Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 07.12.1967, Síða 3

Frjáls þjóð - 07.12.1967, Síða 3
V mwwwwwwmiwwwwwswmmtwwiswiswwwwwwwMwwwwwwwmwwwwwwwwwwwwmtwwwwwwwwwwwwwww í Hnausakoti. í hjónabandi varð þeim auðið ''sjö barna, en af þeim lifðu aðeins þau Hjörtur Líndal og Margrét. Hagur þeirra virðist hafa farið batnandi á þessum árum. Þannig eru þau í sóknarmannatali 1859 talin hafa sex hjú. Er það allmikil breyting frá því, er Sólrún var ein vinnukona í Hnausakoti. Benedikt lézt 26. des. 1859. Eftir lát hans var búi þeirra Sólrúnar skipt við skiptarétt, sem haldinn var í Hnausakoti 9. maí 1860. Auk Sólrúnar og barna hennar tveggja áttu til arfs að kalla eftir Benedikt sex börn hans af fyrra hjónabandi. Segir, að í réttinum hafi verið lagt fram gjafabréf frá Benedikt, þar sem hann gaf börnum þeirra Sólrúnar fjórð- ungsgjöf af fé sínu. Má ganga að því vísu, að það gjafabréf hefur hann gert í samráði við Sólrúnu, ef ekki að hennar hvötum, sem er líklegra, og sýnir það ásamt öðru glögga fjár- umsýslu hennar. Skuldlaust bú þeirra reyndist 1625 ríkis- dalir og 13 skildingar. Með fjórðungsgjöfinni komu í hlut hvors barna Sólrúnar 168 ríkis- dalir og 42 5/48 skildingar, en í hlut hvers hinna barna Benedikts komu 67 ríkisdalir og 36 1/24 skildingar. Þess skal getið, að í hlut Hjartar, sem þá var sex ára gamall, komu einkuin lækningabækur föður hans og önnur rit og hluti í jörðinni Efra-Núpi. Bendir sú skipting til þess, er síðar kom á daginn, að Sól- rún ætlaði þessum syni sínum eigi alllítinn hlut og vildi koma honum til mennta. Ekki bjó Sólrún lengi í Hnausakoti sem ekkja, heldur giftist hún 7. júlí 1860 vinnu- manni sínúm, Birni Ólafssyni. Er eftirfarandi klausa um fjármál þeirra skráð í prestsþjón- ustubókinni: „Fjárskilmálar að lögum, ef lífserfingja eiga saman, en deyi hann án þess, þá á hún að ganga að öllu, föstu og lausu, en Sólrún annist þá dóttur hans, Hólmfríði“. Björn þessi var mesti mannkostamaður, vel menntaður að þeirrar tíðar hætti og mikið góðmenni. Hafði Sólrún á honum ákafa ást. Hann var miklu yngri en hún, fæddur 1830. Hjörtur stjúpsonur lians unni honum einnig mjög. Bjöm varð brátt meðhjálpari og hrepp- stjóri, eftir að hann kvæntist Sólrúnu, en það hafði Benedikt einnig verið. Ekki lifði Sólrún lengi í lijónabandi með Bimi, því að hann lézt 23. júlí 1864. Bar dauða hans sviplega að. Var hann á ferðalagi staddur á Stóm-Giljá, og segir, að hann hafi látizt af taki. Þegar Sólrún var nú ekkja í annað sinn í Hnausakoti, gerði sér ferð til hennar Jón Sig- mundsson, sem þá bjó á Króksfjarðarnesi í BarðaStrandarsýslu. Var erindi hans að fala hana sem ráðskonu, en af skörungsslcap henn- ar og glöggri búsýslu fór þá mikið orð. Tók Sólrún því í fyrstu víðsfjarri, en svo fóru leikar um síðir, að hún fór til hans sem bú- stýra. Fluttist hún vestur að Króksfjarðar- nesi 1865. Sama vor keypti hún jörðina Tinda í Geiradal, og sýna gjörningar um þau kaup kapp hennar og glögga fjárumsýslu. Jón Sigmundsson var óreglumaður, og gekk búskapur hans að mörgu leyti á tréfótum. Hefur Sólrúnu þótt öruggara að hafa vand- lega um alla hnúta búið, er að viðskiptum þeirra lutu. Gerðu þau með sér ýtarlegan samning. Með þeim samningi leigir Sólrún Jóni alhnikinn kvikfénað, hundrað ær, hundr- að sauði eldri en veturgamla, tvo lirúta, þrjár kýr og tíu hesta. Síðan segir í samningnum: „f leigu eftir áðurgreindan pening skal hann (þ. e. Jón Sigmundsson) ár hvert borga allar, þann kostnað, er leiðir af því að koma syni mínum, Hirti Líndal, til menningar og mennt- unar, svo lengi sem ég er hjá Jóni, en skyldi sonur minn deyja, hætta lærdómsstörfum eða hafa þegar af lokið áður en við Jón skiljum samvistir, skal hann gjalda mér áminnsta leigu með 100 — eitt hundrað — ríkisdölum r. m. árlega, sem mér séu skilvíslega greiddir við hvers árs lok“. Undir skilmála Sólrúnar, sem eru allmargir, ritar Jón Sigmundsson á þennan veg: „Að ofanskrifuðum skilmálum geng ég án undantekningar og lofa að halda þá með þeim AÚðauka, að ég skuldbind mig til að farga engu mikilvægu úr búi mínu án ráða og vitundar madme Sólrúnar eða sem gæti gefið tilefni til, að ekki virtist næg trygging í búi mínu fyrir skuld hennar“. Þessum fjármunum 'Sólrúnar til tryggingar veðsetti Jón síðan allar fasteignir sínar og lausafé. Ymislegt í samningi þessum bendir til þess að Jón hafi mjög mátt ganga á eftir henni til ráðskonustarfans. Hefur Sólrún sýnilega ekki ætlað fjármunum sínum að verða Jóni svallfé. Hefur honum og verið mjög í mun að gera hann til menntunar, en hann gaf á sliku engan kost, varð henni að orði: „Þig á einhvérn tíma eftir að iðra þessa, Hjörtur minn“. — „En það held ég að sé nú eina spá móður minnar bless- aðrar, sem ekki hefur rætzt“, bætti hann við á eftir. II Sólrún og Jón Sigmundsson bjuggu fyrst í Króksfjarðarnesi, en fluttust síðan að Tindum, eignarjörð Sólrúnar. Þar voru þau til 1871, en það ár fluttist þangað úr Húnavatnssýslu Margrét dóttir Sólriinar, er áður getur, ásamt manni sínum, Finnboga Guðmundssyni, og börnum þeirra fjórum. Fóru þau Jón og Sól- rún þá aftur að Ivróksfjarðarnesi. Sama árið og Finnbogi og Margrét fóru að búa á Tindum fluttist til þeirra vinnukona að nafni Elínborg Gísladóttir. Hún var fædd 28. apríl 1850 í Hvarfsdal á Skarðsströnd. Móðir hennar var Guðbjörg Bjarnadóttir „til veru“ í Hvarfsdal, ógift, en faðir Gísli Sæm- undsson kvæntur bóndi í Hvarfsdal. I sóknarmannatali 1872 er Elínborg Gísla- dóttir talin vinnukona á Tindum. Það ár fer bústýru sinni allt til hæfis. Sést það á þeim viðbæti, sem hann gerir við samninginn. Jón hefur einnig um þessar mundir haft í hyggju nánari tengsl við Sólrúnu. Er í vörzlu Ragn- hildar Hjartardóttur Wiese konunglegt hjóna- vígsluleyfisbréf, dags. 11. ágúst 1866, til handa þeim Jóni og Sólrúnu. En ekki varð það bréf notað að sinni. Af þessum samningi verður einnig ljóst, hvert hefur verið aðaláhugamál Sólrúnar, en það var að koma Hirti syni sínum til mennta. Ætlaði hún honum að verða læknir. Lét hún Hjört í barnaskóla suður í Reykjavík, sem þá var mjög fátítt, ef ekki einsdæmi um bænda- börn. Veturinn 1866—67 kveður Þorvaldur Thor- oddsen Hjört hafa verið sér samtíða við nám hjá Sveini Skúlasýni í Reykjavík. Síðar hefur Hjörtur dvalizt um tíma á Staðastað hjá séra Sveini Níelssyni til náms. Er hann þar í sókn- armannatali árið 1869 kallaður kennslupiltur. Þó að Sólrún væri ráðrík og ætlaði Hirti syni sínum að menntast, hafði hann á slíku lítinn hug. Hafði hann einnig erft skapríki móður sinnar og lét sinn hlut hvergi. Varð ekki af menntaiðkan hans. Sagði Hjörtur frá því síðar, að eitt sinn, er móðir hans hvatti Hjörtur Líndal að Tindum til systur sinnar og mágs. Kemur hann þangað frá Stykkishólmi. Sú var orsök til þeirrar Stykkishólmsdvalar Hjartar, að Sólrún ætlaði honum að verða læknir, eins og áður segir, og kom honum til læringar hjá lyfsala í Stykkishólmi. í sóknarmannatali 1873 eru síðan á Tind- um talin til heimilis Elínborg sem vinnukona og Hjörtur Líndal húsmaður. Mun þá hafa hafizt með þeim sá kunningsskapur, sem síðar varð að meiri tíðindum, er brátt mun að vikið. Sama ár, 8. ja.núar, giftust þau Jón Sig- mundsson og Sólrún. Ekki brá Sólrún vanda sínum um nákvæma fjárskilmála. Voru á milli þeirra samþykktir rækilegir skilmálar og færð- ir inn í prestsþjónustubók. Þar segir, að allar fasteignir Sólrúnar, Tindar í Geiradal, 10 hundruð í Gautsdal, Skárastaðir í Hxinavatns- sýslu og hálft Hnausakot skuli „að öllu leyti fráskildar sameignarbúi þeirra.“ Þá var og kveðið svo á, að 250 ríkisdalir skuli renna til Hjartar Líndal af óskiptu búi þeirra Jóns. Sést hér enn, hve ákaflega Sólrúnu var annt um fjárhag sinn og sinna, einkum Hjartai sonar síns. Nú dró til þeirra tíðinda, að 7. maí 1875 lézt Jón Sigmundsson. Hafði harn hin síðustu l»»»»»>Í»»»>Í>Í»»»»»>Í»>Í»»»>i»»>i»»>Í»»»»»»»»»»»»l»»>i>»»»»»»M*»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»M Frjáls þjóð — JÓLABLAÐ 1967 4

x

Frjáls þjóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.