Morgunblaðið - 25.02.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.02.2005, Blaðsíða 8
8 B FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ bílar Verður með leiðsögukerfi og bakkmyndavél með litaskjá Bíllinn kemur í sölu í lok apríl og ætlar umboðið að bjóða hann vel bú- inn, m.a. með leiðsögukerfi og bakk- myndavél með litaskjá, eins og er líka fáanleg í Primera og Murano. Þetta er þægilegur búnaður því bíllinn er stór og vandasamt getur verið að leggja honum í þröng stæði. Annars verður bíllinn fáanlegur í XE, SE og LE-útfærslum og er sú síðastnefnda best búin. Pathfinder verður ein- göngu fáanlegur með 2,5 lítra dísilvél, annaðhvort með sex gíra handskipt- um kassa eða fimm þrepa sjálfskipt- ingu með handskiptivali, eða 4,0 lítra, V6 bensínvél, sjálfskiptur. Bíllinn var prófaður í báðum gerð- um en fyrst með dísilvélinni og sjálf- skiptingunni. Eitt vekur strax athygli og það er að Nissan hefur valið að bjóða nýja 2,5 lítra dísilvél í Pathfind- er en ekki 3,0 lítra vélina sem er að finna í stærri jeppanum, Patrol. Nýja vélin er með talsvert minna slagrými en 3,0 lítra dísilvélin í Toyota Land Samkvæmt upplýsingum frá um- boðsaðilinum á Íslandi býðst Path- finder, ef að líkum lætur, á nálægt 3% lægra verði en sambærilegur Land Cruiser. Pathfinder leysir af hólmi Terrano II og miðað við fyrstu kynni af bílnum má ætla að með honum geti Ingvar Helgason hf. rofið skarð í varnarmúra Toyota og náð sér í væna sneið af stórum, íslenskum jeppamarkaði. Pathfinder er dálítið sérstæður í útliti. Yfirbyggingin er dálítið kassa- laga en halli á stóru grillinu gerir hann engu að síður nokkuð renni- legan og með vindstuðul sem er 0,38 Cd. Skarpar en um leið flæðandi lín- ur, stórir gluggafletir og útstæðar hjólaskálar og sérstæður, þverskor- inn afturhluti, eru annars helstu út- litseinkennin og síðast en ekki síst hurðarhandföngin sem sitja hátt á afturhurðunum. Sumt á bíllinn meira að segja sameiginlegt með 350 Z sportbílnum, eins og hurðarhand- föngin að utan og stýrið er með svip- aðri hönnun. Staðalbúnaðurinn er sjö sæti og 17 tommu álfelgur svo fátt eitt sé nefnt. M örg ár eru síðan Nissan Pathfinder var til á markaði hérlendis, en bíllinn var frumkynntur í nýrri gerð í Bandaríkj- unum 1996. Fyrir tæpum tveimur ár- um sýndi Nissan hugmyndajeppann Dunehawk á bílasýningunni í Frank- furt sem seinna varð að þriðju kyn- slóð Pathfinder sem nú hefur verið fá- anlegur í Bandaríkjunum um nokkurra mánaða skeið. Evrópugerð bílsins, sem framleidd er í Barcelona, var hins vegar kynnt blaðamönnum í Portúgal í vikunni sem er að líða. Blaðamaður fékk þar að reyna bílinn sem er talsvert breyttur frá Dune- hawk hugmyndajeppanum en hvað stærð og gerð varðar er þetta jeppi sem keppa mun við söluhæsta jepp- ann á Íslandi, Toyota Land Cruiser 90. Cruiser en er með nýjustu gerð sam- rásarinnsprautunar sem vinnur á 1.800 bara þrýstingi. Hún er smíðuð upp úr 2,2 lítra dísilvélinni sem X- Trail er boðinn með. Hún skilar at- hyglisverðu afli miðað við slagrými, eða 174 hestöflum og bíllinn er ekki nema 11,9 sekúndur að skila sér í 100 km hraða úr kyrrstöðu, þrátt fyrir að vega yfir 2,2 tonn. Hámarkstogið er 403 Nm við 2.000 snúninga á mínútu og dráttargetan er þrjú tonn sé eft- irvagninn með hemlum. Vélin skilar því góðri vinnslu en lætur heyra í sér strax á lágum snúningi og vélarhljóð- ið verður bara hærra við meiri inn- gjöf. Sjálfskiptingin er, sem fyrr seg- ir, fimm þrepa, en ekkert sérstaklega viljug að skipta sér niður við inngjöf. Rúmgóður Pathfinder er rúmgóður bíll og frá- gangur og hönnun á sætum gefur möguleika á alls kyns uppsetningum. Í grunninn er þetta fimm sæta bíll með 515 lítra farangursrými en sé hann notaður sjö sæta minnkar far- angursrýmið niður í 190 lítra. Tvö öft- ustu sætin falla slétt ofan í gólfið þeg- ar ekki er verið að nota þau. Aðgengi að aftursætunum er þægilegt því miðjusæti er fellt fram og upp að framsæti svo auðvelt er að ganga um aftasta rýmið. Þar er ágæt aðstaða fyrir tvo fullvaxna og þriggja punkta belti og hnakkapúðar eru í þriðju sætaröðinni. Þar er líka loftpúða- gardína sitt hvorum megin eins og fyrir farþega í fram- og miðjusætum. Síðan er hægt að fella niður aðra og þriðju sætaraðir og mynda flatt flutn- ingsrými upp á 2.091 lítra og þurfi menn t.d. að koma kajak fyrir inni í bílnum er líka hægt að fella niður framsætisbakið farþegamegin og renna bátnum inn – þótt auðvitað sé skynsamlegra að fá sér festingar á toppgrindina sem fylgir og flytja slíka hluti á þakinu, sem þolir 100 kg burð. Athyglisverð geta utanvegar Eins og margir borgarjeppar er Pathfinder með aksturseiginleika sem um margt minna á venjulega fólksbíla. Hann leggur sig t.a.m. lítið í beygjum og þyngdarpunkturinn er lágur í þessum bíl. Leiðin lá frá flug- vellinum í Lissabon norður í land eftir fyrirfram ákveðinni leið, og til öryggis var leiðsögukerfið tengt til þæginda. Hluti af leiðinni lá um grófan malar- veg með miklum beygjum. Veggripið var eftirtektarvert þótt greitt væri ekið á þessum slóðum og ökumaður hefur mikla tilfinningu fyrir bílnum í gegnum stýrið. Pathfinder er með sama fjórhjóladrifi og X-Trail jepp- lingurinn. Hann er venjulega tengdur í afturhjóladrif en bíllinn deilir átak- inu sjálfvirkt til framhjólanna þegar rafeindabúnaður tengdur ABS-kerf- inu skynjar að þörf er fyrir fjórhjóla- drif. Jafnframt er hægt að stilla á sí- tengt fjórhjóladrif og auk þess er bíllinn með millikassa og þar með lágu drifi. Það verður reyndar athyglisvert að bera Pathfinder saman við helstu keppinautana, því ef marka má upp- lýsingar sem blaðamenn fengu í hendur verður bíllinn mun betur bú- inn hvað staðalbúnað varðar en keppi- nautarnir. Þarna verður m.a. að finna sex öryggispúða, ABS-hemlakerfi, diskahemla að framan og aftan, skrið- stilli, spólvörn, xenon-ljós, 17 tommu álfelgur, fjöldiska spilara með MP3, leiðsögukerfi, bakkmyndavél í lit, blátannar símkerfi með raddstýringu, leðurinnréttingu, rafdrifin framsæti með minni, sjö sæti, loftkælingu frammí og afturí, regnskynjara, og skynrænan lykil. Af þessari upptaln- ingu má ljóst vera að Pathfinder setur Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson Nissan Pathfinder kemur á markað hérlendis í apríl nk., fáanlegur með 2,5 l dísilvél og 4,0 l, V6-bensínvél. Pathfinder – klár í slaginn Bíllinn er laglegur og stílhreinn að innan og plássið er mikið. Það er hægt að sofa í bílnum þegar miðjusætaröðin er felld niður. REYNSLUAKSTUR Nissan Pathfinder Guðjón Guðmundsson Dodge Intrepit 07/99. Ekinn 46.000 km., sjálfskiptur, geis- laspilari, hraðastillir, rafmagn í öllu. Verð: 1.650.000- Tilb: 1.400.000.- Toyota Avensis Legacy 11/99. Ekinn 59.000 km., beinskiptur, útvarp/geislaspilari. Verð: 950.000.- Tilb: 860.000.- Subaru Legacy 03/98. Ekinn 109.000 km., beinskiptur, dráttarbeisli, ný vetrardekk. Verð: 850.000.- Tilb:750.000.- Musso 01/00. Ekinn 92.000 km., sjálfskiptur, álfelgur, útvarp/ geislaspilari, dráttarbeisli. Verð: 1.720.000.- Tilb: 1.580.000.- Upplýsingar í síma: 894 5899. Til sölu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.