Frjáls þjóð - 10.01.1959, Blaðsíða 5
FRJALS ÞJÓ'Ð — oHaugarcfagínk 10. janúar !9B9
Fuglar tveggja haía.
XT’inhvers staðar langt vest-
ur í íjarlægu hafi, sem
Englendingar eiga þó ekki
eins og sjóinn í kringum ís-
land, enda landhelgin þar
nokkur hundruð sjómílna,
eru að sögn eyjar þær, sem
kallaðar eru Galapagosevjar.
Þetta eru fuglaeyjar miklar,
rctt eins og Vestmannaeyjar
og Papey, en Galapagosfugl-
arnir eru svo duglegir að
kúka, að þeir hafa hækkað
fjöllin til muna með þeim
hætti. Er það ólíkt svartfugl-
i’num hér í enska sjónum við
Island, þar sem þess gætir
varla, að hann hafi nokkurn .
tíma gengið örna sinna á
þurru landi. Þetta skiptir þó
ekki miklu fyrir okkur, hina
innfæddu, því að auðvitað
væri það sjálfsögð eign
þeirra í Húll og Grímsbý, ef
einhvers staðar hefði safn-
af hafi, þegar vorið nálgast
til þess að vitja um hvappið
sitt í bjarginu. Þar hefur orð-
ið skipting bæði út á við og
inn á við, en svo öflugur var
straumur hins nýja tíma, að
allir hafa þessir fuglar
haldið áfram að hækka í
hreiðrinu góða — þessu
hæsta fuglasetri á íslandi,
stjórnarhreiðrinu, höfuðbóli
allra þeirra valda, sem ekki
eru i höndum hinnar æðstu
forsjónar í Grimsbý og bak-
hjarls hennar vestur við Pó-
tómakk-elfu.
★
Verkfræðingurinn
og berserkirnir.
l%J‘enn litu því upp stórum
augum á dögunum,
þegar fram á sjónarsviðið
kom öllum að óvöru verk-
fræðingur einn, sem menn
náði beinum Jónasar Hall-
grímssonar (eða danska
slátrarans?) úr höndum
Öxndæla, þrátt fyrir undir-
skriftir þeirra í Bakkakirkju,
og kom kögglunum alla leið
til Þingvalla, þar sem Einar
Benediktsson hvíldi í ein-
semd í heiðursgrafreitnum,
og loks þann mann, sem
fyrstur allra í Alþýðuflokkn-
um vildi ekki þekkjast það
embætti, er flokkurinn var
búinn að troða upp á hann.
Það er sagt, að Ásver.jinn
hafi hrist höfuðið, er honum
var boðið að stýra fjármál-
um hjá þeim félögum, og ’
ekki gefið kost á öðru en út- 1
vega eitthvað af þýzkum
lánum, svo að þá brysti ekki
skotsilfur fram að fardögun-
um, við umsvif sína á Ber-
serkjahrauni tilverunnar.
82 milljónir greiddar í
vinninga á 25 árum
Á árinu 1933 voru saniþykkt á albingi lög um happdrætti
fyrir Island og fékk háskólinn cinkaleyfi til að reka peninga
happdrætti hér á landi það sama ár.
Var í fyrsta sinn dregið í Happdrætti Háskóla íslands, hinn
10. marz 1934, og er happdrættið því 25 ára um þessar mundir.
í fyrstu stjórn happdrættis- jfræði. Hús læknadeildarinnar
ins áttu sæti prófessorarnir verður væntanlega reist á
Alexander Jóhannesson, Bjarni Landspítalalóðinni og er áætl-
Benedíktsson og Magnús Jóns-jaður kostnaður við það um
Þrándur í Göta skrifar:
Galapagos og Berserkjahraun
azt stunguhæf skán á berg-
fláa. Það fer svo mikið af
enska heimalandinu undir
séntlimannsbúskap lávarð-
anna, að ekki veitir af að
bera vel á hitt, sem afgangs
er til þess að rækta í alvöru.
★
Hæsta fudasetur
á íslandi.
E
inhvers staðar á fornum
bókum íslenzkum er sá
vitnisburður forfeðranna, að
þeim þyki illir þeir fuglar,
er dríta í hreiður sitt. Þeir
hafa því verið lánsamir, að
hrafnarnir skyldu ekki tæla
Flóka Vilgerðarson alla leið
vestur á Galapagoseyjar.
Þeir hefðu ekki kunnað vel
siðum fuglanna þar. Þar
hefðu þeir aldrei fundið hina
einu sönnu lífsins langvíu.
Þeir voru ekki gefnir fyrir
að aka skarni á hóla, þó að
karlinn skegglausi á Berg-
þórshvoli léti gera það af sér-
vizku sinni.
En svo er fyrir að þakka,
að mennirnir standa ekki í
stað um allar aldir. Við erum
uppi á tímurn hinna öru fram-
fara, þegar allt tekur stakka-
skiptum á skömmum tíma,
fornar dyggðir eru lagðar til
hliðar eins og gamlar og
s’itnar flíkur, er ekki hæfa
hinni ungu glæsimennsku,
os nýir siðir koma í þeirra
stað.
Þess vegna er það, að
merkilegir fuglar á íslandi
hafa á seinni árum kaffært
hreiðrið sitt upp á sama máta
og Galapagosfuglarnir. Það
hefur vei’ið eitt tákn hinnar
miklu grósku og höfugu frjó-
serndar allra hluta, er orðið
hefur hlutskipti þéssá eý-
lands í enska sjiónum á síð-
asta áratug. Að vísu hafa
ekki ávallt sömu fuglarnir
stundað þetta hreiður ár eft-
ir ár, eins og títt-er um hina
vænghröðu fugla, sem koma
vissu ekki annað en hefði áð-
ur dyggilega ástundað Gala-
pagos-siðinn, og hafði með
sér sveit manna, sem hann
sagðist ætla að láta moka of-
an af hreiðrinu. Mátti þeim
þó vera nokkur eftirsjá að
skáninni, sem borin skyldi
burt, því að fyrir örfpum
vikum voru þeir einmitt
önnum kafnir við, að hlaða
henni upp, og jafnvel sótzt
það með enn meiri ágætum
en flestum, sem þar höfðu
verið að verki áður.
Hér er þó nokkur bót í
málinu, því að umskiptin
eiga ekki að verða afskap-
lega snögg. Verkfræðingur-
inn hefur reiknað það út, að
það sé honum og berserkjum
hans hæfilegt ætlunarverk
að nema burt svo sem sex
eða sjö prósent''áf skáninni,
en geyma vísindunum af-
ganginn til ráðstöfunar síðar.
Örlög á dögum
Víga-Styrs.
Oú er sögn manna, að verk-
k-' fræðingurinn hafi viljað
fá sér til fulltingis fjöhnenn-
ara lið berserkja til þessara
nýárshreingerninga en hon-
um hlotnaðist, og eru þar
nefndir til Gísli úr Ási og
Jónas úr Laugarnesi og Torfi
sá, er tollana krefur af lýðn-
um. En þeir munu hafa
minnzt’þess, hvernig Víga-
Styr lék forðum berserki
sína, er þeir höfðu rutt veg-
inn um hraunið fyrir vestan
og fengu að fara í gufubað
að loknu verki. Þess vegna
veittu þeir þess engan kost
að gerast taðberar hins nýja
húsbónda á kærleiksheimili
íslendinga, enda þótti þeim
honum ekki iiðs vant, þar eð
hann hafði einvalaliði á að
skipa meðal heimamanna
sinna — lögmann þann, sem
dómum stýrði í timburmáli
Suðurnesjamanna hér um ár-
ið, héraðshöfðingjann, sem
son. Frá upphafi hefur Pétur
Sigurðsson, háskólaritari verið
framkvæmdastjóri þess.
Fyrsti skrifstofustjóri var
Jörgen Hansen, en hann lézt
1957 og tók þá við því starfi
Páll H. Pálsson.
Núverandi stjórn skipa pró-
fessorarnir Ármann Snævarr,
sem er form., Alexander Jó-
hannesson og Sigurbjörn
Einarsson.
MIKLAiK FRAMKVÆMDIR.
10 millj. kr.
Fyrir fé Tjarnarbíós eru nú
hafnar framkvæmdir við
kvikmynda- og hljómleikahöll
sem rúrna á í sæti 1000 manns.
Verður hús þetta mjög full-
komið að öllum búnaði.
70% GREITT
í VINNINGA.
Happdrætti Háskólans greið-
ir 70% af andvirði seldra miða
í vinninga og er hvergi vitað
um, að jafnhá hlutfallstala sé
Fyrir hagnaðinn af rekstri! greidd í vinninga.
happdrættisins á undanförnum Fyrsta árið nam hagnaður af
25 árum hefur hús Háskóla rekstrinum rúmlega 100 þús-
Íslands verið reist, svo og und kr., en samtals hefur hann
íþróttahús háskólans og lcð numið í þessi 25 ár um 20
fyrir
Rúsínusneiðar
í hættu.
T-|essi tíðindi öll hafa að
sjálfsögðu þótt mikil vítt
of heimsbyggðina, og er þess
af mörgum beðið með nokk-
urri óþreyju að sjá, hvað for-
görðum fer og hvað bjarg-
ast í þessari umbyltingu
allri. Er þar mörgum annt
um rúsínusneiðina sína.
Eitt hinna meiri mála, sem
enn er í mikilli tvísýnu, er
Kapriförin á hinu nýbyrj-
aða ári, og er þó sannarlega
hart aðgöngu, ef svo góðfræg
hefð fer forgörðum og allt,
sem gert hefur verið til þess
að koma festu á starfsemi
skemmtiklúbbs alþingis og’
flugráðs, rennur út í sand-
inn. En það er lúmskur grun-
ur margra, að berserkja-
stjórnin muni að minnsta
kosti alls ekkert hneigjast að
róðukrossum Rómaveldis eða
slægjast eftir blessun páfans
handa vikakörlum sínum í
nefndum og ráðurn, frekar
vilja senda þá sér til hress-
ingar norður í Tröllabotna,
sem er berserkjum meir að
skapi. En það er ógnþrung-
inn staður, því að þaðan
kemur hafísinn og þar eru
hvítabirnir, nauðaáþekkir
þeim, sem stundum gengu
hér á land, eins og segir í
annálum, og brutu upp fiska-
skemmur manna og átu
skreiðina, sem ætluð var
mannfólkinu. Við slíkar
skepnur geta ekki aðrir feng-
izt en þeir, sem bjarnsterk-
ir eru og hugaðir að sama
skapi. Því er efasamt, að
hinn Kaprívani skemmti-
klúbbur ráðist i Tröllabotna-
ferðina, eftir að hafa hingað
til notið páskayls af sól Suð-
urlanda.
Þá er vert að minnast þess,
að útséð er um sjö vikna or-
iof það. sem hefðin hafði
helgað kjörnum fulltrúum
þjóðarinnar um háveturinn,
þegar skemmstur er dagur,
til sámræmis við það, að
hans var lagfærð
happdrættisins.
Þá var hús Atvinnudeildar
Háskólans og reist fyrir fé
happdrættisins, en sá kostnað-
ur heíur þó verið greiddur
aftur smátt og smátt af ríkis-
sjóði.
Meðal framkvæmda sem nú
eru fyrirhugaðar, er hús fyrir
læknadeild háskólans og byggð
verður hæð ofan á íþróttahús-
ið, þar sem komið verður fyrir
tilraunastofum i efna- og eðlis-
verkamenn, sem kvaddir eru
til þess að vinna lítið hand-
arvik, fá kaup fyrir nokkru
lengri tíma. Einnig það hlýzt
af umbrotum þeim, er orðið
hafa á Berserkjahrauni
stiórnmálanna.
Það er mörg búmanns-
raunin.
★
Vonir h'aríans.
fé millj. króna, þar frá dregst
hlutur ríkissjóðs um 4 millj. kr.
Á 25 árum hefur happdrættið
greitt í vinninga 82 milljónir
króna, þar af 426 þúsund fyrsta
starfsárið, 1934.
Nú um áramótin fjölgaði
númerum í happdrættinu um
5 þúsund, en vinningsmögu-
leikar verða eftir sem áður
þeir sömu, þar eð vinningum
er fjölgað að sama skapi. Verða
nú gefin út fimmtíu þúsund
númer, en vinningar verða.
12,500 á ári. Meðal þeirra eru
tveir á % millj. kr. auk fjölda
annara stórvinninga.
Dregið verður næst þann 15.
þ.m., en sölu miða lýkur þann
10. jan.
Það færist nú mjög í vöxt, að
starfshópar, fyrirtæki og fjöl-
skyldur kaupi heilar samstæð-
ur af miðum allt upp í 100 miða
í númeraröð, enda aukast
vinningsmöguleikar mjög við
slíkt.
Óhætt er að segja, að hver
Tjannig eru mörg teiknin ’ sem á miða í Happdrætti Há-
ljót og viðsjárverð. Já skólans, styður með því gott
— einhver voldugur maður málefni, því að „vísindin
nefndi tugi milljóna, sem rík efla alla dáð“ og framundan
issjóður eyddi að þarflausu.1 eru nú mörg og aðkallandi
En eftir á að hyggja: Hafa ^ verkefni, sem ágóða af happ-
ekki einhverjir góðir borg- drættinu er ætlað að leysa.
arar fengið þessa tugi millj- ------------------------------
óna, og missa ekki manna- pRJÁLS þjQÐ er út-
um, ef þeir verða fengnir j breiddasta VlkublaðlO, T]Ol-
fólki, sem kaupir kæsta lesið í boi'g Og SVeit.
skötu og súrmjólk?
En ekkert er tapað, á með-
an vonin lifir í hjai’tanu.
Kannske lifir einhver sú von- J
arglæta, að berserkirnir Em-
ils séu ekki eins bölvaðir inn
við beinið og höfðingi þeirra
hefur verið hrjúfur í orðum.
Ef. til vill verður breytingin
ekki svo ýkjasár, þegar öllu
er á botninn hvolft. Kannski
verður ekki einu sinni haft
hestaskipti við_ stallinn að
neinu ráði. Kannske verður |
ekki stungið svo djúpt í tað-
ið í hreiðrinu, að neinn verki
undan skóflunni. — Guð ræð-
ur, hvar mennirnir dansa um
næstu jól, og það er kannske
hvöt til þess að fara að öllu
með gætni.
Auglýsið l>ví í
FRJÁLSRI
Þ.IÓÐ.
Bifreiðasalan
BÍLLINN
Varðarhúsinu
stnai 1S - S - 33
Þar sem fíestir eru
bí! arnir, fíar er úrvalið
mest.
Oft góðir greiðslu-
skilmálar.