Morgunblaðið - 25.02.2005, Síða 9

Morgunblaðið - 25.02.2005, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2005 B 9 bílar nýjan staðal hvað staðalbúnað varðar. Pathfinder er mjög alhliða jeppi, eins og kom berlega í ljós þegar farið var inn á torfærubraut sem Nissan hafði útbúið í grennd við bæinn Obid- os norðan við Lissabon. Þar sem skögun að framan og aftan er fremur lítil er utanvegagetan meiri en maður hefði í fyrstu búist við. Berlega kemur líka í ljós hvernig fjórhjóladrifkerfið deilir aflinu milli hjóla því á stundum var aðeins eitt hjól með viðkomu á jörðinni þegar farið var í torfærurnar. Nissan-menn höfðu komið fyrir stórum speglum við mestu torfærurn- ar þannig að hægt var að fylgjast með þegar hjól sem var á lofti hætti snögg- lega að snúast þegar kerfið flutti átakið yfir á það hjól eða þau hjól sem höfðu grip. Það er ljóst við fyrstu kynni af Pat- hfinder að þar fer jeppi sem á eftir að auka breiddina á íslenskum jeppa- markaði. Hann hefur allt til að bera til að láta að sér kveða; stærðina, akst- urseiginleika, pláss, hönnun og ríku- legan búnað, og ef verð og þjónusta verður á svipuðu stigi og hjá helstu keppinautunum ætti Pathfinder að vera góð söluvara. Afturhlerinn er opnanlegur í tvennu lagi. Eins og sjá má er bakkmyndavél í bílnum og litaskjár. Stýrið er sportlegt og með stýringar fyrir ýmsan búnað. gugu@mbl.is Vél: Fjórir strokkar, 2.488 rúmsentimetrar, 16 ventlar, forþjappa og millikælir. Afl: 174 hestöfl við 4.000 snúninga á mínútu.Tog: 403 Nm við 2.000 snún- inga á mínútu. Skipting: Fimm þrepa sjálfskipting með hand- skiptivali. Drifkerfi: All Mode fjór- hjóladrifskerfi með lágu drifi. Hröðun: 12,5 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km. Hámarkshraði: 174 km/ klst. Eyðsla: 13,2 l í borg- arakstri, 10,1 l í blönd- uðum akstri. Lengd: 4.740 mm. Breidd: 1.850 mm. Hæð: 1.763 mm. Skögun að framan: 795 mm. Skögun að aftan: 1.095 mm. Eigin þyngd: 2.215– 2.280 kg. Farangursrými: 190-515- 2.091 lítrar. Hemlar: ABS, kældir diskar að framan og aftan. Veghæð: 25,4 cm. Hjólbarðar: 255/65 R17. Umboð: Ingvar Helgason hf. Nissan Pathfinder 2.5 TD LE

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.