Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 17.08.1953, Blaðsíða 8

Mánudagsblaðið - 17.08.1953, Blaðsíða 8
Frá Langarvatni uin verzlunarmannahelgina. (Sjá grein í síðasta blaði). Brennivínsflöskunni, marki dagsins, tyllt á tjaldið. Margrét prinsessa var nýlega á ferð um Suður-Afríku með móður sinni Elísabetu, fyrrverandi Englandsdrottningu. Var ferðalagið gert til Jiess að opna sýningu til minningar um i hundrað ára dánarafmæli Cecil Rliodes. Nýtt hótel á Akranesi Framhald af 1. síðu. aði síðastur og ræddi nokkuð um veitingamálin almennt. Kvað hann víða pott brotinn í gistihúsmálum þjóðarinnar og væri sökina að finna bæði 'hjá veitingamönnum og gest- um sjálfum. Hann kvaðst vona, að rekstur þessa hótels tækist vel, enda hefði hann engu öðru kynnst í starfi sínu á Akranesi en góðvilja og skilningi staðarmanna í hví-‘ vetna. — O — Þá var útbýtt meðal blaða- manna lista yfir þá, sem unn- ið hafa við hótelið og er hann foirtur hérmeð. Má taka það fram, að vinna hvers manns •og fyrirtækis við Hótel Akra- nes er, að því bezt verður séð rneö hreinustu ágætum. Aðaiverkstjórn og umsjón með verkinu í heild, hafði Jón Guðmundsson byggingameist- ari, Málun, veggfóðrun og dúkalagningu: málarameistar arnir Einar Árnason og Lárus Árnason. Raflagnir og lýs- ingu: rafvirkjameistararnir Ármann Ármannsson og Sveinn Guðmundsson. — Múr- húðun: múrarameistararnir Aðalsteinn Árnason og Eirík- ur Þorvaldsson. Pípulagnir og uppsetningu hreinlætistækja: Þórður Egilsson pípulagninga meistari. Fatahengi og tæki til loftræstingar smíðaði vél- smiðjan Þorgeir & Ellert. Hús gögn eru smíðuð af trésmíða- verkstæði Lárusar Þjóð- björnssonar, Trésmiðjunni Víðir i Reykjavík og hús- gagnaverstæðinu Áslákur & Ólafur, Akranesi. Speglar og hillur eru frá Glerslípun Frið- jóns Runólfssonar. Glugga- tjöld, rúmfatnaður og dúkar hefur að mestu verið saumað í sjálfboðavinnu undir stjórn frú Sigríðar Einarsdóttur Akránesi. — Gólfábreiður ailar eru ís- lenzk framleiðsla, unnin af Vefaranum h.f. í Reykjavjk. 90% af verðmæti þeirrar vöru er íslenzk ull og vinna. — Vegglampar eru íslenzk f ram leiðsla, unnið af Málmiðjunni í Reykjavík. HvaS á að gera í kvöld! KVIKMYNDAHÚS: Gamla bíó: Vendetta. Faith Domergue. George Dolenz. Hillary Brook. Kl. 5, 7 og 9. Nýja bíó: Borgin handan fljótsins. Stephen McNally. Peter Fernandez. KI. 5, 7 og 9. Tjarnarbíó: Margt skeður á sæ. Dean Martin. Jerry Lewis. Kl. 5, 7 og9. Austui'bæjarbíó: Leyndar- málið. Douglas Fairbanks. Glynis Johns. Kl. 7 og 9. Sýna hrífandi ieik Faith Domergue og Donald Buka í myndinni Vendetta — Blóðhefnd. Frábær kvikmynd í Samia bíó Bíóstjórar eiga það til að taka nokkuð sterkt til orða, er þeir lýsa ágæti mynda sinna í auglýsingum. Bíógestir eru orðnir þessu svo vanir, að þeir láta orð- skrúð þeirra sem vind um eyru þjóta og sjá eða sjá ekki myndina ef þeim sýnist svo. MÁNIIDAGSBLAUIB En nú ber eitthvað nýtt og sjaldgæft við. Auglýsinga- stjórinn í Gamla bíó, hefur rekizt á orðið. „stórfmgleg“ í sinni orðabók, brúkað það um myndina ,V’enc]pttu, ,sem þar er sýnd nú og það hlálega í málinu er það, að orðið „stór- fengleg" er einmitt það eina, sem passar við þessa mjög svo ágætu mynd. Loginn og örinn kl. 5. Stjörnubíó: Fjarstýrð flug- skeyti. Glenn Ford. Viveca Lindfors. Kl. 5, 7 og 9. Hafnarbíó: Fósturdóttii' götunnar. Maj-Britt Nilson. Peter Lindgren. Kl. 7 og 9. Sonur Ali Baba kl. 5. Trípolibíó: Æfintýrið í 5. götu. Kl. 5, 7 og 9. ÚTVARPIÐ: Fastir liðir eins og venjulega. Kl. 19.30 Tónleikar: Arthur Rubinstein leikur á píanó (pl.). 20-20 Tónleikar: (Blásarar úr sin- fóníuhljómsveitinni leika; dr. V. Urbancic stjórnar). 20.35 Erindi: „Skilaðu, Varus, hersveitunum mínum!" Óskar Magnússon frá Tungunesi). 21.05 Kórsöngur: Karlakórinn „Svanir“ á Akranesi syngur. Söngstjóri: Geirlaugur Arnason. Einsöngvari: Jón Gunn- laugsson. Píanóleikari: Fríða Lár- usdóltir. 21 40 Upplestur: „Ás- mundur Jónsson frá Skúfsstöðum flylur frumort kvæði. 22.05 Dansl- Mánudagurinn 17. ágúst: Fastir liðir eins og venjulega. 19.30 Tónleikar: Lög úr kvik- myndum( pl.). 20.20 Útvarshljóm- sveitin; Þórarinn Guðmundsson stjórnar. 20.40 Um daginn og veg- inn (Helgi Hjörvar). 21.00 Fin- söngur: Erna Sack syngur (pl.). 21.25 Upplestur: a) Helgi Kristins- son les gamankvæði eftir Sigurð Z.. ívarsson. b) Auðunn Bragi Sveinsson les kvæði eftir Rósberg G. Snædal. 21.45 Búnaðarþáttur: Litið inn til nágrannanna (Gunn- ar Árnason skrifstofustjóri). 22.10 Dans- og dægurlög frá Kúbu (pl.). Myndin Vendetta er ein af þeim myndum, sem allir þeir, sem gaman hafa af góðri kvik- mynd, ágætum leik og prýói- lega vandaaðri kvikmyndun. verða að sjá. Þetta eru stór orð, en ég þori að ábyrgjast, að ekki einn einasti maður eða kona, sem sér þessa mynd sér eftir að hafa eytt í hana kvöld stund. Efnið fjallar um blóðhefnd, — í Korsíku mátti enginn maður liggja óbættur hjá garði, ef hann var myrtur. Það var skylda elzta sonarins að liefna hans, fá morðiiigj- ann til þess að játa glæpinn og og segja honum síðan að hér eftir myndi hann falla óhelg- ur. Þetta var, að því er virðist, siður Korsíkubúa í byrjun 19. aldarinnar. Robbina, einn af aðalsmönnum eyjarinnar er myrtur í skógarfeni. Dóttirin Colomba, er höfuð ættarinnar, því elzti sonur hans er 1 franska hernum. Robbina er jarðaður á þeim stað sem hann hann er myrtur — fæi ekki leg í vígðri mold unz hans er hefnt. Og nú er þess eins beðið að elzti sonurinn komi heim, en háns er þá og þegar von. En það er ekki ætlunin að rekja atburqarásina frekar hér. Það kynni að skemma fyrir þeim, sem eiga eftir að sjá myndina. En það skal full- yrt að hvergi skeikar í spenn- ingnum. Mel Ferrer leikstjóri hefur nýtt alla þá tækni sem hugs- anleg er til þess að gera mynd sína sem bezt úr garði. Hvert atriði er hnitmiðað í allri tækni og áhrifum. Sum atriðin taka mörgu því fram, sem hér hefur sézt í kvikmyndum síð- ari árin. I hverju hlutverki er valin persóna og ieikur allra hinn ágætasti. Guði má þakka fyrir það, að þegar valið var í aðalhlut- verkin var gengið framhjá öll- um „standard‘-kvikmynda- hetjum og Betty Grabie-Lana Turner dísunum. Tveir nýir leikarar eru í ka rlhlutverkum, Framhald á 7. síðu. .iLA Salisbury lávarður ' gegnir bó enibættintanríldsráðhcrra í bcralas stjóiniimi í veikinda- forföShim Edcns. \

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.