Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 07.12.1967, Qupperneq 1

Frjáls þjóð - 07.12.1967, Qupperneq 1
$iUU i 1967 LÉaæisi®s!B@æi§Basia§ŒBiagiiBiHii®!a!K!»®!iE®&®)iiSí§)si^iffisiiK] SVEINN SKORRI HÖSKULDSSON: ÞURÍÐUR A BORG Og SÓLRÚN Á TINDUM í hinu mikla riti Sveins Skorra Höskulds- sonar um Gest Pálsson, ævi hans og verk, er gerð rækileg grein fyrir líklegum fyrirmyndum að sagnapersónum Gests. Fer hér á eftir kafli um innlendan efnivið í söguna Kæríeiksheimil- ið. Kaflinn er allmikið styttur. Birtist. hann hér í þessari mynd með góðfúslegu levfi höf- undar. I Kærleiksheimilið er fyrsta saga Gests í raun- sæisstíl, sem varðveitzt hefur. Það var eitt boðorð raunsæisstefnunnar, að skáldskapur ætti að vera sannur, þ. e. lýsa raunverulegu lífi. Gripu raunsæishöfundar tíðum til fyrir- mynda, sem þeir þekktu af eigin reynd eða höfðu kynni af úr lífi annarra. Er því sérstak- lega fróðlegt að athuga, hvernig hefur verið háttað efnisöflun Gests til þessarar sögu. Skal nú gerð tilraun til að rekja helztu æviatriði þess fólks, sem líkur benda til, að hafi verið fyrirmynd Gests að helztu söguper- sónunum í Kærleiksheimilinu. Einnig verður hér bent á þá atburði, sem máttu verða hon- um fyrirmynd að söguþræðinum. Arið 1817 fæddist að Bjarghúsum í Vestur- hópi stúlkubarn, er hlaut nafnið Sólrún. For- eldrar hennar voru Sæmundur Brynjólfsson og kona hans, Kristín Jónsdóttir. Þau voru fátæk hjón, er bjuggu í Bjarghúsum ein síns liðs með börn sín þrjú. Sólrún var fermd 1832, þá fjórtán ára gömul. Arið 1837 gerist Sólrún vinnukona í Hnausa- koti í Miðfirði. Þar bjuggu þá Benedikt Ein- arsson smiður og læknir (hómópati) og kona hans, Helga Árnadóttir. Höfðu þau ómegð þunga, en bú lítið. Ekki höfðu þau hjúa utan Sólrúnu. Það varð að tíðindum í Hnausakoti 26. des. 1837, að vinnukonan ól stúlkubarn, er skírt var Helga. Fór skírnin fram heima vegna veik- inda bamsins, og skírði Benedikt það skemmri skírn. Hefur Sólrún látið heita í höfuð Helgu, húsmóður sinnar. í prestsþjónustubók er faðir barnsins skráður Zaehæus Bjarnason „flæk- ingsmaður“. Þetta barn dó 16. nóv. 1839 úr barnaveiki. 1 sóknarmannatali er Sólrún síðan talin vinnukona hjá þeim Benedikt og Ilelgu áfram, og hafa þau ekki annað hjúa. Sonardóttir .: . . >: .■:.: Jtfr • • •• •,. • •:•.• Gestur Pálsson Benedikts, Ragnhildur Hjartardóttir Wiese, hefur sagt mér, að Helga, kona Benedikts, hafi verið geðveikluð og heimili þeirra raunveru- lega í upplausn, er Sólrún kom til þeirra. Hið sama hefur sagt mér Magnús F. Jónsson eftir Hirti Líndal, syni Benedikts, en þeir þekktust vel. í sóknarmannatali 1840 er Sólrún talin ráðs- kona hjá Benedikt, en ekki verður séð af kirkjubókum, hvað af Helgu konu hans hefur orðið. Mun hún þá hafa liorfið til frændfólks síns. Sólrún var síðan ráðskona hjá Benedikt áfram. Á gamlársdag 1843 ól hún sveinbarn, sem skírt var Benédikt. í prestsþjónustubók er faðir þess sagður Illugi Ketilsson, vinnumaður í Núpsdalstungu. Var þessi bameign talin ann- að frillulífsbrot foreldranna beggja. Magnús F. Jónsson segir mér, að hinn raun- verulegi faðir beggja þessara fyrstu bama Sól- rúnar hafi verið Benedikt bóndi í Hnausakoti. Gerði hann ekki annað en það, sem þá var títt meðal góðra bænda, að þeir fengu múga- menn til að gangast við þeim bömum, er þeir gátu við vinnukonum sínum. Um faðemi barna þessara ber einnig hið sama Ragnhildur H. Wiese. Helgu, konu Benedikts, mun Sólrún svo hafa ýtt af heimilinu, þegar henni hafði nokkuð tekizt að festasig í bústýrusessinum í Hnausakoti. Þau Sólrún og Benedikt giftust 30. janúar 1846.'Er þess getið um brúðkaup þeirra, að morgungjöf til brúðarinnar hafi verið 30 spesíur danskar, silfurskeið og biblía, Sama ár, 12. nóvember, fæddist þeim sonur, sem skírður var Jakob Benedikt, en það bam dó síðan 20. nóv. s. á. Eftir að Benedikt kvæntist Sólrúnu, hefur búskapur hans sýnilega tekið að blómstra. Voru hjá honum í Hnausakoti 1848 talin í sóknarmannatali auk tveggja bama frá fyrra hjónabandi, einn vinnumaður, tvær vinnukon- ur, léttapiltur, og auk þess var þar talin til heimilis húskona með son sinn. Benedikt og Sólrúnu fæddist dóttir 16. júní 1848. Var hún skírð Mildiríður Margrét. En Benedikt Tllugason, sem áður segir, lézt úr andateppu 11. jan. 1849. Enn fæddist þeim Benedikt og Sólrúnu sonur 27. jan. Í854. Hann var skírður Hjörtur Líndal. Þau Sólrún «g Benedikt bjuggu síðan áfram

x

Frjáls þjóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.