Morgunblaðið - 01.04.2005, Blaðsíða 4
Keflavík á möguleika á að brjóta blað í sögu úr-
slitakeppni úrvalsdeildarinnar en frá stofnun henn-
ar árið 1984 hefur engu liði tekist að vinna Íslands-
meistaratitilinn þrjú ár í röð. Keflvíkingar hafa
hampað Íslandsmeistaratitlinum undanfarin tvö ár.
Árið 2003 höfðu þeir betur í úrslitaeinvígi gegn
Grindavík, 3:0, og í fyrra báru þeir sigurorð af Snæ-
felli, 3:1. Snæfellingar unnu fyrsta leikinn, 80:76, en
Keflvíkingar þrjá næstu, 104:98, 79:65 og 87:67.
Keflavík hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari und-
ir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar, 1997, 1999 og
2003 en á síðustu leiktíð stýrðu Guðjón Skúlason og
Falur Harðarson Keflvíkingum til sigurs.
Með sigri á Snæfelli getur Sigurður komist upp
fyrir bróðir sinn, Val Ingimundarson, en hann á þrjá
Íslandsmeistaratitla sem þjálfari Njarðvíkur, 1987,
1994 og 1995. Öll þessi ár spilaði Valur einnig með
liðinu.
Auk bræðranna Sigurðar og Vals hafa Friðrik
Ingi Rúnarsson, Jón Kr. Gíslason og Gunnar Þor-
varðarson unnið þrjá Íslandsmeistaratitla sem þjálf-
arar.
Njarðvík hefur oftast orðið Íslandmeistari frá
stofnun úrvalsdeildarinnar eða 10 sinnum. Keflavík
hefur unnið sjö meistaratitla, KR tvo og Haukar og
Grindavík einn.
Brjóta Keflvíkingar blað í
sögu úrslitakeppninnar?
FÓLK
BJARNI Þór Viðarsson lék allan
leikinn með varaliði Everton sem
sigraði Nottingham Forest á útivelli
í fyrrakvöld, 1:0. Mark Hughes, fyr-
irlið varaliðsins, skoraði sigurmark-
ið á 85. mínútu úr vítaspyrnu sem
dæmd var þegar brotið var á Bjarna
Þór innan vítateigs.
MISTÖK hjá Knattspyrnusam-
bandi Íslands leiddu til þess að
Númi var úrskurðaður hafa tapað
0:3 fyrir Reyni í Sandgerði í B-deild
deildabikarkeppninnar. Hafsteinn
Hafsteinsson, sem var talinn ólög-
legur með Núma, var kominn með
keppnisleyfi með félaginu. Upphaf-
leg úrslit, 3:2 fyrir Reyni, standa
því.
JARMEINE Pennant, knatt-
spyrnumaður, sem er í láni hjá
Birmingham frá Arsenal, var í gær
látinn laus úr varðhaldi. Pennant
hafði dúsað í steininum í 30 daga en
hann var dæmdur í þriggja mánaða
fangelsi fyrir að aka undir áhrifum
áfengis í síðasta mánuði. Honum var
hins vegar sleppt fyrr út en ella
vegna góðrar hegðunar og mætti á
æfingu hjá Birmingham í gær.
EVERTON og Middlesbrough
voru í gær sektuð um 8.000 pund
hvort vegna ósæmilegar hegðunar
leikmanna í viðureign liðanna á Riv-
erside í janúarmánuði. Félögin
fengu að auki áminningu frá aga-
nefnd enska knattspyrnusambands-
ins því verði önnur eins uppákoma
aftur hjá liðunum eiga þau yfir höfði
sér strangari viðurlög. Til hóp-
stympinga kom í áðurnefndum leik
hjá leikmönnum liðanna og munaði
minnstu að allt syði upp úr.
BAYERN München ætlar að
reyna að fá belgíska varnarmanninn
Daniel van Buyten frá Hamburg til
liðs við sig fyrir næstu leiktíð. Felix
Magath knattspyrnustjóri vill fá
Buyten í staðinn fyrir króatíska
landsliðsmanninn Robert Kovac
sem yfirgefur Bayern í sumar.
EKKI er loku fyrir það skotið að
franski framherjinn Djibril Cisse
geti leikið eitthvað með Liverpool
áður en keppnistímabilinu lýkur.
Cisse fótbrotnaði í október og var
talið hann léki ekki meira með á
leiktíðinni. Bati hans hefur hins veg-
ar verið hraðari en reiknað hafði
verið með. „Cisse er farinn að æfa
með aðalliðinu á nýjan leik og
sjúkraþjálfari okkar telur ekki úti-
lokað að Cisse leiki með okkur áður
en keppnistímabilið er úti,“ sagði
Rafael Benítez, knattspyrnustjóri
Liverpool, í gær.
DANNY Coyne, markvörður Wal-
es, hefur beðið félaga sína afsökunar
á markinu sem hann fékk á sig í
landsleiknum við Austurríki í und-
ankeppni HM í fyrrakvöld. Þá
missti Coyne boltann milli fóta sér í
marki sem reyndist hið eina sem
gert var í leiknum.
Morgunblaðið leitaði til EinarsÁrna Jóhannssonar þjálfara
bikarmeistara Njarðvíkinga og bað
hann að velta úrslitaeinvíginu fyrir
sér en lærisveinar Einars urðu að
sætta sig við tap gegn ÍR-ingum í
fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
,,Ég held að þetta geti allt orðið
hörkuleikir en ég er alveg harður á
því að Keflvíkingar fara með sigur af
hólmi í þessu einvígi. Þeir hafa aldrei
tapað á heimavelli fyrir Snæfelling-
um og það eitt og sér er ansi sterkt
vopn,“ segir Einar Árni.
Einar spáir því að Snæfell sigri í
öðrum leiknum sem fram fer í Stykk-
ishólmi en Keflvíkingar vinni tvo
næstu og verði krýndir meistarar í
Hólminum laugardaginn 9. apríl.
Keflvíkingar njóta góðs af því
að hafa verið lengi saman
,,Keflvíkingarnir eru með gríðar-
lega sterka liðsheild og það verður
að taka ofan hattinn fyrir þeim kar-
akter sem leikmenn liðsins hafa að
geyma. Sumir þeirra hafa mátt
sætta sig við að spila sama og ekki
neitt leik eftir leik en þegar tækifær-
ið hefur komið þá hafa þeir gripið
það svo sannarlega líkt og Gunnar
Stefánsson gerði á móti ÍR-ingum.
Það skilur Keflavík að við flest liðin.
Hjá Keflvíkingum eru leikmenn sem
taka sínu hlutverki og eru alltaf til-
búnir þegar kallið kemur. Þetta er
ákaflega samhentur leikmannahóp-
ur. Keflvíkingar njóta góðs af því að
hafa verið lengi saman og hafa verið
með sama þjálfarann í mörg ár. Og
hvað sem hver segir þá er hefðin
gríðarlega sterk og hefur heilmikið
að segja þegar út í svona baráttu er
komið. Ég sá í fjórða leik ÍR og
Keflavíkur að það er kominn glampi í
augu leikmanna Keflavíkur, bikar-
glampi, sem hverfur ekki svo glatt.
Þrátt fyrir titil síðustu tvö árin er
greinilega hungur í þeirra herbúð-
um,“ segir Einar Árni.
Snæfellingar reynslunni ríkari
Einar segir að Snæfellingar hafi
spilað vel í vetur og hafi í sínum röð-
um frábæra íslenska leikmenn.
Spurður hvort Hólmarar séu ekki
betur í stakk búnir að mæta Keflvík-
ingum en í fyrra segir Einar; ,,Þeir
mæta reynslunni ríkari. Snæfelling-
ar eru sterkari þegar litið er til ís-
lensku leikmannanna samanborið
við í fyrra en erlendu leikmennirnir
eru ekki eins góðir og þeir sem voru
með á síðasta tímabili.“
Hvað þarf Snæfell að gera til að
eygja möguleika á að hrifsa titilinn
úr höndum Keflvíkinga?
,,Þeir þurfa að vinna fyrsta leikinn
til að eiga möguleika en ég sé það
einfaldlega ekki gerast. Keflvíkingar
voru vaktir hressilega til lífsins þeg-
ar þeir töpuðu á heimavelli fyrir ÍR
og sá leikur hefur virkað sem góð
áminning fyrir þá. Mér heyrist á
Hólmurunum að þeir séu ekki orðnir
saddir og vonandi tekst þeim að
velgja Keflvíkingum vel undir ugg-
um. Þeir hafa verið svolítið rokkandi
í vetur og þó svo þeir hafi lagt Fjölni,
3:0, í undanúrslitunum þá voru
heimasigrar liðsins ekki sannfær-
andi og miðað við þessa leiki þá eiga
þeir töluvert inni. Hlynur Bærings-
son, Sigurður Þorvaldsson og Pálmi
Sigurgeirsson þurfa allir að eiga
stórleiki að mínu mati til að Snæfell
eigi einhverja möguleika. Það er hins
vegar eitt að vinna einn leik eða
þrjá.“
Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkinga spáir í spilin fyrir úrslitarimmuna
Kominn glampi í
augu Keflvíkinga
ANNAÐ árið í röð heyja Keflvík-
ingar og Snæfellingar baráttuna
um Íslandsmeistaratitilinn í
Intersport-deildinni í körfu-
knattleik en fyrsti leikur liðanna
fer fram fram í Sláturhúsinu í
Keflavík í kvöld. Keflvíkingar
eiga titil að verja, hafa reyndar
unnið titilinn tvö ár í röð, en
Hólmurum hefur aldrei tekist að
landa þeim stóra og vilja örugg-
lega bæta úr því í ár.
Morgunblaðið/Einar Falur
Keflvíkingurinn Sverrir Þór Sverrisson gefur stoðsendingu á
Jón N. Hafsteinsson í leik gegn ÍR í undanúrslitum í Seljaskóla.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is