Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 27.01.1952, Qupperneq 2

Mánudagsblaðið - 27.01.1952, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGSBLAÐIÐ . Mánudagur 27. janúar 1951. f-Asto'fia stærs hótel i heimi Waldorf-Astoria-hótelið, sem nær yfir heila götublokk í New York City, er að ten- ingsmáli stærsta hótel í heimi. Það er „borg innan borgar“, eins og sagt er. Það er líka margt í hótelinu, sem ýmsar borgir gætu ekki sýnt. Án þess að þurfa að fara út, geta gestir gengið undir minni háttar uppskurði, fengið sér lóuegg og svínakjötssneið á brauð, eytt 66 dollurum í eina kampavínsflösku, keypt sér alklæðnað og bláminkapels fyrir 14 þúsund dollara; látið draga úr sér tönn, ferðazt með einkajárnbrautarlest, borðað kvöldverð með 1999 manns, eða rekizt á fyrrver- andi konung Bretaveldis, fyrr verandi forseta Bandaríkj- anna, sem enn er á lífi eða Douglas MacArthur, en allir þessir menn búa þar. Eins og margra svipaðra fyriftækja, skiptast viðskipti Waldorf-Astoria í þrennt; það selur fólki næturgreiða, veitir og skemmtir New York búum og gestum þeirra og leigir sali síria þeim, sem þess óska. Á hverju meðalári leigir hót- elið 2000 herbergi sín 150 þús. gestum. I júní s.i. rituðu 11.295 amerískir gestir nöfn sín í gestaskráá hótelsins, og voru þeir frá öllum fylkjum Bandaríkjanna, nema Wyom- ing, og 930 komu þangað frá 50 löndum. Mikill hluti þeirra 150 þús- und árlegu gesta, sem hótelið tekur á móti, kemur þangað til þess að sækja fundi. Það líður vart sá dagur, að lyft- urnar og aðalgangar hótelsins séu ekki þéttskipaðir vel klæddum gestum, sem bera á barmi sér merki með nafni sínu, atvinnufyrirtækisihs og fundarins, sem þeir eru að sækja. Waldorf-hótelið hefur geysi tekjur af brúðkaupsveizlum, móttökuhátíðum, fundum, há- degisverðum, morgunverðum og cocktailboðum. Aðalsalur- inn hefur þegar verié leigður fyrir hátíðahöld þau, sem eiga að fara fram í tilefni af 200 ára afmæli Columbía-há-: skólans 1954. Hjón ein hafa fengið salinn frátekinn til þess að halda upp á gullbrúð- kaup sitt í febrúar 1957. Trú- lofað par hefur ákveðið að fresta brúðkaupi sínu, vegna þess að íbúðin, sem þau ætla að taka á leigu, er upptekin þar til í marz. Svo margir heimsfrægir menn hafa búið í hótelinu, að það gengur undir nafninu hin óopinbera höll New York borgar. Hvorki titillinn né hlutverkið er nýtt. Síðan árið 1893 hafa stórmennin öslað yfir hin mjúku teppi þess, nema á árunum 1929 til 1931, þegar hótelið flutti í núver- andi heimkynni sín. Staðgestir hótelsins mega skjálfir skreyta íbúðir sínar, Iáta'hótelið gera það eða not- færa sér húsgögn hótelsins sjálfs. Matartilbúningur er ekki aðeins bannaður, heldur ómögulegur. Á lista yfir þá, sem nú búa í hótelinu, eru m. a. Hoover, fyrrverandi Banda ríkjaforseti, sem búið hefur þar í 15 ár, MacArthur, hers- höfðingi, hertogahjónin af Windsor, sem búa þar þann helming ársins, sem þau eru í Bandaríkjunum. Wi'll Hay- hjónin, Randolph Hearst, jr., og Cole Porter og kona hans: Yfir dyrum á íbúð númer 42A er hið opinbera innsigli Bandaríkjanna, en þar er eina ameríska sendiráðið, sem er til húsa í hóteli. I íbúðinni búa Warren Austin, sendi- herra, fulltrúi USA við Sam- einuðu þjóðirnar og frú hans. Ibúð MacArthurs, hershöfð- ingja, númér 37A mundi kostá hann 125 döHárá á dag, ef hótelið krefði hánn venjulegr- ar borgunar. Sú íbúð hefur verið íbúð margra forseta: Auriol Prakklands forseta;, Alemán forseta Mexikó, Weismanns Israplsforseta. Hún var heimili Jiijíönu Hol- landsdrottningar, þegar hún var landflótta í USA, og her- togafrúarinnar af Luxem- burg, Iranskeisara, Michaels Rúmeníukóngs, og sonur Ibn Saud, Arabíukonungs, hefur gist þar. í þessu geysimikla hóteli og skemmtistað þarf dugandi f or stöðumann. Sá, sem nú veitir því forstöðu, er ungur dug- mikill maðui', sem heitir Phil- ippe. Phillippe lærði verk sitt í hinu stórkosflega Crfllon í París. Philíippe er sérstæður í sinni röð. Þótt hann sé sæl- keri, er hann líka forstjóri, einstakur sýningarmaður og samkvæmiskunnátta hans er frábær. Þegar veizla ér í hans höndum, géngur allt eíns og í sögu. „Það er ekkért til, sem heitir vellukkað party, án þess að það sé undirbúið, Við getum jafnvel fengið þjóninn til þess að missa f ullan bakka af glösum, ef deyfð kemur yf- ir hópinn“. Philippe bendir á, að hann haf i brennandi áhuga á öllum smáatriðum, en það lærði hann af hinum heims- fræga Oskari á Waldorf- Astoria, sem nú er látinn, en titil hans erfði hann fyrir átta árum. Philippe er einn af viður- kenndustu sérfræðingum á góð vín. Á hverju ári fer hann til Evrópu, til þess að draga að í vínkjallara hótelsins. Það er engin kúnst að kaupa góð vín, eftir að verðið á þeim hef- ur verið ákveðið. En Philippe skoðar vínin, bragðar á þeim, fylgist með veðurfregnum þar til sumarið eftir. Ef hann heldur, að vínið muni þrosk- ast.vel, kaupir hann það, áður en vitað er, hvernig það reyn- ist og verðið hækkað. „Við treystum á bragðvísi okkar segir hann. Réne Black, gamall vinur Philippes, er yfirmaður í öll- um fimm matsölum hótelsins. Black er orðinn dálítið grá- hærður, í útliti eins og sym- foníuhljómsveitarstjóri, en talar eins og háskólaprófess- or. Aðalstarf Blacks er að hafa umsjón með þrem millj- ón réttum, sem seldir eru í hótelinu árlega. Nokkrum sinnum á viku safnar hann að sér þjónum sínum og heldur yfir þeim fyrirlestur og spyr þá síðan út úr. „Hvernig býrð þú til Fillet de Sole Winter- hur?“ kann hann að spyrja. „Hversvegna var þessi réttur búinn til?“ „Handa hverj- um.“ „Góður þjónn“, segir hann, „verður að geta svarað. Hann verður að vera tilbúinn að svara gesti, sem spyr.“ „Kúlusveppir? hvað eru þeir. Hvaðan koma þeir?“ eða „Hvað er hljómsveitin að spila?“ Waldorf-gestir geta gætt sér á norskri rjúpnasteik (stykkið kostar 12 dollara), antélópum frá Wyoming, buffalo-steik fráá Kanda. Þrátt fyrir allar hinar mörgu tegundir er Fillet Miggon- steikin langvinsælust. Gestur- inn fær átta og hálfa únsu af kjöti og nokkrar kartöflur og reikning fyrir $ 5.75. Ódýr- asti rétturinn kostar $4.50, en kaffisopinn 45 sent. Hvernig viljið þér fá hænsna steikina yðar gerða? í Wal- dorf eru hænsni matreidd á 71 mismunandi hátt og eggin á 93 mismunandi háttu. Eld- húsin eru samblanda af öllum endhúsum heimsins..Nær því hver réttur ér matreiddur þar, ef pöntun er gerð í tíma. Undraverk þetta er gert af 200 kokkum, sem hver er sér- fróður um einhvern rétt. Herbergisþjónustu er stjórn- að frá eldhúsi á 18. hæð. Stundum kemur það fyrir, að 1000 gestir heimta morgun- verð innan sama klukkutím- ans. Símaskiptiborð hótelsins gæti fullnægt borg á stærð við Miami Beach á Florida. Það þarf 155 símastúlkur til þess að starfrækja það. Á fundi þar nýlega vildu 450 gestir láta vekja sig á mínút- unni klukkan hálf átta. Það er regla, ef gestur er syf juleg- ur, þegar hringt er, verður stúlkan að hringja aftur á hann. Þegar MacArthur kom þangað fyrst, var svo mikið að gera, að eirin símamaður gerði ekki annað en taka við skilaboðum. Verstu lætin voru, þegar Windsor-hjónin komu þangað eftir brúðkaup sitt. Þá var ösin svo mikil, að setja varð sérstakt skiptiborð í herbergi þeirra. Lögregludeild Waldorf- hótelsins — yfirmaður, að- stoðarmaður hans og tíu lög- reglumenn, einn gangavörður og skrifari gætu sinnt lög- reglumálum í smábæ. I orða- bók Waldorf-hótelsins eru þeir kallaðir „varðmenn". Joseph Geary, sem nú er yfir- maður, byrjaði þar fyrir 20 árrnn sem undirmaður. Þá varð hann að klæðast „diplo- mat-fötum“, en nú klæðast þeir allir borgarafötum. Árið 1946 spurði stjórnar- ráðið bandaríska, hvort hót- elið gæti útvegað samastað fyrir sexvikna fund utanrík- isráðherranna. Eitt hundrað svefnherbergi voru tekin og þeim breytt í skrifstofur, 75 voru höfð fyrir dagstofur og tíu íbúðir handa þeim, sem hótelið kallaði „aðalmenn- ina.“ Skiptiborð var fengið þeim til afnota ög sérstök lyfta gekk einungis á milli skrifstofanna og vinnuher- bergja. Rússarnir koriui og kváðu sig ánægða, en fluttu út í stóra villu, sem þeir eiga á Long Island og bjuggu þar. Uppskeruhátíðisdaginn hélt hótelið hinn venjulega kalk- uns og pumkin-pie kvöldverð og bæði Molotöv og Vishinsky voru mjög hrifnir af, að Bandaríkjamenn héldu einn dag hátíðlegan vegna upp- skeni ársins. Það var í íbúð 37 A, sem hinir „stóru fjórir“ samþykktu samninga um Italíu, Rúmeníu, Búlgaríu, Ungverjaland og Finnland. Fyrir um það bil tveim ár- um kom Wu, hershöfðingi, og samferðamenn hanS, komm- únistarnir, sem áttu að mæta hjá S.Þ. og gistu þeir í Wal- dorf-hótelinu. Ilótelþjónarnir, sem báru ferðatöskur þeirra, fengu greiðslu í bandarískum silfur- dollurum, sem slegnir voín 1880. Það var stuttu .eftir komu hershöfðingjans," að ö- friðurinn í Kóreu hófst, og hatrið í New York á óvinunum fór svo í vöxt, að þrír leynilögreglumenn voru settir til þess að vernda Kín- verjana. Morgun einn hringdi maður: „Eg er á leiðinni til ykkar, til þess að rífa niður helvítis kommúnistaflaggið“. Aðstöðarmaður hótelsins skýrði honum rólega frá þvi, að flaggið væri norskt og flaggað væri til heiðurs þeim Ölafi ríkisarfa og Mörtu prinssessu. Flaggherbergi hótelsins hefur í sínum vörzlum 400 fána frá 60 þjóðum og eiri- kennisfána varaforseta Bandaríkjanna. Hótelið hefur þrjú flaggstæði, sem eru mik- ilsverð, þar sem flaggað; er til heiðurs útlendifm . gestum, eftir stöðu þeirra og þýðirigú. Ræðismannsskrif stofa Pak- istan var hrifin, þegar hótelið flaggaði með fána þeirra í til- efni af þjóðhátíðardégi.þeirra 14. ágúst, og reit hótelinu þakkarbréf þess efnis, Ghaim Weismann bjó í hótelinu, þeg- ar hann var kosinn fyrsti for- seti Israels. Hótelið náði sér í flagg þjóðar hans og.sá um lögreglumenn á mótorhjólum, sem fylgdu hinum nýja for- seta. Conrad Hilton, hótelkonung ur Bandaríkjanna, keypti Waldorf-Astoria 1949. „Það þurfti lcjark til þess,“ segir hann. „Waldorf hefur alltaf verið miðdepill menriirigkr og samkvæmis, en fjármálasága þess hefur alltaf verið'hræði- lep-.“ r: — uií: Hann hyggur ekki- é að breyta Waldorf. Á skriifStöfu- borði hans er mynd áf Wal- dorf-Astoria hótelinu, eri á hana hefur hann ritað. ,,Það stórkostlegasta af þéini; öll- öllum.“ (Þýtt og stytt 'úr : Reader’s Digést). s----------------------------------------—,'K Höfum opnað afgreiðslu á Freyjugötu 1. Sími 2902 Ný amerísk tækni notrið við hreinsunina. Gerum upplitaða poplin- og bómullarrykfrakka (Cotton-gabertine) sem nýja. Öll vinna framkvæmd af erlendum fagmanni. Hf'ialnr! ElMlaagSa liNDIN h.f. Skúlagötu 51 — Sími 81825 Hafnarstræti 18 — Sími 2063 Freyjugata 1 — Sími 2902 --------------------- ----— i--------------'

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.