gögnum árið um kring frá föst- um stöðvum meðfram norsku ströndinni. Slíkar upplýsingar hafa mikla þýðingu fyrir fisk- veiðar Norðmanna. Nauðsyn þess, að við tækjum upp svip- aða rannsóknarhætti hefur oít verið rædd í fiskideildinni. Hefur mér lengi leikið hugur á að geta haldið uppi rannsókn- um árið um kring við Norður- land. Það varð svo að ráði, að ég fluttist til Siglufjarðar í byrjun september, og er ætlun- in að gera mánaðarlegar athug- anir á svæðinu hér út af. Fylgzt verður með legu hlýsævarmót- anna, og rannsökuð selta, nær- ingarefni, súrefni, plöntu- og dýrasvif á föstum stöðvurn á svæðinu vestan Grímseyjar. Að mér varð kleift að hefja þessar rannsóknir á ég að þakka for- göngu Árna Friðrikssonar, deildarstjóra fiskideildar og Pétri Sigurðssyni, forstjéra landhelgisgæzlunnar, sem sýnt hefur rannsóknunum þann mikla velvilja að lána varðskip til gagnasöfnunarinnar. ----—♦ ..... AUGLÝSING frá Skattstofu Reykjavíkur 1. Atvinnurekendur og stofnanir í Reykjavík og aðrir sem hafa haft launað starfsfólk á árinu, eru áminntir mn að skila launauppgjöfum til Skattstofunnar í síðasta lagi 10. þ.m., ella verður dagsektum beitt. Launaskýrslum skal skilað í tvíriti. Komi í ljós að launauppgjöf er að einhverju leyfi ábótavant, s.s. óuppgefinn hluti af launagreiðslum, hlunnindi vantalin, nöfn eða heimili launþega skakkt til- færð, heimilisföng vantar, eða starfstími ótilgreindur, telst það til ófullnægjandi framtals, og viðurlögum beitt sam- kvæmt því. Við launauppgjöf giftra kvenna skal naín eiginmanns tilgreint. Sérstaklega er því beint til allra þeirra, sem fengið hafa byggingarleyfi hjá Reykjavíkurbæ, og því verið sendar launaskýrslur, að standa skil á þeim til Skattstofunnai, enda þótt þeir hafi ekki byggt, ella mega þeir búast við áætluðum sköttum. Á það skal bent, að orlofsfé telst að fullu til tekna. Um launauppgjöf sjómanna athugist, að fæði sjómanna, sem dvelja fjarri heimilum sínum, telst eigi til tekna. 2. Skýrslum inn hlutafé og arðsútborganir hlutafélaga ber að skila til Skattstofimnar í síðasta lagi þ. 10. þ.m. 3. Þeim, sem hafa í huga að njóta aðstoðar Skattstof- unnar við að útfylla framtal, skal á það bent, að koma sem fyrst til að láta útfylla framtölin, en geyma það ekki til loka mánaðarins, þegar ösin er orðin svo mikil, að bið verður á afgreiðslu. Þess er krafist af þeim, sem vilja fá aðstoð við útfyllingu framtalsins, að þeir hafi meðferðis öll nauðsynleg gögn til þess að framtalið verði réttilega útfyllt, og að sjálfsögðu framtalseyðublað það er þeim hefur verið sent. Skattstjórinn í Reykjavík Æ ttfjiýsiiitj NR. 1/1954 frá Innflutningsskrifstofunni um endurútgáfu leyfa o.fl. Öll leyfi til kaupa og innflutnings á vörum, sem háðar eru leyfisveitingu svo og gjaldeyrisleyfi eingöngu falla úr gildi 31. desember 1953, nema að þau hafi verið sérstaklega árituð um, að þau giltu fram á árið 1954 eða veitt fyrirfram með gildistíma á því ári. Skrifstofan mun taka til athugunar að gefa út ný leyfi í stað eldri leyfa, ef leyfishafi óskar. í sambandi við umsóknir um endurútgáfu leyfa, vill skrifstofan vekja athygli umsækjenda, banka og tollstjóra á eftirfarandi atriðum: 1) Eftir 1. janúar 1954 er ekki hægt að tollafgreiða vöru, greiða eða gera upp ábyrgðir í banka gegn leyfum, sem falla úr gildi 1953, nema að þau hafi verið endurnýjuð. 2) Endurnýja þarf gjaldeyrisleyfi fyrir óuppgerðum bankaábyrgðum, þótt leyfið hafi verið áritað fyrir ábyrgðarupphæðinni. Slíka endurnýjun mun skrifstofan annast í samvinnu við bankana, að því er snertir leyfi, sem fylgja ábyrgðinn í bönkum. 3) Eyðublöð undir endurnýjimarbeiðnir leyfa fást á Inn- flutningsskrifstofunni. Eyðublöðin ber að útfylla eins og formið segir til um. 4) Ef sami aðili sækir um endurnýjun á tveimur eða fleiri leyfum fyrir nákvæmlega sömu vöru frá sama landi, má nota eitt umsóknareyðublað. Allar umsóknir um endumýjun leyfa frá innflytjendum í Reykjavík þurfa að hafa borizt Innflutningsskrifstofunni fyrir 15. janúar 1954. Samskonar beiðnir frá innflytjendum utan Reykjavíkur þurfa að leggjast í póst til skrifstofurinar svo fljótt, sem auðið er. Leyfin verða endursend jafnóðum og endurnýjun þeirra er lokið. Reykjavík, 1/1. 1954 Innflutningsskrifstofan Skólavörðustíg 12.

x

Frjáls þjóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.