Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 C 3
Fimleikaveisla í Laugardalshöll
18. - 20. mars 2005
Íslandsmót í hópfimleikum 2005
Föstudagur 18. mars:
Kl. 18:30 Undanúrslit í hópfimleikum.
Krýndir verða Íslandsmeistarar á áhöldum.
Laugardagur 19. mars:
Kl. 11:00 Úrslit.
Krýndir verða Íslandsmeistarar í hópfimleikum 2005.
Aðgangseyrir: 500 kr fyrir 12 ára og eldri.
Íslandsmót í áhaldafimleikum 2005
Laugardagur 19. mars:
Kl. 15:00 Fjölþraut.
Krýndir verða Íslandsmeistarar í áhaldafimleikum 2005.
Sunnudagur 20. mars:
Kl. 14:00 Úrslit á einstökum áhöldum.
6 hæstu á hverju áhaldi frá laugardegi keppa til úrslita.
Krýndir verða Íslandsmeistarar á einstökum áhöldum.
Aðgangur ókeypis.
Allt áhugafólk um fimleika er hvatt til að mæta.
FÓLK
FYLKIR sigraði B-lið spænska liðs-
ins Valencia, 2:0, í æfingaleik á Spáni
í gær. Helgi Valur Daníelsson skor-
aði fyrra markið úr vítaspyrnu á 18.
mínútu sem dæmd var þegar Sævar
Þór Gíslason var felldur innan teigs
og Sævar Þór skoraði seinna markið
tíu mínútum síðar.
VILHJÁLMUR Halldórsson úr Val
er í íslenska landsliðshópnum í hand-
knattleik sem mætir Pólverjum í
þremur leikjum um páskana. Þau
mistök urðu hjá HSÍ að nafn hans
vantaði á leikmannalistann þegar
hópurinn var tilkynntur á blaða-
mannafundi í fyrradag.
JOHNNY Davis var í gær sagt upp
störfum hjá Orlando Magic í NBA-
deildinni en hann var þjálfari liðsins.
Davis tók við liðinu í nóvember árið
2003 er Doc Rivers var sagt upp
störfum. Chris Jent, aðstoðarmaður
Davis, mun taka við liðinu fram að
lokum tímabilsins en 18 leikir eru eft-
ir af tímabilinu og en félagið hefur
sigrað í 31 leik af alls 64. Davis skilaði
ekki nógu góðum árangri með liðið að
mati forráðamanna liðsins en hann
stjórnaði liðinu til sigurs í 51 leik en
84 sinnum tapaði liðið undir hans
stjórn. Davis var einnig þjálfari
Philadelphia 76’ers 1996–1997 en lið-
ið vann aðeins 22 leik það tímabil og
tapaði 60 leikjum.
BRASILÍSKI framherjinn Ronaldo
í liði Real Madrid og varnarmaðurinn
Alessio Tacchinardi í liði Juventus
voru í gær úrskurðaðir í tveggja
leikja bann af aganefnd evrópska
knattspyrnusambandsins. Þeir voru
reknir af velli í leik liðanna í 16 liða úr-
slitum Meistaradeildarinnar eftir að
hafa lent í handarlögmálum. Tacch-
inardi tekur bannið út í 8 liða úrslit-
um keppninnar en Ronaldo afplánar
bannið á næstu leiktíð.
DAVID Beckham, fyrirliði enska
landsliðsins, útilokar ekki að hann
verði seldur frá Real Madrid í sumar.
,,Ég er ánægður hjá Real Madrid og
vil vera um kyrrt hjá félaginu en mað-
ur veit aldrei hvað getur gerst í knatt-
spyrnunni. Fólk er að tala um að leik-
menn verði seldir í sumar en það
verður bara að koma í ljós,“ sagði
Beckham á blaðamannafundi hjá
Real Madrid í gær.
MIDDLESBROUGH féll úr leik í
UEFA-keppninni þegar liðið beið
lægri hlut fyrir Sporting Lissabon,
1:0. „Boro“ var sterkari aðilinn lengst
af leiksins en tókst ekki að nýta færin.
HERBERT Arnarson verður
áfram þjálfari úrvalsdeildar-
liðs KR í körfuknattleik en
hann gerði tveggja ára samn-
ing við félagið síðastliðið sum-
ar. Böðvar Guðjónsson, for-
maður körfuknattleiksdeildar
KR, sagði í gær að þar á bæ
ætluðu menn sér að fara yfir
stöðu mála eftir páskahátíð-
ina. En KR féll úr keppni í átta
liða úrslitum gegn Snæfelli í
oddaleik á miðvikudaginn, en
KR endaði í sjöunda sæti
deildarinnar. Böðvar býst ekki
við því að núverandi leik-
mannahópur liðsins breytist
mikið en miklar breytingar
voru á liðinu sl. sumar. „Við
förum yfir málin eftir páska
en Herbert verður áfram
þjálfari liðsins og við munum í
samráði við hann setja upp
áætlun fyrir næsta keppnis-
tímabil. En það eru margir
óvissuþættir sem þarf að ráða
fram úr áður,“ sagði Böðvar
en á ársþingi KKÍ á Ísafirði
verða væntanlega margar til-
lögur hvað varðar erlenda
leikmenn lagðar fram.
Herbert
verður
áfram
með KR
eikur Íslandsmeistara Kefavíkur og
ÍS fór hratt af stað og voru Keflvík-
ar með yfirhöndina, forysta þeirra var
samt aldrei mikil þar sem
leikmenn ÍS hleyptu
þeim aldrei langt frá sér.
Keflavík spilaði svæðis-
vörn nær allan leikinn og
k hún vel á köflum enn samt komu
ar þar sem Stúdínur sundurspiluðu
nina og ógnuðu mikið fyrir utan og var
Alda Leif Jónsdóttir og Signý Her-
nnsdóttir þar í aðalhlutverki. Þegar
á leikinn skiptu Stúdínur yfir í svæð-
rn og virkaði hún ágætlega og á tíma-
var sóknarleikur Keflavíkur mjög
ipulagður ásamt því að Signý Her-
nnsdóttir kom í veg fyrir gegnumbrot
lavíkur með góðri vörn sinni þar sem
varði hvern boltann á fætur öðrum.
ar um tvær mínútur voru eftir var
ðan 54:60 og Signý Hermannsdóttir,
m varði 11 skot í leiknum, fékk galopið
t undir körfunni og hefði getað gert
lvíkingum lífið leitt með því að skora,
henni brást bogalistinn og Keflvíking-
svöruðu með tveimur þriggja stiga
fum frá þeim Önnu Maríu Sveinsdótt-
og Birnu Valgarðsdóttur og eftir mik-
atgang á lokasekúndunum endaði
leikurinn, 64:64. Í framlengingunni var
sama upp á teningnum, mikil spenna og
vó reynsla Keflvíkinga þungt á loka-
sprettinum, þær spiluðu sterka vörn og
voru skipulagðar í sókninni sem gerði
gæfumuninn í þessum leik og fögnuðu
þær sigri, 77:71.
„Sóknarleikur okkar á tímabili var
mjög slakur enn vörnin var aftur á móti í
lagi og það hélt okkur inni í þessum leik.
En við þurfum að vinna inni í Kennarahá-
skóla á laugardaginn og það verður
hörkuleikur,“ sagði Sverrir Þór Sverris-
son, þjálfari Keflavíkur, í leikslok.
Sigurkarfa úr vítaskoti
Það var boðið upp á háspennu í gær-kvöldi þegar Grindavík sigraði
Hauka, 72:71, og kom sigurstigið af víta-
línunni eftir að leiktíma
var lokið.
Haukar byrjuðu betur
fyrstu mínúturnar en svo
fóru Grindvíkingar að
taka við sér og þá einkum Rita Williams
sem skoraði 21 stig í fyrri hálfleik og áttu
Haukarnir í mestu vandræðum með að
stöðva hana. Grindavík spilaði af krafti og
yfirvegun, leysti pressuvörn Hauka auð-
veldlega og þegar annar leikhluti var
hálfnaður var staðan orðin 38:19. Á þess-
um tímapunkti var eins og Haukaliðið
væri að brotna en það er seigt í þeim.
Þær komu hægt og rólega til baka og
náðu áttum fyrir leikhlé en í hálfleik
höfðu Grindavíkurstúlkur þægilegt for-
skot, 44:32. Það tók Grindavík fjórar mín-
útur að setja fyrstu körfu sína í seinni
hálfleik og Haukarnir gengu á lagið.
Haukarnir komust síðan yfir í lokaleik-
hlutanum og náðu átta stiga forustu þeg-
ar síðasti leikhluti var hálfnaður. Grinda-
víkurliðið kom einbeitt eftir leikhlé og
náði að skora 9 stig í röð og komast aftur
yfir og eftir það virtist sigurinn ætla að
verða þeirra. Haukastúlkur neituðu að
gefast upp og náðu að jafna leikinn, 70:70,
með þremur vítum fjórum sekúndum fyr-
ir leikslok. Grindvíkingar ruku upp völl-
inn, brotið var á Ritu Williams sem hitti
ekki úr fyrra vítinu en það seinna fór nið-
ur við mikinn fögnuð heimamanna. Best-
ar í liði Hauka voru þær Ebony Shaw,
Helena Sverrisdóttir og Kristrún Sigur-
jónsdóttir. Hjá Grindavík voru þær Rita
Williams, Svandís Sigurðardóttir og Ólöf
Helga Pálsdóttir bestar.
„Það voru ótrúlegar sveiflur í þessum
leik en við þurfum að laga það fyrir næsta
leik. Sennilega þarf að stilla spennustigið.
Karakterinn var góður hjá liðinu því við
höfum ekki náð hingað til að rífa okkur
upp þegar við lendum undir. Við gerðum
það í kvöld. Þetta var alvöruleikur, svona
eins og úrslitakeppnin á að vera,“ sagði
Henning Henningsson, þjálfari Grinda-
víkur.
Tæpt hjá Suður-
nesjaliðunum
ÐURNESJALIÐIN Keflavík og Grindavík fögnuðu sigri í fyrstu leikjunum
ndanúrslitum 1. deildar kvenna í körfuknattleik í gær. Báðir leikirnir
u æsispennandi. Keflavík hafði betur gegn ÍS í framlengdum leik,
71, og Grindavík vann eins stigs sigur á Haukum, 71:70, þar sem
ndaríska stúlkan Rita Williams skoraði sigurstigið úr vítaskoti þegar
ktíminn var að renna út.
ð Páll
rsson
ar
Garðar
Vignisson
skrifar
VÍKINGUR varð í fyrrakvöld Ís-
landsmeistari í 1. deild karla í borð-
tennis. Liðið fékk 18 stig af 20 mögu-
legum, tapaði aðeins fyrir KR í fyrri
umferðinni. Þegar liðin mættust í
næstsíðustu umferð sneru Víkingar
blaðinu við og unnu 6:4, og innsigl-
uðu þar með titilinn. Þeir fengu síðan
Íslandsbikarinn afhentan eftir síð-
ustu umferðina en þá hafði sveitin
unnið C-lið Víkings. Á myndinni
fagna leikmenn Víkings sigrinum á
Íslandsmótinu en þeir skipuðu einn-
ig sigurliðið í fyrra, frá vinstri,
Matthías Stephensen, Tryggvi Áki
Pétursson og Magnús Magnússon.
Morgunblaðið/Sverrir
Víkingar
vörðu titilinn
ÍÞRÓTTIR