Morgunblaðið - 25.02.2005, Síða 14

Morgunblaðið - 25.02.2005, Síða 14
14 B FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ bílar Tjónaskoðun Réttingar • Sprautun Hvergerðingar Árbæingar Leitið ekki langt yfi r skammt BYGGGÖRÐUM 8, SÍMAR: FAX: 561 1190 899 2190 561 1190 Alhliða bifreiðaverkstæði réttingar og sprautun. Bíldshöfða 18, 110 RVK• S: 567 6020 • Opið: 8-18 ab@abvarahlutir.is • www.abvarahlutir.is Varahlutir fyrir Evrópu- og Asíubíla Varahlutir - betri vara - betra verð CITROËN kynnir splunkunýjan bíl á bílasýningunni í Genf seinna í mánuðinum. Sá heitir C6 og er í sama stærðarflokki og Peugeot 607, Audi A6 og BMW 5. C6 er undir áhrifum frá stóru fólksbílunum frá Citroën, bílum sem í gegnum tíðina hafa skapað þá hefð sem er fyrir stórum bílum hjá Citroën. 1999 sýndi Citroën Lignage-hugmyndabílinn og C6 er greinilega þróaður út frá honum. Með þessum nýja bíl ætlar Citroën að reyna að gera sig gildandi á markaði fyrir stóra bíla í lúxusflokki, en þetta er sá flokkur sem þýskir framleiðendur hafa nánast einokað síðustu áratugi. Franskur lúxus Svo virðist sem Citroën gangi út frá því að til þess að eiga erindi inn á lúxusbílamarkaðinn þurfi fyrirtækið að sýna áræði og vissan frumleika, eins og það var þekkt fyrir á árum áður. Ekki nægi að keppa við þýsku lúxusbílana á þeirra eigin forsendum. Fyrstu mynd- ir af C6 bera með sér að frumleiki í hönnun er til staðar. C6 er stór bíll, rétt undir fimm metrum á lengd. Hann er með mik- ið hjólhaf og af myndum að dæma virðist Citroën hafa sótt í brunn sögunnar án þess að endurgera hana. Línurnar í C6 lýsa í senn glæsileika og þægindum. Og þægindi eru einmitt útgangspunktur hönnunarinnar. Það á að vera meira en nóg pláss fyrir alla í bílnum og öll sætin eru stillanleg. Citroën notar sjálft lýsinguna „hinn hreyf- anlegi bíll“. Meira að segja miðstöðvar- og loftkælikerfið er með still- ingu fyrir framsætis- og aftursætisfarþega. Eins og fram- og aft- urrúðan eru hliðarrúðurnar samlímdar sem þýðir að hljóðeinangrun ætti að vera til fyrirmyndar í bílnum. Tæknilegur og aflmikill Í Genf verður bíllinn kynntur með 2,7 lítra, V6 dísilvél með nýjustu gerð sótagnasíu. Vélin skilar heilum 208 hestöflum. Bensínvélin er líka V6, þriggja lítra og skilar 215 hestöflum. Sex þrepa sjálfskipting fylgir þessum vélum. Bíllinn er með virku fjöðrunarkerfi, sem lagar sig að undirlagi hverju sinni. Eins og C4 og C5 verður C6 með aðvör- unarkerfi sem varar bílstjóra við, ef hann hefur ekki gefið stefnuljós, en ekur óafvitandi yfir akreinamerkingu á veginum. Sömuleiðis eru skynjarar bæði að framan og aftan sem gefa hljóðmerki þegar fyr- irstaða er í nánd, t.d. þegar verið er að leggja bílnum í stæði. Þá eru í honum stefnuvirk framljós, sem lýsa inn í beygjur, hraðatakmarkari og skriðstillir. Stillanleg vindskeið að aftan sést ekki á bílnum fyrr en við vissan hraða. Þá lyftist hún upp og þrýstir bílnum niður. Sala hefst á C6 strax næsta haust í Evrópu og spurning hvort við Íslendingar eigum eftir að sjá nokkra slíka vagna hérlendis innan tíðar. C6 er byggður á Lignage-hugmyndabílnum og er óneitanlega rennilegur. C6 á að keppa við þýsku lúxusbílana BMW, Audi og Benz. Citroën C6 – svar við þýskum lúxusbílum FRÁ ÁRINU 2002 hefur vörubíla- og rútuframleiðandinn Scania selt 250 strætisvagna sem framleiddir eru í Rússlandi til notkunar þar í landi. Eitt hundrað þeirra aka um götur Péturs- borgar. Í fyrra voru alls seldir 136 vagnar í Rússlandi og stendur til að bæta nýrri gerð við framleiðsluna á þessu ári. Scania hóf árið 2002 að setja saman strætisvagna í Pétursborg og starfa nú 200 manns í verksmiðju fyrirtækisins.. Í samvinnu við Scania í Moskvu hafa vagnarnir verið seldir einkafyrirtækjum sem reka stræt- isvagnakerfi í mörgum borgum Rúss- lands. Flestir vagnar hafa selst í Pét- ursborg og Moskvu og nágrenni þeirra en einnig hafa þeir farið til Síb- eríu. Þá hefur Scania í Svíþjóð útveg- að undirvagna sem önnur fyrirtæki í Rússlandi byggja yfir og þannig seld- ust um 140 undirvagnar í fyrra. Í frétt frá Scania kemur fram að andlitslyfting hafi orðið í almennings- samgöngum í Pétursborg með vögn- unum frá Scania og það hafi ekki skemmt fyrir að vagnarnir skuli settir saman í borginni. Forráðamenn Scania segja fyrirtækið standa vel í samkeppninni í strætisvagnafram- leiðslu og næsta skref sé að bjóða vagn sem þjóni á leiðum milli borga. Scania Omni Link-strætisvagninn er lággólfsvagn, með 230 hestafla og níu lítra vél en nýi vagninn sem ætl- aður er einkum til ferða milli borga verður með 310 hestafla vél. Scania sterkur í Rússlandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.