Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 20.09.1958, Side 7

Frjáls þjóð - 20.09.1958, Side 7
FRJALS ÞJDÐ — Ja a rcla ^inn 20. ie.pt. 1958 7j BttÞBtnn afrísku s«>niíibsííinbíaatngi: Friðsamleg samhjálp smáríkjanna gegn ofbeldi stórveldanna Hér hefur verið sendinefnd átta sjálfstæðra Afríkuríkja þeirra erinda að leita stuðnings íslands við Serki í Alsírdeil- unni. Voru þessir sendimenn frá Gullströndinni, Marokkó og Súdan. Eins og kunnugt er, nota Frakkar sveitir úr her Atlants- hafsbandalagsins og vopn frá Czóðar rafmagns- vörur Eldavélar, (vestur-þýzkar), verð frá kr. 3,615,00 Hringbakarofnar verð frá kr. 367,00 Hringbakarofnar, 4 gerðir, verð frá kr. 190,00 Sjálflagandi kaffikönnur, 6 gerðir, verð frá kr. 319,00 Hraðsuðukatlar, 3 gerðir, verð frá kr. 190,00 Brauðristar, 4 gerðir Straujárn, 6 gerðir, verð frá kr. 150,00 Gufustraujárn, verð kr. 298,00 Infra grill, 4 gerðir, verð frá kr. 388,00 Rafmagnsofnar, með og án viftu, verð frá kr. 448,00 Suðuplötur, ein og tvíhólfa Borðeldavélar, kr. 2318,00 Hrærivélar, litlar, kr. 688,00 Teppahreinsarar, kr. 747,00 Útidyraluktir, margar gerðir Strauborð, sem má hækka og lækka, kr. 545,00 Grænmetiskvarnir, verð frá kr. 174,00 Hitapúðar, kr. 244,00 Vaínshitarar, verð írá kr. 133,00 Hárþurrkur, verð frá kr. 285,00 o. fl. o. fl. Véla- raftækja- verzBunin h.f. Bankastræti 10 Sími 12-852. því í styrjöldinni í Alsír. En það geta þeir ekki, nema með sam- þykki allra aðildarríkjanna, þar á meðal íslands. Er vægast sagt undarlegt, að ísland og önnur Norðurlandaríki skuli láta sér lynda, að lið og vopn frá Atlantshafsbandalaginu sé notað í nýlendustyrjöld. Hinir afrísku sendimenn fengu hér sæmilegar viðtökur af hálfu 'stjórnarvalda, hvort sem koma þeirra markar nokk- ur spor eða ekki. En hér hefur íslandi, er nú hefur sjálft'feng- ið að kenna á því, hvers konar bandalag það er, sem stórveldi bjóða smáþjóðum upp á, boðizt gott tækifæri til þess að vinna að því, að smáþjóðir heimsins taki höndum saman og neyti afls atkvæða á þingum þjóð- anna, í stað þess að láta stór- veldin teyma sig og segja sér fyrir verkum. Stórveldin eiga að vísu til að rétta smáþjóðum smálán eða dálitlar gjafir, en þau standa eins og múrveggur gegn því, að þau nái rétti sín- |um, ef hann rekst á við stór- ; veidishagsmunina, og stórveld- unum dettur aldrei í hug að sleppa með góðu neinum gróða- vcgi eða ítökum, hversu fráleit s'e a þau eru. Samstaða margra smáþjóða á alþjóðaþingum myndi gera þau sjálf að stórveldi, sem yrði að taka tillit til. Slík samvinna myndi létta ósegjanlega mikið róðurinn fyrir litlu þjóðirnar cg verða til þess að stórflýta því, að mörg réttlætismál næðu fram að ganga. Sjálfar yrðu þær meira metnar en áður, því að stórveldin myndu ekki þora aö ganga í berhögg við þær, heldur leitast við að vinna hylli' þeirra til þess að eiga fremur stuðning þeirra eða veivild í ' þeim átökum, sem stórveldin' 1 eiga í sín á milli. Hér væri því allt að vinna, en engu að tapa. Við smáþjóð- irnar sundraðar eiga stórveldin alls kostar, en ef þau fyigdust að í málflutningi og atkvæða- greiðslum á alþjóðaþin y m, snerist taflið við. Heimsókn fulltrúa Afríku- ríkjanna gæti orðið upphaf slíkrar samhjálpar gegn ofbeidi stórveldanna, ef ríkisstjórn ís- lands notar tækifærið. Rofnar samband Færeyja og Danmerkur í haust? Fyrirsjáanlegt er, að til tíð- inda dregur í Færeyjum innan 1 skamms, ef danska ríkisstjórnin ' veitir Færeyjum ekki fyllsta stuðning til þess að koma á tólf 'sjómílna landhelgi, hvað sem Englandsstjórn segir. Danska stjórnin er hins vegar á milli tveggja elda, því að hún óttast um markað þann fyrir aðalút- flutningsvörurnar, smjör, flesk og egg, sem Danir hafa í Eng- landi, ef hún lýsir yfir útfærslu landhelginnar við Færeyjar án frekara samningsþófs. Henni er því mjög í mun að draga málið á langinn, ef vera kynni, að eitt- hvað það gerðist í landhelgis- málum á alþjóðaþingum, er los- aði hana úr klípunni. En það er ekki til setunnar boðið. Kosningar eiga að fara fram í Færeyjum í haust, og verði landhelgismálið ekki kom- ið á rekspöl Færeyingum í vil, blasir við, að þeir flokkar, sem albúnir eru til þess að slíta öllu sambandi við Danmörku, vinni ' stórsigur. Líklegt er að vísu, að Sam- bandsflokkurinn, sem fékk flest atk'.æði færéyskra flokka í síð- ustu kosningum, vilji sætta sig vlð það, sem Bretar bjóða í landhslgismálum, en það myndi án efa þýða stórkostlegt fylgis- tap fyrir hann. Hefur Sam- bandsflokkurinn aldrei komizt í ,aðra eins ldípu, er milli fær- ’eyskra hagsmuna og nauðsynja og danskra viðhorfa er að velja. Og jafnvel þótt Sambandsflokk- urinn beitti sér eindregið í land- helgismálinu, eru fullar líkur á því, að hann tapi fylgi vegna þess hiks, sem er á dönsku stjórninni, því að hann er tor- tryggður og vændur um undan- látssemi. Staðan í landhelgismálunum verður því vatn á myllu Þjóð- veldisflokksins og Fólkaflokks- ins, sem eindregnastir eru í mál- inu, en jafnaðarmenn munu gjalda flokksbræðra sinna í rík- isstjórn Danmerkur, sem nú á úr svo vöndu að ráða. Því getur hæglega svo farið, að Færeyingar segi slitið sam- bandi sínu við Danmörku á þessu hausti, eftir kosningarnar 8. nóvember, ef danska stjórnin treystist ekki til þess að taka af skarið í landhelgismálinu vegna markaðanna í Englandi. Glóðarkveikja cg skammhlaup í kertum haía í för meo sér ójafnan gangorkumissi og óþarfa benzín- eySsiu. ' SHELL-BENZÍN með breytir efnasamsetmngu útfellmga, er safnast fyrir í brunaholinu og valda þessum vandkvaeðum, og genr þær óskaðlegar. Hreyfiilinn skilar því fullri orku við öll akstursskil- yrði. Þér fáið fuHkomna orkunýtingu og þýðari gang. Munið: I. C. A. er eingöngu í Shell-benzíni. íslenzku handritin — Framh. af 8. síðu. an heim, og hlýtur hann að nægja til að gera útgáfuna arðvænlega fyrir hina dönsku útgefendur, en auk þess hljóta fyrirtækin frægð af um Víða veröld. Hlutur Islendinga. Það, sem hér hefur verið rak- ið, er að sjálfsögðu ánægjuleg tíðindi, en engu að síður hlýtur það að skyggja nokkuð á ánægj- una í vitund Islendings, sem læt- IVIorguntónleikar ÍMJætti ég vinsamlega biðja , ** Frjálsa þjóð að birta eftir- farandi hugiölðiagar, sem 'ég bygg, að eigi rétt á sér: ' "" » i Eftir að klukkan hefur slegið átta högg á morgnana og þar með slegið fösíu,' að Islendingar eiga til í pokahorninu stundvísi og umboðsmaður Guðs á þessum ( slóðum hefur beðið fyrir voluð- ' um 'i. salingum og aumum synd- urtim, heyrist rödd, sem geíur til kynna: „Nú hefjast tónleikar af plötum.“ Eru þessir „tönleikar" stundum — raunar of oft — á' þá lund, að einhver af veikara kyninu er látin kreista út úr sér með harmkvælum vein, gól, skræki og alls konar ófögnuð. Síðan kemur sterkara kynið á eftir meS duglegan ábæti; virð- ist manni sá vera enskur togara- jaxl og dembir yfir mann hroll- vekjandi élja-gangi, sem Iveitir: „nú syngur....“ Eru þetta á stundum ferleg öskur, sumt mlnnir á ólundarnöldur, ádeilu eða blóðugar skammir, vitan- lega með tilheyrandi nefhljóði og viðbjóði knæpumenningarinnar brezku. Sannarlega ill byrjun nýs dags. Til er fólk, sem ekki er hægt að bjóða betri árbít, aðr- ir, sem fegurðarsmekk hafa, eru fljótir að loka fyrir og leggja á flótta Og þetta gerist á sama tíma og enskir sjóræningjar taka höndum og fangelsa íslenzka varðskipsmenn í íslenzkri land- helgi við skyldustörf sín við strendur landsins. Hvilíkur smekkur, hvílíkur skriðdýrshátt- ur og siðleysi! HANNO. ur sér ekki standa á sama uxn handritamálið, að nú hefur er- lend þjóð orðið fyrri til að gera það, sem íslendingar hefðu átt að sjá sóma sinn í að gera fyrir a. m. k. áratug. Jafnframt hefðl það verið langsterkasti leikurinn, sem íslendingar gátu leikið f handritainálinu: að taka í sínar hendur alla forystu um útgáfu íslenzkra handrita með því að koma á fót sérstakri stofnim i því skyr.i og kveðja til þess verks þá menn, sem færastir eru til þess. Það þarf varla að taka það fram, að slík stofnun er alls ekki háð heimkomu Árnasafns, því að handrit er frjálst að fá að láni úr safninu til fræðiiðkana og með tiikomu hi.nnar nýju ljós- myndunartækni eru allir vegir færir í þeim efnum. Með myndarlegu átaki í þess- um málum hefou ísler.dingar undirstrikað þann vilja sir.n að endurheimta íslenzk handrit í erlendum söfnum á áhrifameiri hátt en þeir geta með nokkru öðru móti — og óiíkt áhrifameirí en þótt allir pólitískir strákar landsins hrópi í kór: „Handritin heim!“ En ef einhver óttast fjár- hagshlið málsins, má benda á, að þjóðin hefur nú um árabil talið sig hafa efni á því að verja 4 milljónum króna á ári til rekstrar einnar menningarstofn- unar, sinfóníuhljómsveitarinnar, sem er í engum tengslum við ís- lenzka menningararfleifð, er gefið hefur og gefur Islending- um sérstakt og sjálfstætt gitdi í samfélagi þjóðanna.

x

Frjáls þjóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.