Morgunblaðið - 01.04.2005, Blaðsíða 1
2005 FÖSTUDAGUR 1. APRÍL BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
KOMINN GLAMPI Í AUGU KEFLVÍKINGA / C4
BJARNI Guðjónsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, er ekki eins
alvarlega meiddur og haldið var í
fyrstu en hann varð fyrir
meiðslum um miðjan seinni hálf-
leikinn í leiknum gegn Ítölum í
Padova í fyrrakvöld. Bjarni meidd-
ist í framanverðu læri í þann mund
sem hann tók aukaspyrnu og varð
að fara af leikvelli.
,,Bjarni var mjög aumur til að
byrja með og við héldum að hann
hefði rifið vöðva. En þetta lítur
betur út í dag. Hann er óhaltur og meiðslin virðast vera
miklu minni en við héldum í fyrstu,“ sagði Stefán Stef-
ánsson, sjúkraþjálfari íslenska landsliðsins, við Morgun-
blaðið í gær.
Stefán býst ekki við því að Bjarni geti verið með
Plymouth í leiknum gegn Cardiff í ensku 1. deildinni á
morgun.
Stefán sagði að meiðsli Bjarna væru mjög ámóta þeim
sem bróðir hans, Jóhannes Karl, fékk í leiknum gegn
Króatíu um síðustu helgi en Jóhannes gat ekki leikið á
móti Ítölum sökum meiðslanna.
Bjarni er ekki
alvarlega meiddur
Bjarni
ALAN Shearer, framherji Newcastle og einn mesti
markaskorari í sögu ensku knattspyrnunnar, er hættur
við að hætta. Shearer, sem er 34 ára, hefur margoft sagt
að tímabilið í ár yrði hans síðasta og skórnir færu á hill-
una í maí en nú hefur honum snúist hugur. Shearer ætl-
ar að taka eitt ár til viðbótar, stuðningsmönnum New-
castle til óblandinnar ánægju. Shearer er í guða tölu hjá
stuðningsmönnum félagsins en hann skortir aðeins níu
mörk til að ná Jackie Milburn sem er markahæsti leik-
maður Newcastle frá upphafi með 200 mörk. Graeme
Souness, knattspyrnustjóri Newcastle, hefur eytt ófáum
mínútum í að tala um fyrir Shearer og það hefur borið
árangur því Shearer tilkynnir á blaðamannafundi í dag
að ætli að framlengja samning sinn um eitt ár.
Ferill Alan Shearer er glæsilegur. Hann hefur leikið
519 deildarleiki fyrir Southampton, Blackburn og New-
castle og hefur skorað í þeim leikjum 273 mörk, þar af
191 fyrir Newcastle. Shearer lék 63 leiki fyrir enska
landsliðið og skoraði 34 mörk fyrir það og var fyrirliði
þess í 34 leikjum. Shearer sagði skilið við landsliðið fyrir
fjórum árum. „Shearer er besti framherji sem England
hefur átt,“ segir Graeme Souness og undir það tekur
Kevin Keegan, fyrrum landsliðseinvaldur og stjóri New-
castle fyrir nokkrum árum.
Alan Shearer hætt-
ur við að hætta
Mourinho getur því ekki stýrt sínu liðiaf varamannabekknum eða haft
samskipti við leikmenn sína þegar það
mætir Bayern München í 8 liða úrslitum
keppninnar en fyrri viðureign liðanna verð-
leik og rætt Anders Frisk og þá sakaði
hann Frisk um að hafa dregið taum Barce-
lona í leiknum. Mourinho dró ummæli sín
til baka í vikunni og sagðist ekki hafa séð
Rikjaard ganga á fund dómaranna heldur
hefði hann tekið aðstoðarmenn sína trúan-
lega sem greindu honum frá þessu.
Chelsea fékk þriggja daga frest til að
áfrýja úrskurði aganefndarinnar en ekki er
búist við því að forráðamenn liðsins geri
það.
Mourinho, fyrrverandi þjálfari Porto,
hefur áður verið settur í bann hjá UEFA.
Hann fékk eins leiks bann fyrir að ráðast
að Lucas Castroman, leikmanni Lazio, þeg-
ar hann var að taka innkast í leik gegn
Porto í UEFA-keppninni 2003. Mourinho
var þá einnig sektaður um 127 þúsund
krónur.
ur á Stamford
Bridge á miðviku-
daginn í næstu viku.
Aganefndin komst
að þessari niðurstöðu
eftir að hafa hlustað
á skýringar forráða-
manna Chelsea en
UEFA kærði liðið og
Mourinho fyrir að
hafa skaðað knatt-
spyrnuna með fram-
komu sinni.
Portúgalski knattspyrnustjórinn lét öll-
um illum látum eftir leikinn við Börsunga.
Hann mætti ekki á blaðamannafund eða
leikmaður frá Chelsea. Hann sakaði Frank
Rikjaard, þjálfara Börsunga, um að hafa
farið inn í búningsklefa dómaranna í hálf-
Chelsea sektað og Jose Mourinho í tveggja leikja bann
Stjórnar Chelsea
ekki gegn Bæjurum
CHELSEA var í gær sektað um 75
þúsund svissneska franka, sem jafn-
gildir tæpum 4 milljónum króna, af
aganefnd evrópska knattspyrnu-
sambandsins fyrir ósæmilega hegðun
Jose Mourinho knattspyrnustjóra
gagnvart sænska dómaranum Anders
Frisk sem dæmdi leik Chelsea og
Barcelona í Meistaradeildinni á Nou
Camp í síðasta mánuði. Mourinho var
úrskurðaður í tveggja leikja bann og
var sektaður um 20 þúsund franka,
rúma 1 milljón króna.
Jose Mourinho
LUCA Toni framherji Palermo, sem fékk tækifæri
með Ítölum í leiknum gegn Íslendingum í Padova í
fyrrakvöld, segir að markið sem hann skoraði hafi
verið fullkomlega löglegt. Toni skallaði boltann í
netið í fyrri hálfleik en Alain Hammer, dómari frá
Lúxemborg, dæmdi markið ekki gilt – vildi meina
að Toni hefði stjakað við Kristjáni Erni Sigurðs-
syni.
,,Mér fannst þetta vera löglegt mark. Varnar-
maðurinn var við hliðina á mér og ég náði að koma
höfðinu í boltann og skalla hann í netið án þess að
koma við leikmanninn. Íslendingarnir kvörtuðu
ekki og ég efast um að þeir hafi búist við því að
heyra flautu dómarans,“ sagði Toni.
Toni notaði tækifærið í viðtali við ítölsku press-
una til að kvarta undan leik íslensku leikmann-
anna.
„Íslendingarnir komu hingað til að verjast og
gerðu það vel. Þeir voru hins vegar grófir og
ótuktarlegir á köflum. Það var erfitt að koma bolt-
anum inn á hættusvæðið þar sem þeir voru með tíu
menn í vörn,“ sagði Toni.
ÁGÚSTA Edda Björnsdóttir og samherjar hennar í Val
unnu FH í fyrsta leik liðanna í 8 liða úrslitum Íslands-
mótsins í gærkvöldi í kaplakrika, 22:19, eftir að hafa
verið undir 16:19. Ágústa var markahæst hjá Val með
fimm mörk. Þá vann ÍBV lið Víkings, 30:27, í Eyjum í
sömu keppni. Sjá umsagnir um leikina á C2,C3 Morgunblaðið/Golli
Endasprettur Vals
„Íslendingarnir
voru grófir“