Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 1
2005 FÖSTUDAGUR 18. MARS BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
VÍKINGAR ÍSLANDSMEISTARAR Í BORÐTENNIS / C3
EINAR Einarsson og stjórn úrvalsdeildarliðs Grinda-
víkur í körfuknattleik ætla að ræðast við um fram-
haldið í næstu viku en Einar tók við sem þjálfari liðsins
um miðjan desember af Kristni Frið-
rikssyni sem var sagt upp störfum.
Einar sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að hann hefði áhuga á
að vera áfram í herbúðum Grindavík-
ur. „Það er jákvæður andi í okkar
viðræðum en það eru nokkrir hlutir
sem við þurfum að velta fyrir okkur
áður en ákvörðun um framhaldið
verður tekin. Ég verð á lokaári í
námi mínu við Íþróttaháskólann á
Laugarvatni á næsta skólaári og eig-
inkona mín er þar einnig við nám en hún á tvö ár eftir
af náminu. En ég tel að það sé mögulegt að sameina
þetta tvennt, námið og þjálfunina, en við munum ekki
taka ákvörðun fyrr en eftir páska,“ sagði Einar Ein-
arsson í gær.
Einar Einarsson
liggur undir feldi
Einar
Franska lög-
reglan gerði
mikla leit á
skrifstofum
fimm þekktra
franskra félaga
í febrúar sl. og
þar var ýmsum
gögnum safnað
saman. Grunur
leikur á að fé-
lagsliðin hafi
greitt leikmönnum sinna liða laun
án þess að gera upp skatta á sama
tíma. Að auki eru leikmannaskipti
Lögreglan í Frakklandi sem sérum fjársvikamál hefur upplýst
að markaðsdeild Canal+ millifærði
þessa peninga inná reikning fram-
herjans og er talið að fyrirtækið
hafi í staðinn tekið að sér ýmsa
aðra samninga sem leikmaðurinn
gerði í kjölfarið við ýmis stórfyr-
irtæki.
Ronaldinho, sem var seldur til
Barcelona fyrir um 2,4 milljarða,
er því miðdepill í þessu máli.
á milli Paris SG og Marseille til
rannsóknar. Einnig var farið inn á
skrifstofurnar hjá Lens, Bordeux
og Lyon.
Í upphafi ársins 2000 voru þessi
fimm lið í samstarfi í félagsskap
sem kallaðist Club Europe. Félög-
in sömdu um 20 milljarða kr.,
greiðslu á þeim tíma frá Canal +
sem hafði tryggt sér sjónvarps-
réttinn frá leikjum þessara liða en
Canal + gat ekki staðið við sinn
hluta samningsins þar sem sjón-
varpsstöðin átti í miklum fjárhags-
örðugleikum um tíma.
YFIRVÖLD í Frakklandi rannsaka nú mál sem tengist sjónvarps-
stöðinni Canal+ þar í landi en í ljós hefur komið að fyrirtækið lagði
inn rúmlega 1,2 milljarða kr. inn á reikning sem er í eigu Ronaldinho
sem nú leikur sem framherji spænska liðsins Barcelona. Ronald-
inho, sem er fæddur í Brasilíu og var kjörinn besti knattspyrnumað-
ur ársins á dögunum, þarf nú að útskýra hvers vegna hann fékk
þessa peninga inná sinn reikning árið 1999 er hann lék með
franska liðinu Paris SG en það lið er í eigu Canal +.
Ronaldinho
Ronaldinho fékk fé frá
Canal+ í Frakklandi
HK úr Kópavogi tryggði sér sigur á
Íslandsmóti karla í 1. deildinni
blaki á miðvikudaginn er liðið sigr-
aði Stjörnuna úr Garðabæ öðru
sinni í úrslitum en Stjarnan átti titil
að verja. Einar Sigurðsson, þjálfari
og fyrirliði HK-manna, laumaði
knettinum yfir hávörn Stjörnunnar
í úrslitaleiknum og voru þeir Vignir
Hlöðversson, Róbert Hlöðversson
og Jóhann Arnarsson varnarlausir
þegar kom að því að stöðva sókn
HK. Liðin áttust einnig við í úrslit-
um fyrir ári, en þá hafði Stjarnan
betur.
Morgunblaðið/Þorkell
■ Íslandsmeistarar/C4
VARNARLAUSIR
FRANZ Beckenbauer, fyrr-
verandi fyrirliði þýska
landsliðsins sem varð heims-
meistari árið 1974 og þjálf-
ari heimsmeistara Þýska-
lands 1990, hefur fengið
stuðning frá þýska knatt-
spyrnusambandinu, DFB, við
að hann bjóði sig fram til
forseta Knattspyrnu-
sambands Evrópu, UEFA.
Svíinn Lennart Johannson
mun láta af því embætti árið
2006 en Frakkinn Michel
Platini hefur einnig gefið
kost á sér í formannskjörið.
Beckenbauer segir að starfið
sé áhugavert og hann ætlar
að gera upp hug sinn um
hvort hann gefur kost á sér í
starfið á næstu vikum en
hann hefur í nógu að snúast
sem formaður undirbúnings-
nefndar heimsmeistaramóts-
ins í knattspyrnu sem fram
fer í Þýskalandi á næsta ári.
„Í fyrsta lagi þarf að fá það
staðfest að Johannson ætli
sér að hætta sem forseti og
ef ég fæ stuðning frá mínum
mönnum í DFB og frá UEFA
þá mun ég skoða mína stöðu
vandlega,“ segir Becken-
bauer en Theo Zwanziger,
sem er forseti DFB, segir að
sambandið muni að sjálf-
sögðu styðja við bakið á
Beckenbauer. „Að mínu mati
á Beckenbauer að bjóða sig
fram,“ segir Zwanziger við
þýska dagblaðið Süd-
deutsche Zeitung.
Becken-
bauer
gegn
Platini?