Morgunblaðið - 07.03.2005, Qupperneq 8
BERGUR Ingi Pétursson úr FH
setti unglingamet í sleggjukasti,
bæði í flokkum 19–20 ára og 21–22
ára, á kastmóti í Finnlandi á laug-
ardaginn. Hann kastaði 64,80 metra
en Íslandsmet Guðmundar Karls-
sonar í flokki fullorðinna er 66,28
metrar. Bergur, sem verður tvítug-
ur í ár, átti sjálfur gamla metið í 19–
20 ára flokki, 61,36 metra, en það
setti hann í fyrra. Jón Sigurjónsson
átti hins vegar metið í 21–22 ára
flokki, 62,02, sett fyrir 14 árum.
JOACHIM B. Olsen sigraði í kúlu-
varpi á Evrópumeistaramótinu inn-
anhúss í Madríd á Spáni en hann
varpaði kúlunni 21,19 metra. Vé-
steinn Hafsteinsson er þjálfari Ol-
sens sem fékk bronsverðlaun í grein-
inni á Ólympíuleiknum í Aþenu en
hann 27 ára og vegur 135 kg. Kastið
er það lengsta í Evrópu á þessu ári
en annar varð hollendingurinn Rutg-
er Smith með 20,79 metra og þriðji
varð Spánverjinn Manuel Martinez
sem hafði titil að verja á EM en hann
kastaði 20,51 metra á heimavelli.
GREG Norman hætti keppni á
Dubai-mótinu í golfi áður en önnur
umferð hófst á föstudaginn vegna
bakmeiðsla. Norman, sem einokaði
efsta sæti heimslistans á árum áður,
fagnaði fimmtugsafmæli sínu í síð-
asta mánuði, en hann lék á 74 högg-
um á fyrsta keppnisdegi mótsins.
Norman ætlar sér að leika á móti
sem hefst þann 24. mars en um er að
ræða fyrsta mótið á mótaröð eldri
kylfinga þar sem hann tekur þátt.
JACKSON Richardson, fyrirliði
franska landsliðsins í handknattleik,
ætlar að hætta hjá Portland á Spáni
þegar samningur hans þar rennur út
í vor. Richardson, sem er 35 ára,
sagði við franska blaðið L’Equipe að
hann vildi ljúka ferlinum hjá frönsku
félagi. Talið er líklegast að hann
gangi til liðs við Paris Handball en
Chambéry kæmi einnig til greina.
Richardson sagði ennfremur að
Barcelona og Flensburg hefðu viljað
fá sig í sínar raðir og Portland hefði
boðið sér nýjan samning.
FÓLK
BIKARMEISTARALIÐ Njarð-
víkur í körfuknattleik karla
hefur samið við tvo banda-
ríska leikmenn sem leika með
liðinu í úrslitakeppni úrvals-
deildarinnar, Intersportdeild,
en félagið sagði upp samning-
um við Anthony Lackey og
Matt Sayman fyrir skemmstu.
Einar Árni Jóhannsson, þjálf-
ari Njarðvíkinga, sagði í gær
að Alvin Snow, 24 ára bak-
vörður, væri nú þegar kominn
til landsins og von væri á öðr-
um leikmanni á allra næstu
dögum. „Ég vil ekki gefa upp
nafnið á þeim leikmanni sem
er á leið til landsins að svo
stöddu,“ sagði Einar. Snow
lék með liði í ABA-deildinni í
vetur í Bandaríkjunum og sá
leikmaður sem er á leið til
landsins lék einnig með liði í
ABA-deildinni í vetur. „Sá
leikmaður er framherji og
vonandi gengur þessi áætlun
okkar upp í úrslitakeppinni.
Við tökum vissulega mikla
áhættu með þessu en við telj-
um að þetta sé besti kosturinn
í stöðunni,“ sagði Einar en
Njarðvík leikur gegn ÍR í átta
liða úrslitum og verður fyrsti
leikurinn á föstudaginn í
Njarðvík.
Snow til
Njarðvíkur
„ÉG er mjög ánægður,“ sagði Dýri
Kristjánsson úr Gerplu en hann
vann mikilvæg stig fyrir sitt lið,
varð meðal annars stigahæstur á
tvíslá og svifrá. „Í dag keppti ég
meðal annars í gólfæfingum, sem ég
hef ekki gert lengi því ég geri lítið
af því í skólanum og hugsaði meira
um svifrána og tvíslána, sem eru
greinar sem ég er nógu góður í til
að keppa fyrir skólaliðið mitt. Ég sé
mikinn mun á strákunum hér heima
síðan ég keppti hér fyrir fjórum ár-
um. Það er gaman að sjá hvað það
eru margir strákar með erfiðar æf-
ingar, jafnvel litlir guttar sem eru
orðnir stærri en ég. Það er líka
meiri stemming á þessum mótum.
Ég kom til landsins fyrir tveimur
dögum síðan og hef reynt að sofa til
að koma líkamanum í gott lag eftir
langt flug því þegar ég keppti hér
fyrir fjórum árum kom ég degi fyrir
mót og klúðraði algjörlega,“ bætti
Dýri við en hann er á fjórða og síð-
asta ári við nám í hagfræði í háskól-
anum í Minnaesota. Framtíðin er
því björt. „Foreldrarnir vilja að ég
komi heim en mig langar að vera
lengur í Bandaríkjunum, mér líkar
vel þar. Mér þætti gaman að komast
á Evrópumót, og ef mér svo gengur
vel, af hverju ætti ég ekki að fara á
heimsmeistaramót? Ég sé til þegar
ég útskrifast. Ég á enn nóg eftir og
luma á mörgum æfingum, ég er allt-
af að læra þó ég sé orðinn tuttugu
og fimm ára gamlingi.“
Alls mættu um 250 keppendur tilleiks og það er svipaður fjöldi
og undanfarin ár. Helsta keppnin er í
frjálsum æfingum
því félögin geta að-
eins sent til leiks 5
stúlkur eða 6 pilta
sem hafa unnið sig
upp í þann flokk. Það er því mikil
keppni innan hvers lið um að komast
að og margt gott fimleikafólk situr
eftir.
Þrjú lið voru skráð til leiks í karla-
flokki, tvö frá Ármanni og eitt frá
Gerplu. Í hverju liði eru 6 keppendur
en 5 keppa og fjórar bestu einkunnir
telja. Keppt var í gólfæfingum, boga-
hesti, hringjum, stökkum, tvíslá og
svifrá.
Gerpla tefldi fram tveimur sterk-
um keppendum, Dýra Kristjánssyni
sem keppir og æfir í Bandaríkjunum
og Viktori Kristmannssyni, sem er
nýkominn úr tveggja mánaða æf-
ingaferð.
Lærði mjög mikið í Lettlandi
„Við vorum alls ekki vissir um að
vinna en strákarnir í okkar liði hafa
æft mjög vel,“ sagði Viktor Krist-
mannsson úr Gerplu en sjálfur var
hann við æfingar með Rúnari Alex-
anderssyni í Riga í Lettlandi.
„Ég lærði mjög mikið þar og hef
bætt mig mikið, eins og dómararnir
hérna bentu á. Ég er að búa mig und-
ir erfiðari æfingar á stóru mótunum
til að eiga möguleika þar. Markmiðið
er Ólympíuleikar en á Evrópu-
mótinu í júní ætla ég að gera mitt
besta og hef trú á til dæmis boga-
hesti,“ sagði Viktor við Morgunblað-
ið.
Rúnar að jafna sig
eftir uppskurð
Ármenningar voru einnig með
frambærilega drengi en meiðsli hafa
hrjáð þá, Antoni Heiðari Þórólfssyni
tókst þó vel upp. Rúnar Alexand-
ersson úr Gerplu var ekki með fé-
lögum sínum því hann er að ná sér
eftir uppskurð á öxl, og Evrópumót
framundan.
Keppni í kvennaflokki var öllu
meira spennandi þar sem keppt var í
stökkum, gólfæfingum, jafnvægisslá
og tvíslá. Grótta hefur tekið titilinn
undanfarin tvö ár en Gerpla hefur
með ungum stúlkum saxað á forskot-
ið, það sýndi sig á Þorramótinu fyrir
rúmri viku og á laugardaginn var ís-
inn brotinn.
Áttum ekki von á þessu
„Við áttum alls ekki von á þessum
sigri en þetta er í fyrsta sinn í langan
tíma sem Gerpla vinnur allt,“ sagði
Inga Rós Gunnarsdóttir, fyrirliði
Gerplu, með bikarinn eftir mótið.
„Við mættum til að gera okkar
besta og sjá síðan hvert það skilar
okkur. Okkur tókst ágætlega upp í
heildina enda má lítið út af bregða til
að úrslit breytist, það þarf ekki nema
eina bogna tá í einni æfingu. Við
brutum ísinn með þessu sigri og er-
um komnar á bragðið.“
Engu að síður var Sif Pálsdóttir úr
Gróttu stigahæst í kvennaflokki en
það dugði ekki til. Sjálf er Sif að
jafna sig eftir veikindi. „Það er ekk-
ert að mér. Það má segja að þetta
hafi verið sanngjarnt að þær vinni
einhvern tímann eftir að við höfum
unnið undanfarin tvö ár. Við tökum
þetta bara næsta ár, það er alveg á
hreinu,“ sagði Sif.
Sögulegur
sigur hjá
Gerplu
BLAÐ var brotið í fimleikasögunni í Laugardalshöll á laugardaginn
þegar Gerpla sigraði í fyrsta sinn í bæði karla- og kvennaflokki á
Bikarmótinu í frjálsum æfingum. Reyndar voru piltarnir að vinna
10. árið í röð en stúlkurnar í fyrsta sinn síðan á níunda áratugnum,
þegar þær tóku titilinn af Gróttu eftir harða keppni og unnu með
95,4 stigum gegn 94,219.
Morgunblaðið/Ómar
Inga Rós Gunnarsdóttir, fyrirliði kvennaliðsins hjá Gerplu, á
jafnvægisslánni í Laugardalshöll. Hún vann langþráðan sigur
en Inga Rós hefur oft endað í öðru sæti með sínu liði.
Morgunblaðið/Ómar
Dýri Kristjánsson, fyrirliði karlaliðs Gerplu, í æfingum á boga-
hesti í Laugardalshöllinni á laugardaginn.
Stefán
Stefánsson
skrifar
„Luma enn
á æfingum“