Mánudagsblaðið - 02.01.1950, Page 3
Mánudagur 2. janúax 1950.
AIÁNUDAGSBLAÐIÐ
3
MÁNUDAGSÞANKÁR
lítið um ég liirði. ]
En spássíurnar þakka
ég þó,
I>ær eru einhvers virði.
Jóns Reykvikings
Tilvonandi dama
Tiltagan urn stóríbúðaskatt er
fyrirlitleg
Framhald af 1. síðu.
Skáldfíílahlutur
Það eru tveir menn liér
í bænmn, sem sýnilega er
beinn háski, að hittist, en
það eru þeir Gunnar í fsa-
fold og Snæbjörn Jónsson.
Nýjasta dæmið um sam-
vinnu þessara tveggja
manna er útgáfa fsafold-
arprentsmiðju h.f. á bók
eftir Snæbjöm Jónsson,
sem heitir „Tvær rímur“,
og nefnist önnur „Skálda-
flotin“, og er þar „dæmt
um 436 nítjándu aldar
skáld“. Bókin er 288 síð-
ur á ágætum pappír, og
sést ekki, að fsafold sé í
hallæri með pappír. Inn-
an á kápu bókarinar
stendur þessi tilkyning
frá útgefanda:
„Höfundur þessarar
bókar liefur mælt svo fyr-
ir, að ekkert eintak af,
lienni skuli látið til um-
sagnar. Þeir, sem kunna
að finna hvöt hjá sér til
að geta hennar, hvort
heldur til viðvörxmar eða
meðmæla, ráða sjálfir
gjörðum sínum. Um rit-
dómarana sagði hann:
„Lofið þessum að Jægja,
svo að steinamir fái að
tala.“
í>að er alveg rétt hjá
Snæbirai að búast við því,
að stórgrýtið á voru landi
komist við af bókinni,
enda er hún svo aumkv-
unarverð, að slíkt stein-
hjarta mun tæplega bær-
. ast, sem ekki finnur til
með höfudmum og þá
ekki síður með þeim, lífs
og dauðum, sem verða fyr
ir því að fá „dóm“ hjá
Snæbimi.
Yfirleitt eru vísur Snæ-
bjamar leiðinlegur þvætt-
ingur, ortur í fúlustu al-
vöru, en þó bregður stund
um út af þessu hjá lion-
um, eins og til dæmis í
vísu nr. 802 um Sigurð
Grímsson:
Sigurður Grímsson sigldi
og bað
Shylock með sér vera,
ljúflega Sliakespeare
leyfði það,
því lítið var að gera.
Hér er líltlega sveigt að
þvl, að Sigurður er lög-
taksfulltrúi og brúlii þá
Shylocksaðferðir við
snauða menn. Er þetta
harður dómur, en þó ekki
með öllu óskemmtiegur,
t cinkum síðasta hendingin.
Lárus Jóhannesson varð
! fyrir því, að Gunnar frá
\ Selalæk birti í klámvísna-
safni sínu, „Apokryfar
vísur“ (150 eintök, tölu-
sett), tvær vísur eftir
hann, og kemst Láras því
jándu áldar skálda og fær
hvorki meira né minna en
tvær vísur fyrir eða jafn
margar og þær, sem Lár-
us orti. Mun það algert
met, að skáld fái ort um
sig lof, sem sé nákvæm-
lega jafnt á lengd og öll
produktion þess. 1 annarri
vísunni um Lárus stend-
ur að hann berjist gegn
„frelsisskerðing fólksins“,
en þetta er einhver mis-
skilningur lijá Snæbimi,
því vísur Lárusar voru
ádeila á það, þegar einn
collega hans innsiglaði
ref, „svo rynni hann ei á
tæfurnar“, eins og stend-
ur í vísunni. Lárus hefur
eingöngu barizt móti frels-
isskerðingu á ref, og á
það auðvitað ekkert skylt
við „frelsisskerðingu
fólksins“, sem Snæbjöm
talar um.
Ríma Snæbjaraar er
um nítjándu aldar skáld,
og er Skúli frá Hvamms-
tanga þar seinastur, en
lestina rekur Tómas Guð-
mundsson, sem er ‘fædd-
ur 1901. En vesalings
Tómas sleppur ekki, því
Snæbjöm útskýrir í eft-
irmála, að hann sé fæddur
aðeins einni viku eftir
aldamótin. Mætti segja
mér, að Tómas hafi hugs-
að með dálítilli óánægju
til foreldra sinna, þegar
liann sá þetta, og er illt
til þess að vita, að Snæ-
b.jörn skuh geta orðið til
þess að kasta rýrð eða
skugga á minningu lát-
inna foreldra í huga
bams, sem annars er
þakklátt.
Þegar flett er bókinni,
blöskrar manni sú papp-
írseyðsla Gunnars í Isa-
fold að prenta ekki rím-
urnar í tveimur dálkum,
því þessi örmjói rímu-
bandormur upp á 1035
vísur Iiðast eftir miðjum
blaðsíðunum með útglent-
ar spássíur til beggja
hliða, en Gunnar hefur
séð sem var, að spássí-
urnar eru það, sem gefa
bókinni gildi.
Ef skáldarínnmni er
flett rétt í kringum þá
Lárus og Sigurð Gríms-
son sést t. d. nafn Gúst-
afs A. Jónassonar í vísu
nr. 800, þar sem stendur:
Gústafs létta Litars far
leikur á sólskinsbárum
ungri mey til ununar,
einnig þulnum háram.
Get ég trúað, að Gústaf
tæki undir með mér og
segði sem svo:
Snæbjörns lens á Litars
sjó
I»að var hér á einni
stórliátíðinni á dögunum,
að mér varð gengið dálítið
út í bæinn. Það var hress-
ingarganga. Esjan var
hvít nokkuð niður í hlíðar
Aðeins blátt klettabeltið
ofarlega, sem venjulega
er snjólítið. Dökk reykj-
arstybba lá yfir suðurbæn
um og var svörtust sunn-
an við Landsspítalann frá
mér að sjá. Þangað lagði
reykinn ixr hitaveitu-
lausu liverfunum.
Mér varð reikað um
hverfi þau, sem ég er ó-
kuimugur. Það var stórt
jólatré með allavega lit-
urn perum framan við eitt
húsið. Sennilega býr
þarna rafvirki. Rétt fyr-
ix ofan voru tvær liúsarað-
ir með nokkru millibili, en
ég sá enga götu. Eg gekk
nær. Húsin voru mjög
falleg. Allaveg lit pússn-
ing. Stórir gluggar og
smyglaðir stórisar. En
engin gata. Þarna voru
ósköp af braki. Timbur
og járnstúfar og alls
konar afgangar. Og svo
sandhrúgur og grjót, sem
lá upp við fallegu liúsin.
Eg gekk nær og sá þá,
að ofurlítill stígur hlykkj-
aði sig innan um brakið.
Það var gatan.
Eg fór að hugsa um, að
livergi nokkurs staðar
hefði ég séð svona, nema
hjá okkur. Fullbúin, dýr
og smekkleg hús við enga
garða og enga götu. En
þetta er reyndar íslenzkt,
Þetta minnti mig á falleg
blóm, sem vaxa upp úr
grjóturð eða þurram mel.
Svona er Reykjavík í
byggingu. Það fallegasta
við Reykjavík er, að hún
er alltaf í byggingu.
Hvergi neitt fullfrágengið.
Reykjavílc er eins og
kaþólsk kirkja, sem er
mörg Iiundruð ár í bygg-
ingu, alltaf ný, ófullgerð,
en þó fögur.
Rétt lijá nýju húsaröð-
unum götulausu stóð lág-
ur rauð- og blámálaður
bárujárasskúr. Hann var
inniluktur við ný hús. Eg
sá óðara, hveraig á hon-
um stóð. Þetta var gam-
all sumarbústaður eins af
ágætismönnum bæjarins
Hann var reistur í þá
daga, sem þetta liverfi
var sveit. Og þó er ekki
langt síðan. Svona hefur
Reykjavík vaxið. Sumar-
bústaðir Reykvíkinga fyr-
ir 15 árum eru nú konuiir
inn í bæinn sjálfan. Þetta
sýnir bezt hinn öra vöxt
bæjaris, sem allir tala um.
Er nú nokkur furða, þó
Reykjavík sé eins og ung-
Framhald á 8. síðu.
að hann hefði verið óvenjulega hjálpsamur að
útvega vinnukonur í þau hús í Reykjavík sem
hann langaði til að kynnast nánar og vita eitthvað>
um? Hvernig er samlyndið í svona sambýli, eða
tvíbýli? Hvar flýgur fiskisagan fljótar og meira
en þar? Hvernig er-það með tvíbýlisjarðirnar í
sveitinni? Eru ekki komin tvö íbúðarhús á flestar
þeirra eða þá eldtraustur gafl milli íbúðanna ef
byggingin er ein? Öllum þessum framangreindu
spurningum getið þið svarað á þá leið, að sambýli
eða tvíbýli forðast menn af fremsta megni, jafn-
vel þó vinir og frændur eigi í hlut, því hver fjöl-
skylda hefur sín einkamál, sem hún vill ein eiga
i friði, og aðeins innan vébanda eigin húss og
heimilis, fæst þessi friður, sem er börnum ómiss-
andi skjól og unglingunum ómissandi og ógleym-*-
anlegt veganesti.
í ræðu Gísla Jónssonar alþ.m., sem hér að
framan var drepið á, eru færð mjög athyglisverð
og óhrekjandi dæmi fyrir því, hvernig stóríbúða-
skatturinn, ef hann kemst á, muni hrekja gamalt
virðulegt fólk úr íbúðum þeim sem það hefur
komið sér upp í svita síns andlits, og síðan bjó í
meðan það var að koma upp mannvænlegum hóp
barna sem flogin eru úr gamla hreiðrinu og hafa
tekið það til fyrirmyndar, en verða nú fyrir vikið
annaðhvort að hrekjast úr íbúðum sínum, eða að'
taka í þær ókunnugt fólk, sem jafnvel getur borið
smitsama sjúkdóma eða lélega siði inn á heimili,.
sem áður voru til fyrirmyndar um allt.
Þess ber sem sé vandlega að gæta, að næstum
þv íhvert einasta íbúðarhús, nema þau sem upp—
haflega voru byggð til þess að framselja þau til
leigu, er aðeins byggt fyrir eigandann, fyrir aðeins
eina fjölskyldu, og með engu móti hægt að gera
það að íbúðum tveggja eða fleiri fjölskyldna, nema
með stórfelldum breytingum, er hafa myndu ær-
inn kostnað í för með sér og yrði þeim sem upp-
haflega byggði húsið eða íbúðina, eftir sínu höfðþ
og aðeins fyrir sig og sína, með öllu óþolandi.
Það sér og á niðurlagi greinargerðarinnar, sem
frumvarpinu um stóríbúðaskattinn fylgir, að ætl-
un frumvarpsins er fyrst og fremst að leggja enm
einn skattinn á húseigendur í kaupstöðum, og þá
sérstaklega í Reykjavík. Til bragðbætis er svo
látið fljóta með, að þau muni bæta úr húsnæðis-
eklunni, en eins og að framan er getið, verður það
alls eigi hlutverk þeirra, síður en svo. Enda er
nú húsnæðiseklan mjög í rénum, sökum fram-
takssemi, borgarstjórnarinnar í Reykjavík, bæja-
stjórnum í kaupstöðum, og byggingarfélaga.
Með stóríbúðaskattinum eru vissulega hús-
eigendum og leigendum í Reykjavík sendar kaldar
kveðjur, og þótt ef til vill engan furðaði á því, að
slíkar komi frá Páli Zóphóníassyni.
Það gegnir furðu að fyrsta konan sem „Fram-
sókn“ kemur á Alþingi í Reykjavík skuli láta það
verða sitt fyrsta verk á löggjafarþinginu, að vilja
spilla heimilisfriðnum, og vinna að upplausn f jöl—
margra heimila í höfuðstaðnum, með skattalög-
gjöf., sem bæði er í andstöðu við stjórnarskrána,
og áreiðanlega færir reykvískum húsmæðrum,
öldruðu fólki, sem enn situr í íbúðum sínum ó-
skertum, og börnum sem alast upp í snotrum og
heilbrigðum heimilum miklu meira illt en gott.
Nú hefur Rannveig Þorsteinsdóttir kastað
hanzkanum til heimilanna í Reykjavík, en várt
trúi ég því að mæður í höfuðstaðnum, vilji 'taka:
upp hanzkann fyrir hana;