Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 07.12.1967, Page 5

Frjáls þjóð - 07.12.1967, Page 5
 ist af landi brott, fyrst til Danmerkur, en giftist síðan í Englandi. Hjörtur Líndal fluttist árið 1879 að Núps- dalstungu, og 17. júní það ár missti ha.nn Guðfinnu konu sína af barnsburði. Hann trú- lofaðist ftiðar Olöfu Bjamadóttur, systur Guð- finnu, en hún l'ézt, áður en þau giftust, af barnsburði og afleiðingum misEnga 21. júlí 1882. Hjörtur komst loks varanlega og far- sællega í hjónaband, er hann kvæntist Pálínu Ragnhildi Björnsdóttur frá Aðalbóli 4. ágúst 1883. Varð hann síðar einn mestur sveitar- höfðingi um aHt Húnaþing og liinn farsælasti maður í hvívetna. Sólrún fluttist til Hjartar sonar síns að Efra-Núpi 1883 og var hjá hon- um, unz hún lézt 25. apríl 1896. Margrét dóttir hennar og Finnbogi fhvttust til Ameríku 1883 ásamt börnum sínum öílnm. Slíkur var í stórum dráttum æviferill þess fólks, sem ég tel miklar líkur benda til, að Gestur muni að -sinhverju leyti hafa haft í huga, er hann sapidi Kærleiksheimilið. Skal nú nokkru nánar hugað að einkennum þess og persónulegum eiginleikum. Ems og ljóst má verða af því, sem hér hefur verið rakið um búsumsýslu Sólrúnar Sæmundsdóttur og fjárreiður, hefur hún verið mikil hæfileikakona. I fjármálum var hún firnaýtin. Hún var vinnuliörð sem húsmóðir og skapmikil. Þótt flestar heimiidir, sem um Sólrúnu hafa varðveitzt, bendi til harðdrægni liennar í fjár- málum og mikils ráðríkis um flesta hluti, hef- ur þó þessi kona átt til hjartahlýju undir hrjúfu yfirborði. Um það vitnar bréf frá henni til Hrefnu dótturdóttur hennar, sem fór til Ameríku. Er bréfið einkar hlýlegt, en tæki- færið þó notað til að brýna fyrir telpunni ýms- ar góðar dyggðir, svo sem iðjusemi og hjálp- semi við aðra. Minnir gamla konan dóttur- dóttur sína á, að ættir hennar megi rekja til fomra konunga, og skuli hún láta það á sann- ast, að henni sé ekki úr ætt skotið. Ber bréf þetta stolti Sólrúnar vitni og lífsreynslu hinn- ar hyggnu húsmóður, sem þekkti af eigin reynslu gildi iðjuseminnar. — En það var eink- um skuggahlið rausnarkonunnar Sólrúnar, sem Gestur málaði, þegar hann lýsti Þuríði ríku á Borg. Hirti syni sínum unni Sólrún umfram aðra menn, svo sem Ijóst má verða af þeim gjörn- ingum, sem hér hefur verið til vitnað. Ó1 hún hann upp í taumlausu eftirlæti og vildi þó láta liann hlýða sér í öllu. En Hjörtur hafði á marga lund erft stórlæti móður sinnar og fór sírni fram. Vildi liann ekki ganga mennta- veginn,, svo sem honum var fyriihmgað. Hjört- ur var glæsimenni í sjón og gleðimaður mikill. Um hann segir Björn .Tónsson, sem ó4st npp í Mýratungu hjá PáE föðwr Gests: „Fræknastur gllmumaður í Reykltólasveit um þessar mundir var Hjörtur Líndal, sem seinna varð stórbóndi á Efra-Nópi í Miðfirði og héraðsskörungur.“ Enn er hér ótalinn sá þáttur í æviferíi Sól- rúnar, sem mætti liafa orðið Gesti fyrirmynd að dáleikum Þuríðar ríku á Borg og sáhi- sorgara hennar, séra Eggerts á Bakka. Vestra var sóknarprestur Sólrúnar um hríð séra Ólafur E. John.sen á Stað á Reykjanesi, sem gegndi Garpsdal ásamt sínu kaRi 1868— 1874. Af honum tók við Steingrímur Jónsson 1874—1880. Hajxy var svo ungvir maður, að naumast getur þar verið um að ræða fyrir- mynd að liinum aldraða, sléttmála og harð- dræga sálusorgara í Kærleiksheimilinu. Og síðastur var þar prestur hennar Ólafur Ólafs- son. Nú hafði Ólafur .Tohnsen ýmsa þá eigin- leika, að hann gat auðveldlega fyrir þær sakir orðið Gesti fyrirmynd séra Eggerts í Kær- leikslieimilinu. En litlir dáleikar munu hafa verið með þeim Sólrúnu og Ólafi. Glettist Sól- rún auk heldur til við þennan sálusorgara sinn. Varð sú gletting með þeim hætti, að hún fékk vinnukonu á næsta bæ til að skíra barn, sem hún átti í lausaleik, Ólaf Þórðarson Guðfinn. Skeytti hún þar saman nöfn þeirra séra Ólafs og Bjarna Þórðarsonar bónda á Reykhólum, er voru helztir höfðingjar um þessar slóðir, en hnýtti aftan við nafni Guðfinns Hjaltasonar, er var vinnumaður þar í sveitinni og hafði alizt upp á hrepps kostnað. Var sú samtenging höfðingjanna við vinnumanninn gerð hinum fyrrnefndu til háðungar. Hins vegar var Sólrún í vináttu við þann prest við Breiðafjörð, sem í einna ríkustum mæli mun hafa haft til að bera ýima þá eðtis- þætti, er Gestur gæðir hinn heimssinnaða guðsmann í Kærleiksheimilinu. Það var séra Friðrik Eggerz í Akureyjum. Að vísu dróst Sólrún inn í togstreitu séra Friðriks við tengdason hans, Jón Pétursson dómstjóra, út af sameiginlegum jarðeignum þeirra, með því að hún var á Króksfjarðamesi landseti þeirra beggja. Eru varðveitt ýmis bréf, er sýna skipti Sólrúnar og þessara höfðingja. Bera þau þess vott, að Sóirún hefur þurft á öllu sínu atfylgi að halda til þess að sigla milli skersins og bárunnar, þar sem hún með nokkrum hætti flæktist í erjur þeirra tengdafeðganna. Hefur hún haft af þessu þungar áhyggjur, sem eðli- legt var, því að vináttu beggja hefur hún vilj- að hafa til þess að halda ábúð á hálflendu þeirra í Króksfja.rðaroesi. Sýna öll viðskipti þessarar lítt menntuðu alþýðukonu við þessa harðdrægu menn, hve miklum hæfileikum hún hefur verið búin. Svo fór þó að lokum, að Sólrún varð að sleppa ábúð sinni á Króksfjarðarnesi, þar eð Jón Pét.ursson vildi fyrir hvern mun byggja jörðina öðmm, sem þá hafði umboð fyrir Jón yfir Staðarhólseignir. Síðustu bréf Sólrúnar til séra Friðriks Egg- erz bei*a því vitni, að henni hafi verið hlýtt til klerksins í Akureyjum. Þa.u hafa að geyma meiri einlægni en innantóma kurteisi og fals- lausari vináttu en hræðslugæði landsetans. Svo segir í niðurlagi bréfs Sólrúnar til séra Friðriks, dags. á Tindum 4. júlí 1878: „Tvennar verða mannsævirnar. Nú hafði ég ekki til nema fjögurra manna far fyrir pilta héðan, og eru það bág lirræði. En ég dirfist til að biðja yður auðmjúklega fyrr en aðra að ljá mér skip og mann út í Hólm á móti fullri borgun. Eg hef þá von og trú, að þér reynist mér alltjent bezt, þegar mér liggur mest á. Mig liefur lengi langað til að skríða út í Akur- eyjar, en heilsan leyfir það ekki. Eg bið yður að fyrirgefa mér bónarkvabbið og allan ófullkomleika á seðlinum. Líði yður og öllum yðar sem bezt. Virðingarfyllst. Yðar vinkona Sólrún Sœmundsdóttir.“ IV Ef borin er saman atvikarás Kærleiksheim- ilisins við þá sögu, er hér hefur verið rakin af Sólrúnu Sæmundsdóttur og afkomendum henn ar. kennir í Ijós, að hliðstæður eru furðulega margar og augljósar. Þegar við það bætist, að persónulýsingar Gests í sögunni eiga sér lík- ingu meðal þessa fólks, hlýtur eðlileg ályktun að vera sú, að hann hafi notað það fólk og þá atburði, er að framan greinir, sem fyrirmynd i sögu sinni að einhverju leyti. Kveikjan, sem sagan rís upp af, er að minni hyggju sú atburðarás, sem hér að framan hef- ur verið leitazt við að rekja í sem stærstum dráttum. Það eykur og stórum líkurnar fyrir því, að þessi sé fyrirmyndin, að Gestur dvald- ist heima í Mýrartungu frá því í júlí 1877 fram til miðsumars 1878, þess sumars, þegar Hjörtur Líndal kvæntist, eftir að Guðbjörg Bjamadóttir hafði alið honum son, sem síðan lézt um haustið. Einnig er liklegt, að hin fyrri barneign Hjartar hafi verið fersk í umtali fólks um þessar mundir. Þá urðu og um sama leyti þau viðskipti Sólrúnar og séra Friðriks. sem hér hefur verið drepið á. Um Þuríði segir í Kærleiksheimilinu: „Hún hafði verið þrígift og lifað menn sína alla og verið jafnt húsbóndi sem húsfreyja fyrir þá alla.“ Með þessari stuttorðu frásögn er sagður meginhlutinn af ævi Sólrúnar. Rakið hefur verið ráðríki hennar. Lætur að líkum, að hún muni tíðum hafa haft bæði tögl og hagldir á heimili sínu. Hún réð fljótlega mestu um ba- skap þeirra Benedikts Einarssonar, og ætla Frjáls þjóð — JÓLABLAÐ 1967 8

x

Frjáls þjóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.