Morgunblaðið - 15.01.2005, Blaðsíða 1
2005 LAUGARDAGUR 15. JANÚAR BLAÐ D
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
GUÐJÓN ÁRNASON SPÁIR Í SPILIN FYRIR HM Í TÚNIS / D2, D3
TÉKKAR, fyrstu mótherjar Íslendinga í heims-
meistarakeppninni í handknattleik í Túnis þann
23. janúar, töpuðu naumlega fyrir Svíum í
Malmö, 32:30, í gærkvöld. Leikurinn var í fyrstu
umferð alþjóðlega mótsins sem Svíar og Danir
halda sameiginlega. Í hinum leiknum rótburst-
uðu Danir lélegt lið Brasilíumanna, 41:15. Þar
skoraði Michael Knudsen 11 mörk fyrir Dani.
Svíar þurftu að hafa sig alla við gegn frísku
liði Tékka, sem lék vörnina framarlega, en voru
þó með undirtökin allan tímann. Þetta var ní-
undi sigurleikur sænska landsliðsins í röð undir
stjórn Ingemars Linélls en hann tók við þjálfun
þess síðasta sumar, af Bengt Johansson. Thom-
as Svensson átti stórleik í sænska markinu og
það var fyrst og fremst frammistaða hans sem
hélt Tékkum í skefjum. Ljubomir Vranjes lék á
ný með Svíum og spilaði einnig mjög vel.
Naumt tap hjá
Tékkum í Malmö
Frakkar, sem hafa fengið þáJackson Richardson og Guéric
Kérvadec í sitt lið á ný, voru yfir
nánast frá byrju en íslenska liðinu
tókst þó að jafna, bæði 3:3 og 7:7.
Eftir það dró í sundur með lið-
unum, fyrst og fremst vegna
margra brottvísana Íslendinga,
sem voru reknir sjö sinnum af velli
í fyrri hálfleik og fjórum sinnum
framan af síðari hálfleik.
Staðan í hálfleik var 16:12 og
Frakkar komust fljótlega sjö
mörkum yfir en íslenska liðið rétti
sinn hlut á ný eftir því sem leið á
síðari hálfleikinn.
„Þetta var ekki nógu gott, við
vorum langt frá okkar besta. Okk-
ar menn voru þreyttir, spiluðu
flestir illa, fóru illa með góð færi
og létu reka sig af velli hvað eftir
annað á klaufalegan hátt. En ég sef
rólegur yfir þessu, þetta er í lagi
fyrst flestir voru á hælunum, og ég
er sannfærður um að strákarnir
verða á réttu róli þegar á reynir og
eiga eftir að springa út. Franska
liðið er geysilega öflugt, vann til
dæmis Danina með tíu marka mun
um daginn, og Frakkarnir ætla sér
ekkert annað en heimsmeistaratit-
ilinn í Túnis,“ sagði Viggó við
Morgunblaðið í gærkvöld.
Hann sagði að línumennirnir Ró-
bert Gunnarsson og Vignir Svav-
arsson hefðu staðið upp úr en
Vignir lék allan leikinn í vörninni
og skoraði sín mörk úr hraðaupp-
hlaupum. Róbert skoraði 6 mörk
og Vignir 5 en þeir voru marka-
hæstir í íslenska liðinu. „Arnór
Atlason átti líka góða innkomu í
síðari hálfleiknum, í stöðu leik-
stjórnanda. En varnarleikurinn
okkar var ekki upp á það besta og
markvarslan var léleg. Okkar
markmenn vörðu tíu skot sem er
helmingi of lítið,“ sagði Viggó Sig-
urðsson.
Morgunblaðið/Kristinn
Vignir Svavarsson lék vel með íslenska landsliðinu gegn Frökkum í Ciudad Real í gærkvöld og
skoraði fimm mörk. Hér skorar Vignir í leik gegn Frökkum, fyrir Hauka í Evrópuleik gegn Créteil.
„Í lagi fyrst flestir
voru á hælunum“
ÞRÁTT fyrir slakan leik, að mati Viggós Sigurðssonar landsliðsþjálf-
ara í handknattleik, tapaði Ísland þó ekki nema með fjögurra marka
mun, 30:26, fyrir firnasterku liði Frakka í fyrsta leiknum á al-
þjóðlega mótinu sem hófst í Ciudad Real á Spáni í gær. Íslenska lið-
ið leikur við Spánverja í dag og Egypta á morgun. Spánverjar sigr-
uðu Egypta stórt, 33:21, í síðari leik gærkvöldsins.
EINAR Hólmgeirsson, örv-
henta skyttan frá Grosswall-
stadt, kom ekkert við sögu
með íslenska landsliðinu í
handknattleik þegar það
mætti Frökkum í Ciudad Real
í gærkvöld. Óvíst er að hann
verði með í hinum tveimur
leikjunum á Spánarmótinu,
gegn Spánverjum í dag og
Egyptum á morgun.
Einar meiddist á ökkla á æf-
ingu áður en landsliðið hélt til
Spánar. „Þetta eru ekki alvar-
leg meiðsli og ættu að hverfa á
nokkrum dögum. En við tök-
um enga áhættu og það er því
eins víst að við hvílum hann al-
veg á mótinu,“ sagði Viggó
Sigurðsson landsliðsþjálfari
við Morgunblaðið í gærkvöld.
Einar
meiddur
á ökkla
ALLA Gokorian, handknatt-
leikskonan öfluga, er rifbeins-
brotin og leikur ekki með Ís-
lands- og bikarmeisturum ÍBV
næstu vikurnar. Alla meiddist í
leik gegn Val á dögunum, fékk
þá þungt högg þegar Valskonur
reyndu að stöðva hana, sam-
kvæmt vef ÍBV. Hún missir lík-
lega af næstu 4-5 leikjum Eyja-
liðsins, sem er í öðru sæti 1.
deildar, tveimur stigum á eftir
Haukum en hefur leikið einum
leik meira.
Alla frá
vegna rif-
beinsbrots
„ÉG er þakklátur og stoltur yfir
því að forseti Real Madrid skuli
hafa sýnt mér þann heiður að
kaupa mig. Þetta er draumi lík-
ast, ég er kominn til stærsta fé-
lags í heimi, og ég er kominn
hingað til að vinna hvern ein-
asta leik og mun leggja mig 110
prósent fram,“ sagði danski
knattspyrnumaðurinn Thomas
Gravesen eftir að hann var
formlega kynntur fyrir spænsk-
um fjölmiðlum í gærkvöld. Real
Madrid keypti hann af Everton
fyrir um 300 milljónir króna.
„Við höfum samið við besta
knattspyrnumann Danmerkur
og erum sannfærðir um að
Thomas Gravesen er leikmað-
urinn sem okkur vantaði, og að
nú liggi leið okkar aðeins upp á
við,“ sagði Florentino Perez,
forseti Real Madrid.
Sjá nánar um Gravesen í sér-
blaðinu um ensku knattspyrn-
una, á bls. E1.
Draumi
líkast hjá
Gravesen
Reuters
Florentino Perez, forseti
Real Madrid, afhendir
Thomas Gravesen treyju
númer 16 í gærkvöld.
JAN-ERIK Aalbu, framkvæmda-
stjóri norska knattspyrnufélagsins
Stabæk, sagði við netútgáfu dag-
blaðsins Budstikka í gærkvöld að
félagið væri nálægt því að semja við
Tryggva Guðmundsson á nýjan
leik. „Við þekkjum Tryggva frá
fyrri tíð og það væri fínt að fá hann,
frekar en að taka áhættu á öðrum
leikmönnum sem við vitum ekki
eins mikið um,“ sagði Aalbu. Morg-
unblaðið náði tali af Tryggva í gær-
kvöld. Hann sagði að hann hefði
ekki átt formlegar viðræður við
stjórn Stabæk en ætti von á tilboði
frá félaginu um helgina. „Það væri
gaman að taka þátt í að rífa Stabæk
aftur upp í úrvalsdeildina, ég er
með Stabæk-hjarta og það var leið-
inlegt að sjá liðið falla í haust.“
Vongóðir
um Tryggva
KARLALIÐ FH í handknattleik
hefur tapað tveimur leikjum í æf-
ingaferð sinni til Frakklands . Fyrst
töpuðu FH-ingar fyrir landsliði
Katar, 24:26, en Katarbúar eru á
leið á HM í Túnis. Síðan léku þeir
við Pontault-Combault, efsta liðið í
frönsku 2. deildinni, og biðu aftur
lægri hlut, nú 26:30. FH leikur í 1.
deild þegar Íslandsmótið hefst aft-
ur í febrúar en liðið náði ekki að
vinna sér sæti í úrvalsdeildinni.
Tvö töp FH í
Frakklandi