Morgunblaðið - 25.02.2005, Side 10

Morgunblaðið - 25.02.2005, Side 10
10 B FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ bílar  MICHELIN dekkjaframleiðandinn hefur boðað nýtt vetrardekk sem bæði er stöðugra og hemlar betur á svelli en önnur vetrardekk. Nýja vetrardekkið verður fáanlegt frá og með næsta hausti. Í frétt frá Mich- elin, sem sagt er frá á vef FÍB, www.fib.is, segir að ýmsar framfarir verði með þessu nýja vetrardekki sem kallast X-Ice. Þær leiði allar til þess að hemlunarvegalengd á svelli styttist til muna. Meðal þess sem það gerir mögulegt er að naglarnir standa lengra út úr slitfletinum en þeir gerðu á fyrri gerðum, eða 1,2 mm. Auk þess hafi verið gerðar endurbætur á gúmmíinu og mynstr- inu í gripfletinum. Allt þetta leiði til þess að hemlunarvegalengdin á svelli m.v. 30 km hraða styttist um fjóra metra. Samkvæmt kenningunni er nóg að lengja þann hluta nagl- anna sem stendur út úr dekkinu til að bæta gripið á ís. Svo dæmi sé tekið er nóg að lengja naglana um 0,1 mm til að auka hemlunargripið um 3%. En kenning og framkvæmd er sitthvað í þessu efni því að ekki er hægt að lengja bara naglana meir og meir, því að því kemur að þeir taka þá að liðast til í sætum sínum og síðan að losna úr dekkinu. Til að leysa þann vanda hefur Michelin þróað nýja tækni til að festa naglana í sætum sínum í slit- fletinum. Hún er í stórum dráttum þannig að innst í slitfletinum, þar sem sætin fyrir naglana eru, er mun harðari gúmmíblanda en í sjálfum gripfletinum. Fullyrt er að naglarnir muni, svo lengi sem slitflötur dekkj- anna er innan löglegra marka, standa 1,2 mm út fyrir gripflöt dekksins. Mynstrið á þessu nýja dekki er með V-löguðum rillum sem eiga að hreinsa sig jafnharðan og ryðja vel frá sér snjó, krapi og vatni. Mynstrið er auk þess 40% „opið“ sem bætir þessa eiginleika enn frek- ar. Nýtt dekk frá Michelin  EVRÓPURÁÐIÐ hefur haft frum- kvæði að setningu laga um að í bílum frá árinu 2009 verði lögskylt að hafa í bílum búnað sem gerir mögulegt að hringja í neyðarlínu ef slys eða óhapp verður. Búnaðurinn sem á að lögleiða nefnist eCall og gerir það mögulegt að setja af stað neyðarupphringingu til neyðarlínu eða þá að það gerist sjálf- virkt ef högg kemur á bílinn og/eða loftpúðar springa út. Þegar slík eCall hringing berst frá bíl geta starfsmenn neyðarlínu eða lögreglustöðvar strax séð hvar viðkomandi bíll er staddur. Þetta getur skipt sköpum um hve björgunarfólk og lögregla eru fljót á slysstaðinn. Hið nýja eCall kerfi er þeg- ar til. Það verður undirbúið og prófað rækilega til ársloka 2007 og frá og með 2009 á það að vera í öllum nýj- um bílum. Neyðarhringibúnaður gerður að skyldu  EKKERT verður af því að danski ökuþórinn Nicolas Kiesa keppi í Form- úlu-1 í ár en hann hafði gefið í skyn í byrjun febrúar að samningur hans við Minardi-liðið væri nánast frágenginn. Danskir fjölmiðlar sögðu aðeins forms- atriði eftir. Minardi réð á þriðjudaginn austurríska ökuþórinn Patrick Fries- acher til liðsins í staðinn en þeir Kiesa hafa báðir sinnt tilraunaakstri fyrir lið- ið í vetur og í fyrra. Kiesa keppti í fimm mótum fyrir Minardi árið 2003 eftir að annar keppnisþór liðsins, Justin Wil- son, fór til Jaguar. Ástæða þess að ekkert verður úr að hann keppi á ný á komandi vertíð mun vera sú að hann getur ekki borgað fyrir sæti í keppn- isbílnum. Þegar á hefði reynt hefðu fyrirhugaðir styrktaraðilar Kiesa ekki efnt fyrirheit sín og því hefði samn- ingur hans verið dauður og ómerkur. Fregnir herma að Friesacher færi lið- inu ekki nándar eins mikið styrktarfé og danski þórinn hefði annars gert. Undirritun samnings við Friesacher fór fram í spilavíti í Velden í Austurríki. Við það tækifæri reif Minardi-stjórinn Paul Stoddart í sundur þykkan samning fyr- ir augum blaðamanna. Stoddart, sem á og stýrir Minardi, sagði að um hefði verið að ræða samning um starf Fries- achers sem þriðja ökuþórs liðsins – til- raunaþórs. Aðrar fregnir herma hins vegar að þar hafi allt eins getað verið um samning Nicolas Kiesa að ræða. Daninn Kiesa situr eftir „ÞRÁTT fyrir vangaveltur um hið gagnstæða er sam- komulag níu keppnisliða Formúlu-1 af 10 um að draga úr bílprófunum skothelt,“ segir Frank Williams, eig- andi og aðalstjórnandi Williamsliðsins. Williams segir að þrátt fyrir að BAR og Toyota hafi verið tvístígandi hafi liðin komist að þeirri niðurstöðu að samheldnin væri betri kostur „ef liðin ætluðu að lifa af“. Níu liða hópurinn svonefndi á í útistöðum um fram- tíðarskipan mála í formúlunni við Alþjóðaaksturs- íþróttasambandið (FIA), Bernie Ecclestone og Ferrari. Sir Frank segir að löngum hafi Ecclestone verið höf- uðandstæðingur en nú sé FIA-forsetinn Max Mosley miklu verri. Skaut hann föstum skotum að Mosley í vikunni er hann ræddi vandamál íþróttarinnar við fjöl- miðla. „Það væri fínt ef [Ecclestone] réði ferðinni. En [FIA- forsetinn] getur ekki látið málin afskiptalaus. Það eru engar vísbendingar um að peningar spilli Max en hann er spilltur af valdi,“ sagði Williams. Reuters Frank Williams skýtur föstum skotum að Max Mosley. Mosley spilltur af valdi? ALEX Shnaider, kanadíski auðkýfingurinn sem keypti Jordan-liðið á dögunum, segist ætla að verja 100 millj- ónum dollara af eigin fé á ári til liðsins auk þess að afla því styrktarfjár. Shnaider er fæddur í Rússlandi en alinn upp í Ísrael. Hann ætlar að frumsýna 2005-bíl Jordan á Rauðatorginu í Moskvu á morgun. Liðið fær nýtt nafn á næsta ári og verður þá nefnt eftir viðskiptaveldi Shnaiders og fær nafnið Midland. Shnaider segist eiga þann draum að aka sjálfur form- úlubíl og kveðst munu væntanlega láta af því verða síðar á árinu. „Kannski verður af því við bílprófun,“ sagði hann í Moskvu í dag. Heimildir herma að breska tóbaksfyrirtækið Gallaher muni styðja liðið í ár en í stað Benson&Hedges-merki- miðanna verði nafn tegundar sem seld er einkum í aust- urhluta Evrópu og Asíu, Sobranie, á gulum bílum Jordan í ár. Shnaider keypti Jordan og fær nýja liðið nafnið Midland. Shnaider leggur fram fé RENAULT og Nissan hafa þróað saman nýja gerð leiðsögukerfis sem verður fyrst um sinn boðið í nýjustu kynslóð Renault Lag- una og Nissan Pathfinder. Það óvanalega við þetta kerfi er að það getur sýnt veginn í þvívíddarmynd og auk þess inniheldur það önnur tæki eins og síma og MP3 spilara. Kerfið var fyrst kynnt í Nissan Tiida í september 2004 en blaðamaður Morgunblaðsins kynntist því núna í vikunni í reynsluakstri á Nissan Pathfinder í Portúgal. Búist er við að kerfið verði einnig boðið í Renault Scén- ic, Espace og Vel Satis og NissanInfiniti M45. Kerfið kemur í fjórum gerðum. Ein er ætluð fyrir Renault á evr- ópskum markaði, annað fyrir Nissan á Japansmarkaði og hið þriðja fyrir Nissan í Evrópu og loks hið fjórða fyrir Nissan í Bandaríkjunum. Inn í kerfið er innbyggð blátannartækni sem gerir notanda bílsins kleift að nota símann handfrjálst, en leið- sögukerfið inniheldur upplýsingakerfi um umferðina þar sem boð- ið er upp á slíkt. Kortin í leiðsögukerfinu er hægt að kalla fram á litaskjáinn ann- að hvort í tví- eða þrívídd. Litaskjár fylgir kerfinu. Kerfið getur sýnt þrívíðar myndir af veginum. Blátannarsímkerfi er í kerfinu. Nýtt margmiðlunarkerfi Nissan og Renault  FORD hefur ákveðið að öll vinna við þróun á umhverfisvænni bílum sam- steypunnar verði í höndum Volvo í Gautaborg. Í samstarfi við sænska vís- indamenn og yfirvöld í Svíþjóð verður Volvo í Gautaborg miðpunktur allrar framþróunar á þessu sviði, samkvæmt samkomulagi sem Bill Ford, stjórn- arformaður Ford, Göran Persson, for- sætisráðherra Svíþjóðar, og yfirvöld í Gautaborg, gerðu. Ford hefur sett sér háleit markmið á þessu sviði. Bill Ford er sjálfum mjög umhugað að fyr- irtækið standi sig vel á sviði umhverf- ismála og það var hann sem var að- aldriffjöðurin á bak við kaup Ford á Think, norska rafbílnum, sem reyndar skilaði Ford engu nema tapi. Umhverfisbílar Ford í Gautaborg Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.