Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 21.06.1958, Page 4

Frjáls þjóð - 21.06.1958, Page 4
ÖAaqadœqut4 á föeifkjakeiíi T augardaginn 6. nóvember 1852 voru þrír aðkomu- menn í brottbúnaði úr Húsa- víkurkaupstað. Þeir voru allir austan úr Öxarfirði, ungir menn, frískir og harðfengir, og höfðu brugðið sér til að- drátta í kaupstaðinn. Tveir þeirra voru frá Skinnastað,. Árni Jónsson, þrítugur hús- maður, og Jón Sigurðsson smið- ur, rúmlega hálfþrítugur og fyrirvinna foreldra sinna. Þetta haust hafði verið veðra- samt á Norðurlandi, frosthelja mikil á köflum og snemma lagzt að með hríðar. Öxfirðingarnir urðu síðbúnir úr kaupstaðnum, og var hermt, að vín hefði glapið þá. Þá var brennivín ódýrt og tunnur á stokkum í hverri búð við allar hafnir landsins og venja sveita- manna að drekka í kaupstaðar- ferðum. Það var liðið langt á dag, er þeir héldu loks af stað. Þeir gengu allir, en höfðu tvo hesta undir burði. Var ferðinni heit- ið yfir Reykjaheiði, sem talin var hart nær þingmannaleið á milli byggða. Veðurútlit var fremur skuggalegt, loft þung- búið og kólga til hafsins. Þeim félögum gekk ferðin vel suður brekkurnar upp frá Húsavík og allt þar til þeir komu á Grjótháls. Þar brast á 'krapahríð af norðaustri, og urðu þeir brátt blautir og hraktir. Veðrið herti, unz komið var stórviðri, er stóð beint í fangið, er austar dró á heiðina. Þegar kom að sæluhúsatóftun- um við Sæluhúsmúla, voru þeir orðnir þrekaðir af langri göngu í vondu veðri, vosbúð og kulda. Tóku þeir það ráð að leggjast þar fyrir og hvíla sig og bíða þess, að veðrið skánaði. Var þá nótt komin. Þeir sofnu.ðu og sváfu nokk- uð, en þegar leið að morgni, gekk í hánorður með hörku- frosti og blindbyl. Var grimmd- arveður komið, er þeir félagar vöknuðu, og’föt öll orðin stokk- freðin utan á þeim. Heldúr voru þeir illa búnir að klæðum sumir. Það er í frá- sögur fært, að Jón smiður var í léreftsskyrtu og einni klæðis- treyju nærskorinni. Er hann reis upp eftir nætursvefninn, var í honum kuldahrollur, en þegar hann tók að hreyfa sig og berja sig sér til hita, sprungu freðin fötin utan af honum, svo að skein í bert mittið. Eigi að síður var haldið áfram, því að ekki þótti þeim félögum fýsilegt að vera lengi veðurtepptir á fjöllum uppi í lélegu og skjóllitlu afdrepi. En nú vildi það óhapp til, að Jón missti skóinn af öðrum fæti sér í hríðinni og fönninni. Árni, sem virðist hafa verið bezt bú- inn að klæðum og í hlýjum prjónafötum, var í skinnsokk- um innan undir skónum. Leysti hann af sér skó og lét á fót Jóns. T-^egar leið fram á daginn, heltók kuldinn Jón og þraut hann þrek að ganga. — Veltu félagar hans þá bögglum af öðrum hestinum og settu Jón á hann, því að þeir höfðu einsett sér að brjótast til byggða hvað sem tautaði. Siluðust þeir nú enn áfram, en varð taísamt, því að Jón gerðist svo mátt- farinn, að hann valt af baki, ef hendi var sleppt af honum. — Loks kom þar, að þeir Árni og Hallgrímur sáu ekki annað til ráða en búa um Jón í snjó í hraunsprungu. Síðan tóku þeir verið af öðrum hestinum og breiddu það yfir gjótuna, svo að þarna myndaðist skjólgott afdrep. Var þá svo mjög af Jóni dregið, að ekki vissu félag- ar hans til fullnustu, er þeir skildu við hann, hvort hann var lífs eða liðinn. — Þarna skildu þeir líka eftir annan hestinn. Árni og Hallgrímur héldu síðan áfram för sinni, unz sunnudagurinn var að kvöldi kominn. Var veður tekið að lægja, en óglöggt vissu þeir, hvar þeir höfðu farið í hríð- inni. Hallgrímur gerðist nú mjög þrekaður og seinfær, og loks kom þar, að hann þraut með öllu. Urðu þeir þá að setjast um kyrrt í náttmyrkri og láta fynrberast þar, sem þeir voru komnir. Þessi nótt gekk mjög nærri þeim félögum, en þó lét Árni engan bilbug á sér finna. Þegar dagaði, vildi Árni hefja förina að nýju, enda þóttist hann vita, að ekki myndi ýkja- langt til byggða. En svo var af Hallgrími dregið, að hann treysti sér með engu móti lengra að fara. Gróf Árni hann þá í fönn, skildi eftir þann hestinn, er þeir höfðu hingað til teymt með sér, og hélt síðan áfi am einn. TVTÚ segir fátt af ferðum Arna. ’ Hann gekk lengi og mið- aði hægt áfram, því að þrek hans var mjög tekið að dvína, enda var hann orðinn illa til reika. Þegar komið var nokkuð fram á dag, gengu menn fram á hann. Voru. það Keldhverf- ingar í kindaleit á heiðinni.Árni var með fullu ráði og rænu, svo að hann gat sagt smölunum tíðindi þau, er orðin voru, og vísað til þess, hvar hann hafði skilið við Hallgrím. Sneru Keldhverfingar þegar af leið sinni til þess að leita hans, og fundu þeir hann síðdegis ör- endan í snjóskaflinum, þar sem Árni hafði skilið við hann. Af Árna er það að segja, að hann hélt áfram til bæja í Kelduhverfi. Náði hann þangað nær berfættur, en þó ekki stór- skemmdur af kali, eftir fjög- urra dægra útivist á heiðinni. Einkum mátti heita, að nak- ^Uctuqai-cla^inn 2/. jiiní 1938 — FRJALS ÞJDÐ Svart og hvítt inn væri sá fóturinn,. er skó- laus var. Var rómuð harka og þrautseigja hans í þessari heið- arferð. TTaginn eftir var farið að leita Jóns smiðs. Fundu leitarmenn bæli hans í hraun- sprungunni, en heimildum ber ekki saman um það, hvort lík hans var þar eða nokkurn spöl Þ'á því. Hitt er víst, að merki sáust þess, að Jón hafði raknað við og dregizt á fætur, farið út úr skýlinu og reikað nokkuð um. Hann hafði sýnilega barið sér ákaft til þess að fá í sig hita, og það svo lengi, að ekki var annað eftir að kalla af vettlingunum en laskarnir ein- ir. Að lokum hafði hann lagzt fram á hendur sér og dáið þannig, en svo var mikið þiðnað frá andlitinu, að það hvíldi á berri jörð. Lík þeirra Jóns og Hallgríms voru færð til kirkju í Keldu- hverfi og Öxarfirði. Var Jón jarðsettur að Garði, en Hall- grímur á Skinnastað. Helztu heimildir: Norðri á Akureyri, Lbs. 2412 4to, prestsþjónustubækur og sóknarmannatöl Garðs í Kelduhverfi og Skinnastaðar. Leiðrétting í grein Gretars Fells, Kirkja og kristni, í síðasta tölublaði af- bakaðist ein setning í prentun. Rétt er setningin svo: „Eitt af því, sem mér finnst mjög ó- prýða suma - ekki alla - bók- stafstrúaða menn, er það, aðj þeir virðast heimta, að allir hafi nákvæmlega sömu skoðan- ir í trúarefnum og þeir sjálfir.“, Hér situr fyrsti forsætisráðherra hins nýja Vestur-Indíaríkis, Grantley Adams, við hlið Margrétar, þegar opnuð var listsýning í Port-of-Spain á Trinidad. Júní-bók A B Til framandi hnatta TJt er komin júní-bók Almenna bókafélagsins. Nefnist hún Til framandi hnatta og er eftir Gísla Halldórsson verkfræðing. Til framandi linatta fjallar um geimför og geimsiglingar. Hef- ur höfundur bókarinnar kynnt sér þau mál um langt skeið, og er í hópi fróðustu Islendinga í þessari grein. Erfitt er í stuttu máli að gera grein fyrir þeim mikla og skemmtilega fróðleik, sem þessi bók hefur að geyma. Hún skipt- ist í þrjá aðalkafla. Fjallar sá fyrsti um „alla heima og geima“, eins og höfundur kemst að orði í formála, — undirbúning mannsins undir ferðalög út fyr- ir þyngdarsvið jarðar, heim- sóknir til tunglsins og annarra hnatta og lýsing á þeim hnött- um, sem hugsanlegt væri að heimsækja. í öðrum kaflanum er lýst þró- un í smíði eldflauga og gerð drifefna þeirra, er knýja þær áfram. Síðan eru langir kaflar með mörgum myndum um gervitungl síðasta vetrar, hugs- anleg samgöngutæki í géimn- um og á öðrum hnöttum, og loks er kafli um líkindi fyrir lifi á öðrum hnöttum. í þriðja kafla gerir höfundur á ljósan og einfaidan hátt grein fyrir helztu skoðunum'' nútíma eðlisfræðinga og heimspekinga á tilverunni, — upphafi og endi veraldar, vitrun Einsteins, stytt- ingu- tommustokksins við mjög hraða hreyfingu, hægfara tima á ferðalögum um geiminn og úti í geimnum, stærð alheimsins o. fl. Að lokum er mjög ýtarlegt hugtaka- og orðasafn. 1 bókinni eru um 60 myndir og uppdrættir, margar þeirra heilsíðumyndir og nokkrar lit- Framh. á 7. síðu. Sigurður Jónsson frá Brún: íslenzkar stórframkvæmdir Tslenzkt þjóðlíf er róstusamt. ■“- Þar er löngum hver höndin upp á móti annarri, en mestur deiluvaldur er tvímælalaust fjármál ríkis og einstakiinga, og þótt þetta séu viðfangsefni, sem helzt þarf sérstaka tegund greindar til að rekja til rótar, og þótt ekki þurfi síður til þess staðgóða þekkingu á mörgum sviðum og traustari heimildaöflun en algengt er, að mönnum takist að veita sér, þá er það samt borgaraleg skylda sérhvers heilvita manns, að gera sé þá grein, sem hann getur, fyrir þeim ráðgátum, sem þar krefjast svara, þar sem stjórnarfar landsins, lýðræðis- skipulagið með kosningarétti sínum og úrskurðarvaldi um opinber mál, leggur borgara hverjum á herðar ábyrgð á stefnu þings og stjórnar, sker það úr um það, að sá hefur brugðizt mikilsvarðandi starfi, sem lætur sig þau mál engu skipta. TT'n dæmið er flókið. Ef þar skal eitthvað reynt að rannsaka, kemur það fljótt fram, að verkefni nútíma- manna eru svo víðtæk, fjárfrek og margslungin, að fæst þeirra verða leyst undir einum hatti. Svo leitað sé dæma, má nefna olíunám Frakka í Sahara. Þar kemst viðskiptafræðingur ekki að neinni niðurstöðu upp á eindæmi sitt. Þarna þarf jarð- fræðiþekkingu meiri en hag- fræðingar eiga ráð á eða tíma til að læra, efnafræðinga þarf og grúa tæknimenntaðra manna og rannsóknir þeirra og sérþekkingu, áður en málin verði svo undirbúið, að hag- fræðingurinn hafi kost á að setja upp reikning sinn og fá út niðurstöðu. Þetta umgetna dæmi er nú eitt af stórmálum veraldarinn- ar og kann að ráða örlögum mikilla þjóða, en líkt er smærri málum einnig farið. Þótt ekki væri um meíra að gera en virkjun einnar stórár hér norður á íslandi, þá cr hún engra fárra manna úrlausnarefni þeirra orsaka einna vegna, að enginn fárra manna hópur b.efur vit á öllu !því, sem vita þarf, áður en úr er skorið, hvort reynt skal að vinna verk.ið eða varast ber að hætta í það fé og tíma. Þegar undirbúningsrann- sóknir einar krefjast jafnmik- ils og nú hefur verið á bent, þá liggur það í augum uppi, að mannmergð og fjársöfn þarf til ýmissa hluta og það meiri fjár- söfn en hugsanleg eru eins og stendur í eins manns hendi, að minnsta kosti þegar litið er til íslenzkra þegna, íslenzkra skatt skýrslna og íslenzkra verkefna. • npilrætt hefur orðið, bæði innanlands og utan, um virkjun Þjórsái’ sem æskilega framkvæmd. Þar hefur verið mælt og miklu til kostað. En þjóðin veit það öll, að enginn íslendingur á nóg fé né hefur svo mikið lánstraust, að honum nægi til þess að hef ja þar nægi- legar byrjunarframkvæmdir til

x

Frjáls þjóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.