Morgunblaðið - 17.03.2005, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 17.03.2005, Qupperneq 4
FÓLK  JÓHANNES Bjarnason, þjálfari KA, ætlaði að vera Viggó Sigurðs- syni innan handar og aðstoða hann með U-20 ára landsliðið sem leikur hér um páskana, en hann varð að hætta við það vegna anna í vinnu og verða þeir Viggó og Berg- sveinn Bergsveinsson með liðið, rétt eins og A-landsliðið.  HSÍ og VISA Ísland endurnýj- uðu samstarfssamning sinn í gær til eins árs.  HANNES Þ. Sigurðsson og fé- lagar hans í norska liðinu Viking töpuðu, 1:0, í æfingaleik fyrir enska liðinu Wygombe í London í gær. Hannes var í byrjunarliði Viking en var skipt út af eftir klukkutíma leik.  IGOR Biscan, leikmaður Liver- pool, er orðaður við þýska liðið HSV, en samningur Króatans við Liverpool rennur út í sumar.  TEDDY Sheringham, framherji West Ham, segir að Blackburn hafi reynt að kaupa sig í janúar en West Ham hafi neitað tilboði fé- lagsins. Sheringham, sem er 38 ára gamall, er enn í fullu fjöri og hefur gert 14 mörk fyrir Hamrana í vetur.  LÖGREGLAN í Sviss handtók í gær Marc Roger, fyrrverandi for- seta Servette, fyrir meint fjársvik. Servette var lýst gjaldþrota ekki alls fyrir löngu og er talið að Rog- er, sem var umboðsmaður knatt- spyrnumanna áður en hann gerðist forseti félagins fyrir rúmu ári, hafi svikið talsvert fé út úr félaginu.  OLEK Blokhin sagði af sér starfi landsliðsþjálfara Úkraínu í knatt- spyrnu í gær. Hann var neyddur til afsagnar en það þótti ekki við hæfi að hann væri landsliðsþjálfari samhliða því að vera þingmaður. Blokhin er þingmaður stjórnar- andstöðunnar sem tapaði forsetakosningunum í lok síðasta árs. Blokhin náði fínum árangri með landsliðið á þeim skamma tíma sem hann hefur sinnt því. Úkraínumenn eru efstir í 2. riðli með 14 stig eftir 6 leiki og mæta þeir Dönum á heimavelli í und- ankeppni HM eftir hálfan mánuð.  RAÚL hefur boðist til þess að yfirgefa Real Madrid ef það er tal- in geta verið lausn á vanda félags- ins sem ekki hefur náð sér á strik á þessari leiktíð. Raúl hefur ekki verið nema skugginn af sjálfum sér á leiktíðinni vegna ítrekaðra meiðsla. Hann hefur aldrei leikið með öðru félagi, er fyrirliði Real Madrid og dýrlingur í borginni. Ósennilegt er talið að boðinu verði tekið, þótt ekki væri nema vegna þess að stuðningsmenn Real Madr- id myndu aldrei samþykkja slíkt.  ROBERT Pires, miðjumaður úr Arsenal, hlaut ekki náð fyrir aug- um Raymond Domenech, lands- liðsþjálfara Frakka, þegar hann valdi hóp sinn fyrir leikinn á móti Svisslendingum í undankeppni HM. Pires hefur ekki verið valinn eftir að hann gagnrýndi vinnu- brögð þjálfarans seint á síðasta ári.  IAIN Dowie, knattspyrnustjóri Crystal Palace, hefur neitað að ræða orðróm þess efnis að hann taki við knattspyrnustjórn hjá Manchester City í vor. Dowie seg- ist hafa öðrum hnöppum að hneppa um þessar mundir en velta orð- rómi af þessu tagi fyrir sér.  ÞÝSKA meistaraliðið Werder Bremen hefur gert samning við Mohamed Zidan, framherja frá Egyptalandi. Leikmaðurinn hefur verið í láni frá danska liðinu Midt- jylland frá því í janúar en nú hafa forráðamenn þýska liðsins náð samningum um kaup á honum og hefur hann skrifað undir samning til ársins 2008. Það hefur sjaldan verið svonamikil spenna í úrslitakeppni hjá konunum og ég met stöðuna þannig að öll fjögur liðin eigi möguleika á að fara alla leið. Þannig hef- ur þetta ekki verið mörg undanfarin ár og ég á því von á mjög spennandi og skemmtilegri keppni allt til loka. Ef ÍS og Grindavík ná að hægja á leikn- um og stjórna hraðanum þá eiga lið- in góða möguleika á að komst í úrslit. Hraðinn er hins vegar vopn Kefla- víkur og Hauka og ef leikirnir spilast þannig þá sé ég fyrir mér að Keflavík og Hauka í úrslitum,“ segir Ívar, sem er uppalinn Haukamaður, þjálf- aði ÍS í nokkur ár og er núverandi landsliðsþjálfari með Henning Henningsson, þjálfara Grindavíkur, sér til aðstoðar. Keflavík á titil að verja en tvö und- anfarin ár hafa Keflvíkingar farið með sigur af hólmi á Íslandsmótinu og reyndar hafa Keflavík og KR skipt titlinum á milli sín allar götur frá árinu 1998 eða frá því Grindavík hampaði titlinum árið 1997. Ef ÍS ætlar að eiga möguleika verður Alda Leif að spila vel Um viðureign Íslandsmeistara Keflavíkur og ÍS segir Ívar; ,,Mér sýnist allt stefna í hörkuleiki milli þessara liða og sigurinn í þessu ein- vígi getur í raun endað hvorum meg- in sem er. Keflavíkurliðið virðist vera á uppleið eftir að hafa dottið töluvert niður við útlendingaskiptin. Liðið skoraði yfir 100 stig í lokaum- ferð deildarinnar og það segir mér að sóknin er að koma upp en veik- leiki liðsins hefur að mínu mati verið varnarleikurinn. Keflavík vantar sterkari leikmenn inn í teig og liðið gæti átt í vandræðum með ÍS svo framarlega sem ÍS-liðið spilar upp á Signýju inni í teig. Lið Keflavíkur er ekki næstum því eins sterkt og það var fyrr í vetur þegar það hafði Resheu Bristol og það er mun lakara en á síðustu leiktíð. ÍS-liðið hefur á að skipa mjög góðu byrjunarliði, sterkara að mínu mati en Keflavík. ÍS hefur góða leikmenn í öllum stöð- um en á móti kemur að liðið hefur ekki náð að sýna sitt besta í síðari hluta mótsins og þeirra lykilmaður, Alda Leif Jónsdóttir, hefur leikið undir getu. Ef ÍS ætlar sér að hafa betur í þessari rimmu þá verður Alda Leif að spila mjög vel. Miðað við síðustu leiki liðanna þá held ég að Keflavík hafi betur, 2:1, en það má ekki mikið útaf bera svo ÍS standi uppi sem sigurvegari,“ segir Ívar. Haukar á uppleið í allan vetur Haukar og Grindavík öttu kappi í úrslitaleik bikarkeppninnar þar sem Haukar fögnuðu sigri í æsispennandi leik og skömmu síðar steinlágu Grindvíkingar á heimavelli fyrir Haukunum, 77:57. Um viðureign lið- anna í undanúrslitunum segir Ívar; ,,Ég held að þarna ráðist allt í fyrsta leiknum. Hið unga lið Hauka hefur verið á mikilli uppleið í allan vetur og stemmningin er með þeim. Ef Hauk- um tekst að vinna fyrsta leikinn í Grindavík þá vinna þeir þetta ein- vígi, 2:0, en ef ekki þá fer Grindavík með sigur úr býtum. Það býr mikil reynsla í Grindavíkurliðinu en á móti kemur að Erla Þorsteinsdóttir hefur verið meidd í allan vetur og ef hún verður á annarri löppinni í úrslita- keppninni þá verður þetta mjög erf- itt fyrir Grindavík. Ef hún hins vegar nær að harka af sér og spila af krafti þá tekur Grindavík þetta einvígi því Haukar eiga ekki leikmenn til að verjast henni í teignum. Mér líst vel á nýja bandaríska leikmanninn í her- búðum Grindavíkur og auðvitað kemur til með að mæða mikið á hon- um. Það er rosalega erfitt að spá fyr- ir um þessa viðureign en ég hallast nú frekar að því að Grindvík hafi bet- ur, 2:1. Ívar Ásgrímsson landsliðsþjálfari spáir í spilin í úrslitakeppni kvenna Mikil spenna framundan ÍVAR Ásgrímsson, landsliðsþjálfari kvenna í körfuknattleik, reiknar með mjög spennandi viðureignum í undanúrslitum 1. deildar kvenna í körfuknattleik sem hefjast í kvöld. Þá mætast annars veg- ar Keflavík og ÍS og hins vegar Grindavík og Haukar. Guðmundur Hilmarsson skrifar Fyrstu mínúturnar sást að Kefl-víkingar ætluðu sér að taka varnarleikinn alvarlega. Þeir lögðu mikla áherslu á að halda aftur af Jeffrey Boschee, sem lék þá grátt síðast og nú hélt Sverrir Sverris- son sig þétt upp við hann en reglu- lega var skipst á í gæslunni. Það var því fátt um stig Grindvíkinga í byrjun en Nick Bradford lét til sín taka með 13 af 19 fyrstu stigum Keflavíkur, sem náði 23:13 forystu undir lok fyrsta leikhluta. Þá slógu þeir aðeins af og Grindvíkingar, sem biðu þol- inmóðir, jöfnuðu 23:23 áður en fyrsti leikhluti var úti. Í öðrum leikhluta byrjuðu Keflvíkingar aftur af krafti svo að gestirnir biðu tæpar þrjár mínútur eftir fyrstu stigum sínum en tóku síðan við sér. Hittnin brást þeim hins vegar svo að þeir náðu ekki að jafna aftur en þar spilaði mest inn í að Keflvíkingar vörðust vel en þó munaði aðeins 7 stigum á liðunum, 44:37 Keflavík í vil. Grindvíkingar reyndu svæðisvörn í þriðja leikhluta en það skilaði litlu og Keflavík náði mest 12 stiga for- skoti. Um miðjan þriðja leikhluta fór síðan varnarleikur Keflvíkinga að taka sinn toll þegar Sverrir, Nick Bradford, Magnús Gunnarsson og Jón Nordal fengu sína 3. villu og sett- ust á bekkinn. Grindavík gekk á lagið og í lok þriðja leikhluta munaði að- eins fjórum stigum, 60:56 fyrir Kefla- vík. Þegar svo munurinn fór niður í 62:60, auk þess að Grindvíkingar fengu tvær sóknir til að jafna, voru Nick og Jón settir inn á aftur. Það skilaði sér því þeir félagar skoruðu saman næstu 12 stig Keflavíkur og staðan 76:69 þegar um mínúta var eftir. Svo virtist sem Keflvíkingar væru með pálmann í höndunum en þeir gættu sín ekki þegar Grindvík- ingar söxuðu forskotið niður í 3 stig auk þess að þriggja stiga skot Jeffr- eys rataði ekki í körfuna. Á þessum tíma fékk Elentínus Margeirsson fjögur tækifæri til að gera út um leik- inn af vítalínunni en brást bogalistin. Hún brást hins vegar Magnúsi Gunn- arssyni ekki, sem skoraði úr tveimur vítaskotum þegar nokkrar sekúndur voru eftir og kom Keflavík í 80:75 sem slökkti vonir Grindvíkinga. Nick var atkvæðamikill hjá Kefla- vík, gerði laglegar körfur, gaf 6 stoð- sendingar og tók meðal annars 16 fráköst. Anthony Glover gerði 19 stig, tók 10 fráköst og varði 3 skot en átti samt stundum í vandræðum í baráttunni undir körfunni. Jón Nor- dal tók 7 fráköst og barðist vel en minna fór fyrir öðrum þó allir legðu sitt rækilega af mörkum í vörninni. Það segir hins vegar sitt að liðið skor- ar úr tveimur af 16 þriggja stiga skotum sínum. Hjá Grindavík var Darrel Lewis bestur, gerði meðal annars 22 stig og þó Jeffrey gerði 20 stig var ekki hægt að búast við miklu meiru því hans var vandlega gætt, sem aftur skilaði mörgum villum á mótherja hans. Terrel Taylor skilaði sínum og tók meðal annars 14 fráköst. Keflavík skrefinu á undan Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Nick Bradford átti mjög góðan leik fyrir Keflvíkinga í gær og hér er hann að skora tvö af 29 stigum sínum án þess að Páll Axel Vilbergsson komi vörnum við. ÖFLUG vörn á ögurstundu gerði gæfumuninn þegar Keflvíkingar lögðu Grindavík að velli í oddaleik um að komast í undanúrslit úr- valsdeildarinnar í gærkvöldi, því með henni tókst þeim að vera allt- af skrefinu á undan gestunum og knýja fram 80:75 sigur í lokin. Ís- landsmeistararnir mæta því ÍR í undanúrslitum en Grindvíkingar, sem sluppu með herkjum í úrslitakeppni, eru úr leik en geta þó orn- að sér örlítið við að hafa náð oddaleik. Stefán Stefánsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.