Morgunblaðið - 06.04.2005, Síða 3

Morgunblaðið - 06.04.2005, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 C 3 ÓLÖF María Jóns- dóttir, Íslands- meistari í golfi úr Golfklúbbnum Keili, tekur þátt í sínu fyrsta móti sem atvinnumaður á Evrópumótaröð kvenna sem hefst á Kanaríeyjum á morgun. Ólöf María var fyrsti íslenski kylf- ingurinn sem tryggði sér keppn- isrétt á atvinnu- mótaröð í Evrópu þegar hún hafnaði í 30.–36. sæti á lokastigi úrtökumóts Evrópumótaraðar- innar sem fram fór á Ítalíu í nóv- ember. Bergsteinn Hjörleifsson, for- maður Golfklúbbs- ins Keilis, og Júl- íus Rafnsson, forseti Golf- sambands Íslands, verða Ólöfu til trausts og halds á Kanaríeyjum. Hægt verður að fylgjast með gengi Ólafar Maríu, holu fyrir holu á vef Víkurfrétta, vikurfrett- ir.is. Ólöf María byrjar á Kanaríeyjum á morgun Ólöf María Jónsdóttir ÍVAR Ingimarsson var eini Íslendingurinn sem fagnaði sigri í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Ívar lék allan leikinn með Reading sem vann Millwall, 2:1, og er áfram í 5. sæti deildarinnar.  Jóhannes Karl Guðjónsson fór af velli á síð- ustu mínútunni þegar Leicester gerði jafntefli við Wolves, 1:1.  Heiðar Helguson lék allan leikinn og Brynj- ar Björn Guðjónsson í 84 mínútur með Watford sem tapaði, 1:0, í Plymouth. Bjarni Guðjónsson lék ekki með Plymouth vegna meiðsla.  Þórður Guðjónsson lék síðustu 15 mín- úturnar með Stoke sem tapaði heima fyrir Cardiff, 1:3, og á nú sáralitla möguleika á að komast í umspilið.  Gylfi Einarsson var varamaður hjá Leeds en kom ekkert við sögu þegar lið hans steinlá á heimavelli gegn Sheffield United, 0:4. Aðeins Reading náði að sigra  HRAFNHILDUR Skúladóttir skoraði 11 mörk fyrir SK Aarhus þegar lið hennar vann Ringsted, 33:24, í lokaumferð dönsku úrvals- deildarinnar í handknattleik í gær- kvöldi. SK Aarhus hefði þurft að skora tvö mörk til viðbótar til að halda sæti sínu í deildinni, en Kold- ing, sem tapaði með 11 marka mun fyrir Ikast/Bording, slapp með skrekkinn. SK Aarhus féll ásamt Ringsted.  RÓBERT Sighvatsson gerði 5 mörk fyrir Wetzlar þegar liðið tap- aði 29:30 fyrir Lemgo í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Logi Geirsson gerði tvö marka Lemgo.  KRISTJÁN Andrésson skoraði 7 mörk fyrir GUIF gegn Hammarby í oddaleik liðanna í 8 liða úrslitunum um sænska meistaratitilinn í hand- knattleik í gærkvöld. Það dugði skammt því Hammarby vann öruggan sigur, 33:26, sigraði 3:2 í einvíginu og mætir Skövde í undan- úrslitum.  ÁÐUR en leikur ÍR og KA hófst í gærkvöldi í íþróttahúsinu Austur- bergi var einnar mínútu þögn í minningu Hákons Bjarnasonar, heiðursfélaga ÍR, sem lést á dög- unum. Hákon vann áratugum sam- an mikið og óeigingjarnt starf fyrir ÍR, var m.a. formaður handknatt- leiksdeildar félagsins um nokkurra ára skeið. Synir hans léku með ÍR- liðinu.  BJARTUR Máni Sigurðsson, hornamaður KA, lék ekki með Ak- ureyrarliðinu sínu gamla félagi, ÍR. Hann slasaðist á þumalfingri á dög- unum, liðband rifnaði og það flís- aðist úr beininu.  HANNES Jón Jónsson, leikmaður ÍR, fór úr axlarliði eftir stundar- fjórðungsleik. Svo virtist sem þetta hafi ekki verið að koma fyrir hann í fyrsta sinn því hann var fljótur að kippa í liðinn og kom við sögu í leiknum á ný nokkru síðar.  HALLDÓR Ásgrímsson, forsætis- ráðherra, var á meðal áhorfenda á leik ÍR og KA. Eftir leikinn heilsaði hann m.a. upp á lærisvein sinn í Framsóknarflokknum, Jóhannes Bjarnason, þjálfara KA og bæjar- fulltrúa á Akureyri.  STEFÁN Gíslason lék á miðjunni hjá norska liðinu Lyn sem sigraði spænska liðið Málaga, 4:1, í æfinga- leik í gær. Þetta var síðasti und- irbúningsleikur Lyn fyrir tímabilið en keppni í norsku úrvalsdeildinni hefst um næstu helgi.  ENSKA knattspyrnusambandið hefur vísað frá áfrýjun Newcastle vegna brottvísunar Kierons Dyers í leiknum við Aston Villa, þegar Dyer og Bowyer voru reknir af velli fyrir slagsmál. Newcastle hélt því fram að Dyer hefði ekki átt neinn þátt í átökunum, Bowyer hefði ráðist á hann. FÓLK Við vorum mjög lélegir, ég veitbara ekki hvað var að okkur, hvort við vorum þreyttir eða hvað amaði að, við vorum rosalega þungir. En við unnum og það var aðalmálið,“ sagði Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR- inga, að leikslokum. „Segja má að Óli [Ólafur markvörður] hafi bjargað okkur og tryggt sigurinn,“ sagði Bjarni ennfremur en hafði enga ein- hlíta skýringu á slökum leik ÍR-liðs- ins, þá sérstaklega í sókninni þar sem því voru afar mislagaðar hendur lengst af. Fyrri hálfleik var slakur. Tækni- leg mistök leikmanna beggja liða voru á þriðja tuginn og á stundum virtist ekki vera heil brú í sóknarleik liðanna. Einkum voru ÍR-ingar slak- ir. Sóknarleikur þeirra var hægur og afar ómarkviss, boltinn gekk illa milli manna og einstaklingsframtak- ið réð ríkjum. Þrátt fyrir þetta allt saman tókst að ná þokkalegri for- ystu snemma leiks en eftir að Jó- hannes Bjarnason, þjálfari KA, hafði tekið leikhlé, og lesið sínum mönn- um pistilinn varð breyting á. KA tókst að minnka muninn en frum- kvæðið var ævinlega ÍR-inga. Stað- an í hálfleik, 14:11, ÍR í vil. Leikur ÍR skánaði lítt í síðari hálf- leik og margháttaður klaufaskapur setti sinn svip á leik KA. Þrautseigja er mikil í KA-liðinu og það gafst aldrei upp þótt því gengi margt í mót. Upp úr miðjum síðari hálfleik tókst liðinu að jafna metin, 21:21, og hanga í ÍR-ingum eftir það. Sókn- arleikur ÍR var byggður upp á ein- staklingsframtaki sem fyrr og það dugði ekki auk þess sem Hafþór Einarsson, markvörður KA, varði vel. Sérstaklega virtist Ingimundi Ingimundarsyni vera mikið niðri fyrir, vildi helst gera tvö mörk í hverri sókn og þrátt fyrir 11 mörk í leiknum var skotnýting hans óvið- unandi. Þegar um tíu mínútur voru eftir þá átti KA möguleika á að komast yfir í stöðunni, 24:24, en Ólafur var þá kominn í markið. Hann varði hraðaupphlaup og fleiri opin færi og tókst að gera út um möguleika KA á sigri sem liðið e.t.v. verðskuldaði þegar öllu er á botninn hvolft, spila- mennska ÍR var þannig að liðið átti vart skilið að vinna. Auk slakrar spilamennsku létu þeir dómgæslu þeirra fóstbræðra, Anton Pálssonar og Hlyns Leifssonar, fara meira í skapið á sér en góðu hófi gegndi. „Við vitum hvað til okkar friðar heyrir í næsta leik á heimavelli, við erum staðráðnir í að snúa við blaðinu og gefa allt í þann leik,“ sagði Jó- hannes Bjarnason, þjálfari KA, er hann gekk af leikvelli í Austurbergi. „Það hefur alltaf einkennt þennan hóp að menn gefast aldrei upp þótt ýmislegt gangi í mót, menn reyna að grípa gæsina þegar andstæðingur- inn gefur eftir og það gerðum við í þessum leik. Mér fannst við vera að ná tökum á leiknum í síðari hálfleik en þá fórum við illa að ráði okkar í dauðafærum. ÍR-ingar skiptu um markvörð, Ólafur kom í markið, og hann reyndist okkur svo sannarlega óþægur ljár í þúfu,“ sagði Jóhannes sem var ekki sammála þeirri fullyrð- ingu blaðamanns að leikurinn hefði verið slakur. „Mér fannst varnar- leikur beggja liða vera ágætur. Nú þurfum við bara að taka það góða út úr þessum leik og nýta okkur í þeim næsta,“ sagði Jóhannes Bjarnason, þjálfari KA. Ólafur var bjargvætt- ur ÍR-inga ÍR-INGAR sluppu með skrekkinn og mörðu sigur á síðustu mínútum fyrstu viðureignar sinnar við KA, 29:26, í Austurbergi í gærkvöldið eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 14:11. Sigurinn geta ÍR-ingar fyrst og fremst þakkað markverði sínum, Ólafi H. Gíslasyni, sem varði frábærlega á lokakaflanum, eftir að KA-liðinu hafði af harðfylgi tekist að jafna metin og var á mörkum þess að komast yfir. Ólafur stóð í vegi KA-manna og slakt lið ÍR náði að kreista fram sigur, en ljóst er að bikarmeistararnir verða ekki Íslandsmeistarar með við- líka spilamennsku og þeir sýndu að þessu sinni. Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is            # ( (      (  (     )"     #  ! "     #  *+ %&  & &#& &'         ÍÞRÓTTIR Hafi FH-ingar gert sér einhverjar von- ir um að velgja Haukunum undir uggum hurfu þær vonir eins og dögg fyrir sólu í upphafi síðari hálfleiks. Leikmenn FH gerðu hver mistökin á fætur öðrum í sókninni sem Haukarnir færðu sér vel í nyt og til að bæta gráu ofan á svart misstu FH-ingar á skömmum tíma þrjá menn af velli. Haukar skoruðu á þessum kafla fimm mörk í röð, breyttu stöðunni úr 15:12 í 20:12 og þar með var eftirleik- urinn auðveldur fyrir þá rauðklæddu. ,,Ég verð nú að segja eins og er að ég bjóst við FH-ingunum sterkari og meiri hörku og baráttu frá þeim en raun bar vitni. Við vorum hins vegar alveg tilbúnir og vorum staðráðnir í að bæta fyrir tapið gegn þeim hér á Ásvöllum fyrr í vetur. Við spiluðum góða vörn allan leikinn og gerðum nóg í sókninni til að halda þeim vel frá okkur allan tímann. Við áttum allt- af nóg af trompum inni,“ sagði Andri Stefan, leikstjórnandi Haukamanna, við Morgunblaðið eftir leikinn. Spurður um leikinn í Krikanum sagði Andri: ,,Ég trúi ekki öðru en FH-ingarnir bíti meira frá sér í þeim leik. Við búum okkur alveg undir það og stefnan er að gera út um þetta einvígi svo við getum byrjað að einbeita okkur fyrir undanúr- slitin. Alla vega þarf ansi margt að lagast hjá FH-ingum ef þeir ætla að vinna okk- ur,“ sagði Andri Stefan. Eins og oft áður var það liðsheildin sem skóp sigur Hauka. Vörnin var sterk fyrir og þó svo að Haukarnir hafi oft leik- ið betur í sókninni voru þeir betri á öllum sviðum en FH-ingar. Ásgeir Örn var mjög drjúgur og dró vagninn í sókninni. Andri stjórnaði sókninni af festu og skor- aði góð mörk, Halldór Ingólfsson átti fína innkomu og Jón Karl var öryggið upp- málað á vítalínunni. Þá stóð Birkir Ívar fyrir sínu á milli stanganna. FH-ingar áttu á brattann að sækja all- an tímann. Sóknarleikurinn fálmkenndur og ansi mikið hnoð á köflum og lykilmenn á borð við Arnar Pétursson og Guðmund Pedersen náðu sér engan veginn á strik. Jón Helgi Jónsson lék einna best hjá FH og þá gekk Pálmi Hlöðversson hart fram í vörninni en ætli FH-ingar sér ekki að fara í sumarfrí annað kvöld verða þeir heldur betur að spýta í lófana. ,,Við ætlum að gera það sem í okkar valdi stendur til að knýja fram oddaleik. Það er það eina sem við getum gert núna. Við byrjuðum skelfilega og Haukarnir keyrðu okkur hreinlega í kaf. Við áttum eftir það á brattann að sækja,“ sagði Guð- mundur Pedersen, fyrirliði FH, við Morgunblaðið eftir leikinn. ,,Miðað við þennan leik eigum við fullt inni og við verðum bara að ná okkur á strik og taka vel á þeim í Krikanum,“ bætti Guðmund- ur við. Morgunblaðið/Árni Torfason uka í gær. Hér er hann að skora eitt af mörkum sínum án þess að Arnar on komi vörnum við. Magnús Sigmundsson er til varnar í marki FH. kar fóru létt ð FH-inga                                 ! "   #  $   %&  & &#& &'      

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.