Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Blaðsíða 6
6 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 3. september 2005 I nnan um vötnin þúsund og skógana hefur Jyväskylä þróast sem iðn- aðar-, þjónustu- og menningarborg. Þar er iðnaður sem tengist skóg- arhögginu, mikil pappírsgerð og fleira. Þar, eins og víðar í Finnlandi, hefur verið byggt með reisn þeirra sem hafa vanist nægu og góðu byggingarefni og borið gæfu til að þróa hefðir og fara ýmist troðnar slóðir og nýjar. Þarna hefur góð byggingarlist þróast og öflug menningarstarfsemi verið stunduð. Byggingalist með nálægð og víddir Jyväskylä er heimaborg hins fræga arkitekts Alvars Aalto sem að mati ýmissa er slíkur risi í finnskri byggingarlist og hönnun 20. aldar að helst er því að jafna saman við Laxness í ís- lenskum bókmenntum. Sterkar hefðir, nálægð við skóga og mikil- fengleik þeirra og hinar endalausu víddir vatnanna hafa sett mark sitt á vinnubrögð margra finnskra listamanna og þá ekki síst í byggingalist og skúlptúr. Alvar Aalto er vissulega einn af þeim sem lagði sig fram við að skapa rými sem hefði þetta hvort tveggja, nálægðina við náttúruna og mikilfengleika víðáttu og stærðar. Þar var í fyrirrúmi að manneskjunni liði vel, að rýmið væri bæði gefandi og notalegt í senn og að öll smáatriði væru mjög mikilvæg. Í Reykjavík höfum við Norræna húsið eftir hann og getum þar sannprófað þessi markmið. Í Jyväskylä eða þar á svæðinu eru um 30 byggingar sem hann hefur hannað, m.a. aðal- byggingar háskólans, borgarleikhúsið og Alvar Aalto-safnið sem hann hannaði sem safn og sýningarsali fyrir myndlist. Þar er nú safn um Alvar Aalto og aðrar byggingar hafa tekið við safna- og sýningarstarfsemi fyrir myndlist. Í Jyväskylä er haldin alþjóðleg ráðstefna um byggingarlist þriðja hvert ár þ.e. „Alvar Aalto- symposiet“ og safnast þá til borgarinnar hundruð arkitekta víða að úr heiminum. Skapandi grafíklist – Graphica Creativa-þríæringurinn Fyrir 30 árum var fyrst haldin Í Jyväskylä al- þjóðleg grafíksýning er fékk nafnið „Graphica Creativa“ eða „Hin skapandi grafík“. Þá var ekki mikið um að vera í listalífi borgarinnar og þótti ýmsum í mikið ráðist í smáborg inni í miðju Finnlandi. Síðan hefur alþjóðleg sýning sem finnskir listamenn hafa verið með í að skipuleggja og móta verið haldin þar á þriggja ára fresti, svo- nefndur þríæringur. Jyväskyläborg hefur orð- ið nokkurs konar athvarf og miðstöð grafík- listarinnar í Finnlandi með þessum sýningum og annarri starfsemi en á vegum borgarinnar er rekið stórt og gott grafíkverkstæði sem gef- ur listamönnum möguleika til vinnu og náms. Þar er einnig öflugt námskeiðahald, oft með gestakennurum úr fjarlægum löndum. Auk þess er þar að finna helsta safn á finnskri grafíklist. Á mörgum þessara tví- eða þríæringa grafíklistar sem haldnir hafa verið undanfarna áratugi víða um heim hafa listamenn oftast verið með í ráðum við skipulag og val og oft góð þátttaka í ráðstefnum um málefni og möguleika myndlistar og grafíklistar. En samræður eru mikilvægar á milli lista- mannanna sjálfra yfir landamæri ýmiss konar og geta samræður og stjórnun ýmissa annarra aðila eða milliliða ekki komið í staðinn. Grafík- listin, þar sem fjölföldun verksins er möguleg og verkið er oftast unnið á pappír sem auðvelt er að senda í rúllum milli landa og heimsálfa, er tilvalin sem leið til samskipta. Gamlir meistarar og fjölbreytni Núna á 30 ára afmælissýningu var ákveðið að leiða saman nokkra sýnendur frá fyrstu sýn- ingunni 1975, svokallaða „gamla meistara“ og nokkra unga listamenn frá mismunandi lönd- um. Einnig var sérsýning á verkum finnskra listamanna og sýndu báðar þessar sýningar mikla breidd í aðferðum og leiðum til tjáning- ar. Þá var sérstök sýning sem var opnunar- sýning Graphica Creativa á verkum Norræna hópsins „7 Sýn úr norðri“. Þar var á ferðinni farandsýning sem var sumarsýning Norræna hússins í Reykjavík í fyrra og taka þátt í henni tveir Íslendingar, þær Valgerður Hauksdóttir og Jóhanna Bogadóttir. Gömlu meistararnir svokölluðu voru nokkrir af þeim sem hæst báru í grafíköldunni sem var á tímum mikils félagslegs áhuga og bjartsýni á möguleika samskipta listamanna þvert á öll landamæri á 8. áratugnum. Þarna voru t.d. verk eftir Jiri Anderle frá Tékkóslóvakíu sem minntu vissulega á það sem einkenndi grafík- list frá Austur-Evrópu á 8. áratugnum. And- erle vinnur ætingar og mest í svart hvítu. Myndefni hans er umfjöllun um manneskjuna í tilverunni, oft heimspekileg og sálfræðileg, um tímann og sársaukann og vekja verk hans oft spurningar um hvað við erum þessar mann- eskjur. Anderle útfærir verk sín með meist- aralegri tækni í teikningunni og svipbrigði og hreyfingar eru tjáningarfull. Sjálfur segist hann vera undir áhrifum frá gömlu meisturun- um Leonardo og Dürer og svo sé fyrri reynsla frá störfum við leiklist óþrjótandi uppspretta og þá sérstaklega látbragðsleikurinn þar sem örlítil hreyfing eða minnstu svipbrigði skipta sköpum en hann kom fram sem látbragðsleik- ari víða um heim á sínum yngri árum. Nýjasta verk Anderle á sýningunni heitir 20. öldin og þar sést manneskja hylja andlitið í höndum sér en táknum hlaðið myndefni vekur spurningar um hvað er og hvert stefnir. Fegurðin finnst víða og teikningin flæðir Tatsui Noda frá Japan er annar gamall meist- ari. Hann sýndi verk úr því sem hann kallar dagbók. Háttur Noda á að fjalla um tilveruna er að vinna út frá myndefni úr hinu daglega heima- umhverfi eða n.k. uppstillingar. Það er þó fram sett þannig og með slíkri tækni og tilfinningu meistarans fyrir fagurfræði að það gefur teng- ingar við stóran heim og djúpa skynjun. Þar vegur mest hin óræða fegurð sem getur búið í því einfalda sé það skoðað í réttu ljósi og undir réttu sjónarhorni. Noda vinnur með blöndu af tækni tréristu og silkiþrykks og ljósmyndir eru einnig notaðar í þróun verksins. Fjöl- breytni í tækni og nálgun er það sem kemur fram á sýningum „Graphica Creativa“, þ.e. „Skapandi grafík“, og á það vissulega vel við. Takmörk teikningarinnar sem flæðir í ýms- ar áttir er hluti af því sem einn af ungu þátt- takendunum, Berenika Boberska, fæst við í grafík-skúlptúr og einnig takmörk og tak- mörkun rýmisins í umhverfi okkar og arkitekt- úr. Verk hennar á sýningunni var þrykk á trefjaplastplötur sem síðan voru mótaðar í form sem bæði flæddu og byggðu upp heild, leit að formi og frelsi. Tilvistarspurningar frá Kúbu og Finnlandi Meðal ungu þátttakendanna í alþjóðlega hlut- anum var Sandra Ramos frá Kúbu. Hún notar tölvuprentanir á ljósmyndum í bland við klipp úr gömlum myndskreytingum, t.d. úr Lísu í Undralandi. Í verkum sínum blandar Ramos saman tækni og myndefni ýmissa tíma til að fjalla um veruleikann í dag á skáldlegan hátt. Þannig Í miðju landi þúsund vatna – listir í Jyväskylä Borgin Jyväskylä er helsta borgin í miðhluta Finnlands og hýsir ýmiss konar lista- og menningarstarfsemi. Greinarhöfundur var þar á ferð og skoðaði mannlíf og listir. Eftir Jóhönnu Bogadóttur jboga@islandia.is „Nafnlaus I“ Trérista eftir Markus Lampinen. Hluti af Euphony (Hljómfegurð) Verk Valgerðar Hauksdóttur. Undraland Samlíking við nútímann. Tölvuprent eftir Söndru Ramos.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.