Þjóðvakablaðið - 23.08.1995, Page 5

Þjóðvakablaðið - 23.08.1995, Page 5
ÞJÓÐVAKI 5 Bréftil blaðsins Málakunnátta í ferðaþjónustu Kynningarrit og upplýsingar á erlendum málum, sem er dreift víðs vegar um landið til erlendra ferðamanna eru oft til háborinn- ar skammar. Þar eru málvillur mjög algengar, sem og stafsetn- ingarvillur. Oftast er enski text- inn á barnaskólaensku og sama máli gegnir um hinn danska. Þeg- ar kemur að þýsku og frönsku er oft leitað í orðabókum eða ein- hver spurður sem kann eitthvert hrafl í málinu. Þetta er síðan sett í prentsmiðju og prentað í nokkru upplagi. Islendingar sem kunna vel erlend mál finna mjög oft afskaplega slæma texta, sem eru málfræðilega alveg út í hött. Hvernig þætti Islendingum að lesa eftirfarandi texta?: „Kirkja er opinn manudagur þangað til laugadagur klukkuna 13-19.“ Þetta er bein þýðing á texta á þýsku á einni kirkju hérlendis til upplýsingar fyrir ferðamenn. Út- lendingar brosa vitaskuld að þessu, en þeim finnst þetta einnig vera lítilsvirðing við móð- urmál sitt. Ferðamálaráð ætti að geta rekið þannig þjónustu, að ferðamálaaðilar gætu snúið sér þangað með íslenskan texta og fengið hann þýddan almennilega á þau mál sem viðkomandi vill kynna starfsemi sína á. Það er dæmi um lélega ferðaþjónustu þegar ekki er hægt að kynna starfsemina rétt á viðkomandi tungumáli í bæklingum eða á skiltum. Þjóðvakamaður. Framtíð vestnor- rænnar samvinnu og breytingar á starfi Norðurlandaráðs Þingmenn í vestnorræna þing- mannaráðinu ræddu framtíð samvinnu þeirra í ljósi breyt- inga á norrænu samstarfí og fyrirhugaðrar samvinnu rílga sem liggja að norðurheim- skautssvæðum. Samþykkt var að óska eftir áheymaraðild að þingum Norðurlandaráðs og aðild að ráðstefnu um norður- málefni í Kanada á næsta árí. Sæti eiga í ráðinu af íslands hálfu þingmennirnir Árni John- sen, Ásta R. Jóhannesdóttir, ísólfur Gylfi Pálmason, Kristín Ástgeirsdóttir, Rannveig Guð- mundsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon, sem er formaður Is- landsdeildarinnar. Steingrímur tók við formennsku í vestnor- ræna þingmannaráðinu af Jon- athan Motzfeldt í lok fundarins. Vinnuhópur starfar að tillögu- gerð um framtíðarfyrirkomulag Steingrímur J. Sigfússon, formaður íslandsdeildar vestnorrœna þingmannaráðs- ins, flytur tillögur um framtíðarstarfsvettvang ráðsins á fundinum í Qaqortoq. Nœstur honum situr Jonathan Motzfeldt, fráfarandi formaður ráðsins, en Stein- grímur tók viö formennskunni í lok fundarins. Yst er Lisbet Petersen, formaður Fœreyjadeildarinnar og borgarstjóri í Þórshöfn. Breytingar á Norðurlandaráði Geir H. Haarde, forseti Norður- landaráðs, var gestur fundarins og kynnti hann breytingar þær sem fyrirhugaðar eru á starfsemi Norðurlandaráðs. Þær felast í því að fastanefndir þær sem starfað hafa hjá Norðurlanda- ráði verði lagðar niður og í stað þeirra verði málefnum skipt nið- ur í þrjá meginflokka eða nefnd- ir. Þær eru; hin fyrsta um Norð- urlandamálefni, önnur um Norð- urlönd og Evrópumálefni (ESB og EES) og hin þriðja um Norður- lönd og málefni nærliggjandi svæða, s.s. Eystrasaltslöndin, Barentshafið og vestnorrænu löndin. Stærsta breytingin verð- ur sú að í stað landsnefndanna verða það flokkahópar sem fjalla um málin. Áhrif landsdeildanna verða minni, meðan áhrifin aukast eftir flokkslínum þvert á þjóðirnar. vestnorrænu þjóðþingasamvinn- unnar. Hann skilar tillögum sín- um á næsta fundi ráðsins, sem haldinn verður að ári á íslandi. TOKUM UMFERÐAR RAÐ »■ Þingmenn Fœreyja, Islands og Grœnlands, sem sátu fund Vestnorrœna þingmannaráðsins, fyrir framan fund- arstaðinn í Qaqortoq. Léttöl í nýjum umbúðum sama góða Beck's bragðið í nýjum umbúðum, fæst í öllum stórmörkuðum! I y k i I I i n n aó g ó ð u b r a g ð i

x

Þjóðvakablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðvakablaðið
https://timarit.is/publication/312

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.