Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 21.06.1958, Side 8

Frjáls þjóð - 21.06.1958, Side 8
n c£!aucjarclag.inJi 11. /úní 1958 — FRJALS ÞJDÐ Svartur blettur á íslenzkri samvinnuhreyfingu i'élilískir valdabraskarar misnota bíyyiunarlaust sjééi kaupfélaganna Allir íslenzkir blaðalesendur kannast við það, Shvernig hópur póhtískra valdabraskara, sem ræður Framsóknarflokknum og Tímanum, hefur árum saman misnotað yfirráð sín yfir íslenzkri samvinnuhreyfingu til framdráttar flokki sínum og málgagm. Svo að ein- hver dæmi séu nefnd, má geta þess, að SIS ,,seldi“ fyrir ekki mjög löngu Framsóknarflokknum íshúsið Herðu- breið í hjarta Reykjavíkurbæjar, og er flokkurinn nú að innrétta þar samkomuhús með sérstöku leyfi Hanni- bals. Og allir vita, hverjir það eru, sem standa undir hinum gífurlega halla, sem er á rekstn dagblaðsms Tímans, er á síðasta án nam 400 000 krónum. Á hverjum meiri háttar tylli- degi eru kaupfélög um land allt látin setja nafnspjöld sin í Tímann, og taka þau yfir hálfar og heilar síður. Engum dylst vitanlega, að slík auglýsinga- starfsemi er einungis í styrkt- arskyni gerð, samkvæmt skip- un frá flokksstjórn Framsókn- armanna i Reykjavík. Stórfé til framdráttar Framsókn. Með bessum hætti hefur stórfé verið á ári hverju dregið úr vösum viðskipta- manna íslenzkra kaupfélaga, sem tilheyra að sjálfsögðu öllum stjórnmálaflokkum, til styrktar einum litlum póli- tískum flokki. Slík mis- , notkun á fé almennings- fyrirtækja er að sjálfsögðu blygðunarlaust pólitískt sið- leysi, sem vafalaust á sér fáar hliðstæður með öðrum þjóðum. Misbeiting Framsóknar kem- ur þó enn skýrar í ljós, ef athugað er, hvernig vfirráðin í samvinnuhreyfingunni hafa verið notuð ýmist til að hygla eða refsa þeim flokkum, sem Framsóknarflokkurinn á við- skipti við. Þegar Alþýðuflokk- ur og Kommúnistaflokkur hafa verið í andstöðu við stjórn Framsóknar, hefur verið „skrúfað fyrir“ auglýsingar kaupfélaganna í málgögnum þessara flokka, en þegar þeir eru í stjórnarflatsæng með Framsókn, bregður svo við, að auglýsingar kaupfélaga taka að streyma til sömu málgagna. Alþýðublaðið hefur nú um all- langt skeið flutt auglýsingar frá ótrúlegustu kaupfélögum úti um land, og Þjóðviljinn hefur einnig fengið sinn skerf. Kaupíélag Sieingnms- íjarðar styrkir heimskommúnismann. Á þjóðhátíðardegi Islend- inga, 17. júní, daginn, sem tilkynnt voru morðin á ung- verskum frelsisvinum, kom þannig út 24 síðna blað af Þjóðviljanum, að mestu hlaðið nafnspjöldum kaup- félaga. Enginn getur efazt um, að slíkar auglýsingar fær blaðið því aðeins, að ákvörðun hafi verið tekin um það í hópi hinna æðstu ráðamanna. Það eru þeir Hermann og Eysteinn, sem hafa samið um það við með- ráðherra sína, að smákaup- félög úti um land skul.i nú styrkja málgagn heims- kommúnismans r. Islandi! Sú saga, sem hér hefur verið sögð, er svartur blettur á ís- lenzkri samvinnuhreyfingu. — Það er augljóst mál, að hér er ekki hikað við að þverbrjóta öll eðlileg viðskiptalögmál og ekkert sinnt um raunverulegan hag viðkomandi fyrirtækja. Það er t. d. býsna hlálegt, þegar smákaupfélög úti á landi taka allt í einu að auglýsa — sam- kvæmt skipun frá flokksklíku í Reykjavík — í málgögnum, sem sjást ekki á verzlunarsvæði viðkomandi kaupfélaga! Lum&hynniny Síðastliðið laugardagskvöld, þegar fór að líða á sýningu á óperettunni „Kysstu mig, Kata“, rann það upp fyrir bandaríska hljómsveitarstjór- anum, Saul Schechtman, að honum væri að birtast alveg' nýtt fyrirbæri í leikhúslífi, og er þá töluvert sagt, þar sem hljómsveitarstjórinn hefur komið mikið við sögu leikhús- mála í stórborgum. Sýningin byrjaði með því, að tveir af hljómsveitarmönnum hans sett- ust ölvaðir við hljóðfæri sín. Hljómsveitarstjórinn lét það gott heita, enda maður ekki ýkja uppnæmur. Svo kom hlé. Þeg- ar sýning hófst að loknu hléi, vantaði stúlku, sem leikur eitt af aðalhlutverkunum. Það varð því að sleppa fyrsta atriðinu, sem jafnframt var kynningar- atriði á einni persónunni. Sú persóna kom því eins og huldu- maður i annað atriðið. Hljóm- sveitarstjórinn horfði á þessa misþyrmingu á sýningunnL neðan úr gryfju sinni og hefur sjálfsagt búizt við, að stórslys hefði orðið að tjaldabaki. Hann frétti ekki fyrr en síðar, að stúlkan hafði brugðið sér af sýn- ingunni suður í Tívolí til að taka þátt í fegurðarsamkeppni. Þá varð honum að orði: ,,I have never, never been in a show like this“. Öllum til mikillar ánægju var stúlkan kjörin feg- urðardrottning kvöldið eftir, en þá var henni ekki sleppt, fyrr en sýningu á „Kysstu mig, Kata“ var lokið. Vegna þessa annríkis fegurðardrottningar- innar urðu gestir í Tívolí að bíða til klukkan ellefu. Þá féll Ullu Sallert heldur miður, að tveir leikaranna skyldu vera ölvaðir þetta kvöld. Húrra fyr- ir landkynningunni! LITIÐ FRETTABLAÐ Laugardaginn í 9. viku sumars. LjóniB og börnin Á barnaskemmtun- inni á Arnarhóli á þjóðhátiðardaginn kom ljón, sem að visu stóð á tveimur fótum, upp á pallinn til þess að láta tann- lajkninn draga úr sér tönn. Kliður fór um barnahópinn, þegar þau heyrðu, að ljón væri að koma, en ekki var laust- við, að sum þeirra brysti kjark til þess að horfa á for- vnjuna, þegar ,hún birtist. Þóttust þau þá ekki lengur örugg andspænis svo váieg- um þjóðhátiðargesti í fangi pabba eða mömmu, heldur kusu að fela sig á jörðu niðri, meðan konung- ur dýranna var nær- staddur. Allur er varinn góður. Kosínaður og hugarfar Það er talið, að kostnaður Reykjavík- urbæjar við þjóð- hátíðina muni nema ; 1—1,5 milljónum kr. i Allt væri það gott og ( blessað, ef sjálfstæð- 1 is- og þjóðfrelsisand- inn væri í viðlíka háu gengi. Hinn dyggi þjénn Sagt er, að framtal | eins prestsins i Rvík 1 stingi svo i stúf við framtöl annarra, að það sé engu likara en söfnuður hans sé af alveg sérstökum toga. Þetta hefur þær af- leiðingar, að hann ber . miklu hærri skatta: og útsvör en aðrir. J Þetta er ástsæll prest- i ur (en það eru þeir fleiri) og sjálfsagt einnig ' samvizkusam- ari skattþegn en höf- undar skattalaganna hafa gert ráð fyrir, að finnast myndi. Abstraktmálverk Á einu veitingahúsi bæj- arins eru tii sýnis abstrakt- málverk eftir íslenzkan Iistamann. Eitt listaverk- anna, fagurlega innrammað, er nokkrir misstórir svartir ferhyrningar á hvítum grunni. En þegar betur er að gætt. má sjá, að listaverk- ið er málað á bakhlið reikn- ingseyðublaðs frá Mjólkur- stöðinni í Reykjavtk, og er auðvelt að lesa í gegn áletr- anir evðublaðsins. Af þessu má ráða, að abstraktmálarar muni ekki'vera allt of vel haldnir. Listir og menningarmál dreifbýSis- ins verður umræðuefnið á stiídentamóti miðvesturlands Siguréur Nordal préfessor veréur gestur mótsins Stúdentafélag Miðvesturlands heldur sjötta stúdcntamót sitt í Bifröst í Borgarfirði dagana 28. og 29. júní n. k. Jafnframt minnist félagið fimm ára afmælis síns. Félagssvæðið nær frá Hvalfjarðarbotni að Þorskafirði og öll héruð þar á milli. Félagið hefur haldið stúdentamót á ári hverju, og eru þau hvort tveggja í senn: Umræðufundir og skemmti- og kynningarsamkomur. Hafa mót bessi náð afar miklum vinsældum. Veizian á Akranesi Þegar sementsverk- smiðjan. á Akranesi var vígð, var þangað flutt .áfengi fyrir þrjátíu þúsund krón- ur ásamt öðrum yeizluföngum. Með fylgdu matsveinar og þjónar, svo að allan * bæri veizlukostinn rétt að vörum boðs- gestanna upp á há- rey.kvískan máta. íjré&iir su ntiarfjVHtii' Þrestirnir eru orðn- ir fastir sumargestir i fjölda garða í Rvík, þar sem trjágróður er kominn vel á veg. Heimilisannirnar hjá þessum sumargestum eru að komast á há- stig, því að þar er viða að verða margt á fóðrum. Það veitir ekki af að nota dag- inn vel til aðdráttar- ferða, og kernur sér vel, að hann er lang- Sumir þessára þrasta hafa átt sér hreiður ár eftir ár í sama garði, svo að þeir eru orðnir öllum hnútum kunnugir, og dæmi eru til, að þeir verpi á gluggasyllum, ef þar er skjólgott. En oft verður manni hugsað til þessara sumargesta, þegar kettirnir kúra á girðingum með sak- leysissvip, sem þó er ekki nema yfirvarp. LeiðréUíng fíug- máíastjórnar í síðasta tölublaði var frá því skýrt eftir tímaritinu Flugmál- um. að flugmálastjórnin hefði misnotað flugvél, sem hún var talin hafa umráð yfir. Nú hefur flugmálastjórnin snúið sér til blaðsins og skýrt frá því, að umrædd flugvéi sé ekki eign hennar, heldur i einkaeign starfsmanns hennar. Sendið blaðgjald Frjálsr- ar þjóðar 1957, kr. 81.00, j þegar í stað til afgreiðslu blaðsins. Á fundunum er einkum leitazt við að velja þau við- fangsefni, sem snerta hag og menningu viðkomandi héraða og störf hinna ýmsu embættis- manna. Rædd hafa verið t. d.: heilbrigðismál og sjúkrahúsa- byggingar, kirkjumál og kirkju- byggingar, félagsmál sveitanna, skólamál o. fl. Líka almenn menningarmál, t. d. handrita- málið, íslenzk tunga og varð- veizla hennar. Hafa umræður jafnan verið hinar fjörugustu og stundum harðar. Að þessu sinni verður mótið haldið í Bifröst í Borgarfirði laugai'dag og sunnudag 28. og 29. þ. m. Vei'ða að vanda fundir og samsæti. Viðfangsefni fundarins verð- ur nú: „Listir og menningar- mál sveita og dreifbýlis," víð- tæk mál, sem gefa ærin til- efni til athugana og umræðna. Framsögumaður vei’ður Þor- valdur Þorvaldsson gagnfi’æða- skólakennari á Akranesi. Þá hefur Sigurður Noi'dal, prófessor og fyrrum ambassa- dor, gert félaginu þann sóma ' að þjggja boð þess um að verða gestur mótsins. Mun hann flytja ræðu í stúdentahófinu í Bifröst. Formenn S. M. V. hafa vei’ið: Ragnar Jóhannesson, skóla- stjóri á Akranesi (fyrstu tvö árin), séra Þorgrímur Sigurðs- son á Staðastað og Friðjón Þórðarson, sýslumaður og al- þingismaður í Búðardal. Núverandi stjórn skipa: Ragnar Jóhannesson, formaður, Fríða Proppé lyfsali, Sverre Valtýsson lyffi'æðingur, Ragna Jónsdóttir frú og Þórunn Bjarnadóttir frá Vigur, öll til heimilis á Akranesi. Þessa daga er verið að taka úr áskrifendaskrá blaðsins nöfn þeirra manna, sem eiga enn ó- 'greidd blaðgjöld. Er þegar lokið j við að „hreinsa til“ í sex sýslum og verður því verki haldið áfram á næstunni. Þeir lesendur, sem vilja fá blaðið sent framvegis og eiga ó- goldin blaðgjöld, verða því að , bregða skjótt við og svara inn- heimtubréfum, sem borizt hafa. | Fyrir skömmu leit einn áskrif- andi blaðsins á Suðurlandi inn á. afgreiðslu blaðsins og greiddi á- ski’iftargjöld 10 bænda í sveit sinni, sem hann hafði innheimt fyrir blaðið. Það er með slíku starfi, sem velunnarar Frjálsrar þjóoar geta tryggt útgáfu blaðs- ins og stórbætt hag þess. Þeir j verða að minnast þess, að Fi-jáls þjóð er eina íslenzka stjórnmála- blaðið, sem einskis styrks nýtur frá fjársterkum innlendum eða erlendum aðiljum. Tilvist blaðs- ins er því eingöngu komin undir (skilvísi og stuðningi íslenzks al- mennings til sjávar og sveita. Auglýsendur, athugið! FRJÁLS ÞJÓÐ kemur á þúeundir heimila í kaup- stöðum og kauptúnum og er auk þess nú þegar þriðja útbreiddasta blaðið í sveit- um landsins.

x

Frjáls þjóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.