Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 4
Guðmundur
í 64 manna
úrslit á EM
GUÐMUNDUR Stephensen
og samherji hans Bojan Mil-
osevic komust í 64 manna
úrslit í tvíliðaleik á Evrópu-
meistaramótinu í borðtennis
í Árósum í Danmörku í gær.
Guðmundur og Milosevic
unnu portúgalska borðtenn-
ismenn í forkeppni í þremur
lotum. Halda þeir áfram
keppni í dag. Matthías
Stephensen, bróðir Guð-
mundar, og Ingólfur Ingólfs-
son féllu hins vegar úr leik,
3:1 fyrir Dönum í hörkuleik.
Sömu sögu er að segja af
Ingólfi og Kristín Ásta
Hjálmarsdóttir í tvenndar-
leik, 3:1. Þá heltust Kristín
Ásta og Guðrún Björnsdóttir
úr lestinni í fyrstu umferð í
tvíliðaleik kvenna þegar þær
töpuðu í þremur lotum fyrir
konum frá Eistlandi í 64
manna úrslitum.
Guðmundur og Guðrún
keppa í einliðaleik í dag.
hversu okkur gekk illa að halda bolt-
anum innan liðsins í fyrri hálfleikn-
um. Við ræddum um það í leikhléinu
og í þeim síðari gekk strákunum bet-
ur að halda boltanum hjá sér. Það er
erfitt að draga út einhverja leikmenn
Leikurinn þróaðist ekki ósvipað ogí leiknum við Króatana. Nú hélt
vörnin hins vegar og strákarnir voru
ákaflega vel vakandi
í föstu leikatriðun-
um. Við getum samt
ekki litið hjá þeirri
staðreynd að Króat-
arnir eru sterkari í föstu leikatrið-
unum en Ítalirnir og við lögðum ríka
áherslu á fyrir leikinn að brenna
okkur ekki aftur á að gefa mörk úr
þessum atriðum.“
Logi hrósaði öftustu varnarlínunni
og ekki síður Árna Gauti Arasyni
sem átti stórleik í markinu.
„Vörnin leysti sín mál ákaflega vel
og fyrir aftan hana var Árni Gautur
mjög traustur og góður. Við Ásgeir
vorum ekki nægilega sáttir við
sem léku betur en aðrir. Sterk liðs-
heild stóð á bak við þessi góðu úrslit
og þannig verður það alltaf að vera.“
Gekk þá leikaðferðin, sem þið
lögðuð upp fyrir leikinn, algjörlega
upp ?
,,Já, það má segja það. Við vorum
mjög meðvitaðir um leikstíl Ítalanna
þó svo að þeir hafi verið með marga
nýja menn. Við þurfum á heppni að
halda fyrir framan okkar eigið mark
og að þessu sinni voru menn á tánum
og á réttum stöðum. Við erum líka
meðvitaðir um að við megum ekki
falla í þá gryfju að ætla að ofmetnast
eftir þessi úrslit. Okkar ætlunarverk
er að reyna að byggja ofan á þennan
leik.“
Logi segir að ungu leikmennirnir
sem fengu eldskírnina í gær – Hann-
es, Kári, Emil og Gunnar Heiðar
ásamt Ólafi Inga, sem lék sinn annan
landsleik, lofi allir mjög góðu. ,,Þeir
falla mjög vel inn í hópinn og hafa
sýnt gott framferði í ferðinni. Við
stilltum Hannesi upp í byrjunarliðið
og ég held að það sé alveg ljóst eftir
frammistöðuna að hann sé búinn að
stimpla sig inn í hópinn. Hann hefur
þroskast mjög mikið og heldur til
mynda ungverskum landsliðsmanni
fyrir utan liðið hjá Víking. Það er
mjög nauðsynlegt að fá Hannes inn í
hópinn enda er Heiðar í banni í
næsta leik gegn Ungverjum.“
Var rauða spjaldið sem Kári fékk
réttlátur dómur?
,,Það var mikil synd fyrir Kára að
fá brottrekstur í sínum fyrsta lands-
leik. Hann var kýldur með krepptum
hnefa skömmu áður beint í andlitið
en hann var ekki að svara fyrir sig
þegar hann braut á Ítalanum. Hann
var óheppinn og það var ekkert ann-
að fyrir dómarana að gera en að vísa
honum út af.
Reuters
Brynjar Björn Gunnarsson verður hér að sjá á eftir Ítalanum Luca Toni, en hann fór ekki langt í jafnteflisleiknum í Padova, 0:0.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari eftir jafnteflið, 0:0, við Ítali í Padova
Gott fyrir sjálfstraustið
,,VIÐ vorum mjög sáttir við frammistöðu liðsins og úrslitin eru mjög
gott og nauðsynleg fyrir leikmennina upp á sjálfstraustið að gera og
hvernig þeir náðu að lagfæra þá hluti sem aflaga hafa farið í síðustu
leikjum. Það hefði ekki verið gott veganesti upp á framhaldið að
fara héðan með slæmt tap. Heimferðin verður ánægjulegri eftir
þessi úrslit þrátt fyrir að við hefðum viljað skipta á úrslitum í þess-
um leik og í leiknum við Króatíu,“ sagði Logi Ólafsson, annar af
landsliðsþjálfurum Íslands, við Morgunblaðið eftir markalaust jafn-
tefli gegn Ítölum í gær.
HJÁLMAR Jónsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, verður orðinn
leikfær um næstu helgi þegar lið
hans, IFK Gautaborg, mætir Árna
Gauti Arasyni og félögum í Våler-
enga í Skandinavíudeildinni. Stefan
Landberg, aðstoðarþjálfari Gauta-
borgar, segist reikna með Hjálmari í
þann leik. Hjálmar missti af lands-
leikjunum gegn Króatíu og Ítalíu, og
var ekki með Gautaborg í æfingaleik
gegn Gais í gærkvöld.
JÓN Arnór Stefánsson og félagar
í Dynamo St. Petersburg mæta öðru
rússnesku liði, BC Khimki frá
Moskvu, í undanúrslitum Evrópu-
deildarinnar í körfuknattleik 27. apr-
íl. Sama dag leikur BC Kiev frá
Úkraínu við Fenerbache frá Tyrk-
landi. Daginn eftir leika sigurliðin til
úrslita um Evróputitilinn og tapliðin
um 3. sætið. Leikirnir fara allir fram
í Kiev. Khimki er í fjórða sæti rúss-
nesku úrvalsdeildarinnar en St. Pet-
ersburg er í 7. sæti.
STIG Tøfting segist hafa í hyggju
að rifta samningi sínum við sænska
liðið Häcken aðeins tæpum hálfum
mánuði áður en keppni hefst í
sænsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu. Tøfting, sem víða hefur ver-
ið til vandræða, segist í samtali við
danska fjölmiðla ómögulega geta
sætt við að vera skipað að leika í
stöðu kantmanns hjá sænska liðinu,
en það hefur honum verið gert að
gera. Þá stöðu sé hann óvanur að
spila og í henni nýtist kraftar hans
ekki sem skyldi. Því sjái hann ekki
aðra leið en að rifta samningnum
skipti þjálfari Häcken ekki um skoð-
un fljótlega.
TØFTING gekk til liðs við Häcken
í byrjun þessa árs eftir að hafa verið
rekinn frá AGF í Danmörku eftir
slagsmál við samherja sína í jólaboði.
CLAUDIO Ranieri, fyrrverandi
þjálfari Valencia, segir að sér sé
nauðugur einn kostur að sækja mál
fyrir dómstólum á Spáni til þess að
fá greidd laun í þrjú ár samkvæmt
samningi sem hann gerði við félagið
á síðasta sumri þegar hann tók við
þjálfun. Ranieri var leystur frá störf-
um hjá Valencia fyrir skömmu en
var aðeins boðin greiðsla fyrir hluta
þess starfstíma sem hann átti eftir
hjá félaginu. Við þær málalyktir
sættir hann sig ekki.
FÓLK
KÁRI Árnason, miðjumaðurinn efnilegi í sænska liðinu Djurgården, kemur
líklega ekki til með að gleyma fyrsta leik sínum með íslenska A-landsliðinu
í knattspyrnu. Kári kom inn á sem varamaður á 76. mínútu gegn Ítölum í
gærkvöldi en hann staldraði stutt við því tveimur mínútum síðar fékk hann
að líta rauða spjaldið hjá Alain Hammer, dómara frá Lúxemborg, fyrir að
tækla leikmann Ítala gróflega í legginn.
Kári var einn fjögurra leikmanna sem fengu að spreyta sig með A-
landsliðinu í fyrsta sinn. Hinir þrír voru Hannes Þ. Sigurðsson, Emil Hall-
freðsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Rautt í fyrsta landsleiknum
,,ÞAÐ VAR ekkert að þessu marki sem Luca Toni
skoraði. Þetta var ekkert brot að mínu mati,“ sagði
Marcelo Lippi, landsliðsþjálfari Ítala, eftir jafn-
teflið við Íslendinga en mark Toni með skalla var
dæmt af í fyrri hálfleik.
,,Íslendingarnir voru fastir fyrir, sterkir og á
köflum grófir enda staðráðnir í að rétta sinn hlut
eftir 4:0 tapið gegn Króötum. Mér finnst leiðinlegt
að hafa ekki innbyrt sigur en vináttuleikir eru oftar
en ekki notaðir til að prófa ýmsa hluti og skoða
menn og það gerði ég í þessum leik,“ sagði Lippi
sem tókst ekki að hefna ófaranna frá því á Laug-
ardalsvelli í ágúst fyrra þegar Íslendingar höfðu
betur, 2:0, í fyrsta leik Ítala undir stjórn Lippi.
„Íslendingarnir
fastir fyrir“