Morgunblaðið - 06.04.2005, Síða 4
FÓLK
SKAGAMENN lögðu sænska 3.
deildarliðið Raslätts SK, 6:2, í æf-
ingaleik á Spáni í fyrradag. Andri
Júlíusson skoraði fjögur af mörkum
ÍA og þeir Andrés Vilhjálmsson og
Þorsteinn Gíslason gerðu hin tvö
mörkin. Í dag mætir ÍA varaliði
Espanyol og fer leikurinn fram í
Barcelona.
ÞÓRÐUR Þórðarson, markvörður
Skagamanna í knattspyrnunni, er
byrjaður að æfa með liði þeirra á ný
en hann hefur verið frá vegna
meiðsla um skeið og ekkert spilað
með ÍA í deildabikarnum. Hann fór
með Skagamönnum til Spánar á
sunnudaginn. Eyþór Frímannsson
og Guðmundur Páll Hreiðarsson
hafa varið mark ÍA það sem af er
tímabilinu.
ÓLAFUR Ingi Skúlason lék allan
leikinn á miðjunni með varaliði Ars-
enal sem sigraði Norwich, 4:0, í
fyrrakvöld. Enski landsliðsmaður-
inn Sol Campbell lék með Arsenal
að nýju en hann hefur verið frá
vegna ökklameiðsla síðan í febrúar.
Jeremie Aliadere skoraði tvö marka
Arsenal og þeir Robert Van Persie
og Sebastian Larsson sitt markið
hvor.
CAMPBELL, sem aðeins hefur
spilað 18 leiki með Englandsmeist-
urunum á yfirstandandi leiktíð, lék
allan leikinn og er Arsene Wenger
bjartsýnn á að geta teflt honum
fram í undanúrslitaleik bikarkeppn-
innar en Arsenal mætir Blackburn
á þúsaldarvellinum í Cardiff um
aðra helgi.
BIRKIR Kristinsson markvörður
ÍBV fór ekki með Eyjamönnum í æf-
inga- og keppnisferðina til Portú-
gals í gær vegna anna í starfi. Sömu
sögu er að segja um Bjarna Geir
Viðarsson sem er að búa sig undir
lokapróf í læknisfræði.
FJARÐABYGGÐ hefur verið úr-
skurðaður sigur gegn Leiftri/Dal-
vík, 3:0, í B-deild deildabikarsins í
knattspyrnu. Leiftur/Dalvík vann
leikinn, 3:2, en tefldi fram ólöglegum
leikmanni, Sasa Durasovic, sem þá
var skráður í KS. Hann er hins veg-
ar formlega kominn í raðir Leifturs/
Dalvíkur núna.
MAGNÚS Gunnarsson og Jón N.
Hafsteinsson, tveir af lykilmönnum í
Íslandsmeistaraliði Keflvíkinga í
körfu, hafa skrifað undir nýjan
tveggja ára samning við félagið.
MÍLANÓLIÐIN Inter og AC Mil-
an eigast við í fyrri leik liðanna í 8
liða úrslitum Meistaradeildarinnar á
San Síró í kvöld. Þó svo að fráfall
Jóhannesar Páls páfa hafi sett Ítalíu
á annan endann ríkir mikil eftir-
vænting fyrir rimmu erkifjendanna.
LIÐIN áttust við í undanúrslitum
Meistaradeildarinnar fyrir tveimur
árum og eftir tvo jafnteflisleiki
komst AC Milan áfram á útimarka-
reglunni og fór alla leið í keppninni.
ADRIANO og Christian Vieri
tveir skæðustu framherjar Inter
eiga við meiðsli að stríða og þykir
mjög ólíklegt að Adriano geti spilað
en hann hefur farið á kostum með
Inter í vetur og skoraði til að mynda
þrennu þegar Inter sló Evrópu-
meistara Porto út í 16 liða úrslit-
unum.
ANDRIY Shevchenko kemur inn í
lið AC Milan á nýjan leik en þessi
frábæri úkraínski framherji hefur
verið frá síðustu vikurnar vegna
kinnbeinsbrots.
JENS Lehmann, markvörður Ars-
enal, hefur verið úrskurðaður í
tveggja leikja bann í Evrópukeppn-
inni af UEFA. Lehmann var sak-
aður um að hafa sprautað vatni úr
vatnsbrúsa sínum á dómara og að-
stoðarmenn hans eftir leik Arsenal
og Bayern München í Meistara-
deildinni á Highbury í síðasta mán-
uði. Lehmann tekur út keppnis-
bannið á næsta tímabili.
Gestirnir úr Kópavogi byrjuðustrax á að spila vörn með einn
mann framar til að hemja skyttuna
Vilhjálm Halldórsson. Það gekk
ágætlega framan af en þá léku aðrir
Valsmenn lausum hala. Engu að síð-
ur var jafnræði fram í miðjan fyrri
hálfleik en þá fór flöt vörn Vals að ná
saman svo að sóknarleikur HK fólst
oft aðeins í því að láta boltann ganga
hratt fyrir utan því enginn tók af
skarið enda skoruðu HK-menn að-
eins 2 mörk í rúmar 11 mínútur á
meðan Valur skoraði níu, þegar
vörnin hirti auðveldlega boltann af
HK og Valsarar tóku á sprett upp
völlinn. Þjálfari HK tók leikhlé þeg-
ar rúmar sjö mínútur voru til leik-
hlés og eflaust hefur hann skipað
sínum mönnum að sækja á markið og
taka almennilega á í vörninni. Það
gekk fljótlega eftir, ekki síst þar sem
Valsmenn voru heldur örir og jafnvel
kærulausir í sínum sóknum, komnir
með 14:8 forystu.
HK-mönnnum tókst að halda sínu
striki eftir hálfleikshléið og söxuðu
hægt og bítandi á forskot Vals. Vörn-
in var þá líka skárri, fór betur út í
leikmenn og braut niður sóknarleik
Vals. Á 14. mínútu síðari hálfleiks
tókst HK loks að jafna í 19:19, ekki
síst fyrir tilstilli Björgvins Gústavs-
sonar í markinu og þá byrjaði fjörið
fyrir alvöru. Leikmenn gerðust frek-
ar spenntir og voru margir sendir í
kælingu, meðal annars Björgvin
markvörður. Valsmenn héldu alltaf
naumri forystu og HK hafði mikið
fyrir því að missa þá ekki frá sér.
Þegar rúm ein og hálf mínúta var
eftir hafði Valur 26:23 forskot. Valdi-
mar Þórsson minnkaði muninn úr
vítakasti í næstu sókn, Björgvin
varði í marki HK og Karl Grönvold
minnkaði muninn í eitt mark þegar
55 sekúndur voru eftir. Valsmenn
lögðu af stað í sókn en hentu bolt-
anum út af fyrir einstakan klaufa-
skap þegar 5 sekúndur voru eftir.
HK-menn brunuðu í sókn en brotið
var á þeim. HK-menn náðu skoti
framhjá vörn Vals en Hlynur Jó-
hannesson markvörður Vals varði
vel niðri við stöng.
Valsmenn voru góðir, margir
lögðu hönd á plóg og ekki einhver
einn, sem átti að bera uppi leikinn.
Markverðirnir voru ágætir og Vil-
hjálmur átti nokkur skotin eins og
Hjalti Pálmason. Sigurður Eggert
frískaði oft upp á sóknarleikinn með
snaggaralegum tilþrifum.
HK-menn voru ekki eins frískir en
náðu sér á strik er á leið. Þeir geta
þakkað Björgvini markverði fyrir
ekki stærra tap. Augustas Strazdas
og Ólafur Víðir Ólafsson voru ágætir
„Ég er mjög sáttur, mér fannst við
nokkuð góðir og besti leikur okkar í
langan tíma,“ sagði Ólafur Víðir.
Morgunblaðið/Sverrir
Sigurður Eggertsson, leikmaður Vals, sækir að vörn HK-manna á Hlíðarenda í gærkvöldi.
Valsmenn sluppu
með skrekkinn
TAUGAR áhorfenda jafnt sem leikmanna voru þandar til hins ýtr-
asta síðustu 15 mínúturnar þegar HK sótti Val heim í fyrsta leik í 8
liða úrslitum, DHL-deildarinnar í handknattleik, í gærkvöldi. Þá
æstust leikar, menn voru ótt og títt reknir út af en HK alltaf í mesta
basli með að jafna. Valsmenn höfðu þriggja marka forskot þegar lít-
ið var eftir og voru næstum búnir að klúðra því en sluppu fyrir horn
með 26:25 sigri. Næsti leikur liðanna verður nokkuð örugglega ekki
síður spennandi en leikmenn beggja liða hlakka til.
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
#
$
#
)
(
!
"
$
%&
& &#& &'
„ÉG varð brjálaður þegar það var
skotið í hausinn á mér og ákvað
þá að þessum leik skyldum við
ekki tapa,“ sagði Hlynur Jóhann-
esson, markvörður Vals, eftir
leikinn að Hlíðarenda. Hann hóf
feril sinn með ÍBV en var síðan
lengi í herbúðum HK og nokkur
ár í atvinnumennsku erlendis áð-
ur en hann gekk til liðs við Val.
„Ég hef aldrei tapað fyrir HK-
ingum, spilaði að vísu með þeim
um árabil og hef ekki tapað fyrir
þeim en ég var ekki með í leikn-
um í Digranesi. Það eru alltaf
skemmtilegustu leikirnir að spila
í úrslitakeppninni, maður getur
verið að puða allan vetur en verð-
ur að vera stemmdur þegar kem-
ur í svona leik. Þetta var frábært,
ég var alltaf viss um að við mynd-
um hafa þetta. Við ætlum ekki að
fara að gera okkur þetta erfitt
með oddaleik hérna heima svo að
við ætlum að fylgja þessu eftir og
gera út um þetta í Digranesi, það
er alveg öruggt.“
Pálmar Pétursson náði sér ekki
á strik í markinu svo að Hlynur
kom inn á eftir hlé og varði 10
skot, flest erfið. Honum fannst
gott að komast loks inn á eftir
langa bið á varamannabekknum
og lét strax til sín taka. „Það þarf
alltaf að láta skjóta nokkrum
sinnum í sig til að komast inn í
leikinn,“ bætti Hlynur við.
Hef aldrei
tapað fyrir
HK-ingum