Morgunblaðið - 07.03.2005, Qupperneq 1
2005 MÁNUDAGUR 7. MARS BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
SÖGULEGUR SIGUR HJÁ GERPLU / C8
ÍTALSKA knattspyrnusambandið staðfesti formlega á
laugardaginn að Ítalir myndu mæta Íslendingum í vin-
áttulandsleik þann 30. mars og að hann yrði leikinn í
Padova á Norður-Ítalíu. Padova er skammt vestan við
Feneyjar og þangað er um tveggja tíma akstur í austur-
átt frá Mílanó.
Leikurinn fer fram á Stadio Euganeo leikvanginum,
sem rúmar 32.366 áhorfendur og er stærri en vellir sjö
félaga í 1. deild enda lék félagið um skeið á meðal þeirra
bestu, síðast 1996. Padova er hinsvegar í ítölsku 3. deild-
inni, C1, um þessar mundir og þar á aðeins eitt félag
stærri heimavöll. Það er hið fornfræga félag Napoli en
völlurinn þar rúmar 78 þúsund manns.
Ítalir ætluðu að leika vináttuleik í Austurlöndum fjær
eða í Katar á þessum degi en hættu við það og buðu Ís-
lendingum til leiks í staðinn. Báðar þjóðirnar leika í
undankeppni HM fjórum dögum áður, laugardaginn 26.
mars. Íslendingar gegn Króötum í Zagreb og Ítalir gegn
Skotum í Mílanó.
Leikurinn gegn
Ítölum í Padova
Tillagan er byggð á niðurstöðuvinnuhóps sem komið var á fót
eftir fund stjórnar HSÍ með for-
mönnum félaganna í síðasta mánuði
en þar kom fram eindreginn vilji til
að breyta keppnisfyrirkomulagi Ís-
landsmótsins. Ennfremur benti
skoðanakönnun sem skrifstofa HSÍ
gerði meðal þjálfara og forráða-
manna í sömu átt en niðurstaða
hennar var lögð fram á formanna-
fundinum.
Öll lið í einni deild næsta vetur
Næsta vetur, 2005-2006, verða öll
meistaraflokkslið í einni deild, bæði í
karla- og kvennaflokki. Ef lið eru níu
eða færri, eins og búast má við í
kvennaflokki, verður leikin þreföld
umferð, en ef þau eru tíu eða fleiri,
verður spiluð tvöföld umferð. Í dag
eru meistaraflokkslið karla 14 tals-
ins og miðað við það yrðu 26 leikir á
lið næsta vetur. Liðið sem vinnur
deildina verður Íslandsmeistari.
Átta efstu liðin á Íslandsmótinu
2005-2006, vinna sér síðan keppnis-
rétt í nýrri úrvalsdeild sem fyrst
verður keppt í veturinn 2006-2007.
Lið sem enda í níunda sæti og neðar
verða í 1. deild þann vetur.
Til viðbótar verður komið á nýrri
keppni, deildabikar HSÍ, en um hann
leika fjögur efstu lið Íslandsmótsins,
að því loknu.
Þá er í tillögunni kveðið á um
hvernig Evrópusætum skal úthlutað.
Íslandsmeistari fær sæti í Meist-
aradeild Evrópu.
Bikarmeistari fær sæti í Evrópu-
keppni bikarhafa.
Deildabikarmeistari fær sæti í
EHF-bikarnum.
Annað sæti á Íslandsmóti gefur
sæti í Áskorendabikarnum, ann-
ars næsta sæti þar á eftir sem
skipað er liði sem ekki hefur feng-
ið sæti í annarri Evrópukeppni.
Guðmundur Stephensen varði titilsinn að venju og bætti tólfta Ís-
landsmeistaratitlinum í safnið – hann
sigraði einnig í
tvenndarkeppni með
Magneu Ólafs og tví-
liðaleik með Markúsi
Árnasyni.
Í kvennaflokki vann Guðrún
Björnsdóttir sinn fyrsta Íslands-
meistaratitil í meistaraflokki, sigraði
Kristínu Hjálmarsdóttur örugglega
4:0 í úrslitaleiknum en þær leika báð-
ar með KR. Sigurvegarinn frá því í
fyrra, Halldóra Ólafs, gat ekki varið
titil sinn vegna meiðsla. Guðrún sigr-
aði einnig í tvíliðaleik en þar lék hún
einmitt með Kristínu.
„Við Kristín erum búnar að eigast
við lengi, æfum og spilum saman
þannig að ég þekkti hennar leik vel.
Ég bjóst þó ekkert frekar við að
sigra, leikur minn small einfaldlega
saman á besta tíma – í úrslitaleikn-
um,“ sagði Guðrún.
Nokkuð óvænt úrslit voru í 1.
flokki karla þar sem KR-ingurinn
Davíð Jónsson sigraði Íslandsmeist-
arann frá því í fyrra, Daða Frey Guð-
mundsson. Hins vegar kom þrefald-
ur sigur Guðmundar Stephensens
ekki neinum á óvart. „Keppnin hér
verður alltaf léttari og léttari þar
sem ég geri ekkert annað en að æfa
og keppa, er því kominn svolítið langt
fram úr keppendum á Íslandi. Ann-
ars er mikið að gerast hjá liðinu
mínu, Malmö, um þessar mundir.
Það er komið í undanúrslit og
skemmtileg og krefjandi verkefni
framundan. Ég hef einnig spilað vel
að undanförnu og sloppið alveg við
meiðsli og leiðindin sem þeim fylgja,“
sagði Guðmundur Stephensen glað-
lega eftir að hafa unnið tólfta Ís-
landsmeistaratitilinn í röð, hvort sem
er í meistaraflokki eða tvíliðaleik.
LÍF og fjör var í íþróttahúsi TBR
um helgina þegar Íslandsmótið í
borðtennis fór fram í 35. skipti.
Að sögn Helga Þórs Gunnars-
sonar alþjóðadómara fór mótið
mjög vel fram og var hann
ánægður með aukna fjölbreytni
keppnisliða í ár en alls tóku átta
félög þátt, til að mynda komu
ellefu keppendur úr liði Dímon-
ar á Hvolsvelli, þar sem íþróttin
er í miklum blóma, og átti liðið
sigurvegara í 2. flokk kvenna,
Örnu Þöll Hjartardóttur. Annars
var Víkingur sigurvegari móts-
ins, átti sigur í fimm flokkum en
KR kom þar næst á eftir með
þrjá titla.
Morgunblaðið/Þorkell
Guðrún Björnsdóttir úr KR, Íslandsmeistari í einliðaleik og tví-
liðaleik kvenna í borðtennis, var einbeitt á svip í gær.
Guðmundur E. Stephensen úr Víkingi varð þrefaldur Íslands-
meistari í borðtennis í gær og í tólfta sinn í einliðaleik.
Andri
Karl
skrifar
Guðmundur
óstöðvandi
Handknattleikssamband Íslands leggur til að úrslitakeppnin verði lögð niður
Átta liða úrvalsdeild
frá haustinu 2006
STJÓRN Handknattleikssambands Íslands leggur fram tillögu á
ársþingi sambandsins um næstu helgi, þess efnis að úrslitakeppni
verði lögð niður á Íslandsmóti karla og kvenna frá og með næsta
tímabili, og frá og með haustinu 2006 verði leikið í 8 liða úrvals-
deildum hjá báðum kynjum.