Morgunblaðið - 17.03.2005, Síða 2
ÍÞRÓTTIR
2 D FIMMTUDAGUR 17. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
Fjölnir – Skallagrímur 72:70
Íþróttahúsið í Grafarvogi, úrslitakeppni
karla, Intersportdeildin, þriðji leikur í 8liða
úrslitum, miðvikudagur 16. mars 2005.
Gangur leiksins: 2:0, 2:6, 6:13, 10:19, 16:26,
24:26, 31;30, 31:37, 33:42, 37:44, 37:46,
49:46, 49:49, 56:53, 60:60, 68:65, 68:69,
72:69, 72:70.
Stig Fjölnis: Jeb Ivey 21, William Coley 21,
Pálmar Ragnarsson 9, Nemanja Sovic 8,
Guðni Valentínusson 8, Magnús Pálsson 3,
Helgi Þorláksson 2.
Fráköst: 21 í vörn, 14 í sókn.
Stig Skallagríms: Clifton Cook 23, George
Byrd 23, Jovan Zdravevski 11, Ragnar
Steinsson 6, Pálmi Sævarsson 4, Hafþór
Gunnarsson 3.
Fráköst: 27 í vörn, 19 í sókn.
Villur: Fjölnir 20 – Skallagrímur 17.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Erlingur
Snær Erlingsson. Komust að mestu stór-
slysalaust frá erfiðum leik.
Áhorfendur: Um 800
Fjölnir vann 2:1.
Keflavík – Grindavík 80:75
Íþróttahúsið í Keflavík:
Gangur leiksins: 4:0, 10:3, 14:6, 19:10,
23:15, 23:23, 31:23, 32:26, 38:30, 44:37,
51:41, 55:48, 58:51, 60:56, 62:60, 64:60,
68:60, 70:65, 72:67, 80:75.
Stig Keflavíkur: Nick Bradford 29, Anth-
ony Glover 19, Jón N. Hafsteinsson 12,
Magnús Gunnarsson 9, Arnar Jónsson 5,
Elentínus Margeirsson 2, Davíð Þ. Jónsson
2, Sverrir Sverrisson 2.
Fráköst: Sókn 16, vörn 32.
Stig Grindavíkur: Darrel Lewis 22, Jeff
Boshee 20, Terrel Taylor 15, Páll Axel Vil-
bergsson 13, Helgi Jónas Guðfinnsson 5
Fráköst: Sókn 13, vörn 29.
Villur: Keflavík 24 , Grindavík 20
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Rögn-
valdur Hreiðarsson. Stóðu sig vel í miklum
spennuleik.
Áhorfendur: Um 700 manns.
Keflavík vann 2:1.
Snæfell – KR 116:105
Stykkishólmur:
Gangur leiksins: 2:2, 9:13, 18:19, 27:29,
30:31, 40:44, 46:44, 49:50, 51:55, 62:59,
67:65, 71:73, 83:79, 88:83, 96:88, 105:195,
116:105.
Stig Snæfells: Mike Ames 35, Sigurður
Þorvaldsson 22, Ingvaldur Magni Haf-
steinsson 20, Pálmi Sigurgeirsson 12,
Hlynur Bæringsson 11, Calvin Clemmons
10, Helgi Reynir Guðmundsson 4.
Fráköst: 24 í vörn – 8 í sókn.
Stig KR: Aaron Harper 35, Cameron Ech-
ols 29, Lárus Jónsson 12, Ólafur Már Æg-
isson 11, Jón Ólafur Jónsson 9, Hjalti
Kristinsson 6, Niels Dungal 3.
Fráköst: 22 í vörn – 10 í sókn.
Villur: Snæfell 17 – KR 25.
Dómarar: Einar Skarphéðinsson og Sig-
mundur Már Herbertsson.
Áhorfendur: Um 400, troðfullt hús.
Snæfell vann 2:1.
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Cleveland – Utah...................................92:73
Philadelphia – LA Lakers ..................108:91
Miami – New York ................................98:96
Seattle – Chicago...................................99:93
Minnesota – Dallas..............................100:91
Sacramento – Orlando ........................105:94
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland
Magdeburg – Düsseldorf......................35:27
Göppingen – Gummersbach.................30:25
Grosswallstad – Flensburg ..................27:25
Hamburg – GWD Minden ....................30:30
Pfullingen – Lemgo...............................24:32
Wetzlar – Tusem Essen........................30.37
Staðan:
Kiel 24 20 2 2 761:649 42
Flensburg 24 19 2 3 732:606 40
Magdeburg 23 18 0 5 763:668 36
Hamburg 24 15 2 7 677:633 32
Nordhorn 24 15 1 8 707:665 31
Essen 24 14 3 7 672:632 31
Lemgo 24 15 0 9 728:639 30
Gummersb. 24 13 1 10 689:639 27
Wallau 24 12 3 9 692:696 27
Göppingen 24 12 2 10 678:663 26
Wetzlar 24 9 1 14 669:725 19
Wilhelmshav. 24 9 1 14 644:709 19
Lübbecke 24 8 2 14 711:734 18
Großwallst. 25 8 1 16 653:704 17
Pfullingen 24 5 1 18 613:706 11
Minden 24 3 4 17 646:733 10
Düsseldorf 24 4 2 18 606:699 10
Schwerin 24 3 0 21 609:750 6
KNATTSPYRNA
England
Liverpool – Blackburn.............................0:0
37.763.
Charlton – Tottenham ..................................
J. Thomas 4., D. Murphy 85. - 26.870.
Staða efstu liða:
Chelsea 29 23 5 1 54:9 74
Man. Utd 29 18 9 2 47:17 63
Arsenal 29 18 7 4 67:32 61
Everton 29 15 6 8 34:30 51
Liverpool 29 13 5 11 41:30 44
Bolton 29 12 7 10 37:34 43
Charlton 29 12 7 10 34:38 43
Middlesbro 29 11 9 9 43:39 42
Tottenham 29 11 6 12 35:33 39
Aston Villa 29 10 8 11 34:37 38
Newcastle 28 9 10 9 40:44 37
Man. City 29 9 9 11 34:32 36
1. deild
Derby – QPR .............................................0:0
Nottingham Forest - Leeds .....................0:0
UEFA-bikarinn
16-liða úrslit, seinni leikir:
Alkmaar - Shakhtar Donetsk..................2:1
Barry van Gale 9., M. Meerdink 65. - B. El-
ano 66. – 8.293.
Alkmaar vann samtals 5:2.
Newcastle – Olympiakos .........................4:0
Kieron Dyer 18., Alan Shearer 45., 69., Lee
Bowyer 54. – 32.162.
Newcastle vann samtals 7:1.
16-liða úrslit, fyrri leikur:
Steaua Búkarest – Villarreal ................. 0:0
Ítalía
Bikarkeppnin, 8 liða úrslit, seinni leikir:
Fiorentina – Roma................................... 1:0
Matteo Ferrari 11.
Liðin skildu jöfn samtals 1:1. Roma sigr-
aði í vítakeppni, 7:6.
Udinese – AC Milan..................................4:1
V. Iaqvinta 21., S. Mauri 61., 89., D. Mic-
hele 81. – vítasp. – J.D. Tomasson 77.
Udinese vann samtals 6:4.
Belgía
Standard Liege – La Louviere ................1:0
Bikarkeppnin:
Gent – Lokeren..........................................0:1
Lierse – Charleroi .....................................2:0
Sigurliðin eru komin í undanúrslit.
Holland
Den Haag – Heereveen ............................0:2
Frakkland
St Etienne – Ajaccio..................................3:1
Strasbourg – Mónakó .............................. 0:0
Sochaux – Metz..........................................2:1
Spánn
Atletico Bilbao – Getafe............................1:2
Skotland
Inverness – Celtic .....................................0:2
BLAK
Úrslitakeppni karla, annar leikur:
HK – Stjarnan ...........................................3:1
(25:17, 27:25, 21:25, 25:15)
HK vann samtals 2:0 og varð Íslands-
meistari.
SKOTFIMI
Digranesi:
60 skot liggjandi riffill:
Arnfinnur Jónsson ...................................583
Eyjólfur Óskarsson..................................570
Carl J. Eiríksson ......................................570
Ól-lágmark er 587 stig. Arnfinnur var yf-
irdómari, Eyjólfur mótsstjóri og Carl að-
stoðardómari.
Gróf skammbyssa:
Hannes Tómasson....................................517
Karl Kristinsson.......................................510
Carl J. Eiríksson ......................................507
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni 1. deild kvenna, undanúr-
slit, fyrstu leikir:
Grindavík: UMFG - Haukar.................19.15
Keflavík: Keflavík - ÍS ..........................19.15
Í KVÖLD
„VIÐ ætlum okkur að komast í úrslitin í Ungverja-
landi í sumar,“ sagði Viggó Sigurðsson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik, þegar hann tilkynnti
landsliðshópinn skipaðan leikmönnum 20 ára og
yngri sem keppir við Austurríki, Holland og Úkra-
ínu hér heima um páskana. Eitt lið kemst í úr-
slitakeppnina.
Markverðir liðsins eru Björgvin Gústavsson, HK,
Davíð Svansson, Aftureldingu, og Pálmi Pét-
ursson, Val. Aðrir leikmenn: Andri Stefan, Hauk-
um, Arnór Atlason, Magdeburg, Árni Björn Þór-
arinsson, Víkingi, Árni Þór Sigtryggsson, Þór,
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Haukum, Daníel Berg
Grétarsson, Gróttu/KR, Einar Ingi Hrafnsson, Aft-
ureldingu, Ernir Hrafn Arnarsson, Aftureldingu,
Hrafn Ingason, Aftureldingu, Ívar Grétarsson, Sel-
fossi, Jóhann Gunnar Einarsson, Fram, Kári Krist-
jánsson, ÍBV, Magnús Stefánsson, KA, Ragnar
Hjaltested, Víkingi, og Ragnar Njálsson, KA.
Viggó velur 20
ára landsliðið
HERMANN Hreiðarsson og félagar hans í liði Charlton
tylltu sér við hlið Bolton í 6.–7. sæti í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gærkvöld þegar þeir báru sigurorð af grönn-
um sínum í Tottenham, 2:0. Jerome Thomas, fyrrum liðs-
maður Arsenal, skoraði fyrra markið strax á 4. mínútu með
þrumufleyg og gamli Liverpool-leikmaðurinn Danny
Murphy innsiglaði sigur Charlton með marki beint úr auka-
spyrnu á 85. mínútu eftir að brotið hafði verið á Hermanni
rétt utan teigsins. Hermann lék að vanda allan leikinn í liði
Charlton og stóð svo sannarlega fyrir sínu. Charlton er því
komið í bullandi baráttu um Evrópusæti.
Liverpool varð að sætta sig við markalaust jafntefli
Blackburn á heimavelli sínum, Anfield, og missti þar af
tækifæri til að saxa á forskot granna sinna í Everton sem er
sjö stigum á undan í fjórða sætinu. Liverpool náði sér ekki á
strik gegn vel skipulögðu liði Blackburn og þá var Brad
Friedel öryggið uppmálað í marki gestanna sem kræktu í
mikilvægt stig en lærisveinar Mark Hughes eru í 14. sæt-
inu.
Charlton í baráttu
um Evrópusæti
„ÞETTA var leikur sem gat farið á
alla vegu. Ég var alls ekki öruggur
um sigur fyrr en flautað var til
leiksloka,“ sagði Bárður Eyþórsson
þjálfari Snæfells eftir sigurleikinn
gegn KR. „Ég tel að Mike Ames
hafi ekki leikið betur fyrir okkur í
vetur og hann nýtti skotin sín afar
vel. Og að auki voru Ingvaldur
Magni Hafsteinsson og Sigurður
Þorvaldsson frábærir.“ Bárður
sagði að það hefði ekki verið
óvenjulegt að halda Calvin Clemm-
ons miðherja liðsins utan við liðið í
fjórða leikhluta eins og hann lagði
sig. „Ég ræð og hann má alveg
vera svekktur. Við vorum að leika
vel á þessum tíma í leiknum og ef
svo er þá er mér alveg sama hverjir
eru inná vellinum. Við lékum
svæðisvörn um tíma og skiptum
síðan um vörn þegar þeir settu
skytturnar sínar inná. Þetta gekk
upp hjá okkur en það hlýtur að
hafa verið gaman að horfa á leik-
inn þar sem hittni leikmanna var
með ólíkindum.“ Snæfellsliðið mæt-
ir Fjölni í undanúrslitum og verður
þar með heimaleikjaréttinn en
Bárður telur að næstu rimmur
verði erfiðar. „Við lékum til úrslita
í fyrsta sinn í sögu félagsins í fyrra
og töpuðum þar gegn Keflavík. En
ég tel að deildin sé mun sterkari í
ár en í fyrra. Það verður því erfitt
að komast enn lengra en við erum
reynslunni ríkari og það er ekki
góð tilfinning að fara í gegnum
sumar með tap í úrslitum á bakinu.
Því fengum við að kynnast í fyrra
og vonandi erum við reynslunni
ríkari.“ Bárður hrósaði leikmönn-
um sínum og taldi að þeir sjö leik-
menn sem komu við sögu hefðu
skila sínu og vel það. „Við vitum
oftast ekki hvaðan við fáum stigin í
okkar liði. Að þessu sinni var það
Ames sem var þar fremstur í flokki
og á meðan voru aðrir leikmenn að
gera aðra hluti vel sem skiptir
einnig miklu máli fyrir liðið. Vörn
og fráköst. Ingvaldur Magni lék
líka gríðarlega vel og gaman að sjá
hann í ham gegn sínu gamla liði,“
sagði Bárður Eyþórsson.
Stoltur af strákunum
„Ég er ekki sammála því að
svæðisvörnin hafi gert út um leik-
inn hjá okkur,“ sagði Herbert Arn-
arson, þjálfari KR. Hann var að
sjálfsögðu ósáttur við úrslitin. „Við
getum lagt dæmið upp með þeim
hætti að við höfum hent tækifærinu
frá okkur á heimavelli fyrir framan
okkar stuðningsmenn. Það er leik-
ur sem við munum hugsa lengi um,
enda þarf lið sem ætlar sér eitthvað
í úrslitakeppninni að ljúka við slík
verkefni þegar tækifærin gefast.
En ég er hinsvegar ánægður með
strákana í þessum leik. Þeir lögðu
sig fram og voru klárir í slaginn
eftir tapið á heimavelli og ég var
stoltur af þeim. Það sem gerði út-
slagið var slök vörn okkar í lok
leiksins,“ sagði Herbert.
Gat farið á
alla vegu
Svæðisvörn Snæfells í upphafifjórða leikhluta gerði út um
sóknarleik KR þar sem Aaron Harp-
er og Cameron Ech-
ols höfðu farið á
kostum og dregið
vagninn. Leiktíðinni
er lokið hjá KR sem
hefðu hæglega getað lagt Snæfell að
velli í oddaleiknum en á lokakaflan-
um dró í sundur með liðunm og má
segja að breiddin hafi einfaldlega
verið meiri hjá Snæfelli, auk þess
sem Mike Ames lék sinn besta leik á
tímabilinu og skoraði alls 35 stig í liði
Snæfells, en að auki voru Sigurður
Þorvaldsson og Ingvaldur Magni
Hafsteinsson frábærir.
KR-ingar mættu til leiks án fyr-
irliða síns, Steinars Kaldals, sem
meiddist alvarlega í öðrum leik lið-
ana. Virtist sem KR-ingar hefðu
þjappað sér vel saman vegna atviks-
ins og fóru Bandaríkjamennirnir í
liðinu á kostum í upphafi leiks. Það
var nánast sama hvað þeir Aaron
Harper og Cameron Echols reyndu
en skot þeirra virtust ávallt rata
rétta leið. Þeir félagar skoruðu sam-
an 27 stig af alls 29 stigum liðsins í
fyrsta leikhluta. En gríðarlegur
hraði einkenndi leikinn, þar sem KR-
ingar nýttu sér hraðar sóknir hvað
eftir annað. Nokkuð sem Bárður Ey-
þórsson þjálfari Snæfells ætlaði sér
að reyna að koma í veg fyrir. Echols
var gríðarlega öflugur í teignum og
skoraði alls 22 stig í fyrri hálfleik og
Harper var með 17 stig.
Mike Ames og Calvin Clemmons,
Bandaríkjamennirnir í liði Snæfells
byrjuðu einnig vel, Clemmons er
mikill að burðum og lætur til sín taka
í vítateignum en Ames er skytta og
skoraði 14 stig í fyrri hálfleik. En
Ames átti eftir að láta mikið að sér
kveða í leiknum
Hittnin í fyrri hálfleik var með
ólíkindum góð hjá báðum liðum og
var eins og leikmenn beggja liða
væru mættir til þess að skemmta
áhorfendum í mikilvægasta leik
tímabilsins.
Sóknarleikur Snæfells gekk ekki
eins vel og hjá KR-ingum þrátt fyrir
að munurinn væri aldrei mikill á lið-
unum. Ingvaldur Magni Hafsteins-
son, fyrrum KR-ingur, átti fína
skorpu eftir að hann kom inná og
skoraði hann 9 stig á stuttum tíma.
Sigurður Þorvaldsson var einnig öfl-
ugur en lítið fór fyrir Hlyni Bærings-
syni og Pálma Frey Sigurgeirssyni.
Snæfellsliðinu gekk illa að skora
eftir að Mike Ames fór útaf og Ech-
ols skoraði 6 stig í röð og Ólafur Æg-
isson bætti við þriggja stiga körfu og
var staðan þá 44:40 KR í vil.
Bárður tók þá leikhlé og heima-
menn jöfnuðu í 44:44, þar sem
Clemmons og Hlynur voru sterkir
undir körfunni.
Í upphafi síðari hálfleiks fór að
hægja á Echols í sóknarleiknum en
það skipti ekki máli þar sem Harper
fór á kostum í þriðja leikhluta og
skoraði alls xx stig. Snæfell brá á það
ráð að hefja fjórða leikhluta á svæð-
isvörn sem virtist ná að hemja Harp-
er enda hafði hann haldið KR-liðinu
á floti í síðari hálfleik.
Clemmons fór á bekkinn í liði
Snæfells og kom ekkert við sögu í
þeim leikhluta. Djörf ákvörðun hjá
Bárði sem tókst en Clemmons var
langt frá því að vera ánægður er
hann stóð við enda varamanna-
bekksins og beið eftir því að fá kallið
frá Bárði.
Ingvaldur Magni og Sigurður Þor-
valdsson sáu um skora að mestu í
fjórða leikhluta og Ames hélt sínu
striki. Snæfell náði 8 stiga forskoti,
96:88, og eftir það var á brattann að
sækja hjá KR.
Það vakti athygli að Herbert Arn-
arson þjálfari KR lét Ólaf Ægisson,
skyttu liðsins, vera utan vallar að
mestu þegar mest á reyndi gegn
svæðisvörninni. Öll áhersla var lögð
á að töðva Harper og gekk herbragð
Snæfells fullkomlega upp. Lokakafli
leiksins fór að mestu fram á vítalín-
unni þar sem leikmenn Snæfells
skoruðu grimmt eftir að KR-ingar
höfðu brotið á þeim.
Lið Snæfells lék vel þegar mest á
reyndi og þríeykið Ames, Sigurður
og Ingvaldur Magni fór fyrir sínu
liði. Það bar ekki eins mikið á Hlyni
Bæringssyni að þessu sinni en hann
lagði sitt af mörkum eins og alltaf.
Pálmi Sigurgeirsson stjórnaði leikn-
um með ágætum. Það fór oft lítið fyr-
ir því að leikmenn beggja liða væru
að leita að besta skotfærinu, en loka-
tölurnar bera þess merki að sókn-
irnar voru stuttar – en hnitmiðaðar.
KR-ingar naga sig eflaust í hand-
arbökin eftir að hafa fallið úr keppni
í átta liða úrslitum en liðið var með
pálmann í höndunum á heimavelli á
sunnudaginn í öðrum leiknum eftir
að hafa sigrað naumlega í fyrsta
leiknum í Stykkishólmi. Harper og
Echols eru frábærir leikmenn sem
skila sínu og Lárus Jónsson var
einnig öflugur. Það vantaði herslu-
muninn hjá KR þegar mest á reyndi
í vörn sem sókn og á lokakaflanum
fengu Snæfellingar að vaða í gegnum
vörn liðsins með einföldum hætti.
Mike Ames
sá um KR
ODDALEIKUR Snæfells og KR í átta liða úrslitum úrvalsdeildar
karla, Intersportdeildarinnar, var sigur fyrir sóknarleikinn enda var
skorið hátt. Snæfell hafði tapað fyrsta leiknum á heimavelli gegn
KR og voru þeir staðráðnir í að halda áfram eftir sigurleikinn í
Reykjavík, og það gekk upp. Snæfell skoraði 116 stig gegn 105
stigum KR og mætir Snæfell liði Fjölnis í undanúrslitum.
Sigurður
Elvar
Þórólfsson
skrifar
„ÉG
vand
bærl
í vet
son,
sæti
„Þ
en vi
síðan
Þa
men
þess
ur át
trek
að só
köflu
vegn
lögu
að fá
leik
inna
nýlið
Þa
fór o
hann
fyrir
vildi
fynd
því v
hefu
hver
fínan
við g
ari e
við s
sáttu
E