Morgunblaðið - 28.01.2005, Blaðsíða 4
FÓLK
HÖRÐUR Sveinsson skoraði
þrennu fyrir Keflavík í fyrrakvöld
þegar bikarmeistararnir í knatt-
spyrnu unnu Aftureldingu, 7:0, í
fyrsta æfingaleiknum undir stjórn
Guðjóns Þórðarsonar, sem fram fór í
Reykjaneshöll.
SAMNINGA- og félagaskipta-
nefnd KSÍ hefur veitt Leikni úr
Reykjavík áminningu fyrir að ræða
við samningsbundinn leikmann Vík-
ings úr Reykjavík, Daníel Hjaltason,
og gera honum samningstilboð. Vík-
ingar kærðu Leiknismenn til nefnd-
arinnar fyrr í þessum mánuði fyrir að
brjóta gegn reglum um félagaskipti
leikmanna. Þar með er jafnt á komið
meðal félaganna en Víkingar fengu
fyrir skömmu áminningu frá nefnd-
inni fyrir að ræða við samningsbund-
inn leikmann Leiknis, Pétur Örn
Svansson.
KÁRI Árnason lék síðari hálfleik-
inn fyrir sænska liðið Djurgården
sem gerði 1:1 jafntefli við suður-afr-
íska 2. deildarliðið Vasco da Gama í
æfingaleik sem háður var í Suður-
Afríku í fyrrakvöld. Sölvi Geir Otte-
sen er einn 21 leikmanns sem fór í æf-
ingaferð Djurgården til Suður-Afr-
íku en hann kom ekki við sögu í
leiknum.
EMIL Hallfreðsson lék allan leik-
inn með varaliði Tottenham sem sigr-
aði Bolton, 2:0, í fyrrakvöld. Emil lék
á vinstri kantinum og var nokkrum
sinnum ágengur upp við mark Bolton
eftir því sem fram kemur á heimasíðu
Tottenham. Emil fær lof frá Clive
Allen, þjálfara varaliðsins, á heima-
síðunni. Allen segir að Emil hafi náð
að aðlaga sig vel og hann hafi verið
ánægður með frammistöðu hans
þann tíma sem hann hefur verið hjá
félaginu.
RÚNAR Sigtryggsson og læri-
sveinar hans í þýska 2. deildarliðinu
Eisenach töpuðu naumlega fyrir
franska 1. deildarliðinu Créteil, 22:25,
í æfingaleik í fyrrakvöld.
VICENTE del Bosque, fyrrum
þjálfari Real Madrid, var í gær rekinn
úr starfi sem þjálfari tyrkneska liðs-
ins Besiktas. Liðinu hefur ekki geng-
ið vel undir stjórn Spánverjans og er í
fimmta sæti deildarinnar, 14 stigum á
eftir toppliði Fenerbache.
ÞAÐ er mikið um að vera á PGA-
mótaröðinni í Bandaríkjunum. Á
sunnudaginn lauk Buick-mótinu með
sigri Tiger Woods, en Vijay Singh
sigraði á Mercedes-mótinu á Hawaii á
dögunum. Þeir eru í efstu sætum
heimslistans. Í dag hefst fimm daga
mót sem kennt er við hinn fræga
skemmtikraft Bob Hope, og telja
golfsérfræðingar vestanhafs að tveir
örvhentir kylfingar teljist líklegastir
til afreka, Phil Mickelson frá Banda-
ríkjunum og Mike Weir frá Kanada.
Vijay Singh, Tiger Woods, Ernie Els
og Retief Goosen er í efstu sætum
heimslistans en þeir ætla ekki að taka
þátt á þessu móti.
BOB Hope-mótið er nokkuð sér-
stakt þar sem það er leikið á fjórum
mismunandi völlum á fjórum fyrstu
dögunum en allir vellirnir eru á
Pebble Beach-svæðinu. Á lokadegin-
um fá 70 kylfingar tækifæri til þess að
leika en þá verður keppt á PGA-
West-vellinum. Yfirleitt er aðeins
einn keppandi í hverjum ráshóp en
ráshóparnir eru að öðru leyti skipaðir
kylfingum sem eru þekktari fyrir
aðra hluti en afrek sín á golfvellinum.
Eru það skemmtikraftar, stjórnmála-
menn og aðrir þekktir einstaklingar.
ARGENTÍNSKI framherjinn Maxi
Lopez er á leið til spænska stórliðsins
Barcelona og er honum ætlað að fylla
skarð Svíans Henriks Larssons, sem
er meiddur í hné og leikur ekki meira
á tímabilinu. Börsungar greiða River
Plate, félagi Lopez, 6 milljónir evra,
sem samsvarar 490 milljónum ís-
lenskra króna, og mun leikmaðurinn
gera fjögurra og hálfs árs samning.
ÁTTA leikmenn landsliðsins í handknattleik fögn-
uðu sínum fyrsta sigri á HM-móti, þegar Kúveitar
voru lagðir að velli, 31:22. Það voru þeir Logi Geirs-
son, Markús Máni Michaelsson, Vignir Svavarsson,
Alexander Petersson, Arnór Atlason, Heiðar Guð-
mundsson, Einar Hólmgeirsson og Ingimundur Ingi-
mundarson.
Þá fagnaði Viggó Sigurðsson einnig sínum fyrsta
HM-sigri, en þess má geta til gamans að hann lék
einn leik á HM í Danmörku 1978 – gegn Spánverjum
– sem tapaðist. Hér á kortinu til hliðar má sjá upplýs-
ingar um leik Viggós, sem hann lék fyrir 27 árum.
Sigurinn gegn Kúveit var langþráður hjá honum.
Bergsveinn Bergsveinsson, aðstoðarþjálfari
Viggós, hefur yfir meiri HM-reynslu að ráða. Hann
lék t.d. með landsliðinu sem náði fimmta sæti á HM í
Kumamoto í Japan 1997, en með liðinu þá léku einn-
ig Dagur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson.
Langþráður HM-sigur hjá Viggó
! "!
! !
" # $
!
%
"
&&
'( %)
*+ )
,-
"
(-
.
, #
/%
.0
(1
2
/
2
3
4
5
!
!
(
0
! 0,$
&&
%
26 NÚ er runnin upp sú stund að
leikmenn íslenska landsliðsins í
handknattleik verða að bíta í
skjaldarrendur og sækja fram til
sigurs ætli þeir sér á annað borð að
halda áfram keppni á heimsmeist-
aramótinu þegar milliriðlar hefjast
eftir helgina. Nú dugir ekkert minna
en að leggja rússneska björninn í
dag og Alsír á morgun til þess að
gulltryggja sæti í milliriðlum. Auð-
vitað er hægt að lifa í voninni um
þessi úrslit og úrslitin í öðrum leikj-
um riðilsins og reikna sig út og suð-
ur, fram og til baka og jafnvel norð-
ur og niður. Einfaldasta leiðin en
jafnframt sú erfiðasta er að vinna þá
tvo leiki sem eftir eru, þá verður
engin þörf fyrir alvarlegar töl-
fræðilegar vangaveltur. Staðreynd-
irnar liggja á borðinu að þessum
tveimur leikjum loknum.
Það er hins vegar meira en að
segja það að leggja Rússana að velli,
en þeir sýndu flestar sínar bestu
hliðar í fyrradag þegar þeir unnu
Tékka með fjögurra marka mun,
25:21. Rússneska liðið er skipað ung-
um og framúrskarandi leikmönnum.
Þeir eru hávaxnir og geysilega vel
þjálfaðir. Leikur þeirra er þaul-
skipulagður og á tíðum skemmti-
legur þótt slíkt hafi ekki endilega
fremsta mann. Honum bregst
ekki oft bogalistin í opnu færi.
Fyrirfram er ljóst að ís-
lenska liðið fer í leikinn við Rússa
sem veikara liðið og því engin
ástæða til sérstakrar bjartsýni. Það
er hins vegar engin ástæða til að
leggja árar í bát fyrirfram; það er
löngu kominn tími til að leggja
Rússa að velli á stórmóti í hand-
knattleik, ef ekki núna, þá hvenær
þegar minnst er vænst?
Ívar Benediktsson
Glíman við
rússneska björninn
TÚNISBRÉF
fylgt rússneskum landsliðum í gegn-
um tíðina.
Víst er að allt verður að ganga
upp hjá íslenska liðinu til að það
vinni Rússa og leikur þess að batna
til mikilla muna frá fyrri leikjum í
keppninni, sérstaklega varnarleik-
urinn, sem hefur verið svo gott sem í
molum frá því að flautað var til leiks
í Túnis. Á því sviði verður að eiga
sér stað bylting yfir nótt til að ís-
lenska liðið eigi einhvern möguleika
á að skella rússneska birninum, – ef
ekki þá mun hann keyra yfir ís-
lenska liðið. Þótt sóknarleikur Ís-
lands hafi verið upp og ofan til þessa
hefur hann þó skilað sínu; 98 mörk í
þremur leikjum, þar af 67 mörk
gegn sterkum þjóðum eins og Tékk-
um og Slóvenum.
Sóknarleikinn verður að leika af
yfirvegun og festu, spila hægt og ag-
að og komast í lengstu lög hjá
óvönduðum skotum, bæði vegna
þess að aðalmarkvörður Rússa,
Alexei Kostigov, er ekkert lamb að
leika sér við og auk þess eiga Rússar
í pokahorninu frábær hraðaupp-
hlaup með Eduard Kokcharov sem
iben@mbl.is
Rússar eru með mjög sterkt lið,frábæran hornamann, þrjár
sterkar skyttur og alveg ágætan
markmann. Þetta
verður því erfiður
leikur en við förum í
alla leiki til að vinna,
ekki til að ná jafntefli
eða tapa með sem minnstum mun. Við
ætlum að leggja Rússana,“ sagði Logi
í gær eftir gönguferð landsliðsins um
Medina, gamla bæjarhlutann í Túnis.
„Við unnum Medvedi með þrettán
mörkum heima og töpuðum síðan
með einu í Rússlandi þannig að við
rúlluðum yfir þá og komumst áfram.
Rússar eru með Alexei Rastortsev
(nr. 15) og aðrar góðar skyttur.
Hornamaðurinn þeirra, Eduard
Kokcharov (nr. 23), er í algjörum sér-
flokki – einn sá besti í þessari stöðu í
heiminum. Hann er þeirra styrleiki í
vörn, er fyrir framan í 5-1 vörninni og
gerir það óaðfinnanlega og það er
vart hægt að finna veikleika á því sem
hann gerir, hvorki í vörn né sókn.
Hann þarf að stöðva sem og skytt-
urnar þeirra og svo þarf að vanda sig
gegn markverðinum, sem er miklu
sneggri og betri en hann lítur út fyrir
að vera.
Við erum líka með dúndur sterkt lið
og ég sé ekki að við séum lakari en
þeir. Við erum hungraðir í að sýna
hvað við getum og þeir reyndar líka
því þeir eru allir að spila í Rússlandi
og eru að sýna sig þannig að þeir eigi
möguleika á að komast að hjá ríkari
liðum í Evrópu. Margir væntu mikils
af Rússum á þessu móti og spáðu
þeim meðal efstu átta þrátt fyrir
mikla uppstokkun hjá þeim að und-
anförnu.
Við verðum að rífa okkur upp og
bæta fyrir leikinn gegn Kúveit, sem
var alls ekki nógu góður. Hann var
hvorki skemmtun fyrir áhorfendur né
okkur. Það er erfitt að koma 100%
innstilltur í svona leik og í raun er
þetta eini leikurinn þar sem menn
máttu aðeins missa sig án teljandi
hættu á að tapa. Aðra leiki verður að
leika vel til að sigra, þetta er það jafn
riðill. En markmiðið er alveg klárt.
Við ætlum að vinna Rússa og komast
áfram í keppninni,“ sagði Logi.
Logi Geirsson um verkefni dagsins á heimsmeistaramótinu í Túnis
Morgunblaðið/RAX
Bergsveinn Bergsveinsson aðstoðarlandsliðsþjálfari og leikmenn íslenska landsliðsins hafa ver-
ið ánægðir með kræsingarnar sem fram eru bornar á hótelinu sem þeir gista á í Túnis.
Ætlum
að vinna
Rússa
LOGI Geirsson lék með liði sínu
Lemgo gegn rússneska liðinu
Chekhovskie Medvedi í Evr-
ópukeppninni í vetur, en sam-
kvæmt upplýsingum frá Rússum
eru tíu leikmenn frá því félagi í
landsliðinu og Logi hefur því
leikið á móti meginþorra liðsins.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
frá Túnis