Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 24.09.1951, Page 8

Mánudagsblaðið - 24.09.1951, Page 8
■M&imær Þetta, sem við birtum hér á eftir hefur að vísu komið. fram á prenti áður hér í Reykjavík. En þar sem svo margar útgáfur eru til, þykir oss rétt að birta þá _sönnu, bæði til gamans og leiðréttingar. Eins og flestum er kunnugt þá þykir Jóhannesi skáldi úr Kötlum gaman að skera upp á menn. Skáldin Kristmann Guðmundsson og Jóhannes bjuggu þá sem enn austur í Hveragerði. Dag nokkurn biöu þeir báðir eftir símtali á símstöðinni þar ásamt fjölda fólks. Allt í einu hefur Jóhannes upp rödd sina og gýtur hornauga til Kristmanns og segir: „Lít ég einn, er list kann, löngum hafa þær kysst ’ann Kristmann“. Kristmann brá grönum, glotti háðslega og svar- aði samstundis: „Einkum þó við ötlum, að þær fari úr pjötlum í Kötlum“. Varð Jóhannesi svo um hið fljóta og snjalla svar Kristmanns að honum varð orðfall og hefur ekki leitað á Kristmann síðan. ★ Leikfélag Reykjavíkur fer nú að byrja æfingar á nýju leikriti, sem vcrður fyrsta viðfangsefnið í vetur. Leikritið heitir „Dorothea á son“ og er eftir ungt skozkt skáld en þýðinguna hefur Einar Pálsson leikari annazt. Einar mun sjálfur leika aðal karlhlutverkið en Rúrik Haraldsson hefur á hendi leikstjórnina. ★ Jæja, þar kom að því að Sveinn Ásgeirsson fær að hátta fegurðardi ottningu íslands næsta ár og sam- gleðjumst vér mjög fegurðarsérfræðingum vorum 1 þessum efnum. Tíminn flytur þessa frétt s.l. föstudag á mjög faglegan hátt, en starfsmenn hans eru vanir allskonar gripasýningum. Fegurðarsamkeppni suður á Sikiley ér með nokkru öðr-u móti en hér, að oss er fortalið, og eru keppendur mældir hátt og lágt herða- mittis og axlabreidd, læra- og barmabreidd. Yrði oss fáfróðum borgurum ekki lítil ánægja veitt, ef fegurðardómendur héldu „general- prufu“ á dísunum áður en sú útvalda ásamt tilheyr- andi nefnd ræðst í suðurveg. Er það satt að íhaldsflokkurinn haí'i stungið þagnar->rgiilli“ í muuu Skattgrtúðendafélagsjns ? Bezti borgarstjóri Framhald af 1. síðu. „Við ritararnir héldum með okkur fund,“ sagði Jón alvar- legúr á svip, en dálítið feimn- islegur líkt og nýgift kona, sem tilkynnir bónda sínum, að hún sé eftir öllum sólarmerkj- um að dæma, með barni. „Skrifarinn frá Hollandi bar fram einhverja tillögu, sem eflaust kemur einhverntíma að gagni.“ Og nú kom dálítill fallegur roði í andlit ritarans, þó ekki væri liarm sambæri- legur við hið sóllitaða andlit borgarstjórans, sem skein eins og haustsól við enda stóra borðsins. Blaðamennirnir horfðu undrandi á þetta Ijós spek- innar. Þarna var hinn sjálf- glaði embættismaður, varfær- inn i orðum, en þó skilmerki- legur. Ekki að hlaupa meö stór orð í blöðin. Ekki láta á sér bera. Ón'ei, að vinna verk sitt í kyrrþey án nokk- urrar auglýsingastarfsemi, það er mottóið hans Jóns okk- ar. Og nú varð Jón bljúgur á svipinn, nærri því ástúðleg- ur. Þrátt fyrir þreytuna eftir ferðina, þá brosti hann þó. Öruggu brosi þess, sem vel hefur unnið. Úr svip hans skein innileikinn, og við blaða mennirnir máttum vel lesa úr augum hans: Látið lítið bera á orðum mínum, verk mín, ef þau verða nokkurs metin, munu tala á sínum tíma. Það var sannarlega gaman að bera þsssi tvö andlit sam- an. Borgarstjórinn, valds- mannslegur, fríður. Eljumað- urinn, sem alltaf vinnur, og um hann stendur eilífur styrr. Ósjálfrátt minnist maöur Kol- beins unga, athafnamannsins frá öld Sturlunga, sem elskað- ur var af lýðnum. Gunnar kominn heim eftir langa reisu suður i Miklagarð, þar sem hann einn hafði haldið heiðri íslands á lofti. Östudd- ur hafði hann gengið á fund fulltrúa milljónaþjóðanna, horfzt í augu við 32 þjóðir og mælt með betra skipulagi í matvæladreifingu heimsins. Á útleið og heimleið hafði hann sótt heim þjóðhöfðingja, bor- ið hróður íslands í eyrú þeim af slíkum kyngikrafti, að Ferðaskrifstofan mætti i’oðna við samanburðinn. Það er sjaldan í lífinu, les- andi góður, að menn fá það tækifæri, sem blaðamenn fengu. Aö standa augliti til auglits við mikilmennskuna, sem á stóran þátt í málefna- stefnu heimsins. Maður hrífst, hugmyndaaflið „eykst. í hug manns koma %þúsundir svángra andlita. Um leið og þeir bera fyrsta brauðbitann að munni sér, þá bregður meó leifturhraða mynd af Gunnari í hug þeirra. Honum ber að þakka næst Guði. Er; hér heima á íslandi, landi vanþakklætisins, sitja illar sálir og bölsótast yfir smá- vegisyfórni|jri óg ferðakostn- aði, sem engu nemur, 6—7 milljóruiní í aukaskatti og öðru smáræði. Hvílíkt al- MánudagsblaSið \ ff ......... Það jiótti skemmtileg nýbreytni, j»egar leikflokkar voru stofnaðir liér, seni ferðuðust tun landið, til jiess að sýna fólkinu ísveitum og luiupstöðum góð leikrit. Slíkir flokkar tíðkast mjög erlendis og þykja mjög vin- sælir. Myndirnar liér að ofan eru af leikflokknum Players, Incörporated, sem nýlega lauk ferð um 25) ríki í USA og sýndi fyrir um jiað bil 177 juisuiul manns. Efri myndin er atriði úr Much ado about notliing efir Shakespeare, en hin neðri úr Arms and the meii eftir Sliavv. glevmi smásálarskaparins. Nei, Reykvíkingar. I stað þess að borga þettá lítilræði nöldrandi, þá sameinumst all- ir í gleði og ánægju og þökk- um forsjóninni fyrir að hafa slíkt rnikilmenni á þessu litla eylaridi. Mikinn lærdóm hefur þú fært oss, borgarstjóri, en ill hafa launin orðið. En nú þeg- ar við sjáum sannleikann, þá iðrumst við. Launin til þín verða að vísu ekki metin í pen- ingum eða silfri.* Slikum ver aldarlaunum hefur ríkisstj. séð fyrir, fyrir okkur. En góð- ar hugsanir og bænir í jrinn garð verða betur metnar hjá hinum alvalda, og þau láún verða alltaf drjúgust að lok um. Stöðuveitingar Framhald af 1. síðu. Akureyri (nú dósents) er settur stúdent til að búa nem- endur undir stúdentspróf. (Hefði ekki alveg eins verið hægt að taka gagnfræðing?). Á Laugarvatni losnaði kenn- arastaða í dönsku. Skólastjór- inn þar (lærður í leikfimi) réð þarigað að gömlum og góð um íslenzkum sið mann sem aldrei hefur til Danmerkur komið og vísast gæti ekki gert sig skiljanlegan á málinu, þó að hann geti verið nýtur ma.ð- ur á öðru sviði. Svona mætti lengi telja, þó munu þessi dæmi nægja til að sýna. hvaða sjór.armið ríkja við stöðuveitingar í mennta- málum vonmi.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.