Frjáls þjóð - 20.02.1960, Blaðsíða 1
9. árg. Laugardaginn 20. febrúar 1960 7. tbl.
Skemmtun þjóð-
vamarféEaganna
á fimmtudaginn
Þjóðvarnarfélögin í Reykja-
vík gangast fyrir skemmtun n.
k. fimmtudag, 25. þ. m. i Fram-
sóknarhúsinu uppi, og hefst
hún kl. 9 síðd.
Til skemmtunar verður m. a.
félagsvist og dans, enn fremur
happdrætti o. fl. Félagsmenn
eru hvattir til að fjölmenna og
taka með sér gesti.
Politískur frímerkjaþjófnaður
lögvernduð rán gðmlu flokkanna
Rit eitt, sem Viðreisn nefnist og er áróSursrit um
hmar nýju hallærisráðstafanir, hefur vakið umræður
um það, hvernig stjórnmálaflokkarnir fara að því að
láta ríkissjóð kosta starfsemi sína. Ritlingur þessi er
nefnilega prentaður á ríkiskostnað, og hefur þeirri
ráðstöfun verið líkt við frímerkjaþjófnaðinn hjá póst-
og símamálastjórmnni.
Hér er komið að miklu stærra
og víðfeðmara máli en í fljótu
bragði gæti virzt. Um langt
skeið hefur nefnilega verið um
það hið nánasta og bezta sam-
starf allra gömlu stjórnmála-
flokkanna f jögurra að fara ráns-
hendi um almannafé og lög-
helga þær aðferðir, sem vel má
Jíkja við frímerkjaþjófnaðinn.
Þeir bafa komið sér upp mjög
viðamiklu kerfi, sem tryggir
þeim milljónir króna af al-
mannafé á ári hverju undir alls
konar yfirskini, en er þó ekki
annað en pólitískur útgerðar-
kostnaður.
Nefndir o? ráS.
Það er alkunna, að hér á
landi eru til nokkur hundruð
nefnda og ráða, sem skipuð
eru fulltrúum stjórnmála-
flokka. í þessar pólitísku stofn-
anir er ýmist kosið á alþingi
sjálfu í samræmi við atkvæða-
magn flokkanna þar eða nefnd-
armenn eru skipaðir af ráðherr-
um, með eða án tilnefningar
flokkanna. Launin eru ákvörð-
uð af flokkunum bak við tjöld-
in, nær ævinlega miklu hærri
en svarar til þeirrar vinnu, sem
þessar nefndir og ráð láta í té.
Til þess eru líka refarnir skorn-
ir, því að þarna eru flokkarnir
að seilast til opinbers fjár til
þéss að kosta hjá sér hið póli-
tíska úthald og gera gæðingum
sínum lífið þægilegt. Þetta er
þeirra löghelgaði frímerkja-
þjófnaður.
Hver hlutur
á sinn sta£.
Allt er þetta kerfi í mjög föst-
um skorðum. Ráð og nefndir,
sem tengd eru meiri háttar fjár-
málastofnunum, svo sem bönk-
um, stóriðjufyrirtækjúm eða
útflutningsgreinum, eru eins
kopar viðhafnarsæti, sem ætluð
eru sjálfum eigendum flokk-
anna og örfáum mönnum, sem
þeir hafa tekið í sérstakt fóstur.
Þessar nefndir, bankaráð ug
verksmiðjustjórnir, gefa líka af
sér mestar tekjur fyrir minnsta
vinnu, að jafnaði allmarga tugi
þúsunda á ári. Geti sami stjórn-
málaforingi komið sér í tvö eða
þrjú slík saeti, fær hann há
embættislaun aukalega á ári
hverju í þóknun fyrir vikið.
Gerviendurskoðendur ýmissa
fýrirtækja eru einkum valdir
úr hópi gamalla og kalkaðra
stjórnmálamanna, og slíka end-
urskoðun hl(ióta til dæmis
sjálfir ríkisreikningarnir.
Blaðamenn eiga forgangsrétt
að nefndum, sem settar eru á
laggirnar í blóra við menning-
una, svo sem útvarpsráð og
menntamálaráð. Með þeim
hætti er hægt að láta ríkið
greiða þeim kaupuppbót.
Fleiri leiðir
að frímerkjaskápiuun.
Þetta er þó aðeins lauslegt og
fátæklegt yfirlit um hinn lög-
helgaða, pólitíska frímei'kja-
þjófnað. Álitlegum skara
manna er einnig séð fyrir tóbaki
og áfengi á kostnað ríkisins,
enda þurfa flokkarnir þess við
oft og tíðum. Stundum telja
sjálfir ráðherrarnir það ekki
eftir sér að vera í brennivíns-'
flutningum upp í sveitir fyrir
kosningar. Þingmenn og ráð-
herrar hafa líka ákvarðað sjálf-
um sér sérreglur, hvað snertir
greiðslu tekjuskatts og útsvars
af inntektum sínum, og sjálf-
um sér gefa ráðherrar bíla að
mestu leyti um það leyti, sem
ráðuneyti lýkur starfsferli. Sér-
stöku og ærið rausnarlegu eft-
irlaunakerfi hefur verið komið
á fyrir ráðherra, og engu fólki.
eru veitt eftirlaun á átjándu'
grein fjárlaga af jafnmikilli^
kurteisi og því, sem á einhvern
hátt hefur verið tengt eða
vandabundið þingmönnum.
Ríkisbílar eru oft látnir í té,
án tillits til þess, hvort embætti
það, sem menn gegna, krefst
slíks farartækis eða ekki, en
aðrir fá bílastyrki, jafnvel þeir,
sem engan bílinn eiga og þurfa
hans heldur ekki. Það eru hinir
pólitísku skóhlífastyrkir.
Algeng greiðasemi er það við
duglega flokksmenn, að þeir
Framkvæmda-
stjóraskiptí vii
Frjálsa þjóí.
Jón A. Guðmundsson, sem
verið hefur framkvæmdastjóri
og afgreiðslumaður FRJÁLSR-
AR ÞJÓÐAR undanfarin þrjú
ár, lét af því starfi um síðustu
mánaðamót. Á því tímabili, sem
hann starfaði við blaðið, jukust
auglýsingatekjur þess mjög og
fjárhagur þess fór batnandi,
enda varð öll þessi ár nokkur
tekjuafgangur. Þakkar blaðið
honum dugnað og ósérplægni
við þessi störf, sem unnin voru
fyrir lág laun.
í stað Jóns hefur nú ráðizt að
blaðinu Ingiberg Hannesson,
cand. theol. Hafa þjóðvarnar-
menn áður kynnzt störfum hans
i kosningaskrifstofu flokksins
síðastliðið ár og eru þess full-
vissir, að málefnum blaðsins sé
vel borgið í hans höndum.
Stjórnarflokkarnir að
falla frá vaxtahækkun?
Til hefur slaðið svo sem allir
vita, að útlánsvextir verði
bækkaðir í allt að 12%, þegar
binar nýju efnahagsráðstafanir
taka gikli.
Um það bi! er biaðið fór í
prentun, var sá orðrómur á
kreiki meðal stjómmálamanna,
að stjórnin væri að heykjast á
vaxtahækkuninni, og legðust
ýmis viðskiptafyrirtæki eink-
um þungt á þá sveif.
Blaðið reyndi að leita á þessu
staðfestingar eða synjunar, en
hvorugt Iá á lausu. En svo mik-
ið er víst, að orðrómur um þetta
er mjög útbreiddur í stjómar-
herbúðunum.
séu hækkaðir í iaunaflokkum
og færðir upp fyrir starfsfélaga
sína. Svo hefur nú alveg nýlega
verið gert við einn mann, sem
þessa daga er að skrifa í stjórn-
arblöðin um fóðrafénaðinn á
ríkisjötunni.
Enn ep það ein aðfei’ðin að
halda uppi fjölmennum sendi-
nefndum utan lands, þegar góð-
ir og gegnir stjórnmálamenn
þarfnast hvíldar í mildara lofts-
lagi en við njótum hér heima.
Fjölmenni sendinefnda, þegar
verið er að endurnýija gamla
viðskiptasamninga við aðrar
þjóðir, helgast af því, að margir
virðulegir kaupsýslumenn
krefjast þess af flokknum sín-
um, að þeir fái þægilega að-
stöðu til þess að gera innkaup
fyrir fyrirtæki sín.
Sttittsiut'í þakkttfr
Þegar ég nú læt af störfum
mínum við FRJÁLSA ÞJÓÐ,
eftir rúmlega þriggja ára starf,
þá vil ég þakka öllum þeim
mikla fjölda fólks úr öllum
stéttum þjóðíélagsins, sem ég
hef á einhvern hátt haft kynni
af í sambandi við útgáfu blaðs-
ins á undanförnum árum.
Undantekningarlaust hafa
þau kynni verið hin ánægju-
leguStu og til uppörfunar i þv£
starfi, sem nú er að baki.
Rvík, 10. febr. 1960.
Jón Auðunn GuSmundsson.
Tvennt er
hretjtt
Menn hafa veitt athygli
tveimur breytingum, sem gerð-
ar hafa verið á fjárlagafrum-
varpinu frá í haust. Ólafurí
Thors er ekki lengur getið á 18.
grein fjárlaganna, og ekkert
framlag er ætlað til ^jóssins og
hlöðunnar á Laugarvatni.
Feriaiangur á Síonsfjaíli
■1- - 'V'
Þessi stúlka stendur á hinu fræga Síonsfjalli, og að baki hcnnar sést eitt af úthverfum Jerúsal
emsborgar.