Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Side 15

Lesbók Morgunblaðsins - 03.09.2005, Side 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 3. september 2005 | 15 Kvikmyndir Borgarbíó, Akureyri Broken Flowers  (HJ) Wedding Crashers  (HJ) Fantastic Four  (HJ) Ævintýraferðin m. ísl. tali Smárabíó Land of the Dead Broken Flowers  (HJ) Fantastic Four  (HJ) Wedding Crashers  (HJ) Ævintýraferðin m. ísl. tali Sharkboy og Lavagirl  (SV) Regnboginn Broken Flowers  (HJ) Fantastic Four  (HJ) Ævintýraferðin m. ísl. tali Deuce Bigalow -European Gigolo Sin City  (HL) Sharkboy og Lavagirl  (SV) The Longest Yard  (SV) Laugarásbíó Land of the Dead Ævintýraferðin m. íslensku tali Wedding Crashers  (HJ) Fantastic Four  (HJ) Sharkboy og Lavagirl  (SV) War of the Worlds  (SV) Háskólabíó Strákarnir okkar Head in the Clouds Racing Stripes The Skeleton Key  (SV) Herbie Fully Loaded  (SV) The Island  (SV) Batman Begins  (HL) Sambíóin Reykjavík, Keflavík, Akureyri Strákarnir okkar The Dukes of Hazzard  (SV) Racing Stripes Herbie Fully Loaded  (SV) The Skeleton Key  (SV) Deck Dogz The Island  (SV) Batman Begins  (HL) Madagascar  (SV) Myndlist Café Karólína: Arnar Tryggvason til 30. sept. Eden Hveragerði: Sigur- björn Eldon Logason til 4. sept. Gallerí 101: Þórdís Aðal- steinsdóttir til 9. september. Gallerí Box: Darri Lorenzen til 17. sept. Gallerí Fold: Teikningar Halldórs Péturssonar til 4. sept. Gallerí Höllu Har: Til 4. sept- ember. Gallerí Sævars Karls: Sólveig Hólmarsdóttir til 8. sept. Gallerí Tukt: Sara Elísa Þórðardóttir til 5. september. Gerðarsafn: Kjarval 120 ára. Grafíksafn Íslands: Margrét Guðmundsdóttir til 11. sept. Hafnarborg: Eiríkur Smith til 26. september. Handverk og hönnun: „Sög- ur af landi“ til 4. sept. Hrafnista Hafnarfirði: Sess- elja Halldórsdóttir til 4. okt. Hönnunarsafn Íslands: Circus Design frá Bergen. Til 4. sept. i8 Gallerí: Ólöf Nordal Iðuhúsið: Guðrún Benedikta Elíasdóttir Kaffi Sólon: Víðir Ingólfur Þrastarson til 24. sept. Kling og bang: Malcolm Green. Goddur, Bjarni H. Þórarinsson og Ómar Stefánsson. Laxárstöð: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir. Listasafnið á Akureyri: Jón Laxdal til 23. október. Listasafn ASÍ: Hulda Stefánsdóttir og Kristín Reynisdóttir. Til 11. sept. Listasafn Árnesinga: Sýn- ingin Tívolí. Listasafn Ísafjarðar: Katrín Elvarsdóttir, fram í október. Listasafn Íslands: Íslensk myndlist 1945–1960. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn: Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning. Til 2006. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir: Úrval verka frá 20. öld til 25. sept. Listasafn Reykjanesbæjar: Eiríkur Smith og konurnar í baðstofunni. Listasafn Sigurjóns Ólafs- Vatnstankarnir við Háteigsveg: Finnbogi Pétursson. VG Akureyri: Sex ungir lista- menn. Til 14. okt. Vínbarinn: Rósa Matthías- dóttir. Þjóðminjasafn Íslands: Skuggaföll. Portrettmyndir Kristins Ingvarssonar. Story of your life – ljósmyndir Har- aldar Jónssonar. Mynd á þili. Leiklist Austurbær: Annie, sun., fim. Borgarleikhúsið: Kalli á þak- inu lau., sun. Kynning leik- ársins sun. Alveg brilljant skilnaður lau., fim. Reykjavik Dance Festival lau., sun. Hafnarfjarðarleikhúsið: Himnaríki. Frums. 16. sept. Íslenska óperan: Kabarett, lau., fös. Leikfélag Akureyrar: Pakkið á móti. lau., fös. Loftkastalinn: Bítl, fös. 9. sept. Þjóðleikhúsið: Klaufar og kóngsdætur sun. Edith Piaf lau., sun., fim. Kirsuberja- garðurinn fim., fös. Að eilífu lau., sun. Rambó 7 lau., fös. Koddamaðurinn fim., fös. sonar: Sumarsýning. Listasalur Mosfellsbæjar: Ólöf Einarsdóttir, Sigrún Ó. Einarsdóttir og Sören S. Larsen til 28. ágúst. Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Lars Tunbjörk til 20. nóv. Mokka Kaffi: Árni Rúnar Sverrisson til 4. september. Menningarmiðstöðin Gerðu- berg: Stefnumót við safnara II til 11. sept. Lóa Guðjóns- dóttir til 11. sept. Norræna húsið: QuiltQunstn- erne til 30. sept. Nýlistasafnið: Lorna, rafræn list. Til 3. sept. Safn Ásgríms Jónssonar: Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar. Safnahúsið á Húsavík: Guð- mundur Karl Ásbjörnsson til 28. ágúst. Saltfisksetur Íslands: Lóa Henný Ólsen til 4. sept. Skaftfell: Carl Boutard. Dodda Maggý. Til 18. sept. Skriðuklaustur: Helga Erlendsdóttir. Suðsuðvestur: Gjörninga- klúbburinn. Til 25. septem- ber. Thorvaldsen Bar: Skjöldur Eyfjörð til 9. september. ÞAÐ eru ekki liðin nema þrjú ár síðan Eirík- ur Smith hélt stóra einkasýningu í Hafnar- borg og nú er hann aftur kominn með fjölda málverka, olíuverk og vatnslitamyndir. Sýn- ingin nú lendir á svipuðum tíma og áttræðis- afmæli listamannsins, aldurinn er honum greinilega engin fyrirstaða nema síður sé. Ferill Eiríks í listinni er afar skemmtilegur með öllum sínum kúvendingum. Það væri fróðlegt að fá að sjá sýningu sem spannaði allan feril hans, með harðlínugeómetríu sjötta áratugarins sem lítið er víst eftir af, því lista- maðurinn brenndi þau verk sem hann náði til. Tjástefnuna, lýrískt og frásagnarkennt raunsæið, landslagsmyndirnar og frjálsu abstraksjónina sem einkenna myndir hans í dag. Í viðtali við Indriða G. Þorsteinsson árið 1981 sem birtist í bókinni 16 íslenskir mynd- listarmenn, lýsir Eiríkur því frelsi sem hann upplifði eftir margra ára vinnu, loks var hann í huga sér laus undan kröfum umheimsins, oki ríkjandi listastefna eða áhrifa samferða- manna. Frelsið sem hann hafði þá þegar fundið hefur aðeins orðið enn rýmra með tím- anum, það sýna verkin sem hann málar í dag. Listamenn ná iðulega slíkri frelsistilfinn- ingu eftir að hafa unnið af mikilli elju og þörf árum eða áratugum saman, þá fara þeir að finna sig, sjá hvað hentar þeim, hver mark- mið þeirra eru á hverjum tíma, óháð tísku- straumum en þó í takt við samtímann. Lista- menn þroskast við vinnu, það er alltaf lærdómsríkt að skoða æviferil listamanna í heild og sjá hvernig þeir hafa breyst og mót- ast. Flestir verða æ betri í sínu fagi eftir því sem verkunum fjölgar. Þeir sem byrja seint eru líka byrjendur og þurfa að gera sín mis- tök áður en árangri er náð, sama hversu þroskaðir, menntaðir eða lífsreyndir þeir eru sem einstaklingar. Líklega má segja það sama um áhorfendur, þeir sem eru að kynn- ast listinni í fyrsta sinn hafa kannski smekk fyrir ákveðnum verkum, en þegar meira sem er skoðað, lesið og upplifað opnast hugurinn og í besta falli öðlast áhorfandinn það frelsi sem Eiríkur lýsir, frelsi til að njóta listar óháð stefnu, miðli eða tískustraumum. Því miður eru enn í dag allt of margir sem ein- blína á yfirborðið, skoða listaverk út frá því hvort að þau séu í formi málverks eða mynd- bands en ekki út frá verkinu sjálfu, innra lífi þess, sannleika og samræmi. Sýning Eiríks Smith í Hafnarborg nú sýnir vel stöðuga leit hans að innra sannleik mynd- anna, hvort sem um er að ræða vatnslita- mynd sem hefur náttúruna, litabrigði, form og liti eða sambland þessa alls að viðfangs- efni, eða stór olíuverk sem reyna á þanþol litasamsetninga svo um munar og mann næstum óar við. Eiríkur hefur augljóslega fundið sína leið í málverkinu og tekst að birta ótal spennandi kennileiti hennar á sýningu sinni. Að mínu mati tekst honum best upp þegar hann heldur sig á mörkum landslags og hins óhlutbundna, í vatnslitamyndunum þar sem litir og form leysast upp og skapa nýjan sannleika. Þar er að finna samhljóm þeirra tveggja heima sem Eiríkur hefur löngum glímt við að samræma í verkum sín- um, abstraktsins og hins fígúratífa. Olíu- málverk Eiríks er sum afar litsterk og litaval hans ólíkt vatnslitunum enda um óhlutbundn- ari verk að ræða. Sum olíuverkin eru síðan nokkuð nálægt vatnslitamyndunum og þar mætast aftur tveir heimar í samhljómi. Í listinni í dag er mikið um það að lista- menn leiti aftur á síðustu öld og nýti sér þá strauma og stefnur sem þá voru við lýði í verkum sínum, þessi tilhneiging felur vonandi í sér aukið umburðarlyndi og vökult auga fyr- ir möguleikum þess sem liðið er. Eitt það mikilvægasta sem listamenn og áhorfendur geta tileinkað sér er sú frelsistilfinning sem var lýst hér að ofan og með slíka tilfinningu í farteskinu geta allir að geta fengið sitt út úr fjölbreyttri, ferskri og lifandi sýningu Eiríks í Hafnarborg. Sannleikur myndanna Ragna Sigurðardóttir MYNDLIST Hafnarborg Til 26. september. Hafnarborg er opin kl. 11–17, alla daga nema þriðjudaga. Málverk, Eiríkur Smith Morgunblaðið/Árni SæbergEiríkur Smith Á gamlársdag. FLESTIR Íslendingar þekkja teikningar, málverk og vatnslitamyndir Halldórs Péturs- sonar (1916–1977), sem prýtt hafa ótal bækur. Klassísk útgáfa vísnabókarinnar er ein af þeim og áreiðanlega sú sem flestir hafa komist í kynni við. Gallerí Fold sýnir nú 41 myndverk eftir Halldór, teikningar og vatnslitamyndir, myndskreytingar og jólakort. Allmargar eru úr bókinni Helgi skoðar heiminn en eins og fram kemur í sýningarskrá eru sögurnar af Helga skrifaðar við myndirnar en ekki öfugt. Eins og einatt í verkum Halldórs birtist hér Ísland þarsíðustu aldar, burstabæir og lítt tæknivædd veröld. Það er gaman að bera óargadýrin sem Helgi þarf að kljást við saman við ævintýrabækur dagsins í dag, þeir þrí- höfða hundar og fljúgandi hestar sem Harry og vinir hans þurfa að kljást við eru tæpast hræðilegri en örninn sem togar í Helga, álft- irnar sem ráðast á hann og hestinn, sjófuglana sem umkringja hann eða steintröllin sem leyn- ast um holt og hæðir, enda eru öll þessi dýr hluti af íslensku umhverfi í raun. Íslenskt um- hverfi fyrri tíma í sinni svo til óbreyttu mynd er nægileg ógn og skelfing, býr yfir nægum hættum og ævintýrum eins og það er án þess að prjóna þurfi mikið í kringum það. Ógnir og ævintýri dagsins í dag eru síst færri og alltaf er jafnspennandi að sjá íslenska barnabóka- höfunda takast á við þær ásamt góðum teikn- urum. Af hvorutveggja eigum við nóg. Vinsældir Halldórs byggja ekki síst á þeim mannlega og elskulega húmor sem prýða myndir hans, hver og ein er einföld, hnitmiðuð og kraftmikil. Þær eru alveg lausar við að vera væmnar og skreyta ekki þann veruleika sem þær birta heldur er í þeim skemmtilegt pínu- lítið groddalegt raunsæi, ekki ósjaldan er myndefnið hrakfarir og minni háttar áföll líkt og í seríunni um bóndann og hestinn hans. Halldór er gott dæmi um listamann sem fann sinn farveg, við hefðum misst af miklu hefði hann ekki lagt eins mikla rækt við mynd- skreytingar sínar og hann gerði. Annar ís- lenskur myndlistarmaður hefði betur fetað í fótspor hans, en myndskreytingar Muggs eru tvímælalaust áhugaverðari og betur heppn- aðar en tilraunir hans með stór olíumálverk. Í myndskreytingum sínum tekst Halldóri að skapa lifandi heim sem birtir okkur íslenskt umhverfi og sýnir manninn í samspili við nátt- úruna. Myndheimur hans er bundinn við liðinn tíma en áhrif Halldórs á samtímann eru þó til staðar, ég get t.a.m. ímyndað mér að Brian Pilkington hafi haft gaman af tröllamyndum Halldórs. Halldór Pétursson var frumherji í myndskreytingum fyrir börn á Íslandi og verður seint þökkuð alúðin og metnaðurinn sem hann lagði í vinnu sína. Myndskreytingar eru farnar að njóta meiri virðingar en áður og vonandi eignumst við sem flesta nýja teiknara á komandi árum, teiknara sem skapa heiminn. Lifandi heimur MYNDLIST Gallerí Fold Til 4. september. Gallerí Fold er opið daglega kl. 10–18, laugard. kl. 11–17 og sunnud. kl. 14–17. Einu sinni var teikningar og vatnslitamyndir, Halldór Pétursson Ragna Sigurðardóttir Elskulegur húmor Ragna segir vinsældir verka Halldórs ekki síst byggjast á húmornum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.