Morgunblaðið - 25.02.2005, Side 4
4 B FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
ÞAÐ var í senn gaman og uppfræð-
andi í vinnunni hjá undirrituðum í
síðustu viku. Þá fékk hann tækifæri
til að reynsluaka spennandi bíl við
aðstæður sem eru eins ólíkar þeim
sem bjóðast hér á landi og hugsast
getur. Ferðinni var heitið til Sevilla
í Andalúsíuhéraði og þar var þeyst
um vegi á Porsche 911 Carrera
Cabriolet –
blæjubílnum sem
sagt. Það er ekki
að sjá að mikill
markaður sé fyr-
ir þennan bíl á
voru votviðra-
sama landi en í
Evrópu er Cabr-
iolet-gerðanna
ávallt beðið með
eftirvæntingu,
ekki síst blæju-
gerðarinnar af
911, sem var
kynntur í nýrri
gerð, 997, um
mitt síðasta ár í
venjulegri gerð. Í
Sevilla voru
mættir tveir ís-
lenskir blaða-
menn og blönd-
uðust þar hópi
starfsbræðra frá
löndum Suður-
Ameríku og Asíu.
Sannast sagna
jafnast fátt við
það að aka hratt
– verulega hratt
– í opnum bíl í sól
og hita og hafa
sinfóníuna frá
Boxer-vél Porsche í eyrunum og
það gerðum við samviskusamlega í
tvo daga.
Aflmeiri – meiri búnaður
Eins og ávallt þegar Porsche
kynnir nýja gerð er 911 Cabriolet
líka aflmeiri, straumlínulagaðri,
með ennþá meira veggrip, pínulítið
dýrari og enn eftirsóknarverðari en
fyrri gerð. Ennfremur bætist við í
Cabriolet aukinn staðalbúnaður,
s.s. hlutir eins og stærri hjól, PSM-
kerfið, (stöðugleikastýring og spól-
vörn með meiru) og Bose-hljóm-
kerfi með níu hátölurum. Útlitið
helst hins vegar nánast óbreytt
milli kynslóða en harðsoðnir
Porsche-menn myndu samt seint
samsinna því. Fyrir þeim er það
umbylting í útliti sem aðrir taka
kannski ekki eftir. Húddið er t.d.
breytt sem og framljósin í takt við
breytingarnar á 911 Carrera Coupé
frá því á síðasta ári. Eins og kúpu-
bakurinn er blæjubíllinn breiðari að
aftan sem gerir hann enn verklegri
en áður og Carrera situr á 18 tommu
felgum og Carrera S á 19 tommum
og börðum af sverustu gerð.
Hönnun sem stenst tímans tönn
Þeir sem kunna að meta klassíska
hönnun hljóta að falla fyrir línunum
í Porsche 911. Þessi bíll hefur verið
framleiddur í 40 ár og fáir bílafram-
leiðendur aðhyllast jafn íhaldssamri
og Porsche. Sennilegast er að menn
hafi rambað nið-
ur á réttu hönn-
unina í árdaga
bílsins því sér-
kennilega lítið
hefur verið vikið
frá upphaflegri
hönnun og út-
reikningar loft-
aflsfræðimanna
Porsche virðast
hafa staðist tím-
ans tönn því
ennþá er bíllinn
með einhvern
lægsta vindstuð-
ul sem þekkist í
fjöldaframleidd-
um sportbíl.
Hvað sem öllu
líður er 911, að
mati blaða-
manns, og hann
hefur lengi ætlað
að koma orðum
að því, magn-
aðasti fjölda-
framleiddi sport-
bíll sem hann
hefur keyrt.
911 Cabriolet
er núna boðinn í
fyrsta sinn í
tveimur gerðum;
Carrera Cabriolet er með 3,6 lítra
Boxer-vél, 325 hestafla, en Cabriolet
S með 3,8 lítra, 355 hestafla vél. Báð-
ir eru boðnir með sex gíra hand-
skiptum kassa eða sex þrepa
Tiptronic-sjálfskiptingu. Fyrri dag-
inn í Sevilla var til ráðstöfunar
„venjulegur“ 911 Cabriolet, en þann
síðari voru eknir um 300 km í Cabr-
iolet S, sem er sú gerð sem aksturs-
fíklar eru líklegastir til að fjárfesta í,
eða í það minnsta að láta sig dreyma
um.
Einfaldur í notkun
911 er dálítið eins og listaverk.
Maður nálgast bílinn með vissri
lotningu og tekur síðan inn í smá-
skömmtum öll smáatriði við hönn-
unina – klassískt yfirbragðið, sem
um leið virkar svo nútímalegt í öllum
sínum einfaldleika og gefur auk þess
fyrirheit um nýja akstursupplifun.
En þetta með lotninguna er kannski
fulllangt gengið vegna þess að 911
er fyrst og fremst góður sportbíll og
einstaklega notendavænn af sportbíl
að vera. Maður bara sest inn í hann
og keyrir af stað. Það er ekki verið
að flækja hlutina fyrir ökumanni
með of mikilli tækni en vissulega er
hún til staðar, eins og PMS-kerfið,
(Porsche Management System),
sem hjálpar of áköfum ökumönnum
við að halda bílnum á götunni. Og
þótt maður slökkvi á kerfinu, til þess
að leika sér pínulítið, sjá breiðir
barðarnir að aftan um að halda bíln-
um á veginum.
Stóra málið við blæjubílinn er að
sjálfsögðu útlitsbreytingin, þótt
smávægileg hljóti að teljast, en enn-
fremur er hann betur einangraður
en áður og straumlínulagaðri.
Komnar eru rennur í dyraumbún-
aðinn sem koma í veg fyrir að rign-
ingarvatn eigi greiða leið inn í bílinn
þegar hann er opnaður. Og Porsche
segir að sjálf blæjan sé betri en áð-
ur, úr þykkara efni og með rafstýr-
ingu sem kemur henni fyrir aftan við
Á Carrera Cabriolet
í vorinu í Sevilla
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Cabriolet S er með 3,8 lítra, 355 hestafla vél.
Þær voru ekki alls staðar tvíbreiðar
göturnar í Sevilla.
Blæjan fer ofan í hólf framan við vélina en geymslupláss er í húddinu.
Cabriolet S er sagður 4,9 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst.
REYNSLUAKSTUR
Carrera S Cabriolet
eftir Guðjón Guðmundsson
Vél: Sex strokkar, 3.824
rúmsentimetrar.
Afl: 355 hestöfl við
6.600 snúninga á mínútu.
Tog: 400 Nm við 4.600
snúninga á mínútu.
Skipting: Sex gíra hand-
skiptur, eða fimm þrepa
Tiptronic.
Hröðun: 4,9 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km/klst.
Hámarkshraði: 293 km/
klst.
Eigin þyngd: 1.505 kg.
Lengd: 4.427 mm.
Breidd: 1.808 mm.
Hæð: 1.300 mm.
Hjólbarðar: 235/35 ZR 19
að framan, 295/30 ZR 19
að aftan.
Umboð: Bílabúð Benna.
Porsche 911 Carrera
SCabriolet