Morgunblaðið - 28.01.2005, Page 1
2005 FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
SERENA WILLIAMS MÆTIR DAVENPORT Í ÚRSLITUM / C3
DANIR skoruðu 22 mörk úr hraðaupphlaupum
þegar þeir skelltu Kanada, 52:18, í leik í A-riðli
heimsmeistaramótsins í handknattleik, fjórum
fleiri en leikmenn Kanada gerðu í öllum leikn-
um. Aðeins eitt hraðaupphlaup fór í súginn hjá
danska liðinu og er því um einstaklega góða
nýtingu að ræða. Leikmönnum Kanada lánaðist
aðeins einu sinni að komast upp í hraðaupp-
hlaup í öllum leiknum en tókst ekki að nýta það,
Peter Larssen, markvörður Dana, varði þá skot
frá David Bonneville. Hornamaðurinn Lars
Christiansen skoraði 14 mörk úr 16 skottilraun-
um fyrir Dani og samherji hans Christian
Hjermind gerði 11 mörk úr 11 skotum.
Þjóðverjar skoruðu fjórðung marka sinna í
40:15 sigri yfir Katar úr hraðaupphlaupum.
Katarbúum lánaðist hins vegar aldrei að kom-
ast í hraðaupphlaup í leiknum.
22 mörk úr hraða-
upphlaupum
Þjálfarinn telur okkur ekki með,heldur sig eiga auðveldan leik
fyrir höndum. Sá skal fá að komast
að því að hann á ým-
islegt ólært,“ sagði
Viggó ákveðinn þeg-
ar Morgunblaðið
hitti hann að máli á
hóteli landsliðsins eftir hádegisverð í
gær. „Þessi hugsunarháttur Rússans
verður okkar vítamín í leikinn. Viggó
segir Rússana ekki vera með sterk-
ara lið en það íslenska, en varnarleik-
inn verði að bæta til þess að eiga
möguleika á sigri. „Við ætlum að
leika hratt gegn Rússunum og koma
með sama hugarfari til leiks og gegn
Slóvenum. Það er nauðsynlegt að
mínu mati að hleypa hraðanum að-
eins upp í leiknum. Leikmenn liðsins
eru stórir og þungir, leika geysilega
góða vörn sem þeir byggja mikið á.
Rússarnir skora ekki mikið af mörk-
um, leika kerfisbundinn og frekar
hægan agaðan leik, en hafa á að
skipa góðum skyttum og horna-
mönnum. Það er hins vegar veikleiki
hjá þeim að hafa ekki örvhentan leik-
mann í byrjunarliðinu. Við ætlum að
reyna að nýta alla veikleika rúss-
neska liðsins, en því verður ekki
mælt í mót að þarna er á ferðinni
feikisterkt lið, en þó ekki endilegra
betra en það slóvenska og tékkneska
sem við höfum þegar leikið við,“
sagði Viggó, sem segir engan vafa
leika á að varnarleikur íslenska liðs-
ins verði að vera miklum mun betri í
leiknum í dag en í fyrri leikjunum í
keppninni.
Vörnin hefur verið
okkar akkilesarhæll
„Ég tel Rússana ekkert vera
sterkari en mitt lið. Ég tel okkur
hafa verið óheppna gegn Slóvenum
þar sem varnarleikurinn brást okkur
alveg í síðari hálfleik. Um leið þá fór
lítið fyrir markvörslunni. Við verðum
að fá markvörsluna í lag gegn Rúss-
um samhliða því sem varnarleikur-
inn verður að vera betri,“ sagði
Viggó, sem ekkert vill gefa upp
hvernig hann hyggst haga varnar-
leiknum. „Ég vil ekkert segja um það
núna, það verður okkar leyndarmál
þangað til út í leikinn verður komið,“
segir Viggó leyndardómsfullur. „En
það er alveg deginum ljósara að það
þýðir ekkert að ætla sér að vinna
Rússa með því að spila vörnina eins
og gert hefur verið lengst af þessu
móti. Varnarleikurinn hefur verið
okkar akkilesarhæll fram til þessa á
heimsmeistaramótinu. Sóknar-
nýtingin hefur verið viðunandi, vand-
inn liggur í vörn og markvörslu,“
segir Viggó, sem viðurkennir að hafa
gert mistök á lokasprettinum gegn
Slóvenum. „Ég hefði átt að skipta um
varnaraðferð, við héngum alltof lengi
í 5/1-vörninni sem skilaði engan veg-
inn árangri, í stað þess að skipta í
6/0,“ segir Viggó sem ennfremur
leggur áherslu á að Ólafur Stefáns-
son verði að ná sér strik eftir slakan
dag gegn Slóvenum. Fyrirfram er
talið að íslenska landsliðið verði veik-
ari aðilinn í leiknum við Rússa. Viggó
segist ekki líta þannig á stöðuna. „Ég
tel engan vafa á að við eigum að hafa í
fullu tré við Rússana. Ef við náum að
leika vörnina eins og við getum best
og fáum markvörslu með þá eigum
við mjög góða möguleika á að vinna
Rússana,“ segir Viggó Sigurðsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik,
hvergi banginn fremur en oft áður.
Þjálfari Rússa telur Íslendinga verða auðvelda bráð á heimsmeistaramótinu
„Skal komast að öðru“
ÞAÐ er nauðsynlegt að vinna Rússana, bæði fyrir okkur, handbolt-
ann á Íslandi og áhorfendur heima, nú verður allt lagt í sölurnar,
það er að duga eða drepast,“ segir Viggó Sigurðsson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik, um viðureignina við Rússa í dag, en það er
fjórði leikur Íslands á mótinu. Eftir sigur Rússa á Tékkum í fyrradag
sagði þjálfari þeirra, Anatoli Dratchev, að hann ætti aðeins einn erf-
iðan leik eftir, gegn Slóvenum á laugardag.
Ívar
Benediktsson
skrifar frá
Túnis
Morgunblaðið/RAX
Landsliðshópurinn fór í skoðunarferð um gamla bæinn í Túnisborg í gær. Fyrir hópnum fer hér Markús Maní Michaelsson, klæddur
kufli, en á hægri hönd hans má sjá lögreglumann með riffil. Tuttugu öryggisverðir voru með íslenska liðinu á ferð um bæinn.
AFMÆLISBARNIÐ Marat Safin
frá Rússlandi stöðvaði sig-
urgöngu Svisslendingsins Rogers
Federers á tennisvellinum í gær
þegar hann sigraði í fyrri und-
anúrslitaleiknum í karlaflokki á
opna ástralska meistaramótinu í
Melbourne 5:7, 6:4, 5:7, 7:6 og
9:7. Safin hélt upp á 25 ára af-
mæli sitt í gær og gat vart óskað
sér betri afmælisgjafar. Rimma
þeirra tók fjórar og hálfa
klukkustund.
Þetta var fyrsti tapleikur
Federers, stigahæsta tennisspil-
ara heims, í 26 leikjum og segja
má að Safin hafi komið fram
hefndum því hann tapaði fyrir
Federer í úrslitum á þessu sama
móti í fyrra. Fyrir leikinn gegn
Safin hafði Federer ekki tapað
setti og þótt sigurstranglegastur
enda búinn að spila frábæran
tennis á undanförnum mánuðum.
,,Þetta var mikill taugaleikur.
Ég held að við höfum báðir spil-
að eins vel og mögulegt var og
sjálfur gaf ég allt mitt í leikinn,“
sagði Safin.
Safin mætir Andy Roddick frá
Bandaríkjunum eða Ástralanum
Lleyton Hewitt í úrslitum en
þeir eigast við í undanúrslitum.
Reuters
Marat Safin sýndi mikla
keppnishörku.
Safin
stöðvaði
Federer