Morgunblaðið - 07.03.2005, Side 5
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 C 5
BREIÐABLIK hélt í gær áfram sigurgöngu sinni í
deildabikarkeppni KSÍ og lagði úrvalsdeildarlið Fylkis
að velli, 2:1, í Egilshöll. Ungt Blikaliðið var betri að-
ilinn á löngum köflum og komst í 2:0 með mörkum frá
Steinþóri Þorsteinssyni og Ellert Hreinssyni en Björg-
ólfur Takefusa minnkaði muninn fyrir Fylki úr víta-
spyrnu. Breiðablik hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína og
er efst í 1. riðli keppninnar.
KR-ingar náðu forystunni í 2. riðlinum í gærkvöld
með því að sigra Þrótt R., 3:1, í Egilshöll. Arnar Gunn-
laugsson skoraði tvö marka KR og Sigmundur Krist-
jánsson eitt en Páll Einarsson svaraði fyrir Þrótt,
minnkaði þá muninn í 2:1.
Völsungar kræktu í fjögur stig
Völsungar gerðu góða ferð suður um heiðar um
helgina því þeir sóttu þangað fjögur stig og fengu ekki
á sig mark. Fyrst unnu þeir HK, 1:0, í Fífunni á föstu-
dagskvöldið með marki Hermanns Aðalgeirssonar úr
vítaspyrnu, og í gær gerðu Húsvíkingar markalaust
jafntefli við Fram í Egilshöll. Völsungar áttu í vök að
verjast í báðum leikjum en héldu sínum hlut með sterk-
um varnarleik og góðri markvörslu Björns H. Sveins-
sonar.
Þórsarar töpuðu tvívegis í Reykjaneshöll
Þórsarar fengu hins vegar ekkert stig úr sinni suð-
urferð því þeir léku tvo leiki í Reykjaneshöll og töpuðu
báðum. Fyrst 2:3 gegn ÍA á laugardag og síðan 1:3
gegn ÍBV í gær.
Ellert Jón Björnsson, Dean Martin og Gunnlaugur
Jónsson komu ÍA í 2:0 og 3:1 en Baldur Sigurðsson
skoraði bæði mörk Þórsara og var hársbreidd frá því
að jafna á lokasekúndum leiksins.
Bjarni Rúnar Einarsson gulltryggði sigur ÍBV á Þór,
3:1, með marki á síðustu mínútunni. Þórsarar höfðu þá
sótt talsvert á lokakaflanum eftir að þeir minnkuðu
muninn í 2:1.
Breiðablik og KR í forystuhlutverkum
í deildabikarnum eftir sigra í gær
GUÐJÓN Valur Sig-
urðsson, landsliðs-
maður í handknattleik,
skoraði 6 mörk fyrir
Essen í gær þegar
þýska liðið náði jafn-
tefli, 29:29, gegn Gra-
nollers á Spáni. Þetta
var fyrri viðureign lið-
anna í átta liða úrslit-
um EHF-bikarsins og
Essen stendur því vel
að vígi fyrir síðari við-
ureign liðanna í Þýskalandi um
næstu helgi.
Essen var yfir lengst af en
Granollers sneri leiknum sér í
hag undir lokin. Mark Schmetz
jafnaði fyrir Essen þegar tvær
sekúndur voru eftir af leiknum.
Auk Guðjóns Vals voru í aðal-
hlutverkum hjá Essen þeir Vikt-
or Szilagy með 7 mörk,
Schmetz og Oleg Vel-
yky sem gerðu 6 mörk
hvor, ásamt Chrischa
Hannawald markverði
sem lék mjög vel. Pat-
rik Cavar var atkvæða-
mestur hjá Granollers
með 12 mörk.
Flensburg
beið afhroð
Þýsku meistararnir í
Flensburg fengu aftur á móti
óvæntan skell í gær. Þeir sóttu
heim Montpellier, frönsku meist-
arana, í Meistaradeild Evrópu og
biðu þar afhroð, 36:22. Grégory
Anquetil, hornamaðurinn eld-
fljóti, skoraði 9 mörk fyrir Mont-
pellier sem er með pálmann í
höndunum.
Guðjón Valur með sex
gegn Granollers
ERRY Henry, sóknarmaður Arsenal og
nska landsliðsins í knattspyrnu, er æfur yfir
ri sekt sem Luis Aragones fékk frá spænska
ttspyrnusambandinu fyrir ummæli sín um
ry fyrr í vetur. Frakkinn hefur skorað á Al-
ða knattspyrnusambandið, FIFA, að gera
hvað í málinu. Aragones var fyrir helgina
taður um 2.000 pund, um 240 þúsund ís-
kar krónur, en hann viðhafði mjög ósæmi-
orð um Henry við félaga hans hjá Arsenal,
e Antonio Reyes, orð sem vísuðu til lit-
áttar hans, á æfingu spænska landsliðsins.
Forystumenn FIFA segjast ráða ferðinni í
ttspyrnunni svo nú er boltinn hjá þeim, þeir
ða að skipa spænska knattspyrnusamband-
að taka á svona málum af alvöru. Spænska
ttspyrnuforystan þarf að fara í naflaskoðun
að er greinilegt að henni er nákvæmlega
a um kynþáttafordóma. Það eru önnur
mi um að hún hefur sektað félög um nokkr-
rónur fyrir slíkt framferði. Þetta er hlægi-
. Þeir sektuðu Aragones ekki vegna þess að
m fyndist hann hafa brotið af sér, heldur
a til að sýnast,“ sagði Henry við enska fjöl-
la um helgina.
rsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal,
sektaður um 15 þúsund pund, 1,8 milljónir
na, fyrir að kalla Ruud van Nistelrooy
ndlara.“ „Það er nóg að bera saman sektina
hann fékk og þá sem ég fékk, og fyrir hvað
vorum sektaðir, til að sjá hve létt menn
pa frá alvarlegum málum á Spáni,“ sagði
nger.
Henry
vill að FIFA
refsi Spán-
verjum
ANDREA Pirlo sá til þess að AC
Milan héldi naumri forystu sinni í
ítölsku 1. deildinni í knattspyrnu á
laugardagskvöldið. Hann skoraði
þá sigurmark liðsins gegn Atalanta
í Bergamo, 2:1, með allra síðustu
spyrnu leiksins.
„Atalanta lék mjög vel og fékk
mörg góð færi en við náðum frá-
bærum úrslitum sem vonandi lyfta
okkur upp fyrir leikinn í Meistara-
deildinni,“ sagði Carlo Ancelotti,
þjálfari AC Milan en lið hans tekur
á móti Manchester United annað
kvöld.
Jafntefli í Bergamo hefði komið
Juventus á toppinn á ný en Juve
vann góðan útisigur á Roma, 2:1.
Öll mörkin voru skoruð í fyrri hálf-
leik og sigurmarkið gerði Aless-
andro Del Piero úr vítaspyrnu.
Leikurinn þótti gróft leikinn og var
lítið fyrir augað, enda stöðugt
stöðvaður vegna aukaspyrna.
AC Milan og Juventus eru jöfn að
stigum og með sama markamismun
en Mílanóliðið hefur skorað einu
marki meira. Mikið einvígi er því
framundan í síðustu 11 umferðum
deildarinnar.
Pirlo var bjargvættur AC Milan
Reuters
Andrea Pirlo fagnar sigur-
marki sínu fyrir AC Milan.
BRYNJAR Björn Gunnarsson lék
sinn fyrsta deildarleik fyrir Wat-
ford síðan í janúar þegar lið hans
tapaði, 2:3, fyrir Coventry á heima-
velli í ensku 1. deildinni á laugar-
daginn. Brynjar Björn meiddist
gegn Liverpool í deildabikarnum og
var frá keppni í sex vikur. Hann var
meðal varamanna en lék síðasta
hálftímann. Heiðar Helguson var
ekki í liði Watford vegna meiðsla.
ÍVAR Ingimarsson lék allan leik-
inn með Reading sem gerði marka-
laust jafntefli við QPR á útivelli í
ensku 1. deildinni.
BJARNI Guðjónsson sat á vara-
mannabekknum allan tímann þegar
lið hans, Plymouth, tapaði, 1:0, fyrir
Derby County í 1. deild.
JÓHANNES Karl Guðjónsson
tók út fyrri leikinn í tveggja leikja
banni þegar Leicester tapaði fyrir
Nottingham Forest á heimavelli,
0:1, í 1. deild.
ÞÓRÐUR Guðjónsson og
Tryggvi Guðmundsson voru ekki í
leikmannahópi Stoke City sem vann
Brighton, 2:0, í 1. deildinni.
GYLFI Einarsson lék ekki með
Leeds vegna meiðsla þegar lið hans
gerði jafntefli, 1:1, við Millwall í 1.
deildinni í gær.
HJÁLMAR Þórarinsson hjá
Hearts og Þórarinn Kristjánsson
hjá Aberdeen léku ekki með liðum
sínum í skosku úrvalsdeildinni um
helgina. Þeir hafa báðir verið frá
keppni að undanförnu, Þórarinn
vegna ökklameiðsla og Hjálmar
vegna meiðsla í baki.
GRÉTAR Rafn Steinsson og fé-
lagar í Young Boys gátu ekki leikið
gegn Aarau í svissnesku 1. deildinni
í knattspyrnu um helgina þar sem
heimavöllur liðsins í Bern var fros-
inn. Þetta er þriðji leikur Young
Boys síðustu vikurnar sem er frest-
að af þessum ástæðum.
JEREMY Peace stjórnarformað-
ur enska úrvalsdeildarliðsins WBA
segir að nígeríski landsliðsmaður-
inn Kanu geti farið frá félaginu fari
svo að WBA falli úr ensku úrvals-
deildinni. Kanu gerði þriggja ára
samning við WBA s.l. sumar.
LÖGREGLAN í Manchester og
nágrenni hefur hótað að afturkalla
leyfi Wigan, efsta liðsins í ensku 1.
deildinni í knattspyrnu, til að spila á
heimavelli sínum, JJB-stadium, frá
og með deginum í dag. Wigan
skuldar um 36 milljónir vegna ör-
yggisgæslu á heimaleikjum og neit-
ar að greiða vegna ósanngjarnar
verðlagningar. Dave Whelan, eig-
andi Wigan, segir að það nái ekki
nokkurri átt að félagið þurfi að
greiða um 5,2 milljónir króna fyrir
löggæslu á hverjum leik en ná-
grannaliðið Preston þurfi aðeins að
greiða 900 þúsund krónur fyrir það
sama.
FÓLK
Hermann lék að vanda allan leik-inn með Charlton sem er í átt-
unda sæti, aðeins þremur stigum á
eftir Liverpool sem er í fimmta sæti,
en liðin sem enda í 5. og 6. sæti kom-
ast í UEFA-bikarinn.
Baráttan um Evrópusætin harðn-
aði enn því Newcastle vann Liver-
pool, 1:0, með marki sem Laurent
Robert skoraði beint úr aukaspyrnu.
Aston Villa vann Middlesbrough,
2:0, með mörkum frá Martin Laur-
sen og Luke Moore.
Tottenham missti af góðu tæki-
færi, tapaði 1:0 í Southampton þar
sem Nigel Quashie skoraði eina
markið, með hörkuskalla, og tryggði
sínu liði þrjú mikilvæg stig í fallbar-
áttunni.
WBA bætti einnig stöðu sína á
botninum með því að sigra Birming-
ham, 2:0, með mörkum frá Neil
Clement og Kevin Campbell. WBA
komst upp fyrir Norwich en er fimm
stigum frá því að sleppa úr fallsæti.
„Það er gott veganesti að komast úr
neðsta sæti deildarinnar. Það er góð-
ur áfangi en við vitum að barátta
okkar um að halda sæti okkar í deild-
inni verður hörð allt til enda. En við
erum með meira sjálfstraust fyrir
lokabaráttuna en áður,“ sagði Bryan
Robson knattspyrnustjóri WBA en
hann hrósaði Geoff Horsfield fram-
herja liðsins í hástert eftir leikinn.
Blackburn vann óvæntan sigur á
Everton á útivelli, 1:0, þar sem Jon
Stead skoraði sigurmarkið, 20 mín-
útum fyrir leikslok. Blackburn
komst með sigrinum sjö stigum frá
fallsæti deildarinnar. Everton nýtti
hinsvegar ekki tækifæri til að ná ell-
efu stiga forskot á granna sína í Liv-
erpool í baráttunni um fjórða sætið
og þátttökurétt í forkeppni Meist-
aradeildarinnar.
AP
a Bouba Diop, leikmann Fulham í Lundúnaorrustu á laugardaginn.
Dýrmæt stig í súg-
inn hjá Charlton
HERMANN Hreiðarsson og samherjar hans í Charlton misstu af dýr-
mætum stigum í baráttunni um Evrópusæti þegar þeir gerðu
markalaust jafntefli við Fulham á útivelli í nágrannaslag á laugar-
daginn. Charlton fékk nokkur úrvalsfæri til að gera út um leikinn en
leikmenn liðsins, sérstaklega Shaun Bartlett, virtust hafa skilið
skotskóna eftir í Suðaustur-London.
■ Úrslit / C6
Guðjón Valur