Morgunblaðið - 07.03.2005, Qupperneq 2
ÍÞRÓTTIR
2 C MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Íþróttir Morgunblaðsins Kringlunni 1 , 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar
sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
ERNIE Els frá Suður-Afríku sigraði á Dubai-
mótinu í golfi en annar varð Spánverjinn Miguel
Angel Jiminez en hann var einu höggi á eftir Els.
Stephen Dodd frá Wales varð þriðji. Els tryggði
sér sigur með því að leika síðustu holuna á erni
(–2) en hann setti niður um 5 metra pútt og lék á
þremur höggum en Jimenez þrípúttaði á síðustu
holunni og missti þar með af sigrinum.
„Þetta pútt er eitt af þeim bestu á mínum
ferli,“ sagði Els eftir að hafa landað 19. sigri sín-
um á Evrópumótaröðinni. „Mér leið vel áður en
ég púttaði og var sannfærður um að það færi of-
an í. Og það var ljúft að sjá þegar boltinn datt of-
an í holuna. Mótið var mikilvægur undirbúning-
ur fyrir fyrsta stórmót ársins, Mastersmótið, og
ég þurfti nauðsynlega að sigra. Eftir þriggja
vikna frí er ekki slæmt að byrja vinnutörnina
með sigri – þetta var mjög mikilvægur sigur og
stór áfangi að mínu mati,“ sagði Els
sem lék á 269 höggum samtals eða 19 undir
pari en Jimenez og Dodd voru jafnir á 18 undir
pari. Fyrir lokadaginn var Jimenez einu höggi
betri en Els en Jimenez lék á 70 höggum á síð-
asta hringnum á meðan Dodd var á 66 höggum
og Els á 68 höggum. Skotinn Colin Montgomerie
varð fjórði á 272 höggum eða 16 undir pari.
Þetta er í þriðja sinn sem Els sigrar í Dubai en
hann er í þriðja sæti heimslistans sem stendur en
færist nær þeim Tiger Woods og Vijay Singh eft-
ir sigurinn.
Els hafði fyrir mótið ekki sigrað á þessu ári en
hann tók sér þriggja vikna frí fyrir mótið og
dvaldi heima með fjölskyldu sinni til þess að
hlaða rafhlöðurnar eins og hann orðaði það sjálf-
ur. Els mun taka þátt á móti sem fram fer í Katar
í næstu viku en eftir það mót mun hann leika á
ný á bandarísku mótaröðinni og undirbúa sig
fyrir fyrsta stórmót ársins – Mastersmótið á
Augusta-vellinum.
Els sigraði á Dubai-mótinu 1994 og 2002.
Lokakaflinn var magnaður hjá
Ernie Els á Dubai-mótinu
PÉTUR Eyþórsson úr KR og Soffía Björnsdóttir
úr HSÞ urðu bæði tvöfaldir Íslandsmeistarar í
glímu á laugardaginn en þá fór þriðja og síðasta
umferðin í Meistaramóti Íslands fram í íþrótta-
húsi Hagaskóla í Reykjavík. Pétur sigraði bæði í
opnum flokki karla og -85 kg flokki karla á
mótinu og varð þar með Íslandsmeistari í báðum
flokkum. Soffía varð í öðru sæti í +65 kg flokki á
laugardaginn og í fjórða sæti í opnum flokki, og
það dugði henni til að hreppa Íslandsmeistaratit-
ilinn í báðum flokkunum.
Stefán Geirsson, HSK, varð Íslandsmeistari í
+85 kg flokki karla, Pétur Þórir Gunnarsson,
HSÞ, í unglingaflokki karla, og Ragnheiður Jara
Rúnarsdóttir, UÍA, í -65 kg flokki kvenna.
HSK sigraði í heildarstigakeppni félaga, HSÞ
varð í öðru sæti og KR í þriðja sæti. HSK varð
stigahæst í kvennaflokki en KR í karlaflokki.
Pétur og Soffía
sigruðu tvöfalt
■ Úrslit /C7
RÓBERT Gunnarsson skoraði 11
mörk á laugardaginn þegar lið
hans, Århus GF, mætti Kolding í
uppgjöri tveggja efstu liðanna í
dönsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik. Það
nægði ekki Ár-
ósaliðinu því
Kolding sigr-
aði, 41:36, og
náði með því
þriggja stiga
forystu í deild-
inni, er með 31
stig en Århus
GF 28 og GOG
er í þriðja sæti
með 26 stig.
Fjögur efstu liðin leika til úrslita
um meistaratitilinn. Sturla Ásgeirs-
son skoraði 3 mörk fyrir Århus GF í
leiknum.
Róbert, sem tók á dögunum við
stöðu fyrirliða Århus GF, er sem
fyrr lang markahæstur í deildinni.
„Kolding leikur frábæran
sóknarleik og vinnur deildina
örugglega. Okkar markmið er að
komast í úrslitin, helst í öðru sæti,
og við getum skákað Kolding þegar
að úrslitakeppninni kemur,“ sagði
Erik Veje Rasmussen, þjálfari
Århus GF.
Gísli Kristjánsson skoraði 3
mörk fyrir Fredericia sem tapaði á
heimavelli, 21:27, fyrir Tvis/Holste-
bro í úrvalsdeildinni í gærkvöld.
ÍBV byrjaði leikinn af krafti og þeg-ar tíu mínútur voru búnar var
munurinn sjö mörk. Þá kom besti
leikkafli Hauka í
leiknum og náðu þeir
að minnka muninn
niður í þrjú mörk
fyrir leikhlé. Jafn-
ræði var með liðunum fyrstu tíu mín-
útur síðari hálfleiks en þá skellti Jó-
hann Ingi Guðmundsson í lás í
Eyjamarkinu og skoruðu Haukarnir
ekki mark í tíu mínútur. Eyjamenn
náðu þá sjö marka forystu á nýjan
leik og eftir það fjaraði leikurinn út
og Eyjamenn fögnuðu sigri á efsta
liði deildarinnar annan leikinn í röð.
Jóhann Ingi var frábær seinni
hluta síðari hálfleiks og varði meðal
annars tvö vítaköst. Það skipti máli
sem og enn einn stórleikur Tite Kal-
andadze sem gerði átta mörk. Kári
Kristjánsson kom inn á línuna hjá
ÍBV seinni hluta leiksins og stóð sig
mjög vel, skoraði þrjú mörk og fisk-
aði auk þess tvö vítaköst. Haukarnir
náðu sér engan veginn á strik. Inn-
koma Ásgeirs Arnar skipti þar engu
en hann og Birkir Ívar í markinu
voru þeirra bestu menn.
„Menn voru greinilega ekki til-
búnir í þennan leik, leikmenn voru
ekki á tánum og því fór þetta svona.“
Hann sagði að það hefði vantað upp á
hreyfingu í vörninni. „Þegar þeir
komust fram hjá einum varnarmanni
þá vantaði að næsti kæmi og hjálp-
aði,“ sagði Birkir Ívar við Morgun-
blaðið.
Leikmenn og þjálfari
ÍBV í fjölmiðlabanni
Þegar leitað var til þjálfara ÍBV,
Erlings Richardssonar eftir leikinn
sagði hann að leikmenn ÍBV sem og
hann væru komnir í fjölmiðlabann.
Benti hann á Kristin Guðmundsson
aðstoðarþjálfara sem var á leið í
sjónvarpsviðtal og sagði hann tala
við alla fjölmiðla fyrir hönd ÍBV.
Þegar Erlingur var inntur eftir
ástæðu fyrir banninu sagði hann að
of oft hefðu blaðamenn haft rangt
eftir þeim. Hann kannaðist þó ekki
við að blaðamenn Morgunblaðsins
hefðu gert sig seka um það. Þetta
eru afar hörð viðbrögð en Eyjamenn
hafa tvívegis talið sig þurfa að leið-
rétta það sem haft hefur verið eftir
þeim í fjölmiðlum, fyrst Erlingur og
síðar Roland Eradze. Hvort þetta
eru ástæðurnar skal ósagt látið en
hart er það ef það bitnar á blaða-
mönnum sem vinna starf sitt af heil-
indum og hafa ekki orðið vísir að því
að hafa rangt eftir leikmönnum né
forráðamönnum ÍBV. Það hlýtur að
vera val blaðamanns við hvern hann
ræðir eftir leik, enda misjafnt hverj-
ir eru í sviðsljósinu leik frá leiks og
nauðsynlegt íþróttarinnar vegna að
fá sem fjölbreyttust sjónarmið leik-
manna og forráðamanna félaganna.
Eins skal það tekið fram að Páll
Ólafsson þjálfari Hauka neitaði að
koma í viðtal eftir leikinn og sagðist
ekkert hafa að segja. Slík viðbrögð
sem og fjölmiðlabann leikmanna
ÍBV er ekki til þess fallið að auka
hróður íþróttarinnar sem hefur átt
undir högg að sækja undanfarin ár.
Ásgeir Örn með Haukum á ný
Ásgeir Örn Hallgrímsson spilaði
sinn fyrsta leik eftir uppskurð í Eyj-
um á laugardag. Hann byrjaði þó á
bekknum en kom fljótlega inn á þeg-
ar halla fór undan fæti hjá liðinu.
Hann fór rólega af stað en skoraði
sex mörk í leiknum og virtist í góðu
formi. Verður athyglisvert að fylgj-
ast með honum það sem eftir er vetr-
ar og ljóst að innkoma hans styrkir
lið Hauka mikið.
Þriðja tap KA í röð
Ég held að við höfum náð að skorahátt í fimmtán mörk í leiknum
úr hraðaupphlaupum og á því bygg-
ist okkar styrkur og
við vitum það. Okkur
tókst að koma okkur
þannig inn leikinn og
héldum það út. Ég er
mjög ánægður með stigin, og mjög
sáttur við leikinn í heild fyrir utan tíu
mínútna kafla,“ sagði Júlíus Jónas-
son, þjálfari ÍR, eftir sigurinn á KA,
35:32, í Austurbergi á laugardag.
„Ég held að við séum að stefna í
rétta átt en við megum ekki gleyma
okkur í eina einustu mínútu því þetta
er allt svo jafnt. Við erum búnir að
setja stefnuna á að tryggja okkur
eitt af fjórum efstu sætunum, út af
heimaleikjarétti og ef eitthvað annað
opnast þá erum við klárir að grípa
það tækifæri,“ sagði Júlíus.
Eins og fram kemur hjá Júlíusi þá
tókst KA-mönnun ekki að stöðva
hraðaupphlaup ÍR-inga og það skipti
sköpum í leiknum. KA-menn voru
lengi að skila sér aftur í vörnina og
„rakettann“ Ragnar Helgason skor-
aði hvað eftir annað úr hraðaupp-
hlaupum. ÍR-ingar voru því skrefinu
á undan allan leikinn og í síðari hálf-
leik var lítil spenna þó svo KA-menn
næðu að saxa á forskotið í blálokin
með því að leika maður á mann vörn.
Auk Ragnars var Hannes Jónsson
duglegur að skora og markvarða-
parið Ólafur Gíslason og Hreiðar
Guðmundsson varði vel að vanda.
Varnarleikur ÍR var einnig góður og
vörðu þeir mörg skot í hávörninni.
Hjá KA var ÍR-ingurinn fyrrver-
andi; Bjartur Máni Sigurðsson best-
ur og nýtti færin sín frábærlega vel í
hægra horninu. Hann sagði að KA
menn hefðu vitað að hraðaupphlaup
ÍR-inga væru lykillinn að þeirra leik
en samt hefði ekki tekist að stöðva
þau: „Ef menn eru að missa boltann
á miðsvæðinu gegn ÍR þá refsa þeir
umsvifalaust. Við náðum því aðeins
niður á tímabili í seinni hluta fyrri
hálfleiks en náðum þeim aldrei í síð-
ari hálfleik. Við þurfum að aga sókn-
arleikinn okkar ögn betur í næstu
leikjum, en hann er á köflum nokkuð
óagaður. Við höfum sýnt að við get-
um spilað fína vörn en það bara telur
ekki þegar við erum að missa bolt-
ann í sókninni og fá á okkur hraða-
upphlaup. Deildin er mjög jöfn og við
stefnum á að ná einu af fjórum efstu
sætunum og við getum það vel,“
sagði Bjartur.
Auðveldur sigur
ÍBV á Haukum
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka voru langt í frá sannfærandi þegar þeir
heimsóttu ÍBV á laugardaginn. Þeir komust aldrei í takt við leikinn
og sigruðu Eyjamenn með fimm marka mun og í raun var sigurinn
aldrei í hættu. Lokatölur urðu 30:25 eftir að ÍBV hafði náð sjö marka
forystu í fyrri hálfleik og átta marka forystu í síðari hálfleik. Með
sigrinum hafa Eyjamenn galopnað baráttuna í úrvalsdeildinni í
handknattleik, DHL-deildinni, og geta enn komist í efri hluta
deildarinnar. Þá lögðu ÍR-ingar KA að velli í Austurbergi, 35:32.
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar
Kristján
Jónsson
skrifar
Ellefu
mörk
Róberts
ekki nóg
Róbert
ALEXANDER Petersson skoraði
6 mörk fyrir Düsseldorf sem vann
Pfullingen, 28:27, í botnslag í þýsku
1. deildinni í handknattleik á laug-
ardaginn. Markús Máni Michaelsson
var ekki á meðal markaskorara
Düsseldorf sem komst uppfyrir
Minden og úr næstneðsta sætinu, og
er nú stigi á eftir Pfullingen.
EINAR Hólmgeirsson skoraði eitt
mark fyrir Grosswallstadt sem vann
Minden á útivelli, 28:22, í öðrum
fallslag og fjarlægðist með því
neðstu liðin. Snorri Steinn Guðjóns-
son lék ekki með Grosswallstadt
vegna veikinda og Patrekur Jóhann-
esson skoraði ekki fyrir Minden.
BJÖRGVIN Þór Rúnarsson lék
með ÍBV gegn Haukum í úrvals-
deildinni í handknattleik á laugar-
dag. Björgvin lagði skóna á hilluna
eftir síðasta tímabil og skellti sér á
sjóinn. Hann var fenginn aftur inn í
hópinn þar sem hægri hornamaður
ÍBV, Samúel Ívar Árnason var tæp-
ur. Hann meiddist síðan í upphafi
síðari hálfleiks og leysti Björgvin
hann af hólmi. Björgvin stóð sig
nokkuð vel, skoraði tvö mörk en var
helst til harðhentur í vörninni og
fékk í tvígang að hvíla sig í tvær mín-
útur.
SÆNSKU tvíburasysturnar Sus-
anna og Jenny Kallur komu fyrstar í
mark í 60 metra grindahlaupi á Evr-
ópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í
Madríd á Spáni. Susanna hljóp á
7,80 sekúndum en Jenny var aðeins
1/100 úr sekúndu á eftir systur sinni.
Tími Susanna er besti tími ársins. Í
60 metra grindahlaupi karla kom
Ladji Doucoure frá Frakklandi
fyrstur í mark en hann hljóp á 7,50
sekúndum en þrír keppendur voru
dæmdir úr leik í úrslitahlaupinu
vegna þjófstarts.
ROMAN Sebrle frá Tékklandi
sigraði í sjöþraut karla en hann fékk
6.232 stig en annar varð Aleksandr
Pogorelov frá Rússlandi en hann var
með 6.111 stig.
NAIDE Gomes frá Portúgal sigr-
aði í langstökki kvenna með stökki
upp á 6,70 metra á sunnudag en
keppnin var mjög sérstök þar sem
Bianca Kappler frá Þýskalandi var
krýnd sem sigurvegari á laugardag
með stökki upp á 6,96 metra. En
dómarar keppninnar fóru yfir mæl-
ingar á stökki Kappler og kom í ljós
að mistök voru gerð við mælinguna
og keppnin þurfti því að fara fram á
ný. Kappler neitaði hins vegar að
taka þátt í keppninni á sunnudag þar
sem aðeins sjötta og síðasta umferð
keppninnar var endurtekin. Kappler
fékk engu að síður bronsverðlaun frá
mótsstjórn.
FÓLK
BJÖRGVIN Björgvinsson frá Dalvík endaði í fimmta sæti á alþjóðlegu
FIS móti í svigi í Crnana Koroskem í Slóveníu í gær. Björgvin, sem
var með rásnúmer 22, var með 13. besta tíma eftir fyrri umferð og átti
besta tíma í þeirri síðari, þar sem hann var einni sekúndu á undan
næsta manni. Fyrir mótið fær Björgvin 17,3 FIS punkta og er það
besti árangur hans til þessa.
Kristján Uni Óskarsson, Ólafsfirði, var með 10. besta tíma eftir
fyrri umferð en tókst ekki að ljúka við þá síðari. Sindri Már Pálsson,
Breiðabliki, og Kristinn Ingi Valsson, Dalvík, tóku einnig þátt en helt-
ust úr lestinni í fyrri umferð mótsins.
Besti árangur Björgvins