Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 10.10.1949, Page 8

Mánudagsblaðið - 10.10.1949, Page 8
Mánudagur 10. okt. 1949 MÁNUDAGSBLADIÐ Hross og fólk skemmta í Tjarnarbíó ## Tjarnarbíó sýnir um þessar mundir mjög sæmilega og á köflum ágæta cowboy-mynd. Góðir leikarar eins og Robert Young og Akim Tamiroff fara með aðalhlutverkin og auka- leikarar eru mjög sæmilegir. Alþekktar glæpamannatýpur eins og Barton MacLane (Tex) og Mike Mazurki (Jake) gera sitt til þess að þessi mynd er á köflum sann- færandi, spennandi og jafn- vel eðlilega eftir því sem slík- ar myndir geta verið. Marguerite Chapman (Lu- ella) gerir hlutverki sínu mjög skemmtileg skil en þetta er eina stóra hlutverkið, sem ég hef séð hana í. Þar að auki hefur hún ekki þann innantóma svip, sem flestar stúlkur, sem leika í cowboy- myndum hafa. Engin óþarfa ástaratlot, aðeins einstaka vonandi augnatillit — nóg til þess að sýna hvað stúlku- kindin ætlar sér. Prógrammið er ansi skemmtilegt þó það gefi litla hugmynd um myndina. Lu- ella er ekki póstur, heldur farandsali. Nick fær ekki ill- an bifur á Rupple og Bran- daw, því hann heldur að þeir séu sér vinveittir í byrjun myndarinnar. Luella segir Nick ekki þau tíðindi að Brandaw sé á leiðinni til námunnar. Nick veit þetta því hann sér það út um glugg- ann þar sem hann er í haldi. Danny dúllar og dreymir í Gamla Bíó #### kappi, fjárhættuspilari, fræg- ur franskur kvenhatta- smiður, skipstjóri í sjávar- háska o. s. frv. o. s. frv. í Gamla Bíó getið þið nú séð Danny Kaye í öllum þessum hlutverkum í myndinni „The secret life of Walter Mitty“, sem er með beztu myndum þessa fjölhæfa listamanns. Danny er eitt af þeim fáu fyrirbrigðum innan leikara- stéttarinnar, sem getur í senn leikið, sungið, hermt eftir og skapað sér óteljandi og ólík gervi. Nú sér maður í fyrsta sinni raunverulega, hve fjöl- hæfur gamanleikari Danny er, og öllum er eindregið ráð- lagt að eyða kvöldstund í þessa mynd. Virginia Mayo er stúlkan, sem Danny vill allt fyrir gera, enda er hann alltaf að bjarga henni úr einhverri hættunni. Virginia er nefni- lega ein af þessum stúlkum, sem ekkert virðast hafa fyrir stafni annað en að komast í vandræði, og það sæmir ekki öðrum en hetjum eins og Danny að bjarga henni úr þeim. Famleiðandi myndarinnar, Sam Goldwin, hefur ekkert sparað til þess að þessi gam- anmynd yrði sem bezt úr garði gerð, bæði hvað íburð, leikara og alla tækni kvik- myndavélarinnar snertir. Þá hefur ekki staðið á þeim, sem sömdu samtölin 1 myndinni, en 'þar fljúga brandararnir hver af öðrum. Við hvetjum alla þá, sem fara í bíó til þess að skemmta sér og hlæja að sjá þessa mynd, The secret life of Waiter Mitty. Annars virðist sem bíóin hér eigi nú úr ágæt- um myndum að velja. Bráð- lega sýnir Nýja Bíó myndina Sitting Pretty með Clifton Webb í aðalhlutverkinu. A. B. Blödin gátu nýlega um hið hræðilega brunaúys í Kanada, þegar jarþegaskip brann í höjn þar og 250 manns jórust. Myndin er tekin þegar skipið var að brenna. Það er sagt, að allir hafi sitt draumóralíf. Þá dreymir, að þeir séu eitthvað annað og meira en daglega lífið hefur gert þá. Skrifstofustúlkan er fögur, rík og eftirsótt, búðar- lokan er þjóðarhetja, ríkis- meyjan er ævintýrastúlkan, sem elur aldur sinn meðal glæpamanna, og hjálparkokk- ana dreymir um að stýra dýr- um knerri gegnum öldurót hafsins. Danny Kaye dreymir líka margt. Hann er í rauninni skrifstofumaður í bókaforlagi en heima hjá sér er honum stjórnað af mömmu sinni, kærustu og tengdamömmu. En innst í sálarlífi hans skap- ast margir draumar og mikil- fenglegir. Hann er hetja í brezka lofthernum, cowboy- Hitt og þetta Danir skemmtu sér við það nú í vikunni að níða ísland. Danska útvarpið var í tvo klukkutíma að skýra fyrir hlustendum sínum hvað ís- lendingar væru raunverulega aum þjóð. Við erum á lágu menning- arstigi og skemmtum okkur aðallega við að eta úldinn hákarl og keyra hratt í ný- tízku bifreiðum. Bifreiðar þessar græddum við í styrj- öldinni en slík farartæki þekktust ekki fyrr hér á landi. Nú erum við búnir að eyða peningunum okkar og bráðlega verðum við aftur betlarar eins og fyrir stríð. ísland getur aldrei orðið fjárhagslega sjálfstætt. — Heppnin var með okkur í stríðinu og við græddum pen- inga meðan Danir börðus fyrir tilveru sinni. Vér minnumst með hrifn- ingu á frammistöðu danska hersins í „stríðinu“ við Þjóð- verja. Það er sagt að nú standi á stærsta hótelinu. Gestir á Borginni hrukku laglega í kút kvöld eitt í síðustu viku. Einhver óvenjuleg hljóð heyrðust skyndilega frá hljómsveit- inni. Þegar betur var að gætt kom í ljós að hljómsveit- in hafði lært nýtt lag. Ilér eftir verður hverri mynd gefin stjarna eða stjörnur til þess 'að sýna heildarálit gagnrýnanda blaðs ins. Gefið verður frá einni stjörnu upp í fimm. Happdrættin Framh. af 1. síðu. fyrirbyggja allan misskilning að benda á eitt happdrætti, sem framar öllum öðrum á fullan tilverurétt. Það er happdrætti S.Í.B.S. Vart mun nokkur maður vera til hér á landi, sem ekki er fyllilega samþykkur því, að S.Í.B.S. fái að halda öllum réttindum til bess að afla sér fjár með frjálsum samskct- um og happdrætti. Starf for- ystumanna þar er í senn að- dáunarvert og frábærlega nauðsynlegt. Fáir eru þeir heilbrigðir, sem kunna að meta að verðleikum heilsu sína. Færri eru þeir þó sem' fulian skilning hafa á þeini baráttu og útskúfun úr lífi þjóðfélagsins, sem berkía- sjúklingurinn hefur. Læknar og sjúkrastarfslið heyja bar- óttu gegn þessum sjúkdómi, sem, er öðrum baráttum meiri og nauðsynlegri, þótt sigrar þeirra og aðstæður hljóti ekki þá viðurkenningu, sem þeir verðskulda Öllum þjóðte- lagsþegnum ætti að vera það ljúft og skylt að láta fé of hendi til þess’ að baráttu læknanna gegn þessum sjúk- dómi ljúki hið fyrsta. Happ- drætti S.Í.B.S. er þjóðheilla- fyrirtæki, sem við eigum öll að taka þátt í, enda munu allir sannir þjóðfélagsþegnar styðja þá í þessari baráttu. Það væri ekki úr vegi að einhverjir af hinum fjölda- mörgu starfsmönnum lög- reglunnar tækju sig til og fyrir dyrum að ráða kven- j stæðu fyrir framan bíóin rétt söngvara við hljómsveitina á fyrir kl. 9 á kvöldin. Þeim Hótel Borg. Það veitir vissu- tækist kannski að nappa einn lega ekki af að hafa að af miðasölunum þar og það rninnsta kosti einn söngvaraværi sannarlega þarfaverk. Hvað líður múlaferlunum milli Viðskiptanefndar og Vísis? Ællar hið opinbera að þegja þetta múl í hel?

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.