Morgunblaðið - 25.02.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2005 B 15
bílar
Bæði með tegunda-
merki og án.
Netfang: gummimotun@gummimotun.is
Kaldbaksgötu 8 • 600 Akureyri
Sími 453 6110 • Fax 453 6121
www.gummimotun.is
Framleiðum aurhlífar
fyrir allar gerðir
bifreiða
Viltu vernda bílskúrsgólfið?
Hlífir flísum og
lökkuðum gólfum
frá nöglum, tjöru og
öðrum óhreinindum.
Framleiðum renninga
úr gúmmíi á
bílskúrsgólf.
„Mott
urnar
okkar
eru
tilvald
ar und
ir send
ibíla“
B
íolasýningin í Genf er í næstu
viku og fjölmargar fréttir
berast daglega um nýja bíla
sem verða frumsýndir þar.
Einn þessara bíla er hugmyndabíll-
inn Nessie frá Mitsubishi. Hann er
fyrsta tilraun Mitsubishi með vetn-
isbíl.
Mitsubishi framleiddi jeppling sem
heitir Pinin og hann var ekki ein-
ungis hannaður af Pininfarina heldur
líka framleiddur af hönnunarfyr-
irtækinu. Það kemur því eflaust
mörgum á óvart að Nessie er hann-
aður af helsta keppinaut Pininfarina
sem heitir Italsdesign. Þetta er
fimm sæta, þriggja dyra jeppi sem
byggður er á sama undirvagni og
Pajero. Undir vélarhlífinni er V8-vél
en Mitsubishi gefur ekki upp aflið, en
það merkilega við vélina er að hún
brennir vetni. Drif er á öllum hjólum
og auk þess sjálfskipting og raf-
eindastýrt mismunadrif.
Nessie er fyrsta tilraun Mitsubishi með vetnisbíl.
Mitsubishi Nessie
Drif er á öllum hjólum.
SCANIA hefur staðið fyrir keppni
ungra vörubílstjóra í Evr-
ópulöndum. Segja talsmenn fyr-
irtækisins að atvinnubílstjórar
séu mikilvægasti hlekkurinn í
slysalausum rekstri flutninga- og
rútubíla og að fyrirtækið vilji
leggja sitt af mörkum til að
styðja ökumenn til aukinnar
hæfni í starfi. Keppnin fór fyrst
fram árið 2003 og tóku þá 6
þúsund ökumenn frá 20 löndum
þátt í henni.
Í 15 löndum ESB fórust um 37
þúsund manns í umferðarslysum
árið 2002 og segjast for-
ráðamenn Scania vilja stuðla að
því að ESB nái því markmiði að
fækka banaslysum um helming
eigi síðar en árið 2010. Með
keppninni telja þeir unnt að hvetja
ökumenn til meiri aga og flutn-
ingafyrirtækin til að styðja hvers
kyns átak sem leiða megi til auk-
ins umferðaröryggis.
Gert er ráð fyrir að um 20
þúsund ökumenn í 26 löndum
taki þátt í keppninni í ár en úrslit
hennar fara fram í Svíþjóð um
miðjan september. Fram að því
keppa ökumenn í einstökum lönd-
um um réttinn til að komast í úr-
slitakeppnina. Er hún fyrir bíl-
stjóra sem fæddir eru 1970 eða
síðar og starfa í ESB-löndum en
Sviss og Noregur eru einnig nefnd
sérstaklega sem þátttökulönd.
Í ráði er að Scania standi fyrir
svipaðri keppni í Asíu og löndum
Suður-Ameríku.
20 þúsund vörubílstjórar keppa
Iveco hefur útvegað 300
vörubíla til að sinna sorphirðu í
Madrid, höfuðborg Spánar. Allir
eru bílarnir búnir vél sem knú-
in er af jarðgasi sem þýðir
mun minni losun skaðlegra
lofttegunda. Fellur hún undir
svonefnd Euro 5-skilyrði sem
eiga að ganga í gildi 2009.
Bílarnir eru knúnir 260
hestafla vélum sem nefndar
eru Cursor 8 CNG. Þeir geta
borið 26 tonn eða 25 rúm-
metra. Bílarnir eru aðeins 9,5
m langir og segir framleiðand-
inn þá því sérlega hentuga til
snúninga í borgum með mjóum
strætum.
Þá eru bílarnir búnir sex gíra
sjálfskiptingu.
Einnig kemur fram í frétt frá
Iveco að í innkaupalista op-
inberra aðila í Frakklandi sé
mælt sérstaklega með þessum
bílum í sorphirðu.
Iveco útvegar
300 sorpbíla
í Madrid
ÞÝSKA olíufélagið ARAL tók í vik-
unni í notkun hundruðustu bens-
ínstöð sína þar sem auk bensíns og
dísilolíu er einnig fáanlegt jarðgas
sem eldsneyti fyrir bíla. Frá þessu
er greint á vef FÍB, www.fib.is. Alls
eru því afgreiðslustöðvar í Þýska-
landi, þar sem jarðgas er fáanlegt,
orðnar 540 talsins. Því er spáð að
notkun á jarðgasi sem bílaeldsneyti
muni aukast mjög á næstu árum.
Bílar sem að staðaldri er ekið á
jarðgasi eru flestir á Ítalíu um
þessar mundir, eða rúmlega 400
þúsund. Í Danmörku eru þeir um
25 þúsund en reiknað er með að
þeim fjölgi margfalt á næstu árum.
Stærsti kosturinn við gasið umfram
bensín er sá að mengun af gasinu
er miklu minni. Miðað við bíl með
engum úblásturshreinsibúnaði sem
ekið er á jarðgasi, þá gefur hann frá
sér aðeins um 20% af mengandi
efnum öðrum en C02 miðað við það
ef hann gengi á bensíni. Þetta er
auðvelt að staðfesta með því að
mengunarmæla þegar hann gengur
á bensíni og síðan skipt yfir á jarð-
gas. Við umskiptin minnkar C02 út-
blásturinn um 25–30%.
25–30% minni C02 með jarðgasi