Morgunblaðið - 07.03.2005, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 C 3
HERMANN Maier frá Austurríki
fagnaði sigri á heimsbikarmóti í
risasvigi í Kvitfjell í Noregi í dag og
er þetta í 50. sinn sem Maier sigrar
á heimsbikarmóti. Didier Defago
frá Sviss varð annar og Bandaríkja-
maðurinn Daron Rahlves þriðji.
Maier jafnaði þar með við ítalska
skíðakappann Alberto Tomba sem
sigraði á 50 heimsbikarmótum á
sínum ferli en metið er í eigu Svíans
Ingemar Stenmark sem vann 86
heimsbikarmót.
Hinn 32 ára gamli Maier kom í
mark á tímanum 1.32,98 mín., en
Defago var 0,83 sekúndum á eftir
Maier en Rahlves var 0,88 sekúnd-
um á eftir sigurvegaranum.
Maier sagði að hann væri að sjálf-
sögðu ánægður með sigurinn. Hann
telur þó að hann eigi langt í land
með að ná fyrri styrk en hann slas-
aðist alvarlega í umferðarslysi fyrir
nokkrum misserum.
„Ég veit ekki hvort ég næ að
standa undir nafninu „Herminator“
á ný, þar sem ég hef breyst svo mik-
ið. En ég er á réttri leið og verð
örugglega sterkari á næsta keppn-
istímabili og á Ólympíuleiknum ár-
ið 2006,“ sagði Maier.
Benjamin Raich frá Austurríki
varð fjórði og Bandaríkjamaðurinn
Bode Miller fimmti, en Miller er í
efsta sæti í samanlögðum árangri á
heimsbikarmótum vetrarins, með
52 stigum meira en Raich sem er
annar. Síðustu heimsbikarmót vetr-
arins verða í næstu viku í Lenzer-
heide í Sviss.
Hermann Maier upp að
hliðinni á Alberto Tomba
ÍSLENSKIR þjálfarar tókust í fyrsta skipti á sem stjórnendur er-
lendra liða í Evrópukeppni þegar Bregenz mætti Magdeburg í EHF-
bikarnum í handknattleik á laugardaginn. Alfreð Gíslason hafði þar
betur gegn Degi Sigurðssyni því Magdeburg náði að knýja fram sig-
ur, 30:28, og stendur því vel að vígi fyrir síðari leik liðanna á sínum
heimavelli. Sæti í undanúrslitum keppninnar er í húfi.
Dagur átti stórgóðan leik sem leikstjórnandi Bregenz og skoraði
sjálfur 2 mörk í leiknum. Arnór Atlason skoraði eitt marka Magde-
burg en markahæstur hjá þýska liðinu var Stefan Kretzschmar með 8
mörk. Uppselt var á leikinn í Bregenz og 2.500 áhorfendur sáu viður-
eign liðanna.
Alfreð hafði betur gegn Degi
VALUR varð Reykjavíkur-
meistari kvenna í knattspyrnu
fimmta árið í röð á laugardag-
inn með því að gjörsigra KR,
8:0, í úrslitaleik mótsins. Vals-
konum nægði jafntefli í leikn-
um vegna hagstæðari marka-
tölu en liðin voru jöfn að stig-
um fyrir hann. Margrét Lára
Viðarsdóttir lék KR-vörnina
grátt og skoraði 4 mörk en hin
mörkin gerðu þær Dóra María
Lárusdóttir, Laufey Ólafsdótt-
ir, Málfríður Sigurðardóttir
og Nína Ósk Kristinsdóttir.
Valur vann alla fimm leiki sína
í mótinu og skoraði 59 mörk,
tæplega 12 mörk að meðaltali
í leik, og fékk aðeins tvö mörk
á sig.
Yfirburðir
Vals í
úrslitaleik
Vörn HK var í byrjun þétt svo aðsóknarleikur Víkinga varð oft
ráðaleysislegur. Það var því tekist á
en á 11. mínútu var
Brjánn Bjarnason
varnarjaxl Víkinga
rekinn útaf fyrir að
setja út á dóm, nokk-
uð harður dómur sem fór illa í Vík-
inga og þeir eyddu miklu púðri í að
kvarta í dómurum leiksins á meðan
HK sallaði inn mörkum svo að á 18.
mínútu var staðan 12:4 fyrir HK og í
hálfleik 19:10.
Eftir hlé tókst Víkingum að saxa á
forskotið enda búnir að ná að ein-
beita sér meira að leiknum og minna
að dómurunum. Í raun var það mjög
gott hjá þeim því oft var mikið mis-
ræmi í dómum. Þeir náðu að minnka
forskotið niður í 7 mörk en eftir rúm-
ar tuttugu mínútur kom slakur kafli
og slíkt létu HK-menn ekki segja sér
tvisvar, skoruðu 5 mörk í röð og
gerðum út um leikinn.
Víkingar náðu ekki fram sínu
besta, voru ekki alveg tilbúnir í byrj-
un og var refsað fyrir það. Svo þegar
þeir fengu á sig nokkra dóma, suma
fyrir litlar sakir og aðra sanngjarna,
misstu þeir einbeitinguna og það
gengur ekki, sérstaklega ekki gegn
kraftmiklu liði eins og HK. Þeim
tókst þó um tíma að spila vel en það
dugði ekki. „Þetta er skelfilega sárt
og svíður rosalega að vera flengdur á
heimavelli en við höfum sennilega
ekki verið tilbúnir í leikinn og það
má segja að HK hafi klárað okkur á
fyrstu tuttugu mínútunum,“ sagði
Reynir Þór Reynisson fyrirliði og
markvörður Víkinga. Staða Víkinga
er ekki góð, næst neðstir í úrvals-
deildinni. „Ef það er einhvern tím-
ann tímabært að hysja upp um sig
brækurnar þá er það núna og ég bið
fólk, okkur í liðinu og fólkið í kring-
um það, að gefast ekki upp og halda
áfram að styðja okkur. Þetta kemur
hjá okkur og við ætlum sannarlega
að mæta sterkir í næsta leik.“
Aðra sögu má segja af HK-mönn-
um. Þeir byrjuðu af krafti og slógu
ekki af fyrr en góðri forystu var náð.
„Við byrjuðum vel og slógum Vík-
inga útaf laginu,“ sagði Haukur Sig-
urvinsson fyrirliði HK kampakátur
eftir leikinn. „Við fórum í smá lægð
eftir bikarleikinn og fundum okkur
aldrei gegn ÍBV í Eyjum svo að við
urðum að gera út um þennan leik al-
mennilega. Það tókst, við náðum
stemmningu í liðið og gerðum ná-
kvæmlega það sem við ætluðum okk-
ur. Við urðum að sýna hvað í okkur
býr, við erum að mínu mati með
langmestu breiddina í deildinni og
nýttum hana í dag. Nú er allt komið í
lag og við komnir á toppinn, þar sem
við viljum vera.“
CIUDAD Real sigraði Fotex
Vezsprém frá Ungverjalandi, 29:22, í
fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu í hand-
knattleik á laugardaginn og fer því
með sjö marka forskot í þann síðari
sem fram fer í Ungverjalandi um
næstu helgi. Ólafur Stefánsson skor-
aði 2 mörk fyrir Ciudad í leiknum en
markahæstir hjá spænska liðinu
voru Mirza Dzomba með 7 mörk,
Hussein Zaky með 6 og Talant
Dujshebaev með 5 mörk.
Ciudad varð fyrir miklu áfalli í
leiknum þegar markvörðurinn Arp-
ard Sterbik slasaðist illa á hné og
hann leikur ekki meira með liðinu á
þessu tímabili.
Logi Geirsson og félagar í Lemgo
eiga litla möguleika á að komast í
undanúrslit keppninnar eftir tap á
heimavelli, 29:33, gegn Celje Lasko
frá Slóveníu í 8-liða úrslitunum á
laugardaginn. Liðin mætast aftur í
Celje um næstu helgi. Logi átti góð-
an leik með Lemgo og skoraði 6
mörk en Florian Kehrmann var
markahæstur hjá þýska liðinu með 8
mörk. Siarhei Rutenka gerði 9 mörk
og Eduard Kokcharov 8 fyrir Evr-
ópumeistarana í Celje Lasko.
Gunnar og Stefán
dæmdu stórleik
Gunnar Viðarsson og Stefán Arn-
aldsson dæmdu stórleik Kiel og
Barcelona í Ostsee-höllinni í Kiel en
þar fór þýska liðið með sigur af
hólmi, 30:25, frammi fyrir 12 þúsund
áhorfendum. Gunnar og Stefán
höfðu nóg að gera og vísuðu leik-
mönnum liðanna 10 sinnum af velli,
þar af fengu Spánverjarnir sjö brott-
vísanir.
Johan Pettersson og Markus
Ahlm skoruðu 6 mörk hvor fyrir Kiel
en Dragan Skrbic skoraði 9 mörk
fyrir Barcelona og Iker Romero 5.
Ciudad með sjö
marka forskot
BJARKI Sigurðsson, fyrrum
landsliðsmaður, lék ekki með Víkingi
gegn HK í úrvalsdeildinni í hand-
knattleik í gærkvöld. Bjarki fékk
sýkingu í hné snemma í vikunni og
var lagður inn á sjúkrahús. Hann má
ekkert reyna á fæturna og mætti í
hjólastól til að horfa á lið sitt í gær-
kvöld en óvíst er hvort hann getur
leikið meira með Víkingum á tíma-
bilinu.
ÞÓRÐUR Birgisson, knattspyrnu-
maður úr 1. deildarliði KS á Siglu-
firði, er til reynslu hjá norska 1.
deildarliðinu Strömsgodset þessa
dagana. Þórður er 22 ára sóknar-
maður og skoraði 13 mörk fyrir KS í
2. deild í fyrra. Hann var eitt ár í röð-
um ÍA, 2003, og lék þá tvo leiki með
liðinu í úrvalsdeildinni. Þórður lék
æfingaleik með Strömsgodset gegn
Alta á laugardag, sem endaði 1:1.
GUÐLAUG Jónsdóttir lagði upp 7
mörk og skoraði eitt sjálf þegar
Breiðablik vann stórsigur á Kefla-
vík, 8:0, í Faxaflóamóti kvenna í
knattspyrnu í Reykjaneshöllinni á
laugardaginn. Ólína G. Viðarsdóttir
skoraði þrjú markanna. Með þessum
sigri er Breiðablik nánast öruggt
með efsta sætið í mótinu.
KEFLAVÍK, sem er nýliði í úrvals-
deildinni, tefldi fram tveimur skosk-
um leikmönnum í leiknum en þær
heita Donna Cheyne og Claire
McCombe. Cheyne er 27 ára miðju-
maður sem hefur leikið með Kilm-
arnock og 20 ára landsliði Skotlands.
McCombe er 23 ára miðjumaður,
einnig frá Kilmarnock, og hefur leik-
ið með 18 ára landsliði Skotlands.
STEFAN Holm frá Svíþjóð varð
Evrópumeistari í hástökki karla í
Madrid á Spáni í gær en hann vippaði
sér yfir 2,40 metra og er það besti ár-
angur hans innanhúss, en hann hefur
stokkið 2,36 metra utanhúss. „Ég er
orðlaus yfir þessum sigri, ég trúi því
vart að ég hafi rofið múrinn og farið
yfir 2,40 metra,“ sagði Holm við
sænska fjölmiðla eftir sigurstökkið.
HOLM er þar með komin í hóp
þekktra kappa sem hafa stokkið yfir
2,40 metra. Sá síðasti sem stökk yfir
þessa hæð var Vjatsejslav Voronin
árið 2000 en Holm er sá fyrsti í 11 ár
sem afrekar að fara yfir þessa hæð
innanhúss. En Javier Sotomayor fór
yfir 2,40 metra síðast innanhúss. Að-
eins níu stökkvarar höfðu farið yfir
2,40 metra þar til í gær. „Dásamlegt
að verða sá tíundi í röðinni,“ sagði
Holm eftir sigurinn en hann stökk 59
cm., yfir eigin hæð, er 1,81 metrar á
hæð en flestir af bestu hástökkvurum
heimsins eru mun hávaxnari en
Holm sem varð Ólympíumeistari í
fyrra í Aþenu, heimsmeistari innan-
húss 2001, 2003 og 2004. Hann fékk
silfur á heimsmeistaramótinu árið
2003 og silfur á Evrópumeistara-
mótinu 2002.
FÓLK
Morgunblaðið/Þorkell
Karl Magnús Grönvold, leikmaður HK, skýtur að marki Víkinga í sigri Kópavogsliðsins í gær.
HK kafsigldi
Víkingana
EFTIR tvo dapra leiki reif HK sig upp úr lægðinni í og sýndi mátt
sinn og megin með því að leggja Víkinga að velli í Víkinni í gærkvöldi
í úrvalsdeildinni í handknattleik, DHL-deildinni, 35:25. Kópavogs-
búar kafsigldu Víkinga í byrjun þegar heimamenn létu slaka dóm-
ara leiksins ræna sig mestallri einbeitingu. Sigurinn skilar HK í
efsta sæti deildarinnar á ný en Víkingar eru eftir sem áður í því
næstneðsta og verða nú að spýta í lófana þó ekki sé öll nótt úti enn.
Stefán
Stefánsson
skrifar