Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 16.07.1955, Síða 3

Frjáls þjóð - 16.07.1955, Síða 3
■Laugardagrv--. is. júlí 1955 FRJALS þjóð Dobúar á Dobúer If-keir, sem lesið hafa Atóm- stöðina eftir Halldór Kiljan Laxness, minnast þess ef til vill, er Organistinn heldur ofurlítinn ræðustúf yfir Uglu Falsdóttur xim afstæði siðgæðisins. Máli sínu til sönnunar tekur hann tiæmi af fjarlægum þjóðflokki. ,,Dobúar á Dobúey hafa aðeins eitt siðgæðislögmál og það er að hatast .... Meðal þeirra er hver einstaklingur skyldugur að hata hinn eins og vestur er skyldugt að hata austur hjá okkur. Það eina sem bagar do- búgreyin er að þeir eiga ekki eins góðar drápsvélar og Du Pont.“ En af því að víst má telja, að ekki séu allir svo vel að sér um háttu og siðu Dobúa sem Organ- istinn, gæti verið, að menn hefðu gaman af að heyra ofurlítið nánar um þessa einkennilegu 'þjóð og hugarfar hennar. Það er sennilega þýðingar- laust að vísa mönnum á landa- 'bréf til að grennslast eftir heimkynnum Dobúa. Dobúeyj- ar er yfirleitt að engu getið, nerna þá að kortin séu því betri og vandaðri. En það nægir líka alveg að segja, að Dobúey er austanvert undan strönd Nýju- Gíneu. SaL a- ocj damntngar Viðtalstími kl. 5—7. Fasteignasala Laugavegi 29. Sími 6916. Kama í Kyrrahafinu vestan- verðu þrífst svartigaldur betur en á flestum stöðum öðr- um á heimskringlunni. Og hann hefur sterkari tök á hugum Do- búa en flestra annarra, enda kunna þeir á honum beztu skil. Hver einstaklingur notar sinn eigin einkagaldur og hlífist ekki við að hagnýta sér hann. En af því leiðir, að þeir óttast allt samneyti hver við annan. Það gæti skaðað þá. Ekki verður því með sanni sagt, að Dobúar séu félagslynt fólk, heldur ríkir með beim ein- staklingshyggja út í yztu æsar. Þeir öfundast hver yfir annars hag og heppni. Enginn maður treystir nágranna sínum. Maður treystir ekki einu sinni konu sinni né kona manni sínum (og það er nú kannski rétt aí þeim!). Og vegna hinnar brjál- æðiskenndu öfundar, þegar verk einhvers annars ber árang'- ur, þrífst með Dobúum stöðug- ur illvilji og tortryggni. • Jarðávöxtur, sá sem Dobúar rækta mest af, er kallaður yams. Það er mjölvisríkt stöng- ulhýði eins og kartaflan og ekki ósvipað henni, en annars óskylt kartöflu, heldur í ætt við lilju og mjög útbreitt í hitabeltinu. Nú verður auðvitað að sá og taka upp, og sumir þjóðflokkar, sem standa á svipuðu menning- arstigi og Dobúar, hafa þann hátt á að vinna að slíkum störfum í sameiningu hver á annars akri, og allir eru stoltir yfir góðri uppskeru og fagna árangri erfiðis síns. En það leið- ir af sjálfu sér, að því er öðru- vísi farið um Dobúa. Samtök um vinnu eru þar algerlega óþekkt fyrirbrigði, og vegna galdra- hættu frá öfundsjúkum ná- Jptatt hVW/AVA’.V/.V.W.WJVWJV.W.WAVVW.WA'WV, ii j VERÐLAUMAKEPPMi 1 ; í um hátíðarleik. a- Undirbúnmgsnefnd Skálholtshátíðar hefiu kveðiS að stofna til verðlaunakeppm um leikþátt, $ sem ætlazt er til, að sýndur verði á SkálholtshátíS- •; inni 1956. Leikurinn skal fjalla um atnÖi úr kirkju- jj og mennmgarsögu þjóðannnar, vera óbrotmn að «; sviðsetningu og eigi taka lengri tíma til sýningar en ^ 35—50 mínútur. ;l Veitt verða verðlaun, kr. 10.000.00 og kr. ;< 3.000.00, fyrir þá tvo leikþætti, er dómnefnd telur bezta, enda fullnægi þeir þeim kröfum, er hún gerir ;. til þess að leikþættirnir teljist verðlaunahæfir. '] Leikþættirnir skulu komnir í hendur formanni ;« hátíðarnefndar, séra Sveini Víking, Reykjavík, eigi >; síðar en hinn 1. nóvember 1955 kl. 12 á hádegi. Þeir skulu vera vélritaðir, nafnlausir, en þó greini- lega auðkenndir. Nafn höfundar fylgi í lokuðu um- slagi merktu hinu sama auðkenm og leikntið. Hátíðarnefndin áskilur sér fram yfir hátíðina all- an umráðarétt yfir þeim leikþáttum, sem verðlaun hljóta, bæði til prentunar og flutnings án sérstaks endurgjalds til höfundanna. Reykjavík, 9. júlí 1955. Hátíðarnefndin. granna ér enginn svo grænn að viðurkenna, að hann hafi feng- ið vel upp úr garðinum sínum. Þar bera hjónin uppskeru sína smám saman með mestu leynd í geymsluna. Ef aðrir fengju vitneskju um ríflega uppskeru, gæti það hæglega leitt af sér sjúkdóma eða jafnvel dauða af særingum og' fjölkynngi illvilj- aðs keppinauts, sem kannski hefur ekki fengið jafnmikinn arð af sínu landi. 15/'enjulegur Evrópumaður ’ hefur varla slíkt ímyndun- arafl, að það spanni allan þann fjandskap og tortryggni, sem ríkjandi er milli einstaklinga á Dobúey. Það er ekki nóg' með, að nágranninn sé algerlega úti- lokaður frá garði fjölskyldunn- ar, heldur verður líka að beita jarðarávöxtinn göldrum til að hindra hann að hlaupa yfir í annarra manna garða! Allt frá sáningu fram að uppskeru sit- ur Dobúinn á verði á garði sín- um, og það er ekki svo lítil fyr- irhöfn,. því að vaxtartími yams er 9—11 mánuðir. Þarna magn- ar hann seið sinn og þylur sær- ingar til að auka uppskeruna. Og það verður bezt gert á þann hátt að stela með fjöl- kynngi úr næsta garði. Auk þess er svo nauðsynleg't að fremja eins konar mótgaldur til að hindra nágrannann í að stela á sama hátt úr manns eigin garði. Það sýnir ljóslega tortryggn- ina gagnvart öllu og öllum, hve samband hjóna er þvingað. Þau geta reyndar unnið hvort í ann- ars garði, en aðskildir skulu skikar þeirra vera og ekkert múour! Þau nota hvort sinn eig- in galdur til að hemja jarðará- vöxtinn, og ef eftirtekja annars er meiri en hins, verður það ör- ugglega tilefni marg'rar þrætu og ýmiss konar heimiliserja. Við skulum þakka forsjón- inni fyrir að vera ekki fædd Dobúar. Eða erum við það kannski? YFIR 15 milljónir Spúnverja búa í algjörlega óviðunandi húsnœði, segir New York Times. Árlega þyrfti að byggja 100 þúsund íbúðir ú Spúni, en aðeins 2000 eru byggðar. Þúsundir húsnœðisleys- ingja hafa reynt að ráða fram úr ústandinu á eigin spýtur. í úthverfum Madríd hafa þeir lagt undir sig stór óbyggð svœði og hrófað þar upp smúleirkofum. Fjöl- skyldan hjúlpast að með að byggja þá á nóttunni, þegar allir eiga frí. Þetta eru mjög slœmir bústaðir. í þurrkum springa þökin, og regnið streymir inn. Aðrar fjölskyldur grafa sér skúta eða hella inn í hóla og búa þar. Á Spáni er bannað að byggja á þennan hátt, en lögreglan kemst ekki yfir að hindra það, enda mundi slikt vekja megna óánægju, jafn- vel óspektir. Margir hús- nœðisleysingjar gœtu heldur ekki greitt leigu fyrir venju- lega íbúð. Húsnœðislaus spœnsk húsmóðir lét skoðun sína í Ijós með þessum orð- um: „Hvað getum við gert? Maðurinn minn fœr 134 peseta í kaup á viku (um 57 kr.). Ef við œttum aö greiða húsaleigu, hefðum við ekkert til að lcaupa mat fyrir.“ 'k FRANSKA íhaldsblaðið Le Mond segir.að kosningasigur Scelba á Sikiley fyrir nokkru hafi verið að þakka aðstoð og af- skiptum Amerikana. Hinn 23. maí st. var undirritað sam- komulag um, að Bandaríkja- menn gœfu 50 milljónir doll- ara af inncign sinni í Ítalíu til að efla rœktun í þeim hér- uðum Sikileyjar, sem eru í mestri niðurníðslu. Og dag- inn áður en kasningarnar fóru fram, samþykkti Al- þjóðabankinn aö veita Ítalíu 70 milljón dollara lán til að reisa við landbúnað og iðnað í sömu héruðum. Það eru mjög fáir ítalir, sem álíta, að þetta liafi verið hrein tilviljun. — flokkiLr Scelba vann 7 ný þingsœti í kosningunum á Sikiley. ★ MARZ s.l. hófst útgáfa í Sví- þjóð á nýju tímariti, er nefn- ist NORDA PRISMO. Markmið þess er að endurspegla sem mest af því, sem markvert er í norrœnu þjóðlífi: menn- ingu, bókmenntum, framför- um o. s. frv. Auk þess verður skyggnzt víðar um í heimin- um og birtar greinar um ýmis efni, sem efst eru á baugi hverju sinni, og eins og þau horfa við af norrœnum sjónarhóli séð. Það skal þó tekið fram, að ritað verður hlutlaust í pólitík. NORDA PRISMO kemur út annan hvern mánuð, en. hvert hefti verður 48 blaðsíð- ur. Árgjald er kr. 25.00 (ísl.). Ritstjóri er Ferenc Szilagyi, doktor í lögum, og vel þeklct- ur rithöfundur. Eins og nafn tímaritsins, Norda Prismo, ber með sér, er það prentað á Esperanto, og er þess vœnzt, að íslenzkir esperantistar láti ekki sinn hlut eftir liggja að gerast á- skrifendur þess og leggja því til lesefni. Áskriftir, andvirði og efrii til birtingar sendist umboðsmanni ritsins á ís- landi, en utanáskrift til hans er: Magnús Jónsson, Póst- hólf 786, Reykjavilc. ★ HJÓNASKILNAÐIR fœrast nú mjög í aukana í Kaupmanna- höfn. í fyrra skildu þar alls 2406 hjón, eða 198 fleiri en árið áður. Rannsókn hefur leitt í Ijós, að 764 af þessum hjónaböndum höföu staöið skcmur cn fimm ár, 730 fimm til tíu ár cg 912 lengur en tíu ár. í 142 tilfellum höfðu hjónin átt siifurbrúðkaup, áður cn þau skildu. Þessi 2406 hjón, sem slitu sam- vistum í Kaupmannahöfn á s.l. ári, áttu alls 2054 böm innan 15 ára aldurs. RÚMLECA 170 fulltrúar frá 53 löndum taka þátt í 5. al- þjóðaráðstefnu stúdenta, sem hófst í háskólanum í Birm- ingham, mánudaginn 4. julí s.l. Á ráðstefnunni er œtlazt til, að rœdd verði ýmis vanda mal stúdenta, allt frá náms- og ferðamannaskiptum til kynþáttavandamála í háskól- um Suður-Afriku, og taka þáitt í henni fulltrúar stúd- enta frá öllum heimsálfum. Af hálfu Stúdentaráðs Há- skóla íslands sœkir ráðstefn- una Erlingur G. Císlason, stud. mag., Bergstaðastr. 48, Reykjavík. Erlingur var í vetur varafulltrui Þjóðvarn- arfélags stúdenta í studenta- ráði. V-.-.'■■■.VVAV.V.W.VVA-.'.VWiVWAW.V.W másagnakeppni tímaritsins STEFNIS Frestur til að skila handritum framlengdur til Í5. ágúst Eins og kunnugt er ákvað tímaritið Steínir nýlega að efna til smásagnakeppni um BEZTU SMÁSÖGU ÁRSINS 1955. Hámarksaldur til þátttöku er 38 ár; í dómnefnd rit- stjórar Stefnis. Glæsilegum verðlaunum er heitið: Flugferð til Parísar eða London og 10 daga kostnaðarlaus dvöl þar. Þá hafði frestur Lil að skila handritum verið ákveðinn 15 júlí. Nú þegar hafa allmargar sögur borizt, en vegna þess að 3. hefti Stefnis kemur ekki út fyrr en í haust hefur nú verið ákveðið að framlengja þennan frest til 15. ágúst næstkom- audi. Fyrir þann tírna þurfa handrit að hafa borizt ritinu, pósthólf 582, eða til ritstjóra. — Skulu handrit vera nafnlaus, en fylgja í lokuðu umslagi höfundarnafn og heimilisfang. Tdnturiiið Siefnir <1

x

Frjáls þjóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.