Morgunblaðið - 07.04.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.04.2005, Blaðsíða 1
2005  FIMMTUDAGUR 7. APRÍL BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A EYJAMENN HÖFÐU BETUR Í TVÖFALDRI VÍTAKEPPNI / C3 DRÖFN Sæmundsdóttir, landsliðskona í handknattleik og stórskytta í liði FH, hefur gert lánssamning við spænska liðið Akaba Bera Bera frá San Sebastian. Dröfn, sem er 22 ára gömul, ein efnilegasta hand- boltakona landsins og lykilleikmaður í liði FH und- anfarin ár, heldur utan á morgun og mun leika með spænska liðinu í síðustu sex umferðum tímabilsins, sem lýkur í maí. FH hefur lokið keppni á Íslandsmótinu, féll út gegn Val í 8-liða úrslitunum. Dröfn skoraði 143 mörk fyrir Hafnarfjarðarliðið í 20 leikjum í 1. deild kvenna í vetur. Akaba-liðið er í fjórða sæti spænsku 1. deildarinnar og er Dröfn ætlað að styrkja liðið í lokabaráttunni en það berst um sæti í Evrópukeppni næsta vetur. Spænska liðið tók þátt í EHF-bikarnum í vetur en var slegið út af þýska liðinu Leipzig í átta liða úrslitum keppninnar, samtals með fjögurra marka mun. Akaba er með 26 stig eftir 18 umferðir af 24 í deildinni en fyrir ofan eru Sagunto með 35 stig, Orsan og La Union Rib- arroja með 29 stig Dröfn til liðs við Akaba Bera Bera AC Milan vann Inter, 2:0, í ná-grannaslagnum í Mílanó á sam- eiginlegum heimavelli liðanna, San Siro, í Meistaradeild Evrópu í gær- kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í átta liða úrslitum keppninnar. Jaap Stam skoraði undir lok fyrri hálfleiks og Andriy Shevchenko bætti öðru marki við stundarfjórðungi fyrir leikslok. Bæði mörk AC Milan voru skoruð með skalla eftir aukaspyrnur frá Andrea Pirlo. „Þetta var vissulega ekki einn af okkar bestu leikjum en við spiluðum skynsamlega og erum með gott for- skot. Við megum þó ekki hugsa of mikið um það,“ sagði Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan. „Ég hafði áhyggjur af því að það yrði erfitt að koma beint úr meiðslum í þennan leik en það var ekki hægt að hugsa sér betri endurkomu. Mér tókst að skora og við sigruðum,“ sagði Shevchenko, sem lék sinn fyrsta leik í hálfan annan mánuð. „Það er sárt að tapa svona eftir mjög góðan fyrri hálfleik og jafnan leik þegar á heildina er litið. Milan nýtti sín færi en við þurfum að líta í eigin barm fyrir að fá á okkur tvö mörk eftir aukaspyrnur,“ sagði Ro- berto Mancini, þjálfari Inter. AC Milan vann grannaslaginn ANNA María Sveinsdóttir fagnaði í gærkvöldi sínum 37. titli í körfu- knattleik, en hún hefur verið að frá því hún var 12 ára gömul. „Þetta er alltaf jafn gaman og það eru auðvit- að sigrarnir sem halda manni gang- andi,“ sagði Anna María. „Þegar við töpuðum fjórum leikjum í röð í vetur sagði ég við stelpurnar að ef þetta hefði verið svona hefði ég verið hætt fyrir löngu. Nú sér mað- ur bara til hvernig sumarið verður og hvort mig langi enn að spila næsta haust. Ég er í fínu formi og því ekkert því til fyrirstöðu. Svo klára strákarnir þetta bara á laug- ardaginn og þá er veturinn fínn hjá okkur Keflvíkingum. Laugardagur er fínn dagur til að verða meistari,“ sagði Anna María, sem er 35 ára og gefur þeim yngri ekkert eftir. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson 37 titlar ■ Þriðji titillinn/C3 Eiður Smári lék sem fremstimiðjumaður Chelsea í leiknum og stóð sig með mikilli prýði, vann mjög vel og átti fjölda góðra send- inga. Þá átti hann stóran þátt í fjórða markinu, sem Didier Drogba skoraði. Drogba var geysilega ógnandi og var maðurinn á bak við fyrstu tvö mörkin. Joe Cole og Frank Lampard skoruðu þau eftir að Drogba vann skallaeinvígi við varnarmenn Bay- ern. Á milli jafnaði Bastian Schwein- steiger fyrir Bayern, í upphafi síðari hálfleiks. Lampard skoraði öðru sinni, 3:1, þegar 20 mínútur voru eft- ir, með glæsilegu skoti eftir sendingu frá Claude Makelele og síðan skoraði Drogba af stuttu færi eftir að Oliver Kahn varði skot Eiðs af markteig. Mourinho fannst ekki José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var ekki á Stamford Bridge en hann er í leikbanni í báðum við- ureignum liðanna. Fjölmiðlum tókst ekki að grafa upp dvalarstað hans þrátt fyrir mikla leit og getgátur en athygli vakti að portúgalskur þrek- þjálfari hjá Chelsea, Rui Faria, virt- ist mjög áhrifamikill á varamanna- bekk félagsins þar sem Steve Clarke og Baltemar Brito, nánustu aðstoð- armenn Mourinhos, stýrðu liðinu. „Við undirbjuggum okkur mjög vel. José skipulagði leikinn algjör- lega, gerði áætlun um hvernig leik- urinn myndi þróast og hélt síðan opnu fyrir þær ákvarðanir sem við þyrftum að taka meðan leikurinn stæði yfir. Leikmennirnir stóðu sig stórkostlega og sýndu að þeir geta sigrað hvaða lið sem er. Við unnum Barcelona og skoruðum fjögur mörk hjá Bayern,“ sagði Baltemar Brito. Ekki í sambandi við Mourinho Þjálfarinn neitaði því jafnframt að hafa verið í sambandi við Mourinho á meðan leikurinn stóð yfir en margir fullyrtu að símasamband hefði verið milli hans og varamannabekkjarins. „Ég sá José síðast 2–3 tímum fyrir leik og hef ekki talað við hann síðan. Við söknuðum hans sárlega en sýnd- um styrk okkar í fjarveru hans,“ sagði Brito, sem þurfti að svara fleiri spurningum um Mourinho en um frammistöðu Chelsea í leiknum. Markið í lokin vonbrigði „Það voru vonbrigði að fá á sig þetta mark í lokin, það hefði verið frá- bært að sigra 4:1 en við slökuðum of mikið á síðustu mínúturnar. Eftir að þeir jöfnuðu, 1:1, þá gáfum við í, sett- um mikla pressu á Bayern, spiluðum vel og verðskulduðum þessi þrjú mörk sem við bættum við. Þetta er alls ekki búið, nú er bara hálfleikur og við sáum hvernig þeir léku gegn Arsenal í Þýskalandi. Við eigum von á hörkuleik,“ sagði Frank Lampard. Réðum aldrei við Drogba „Við vorum nánast út úr myndinni í stöðunni 4:1 en seinna markið gefur okkur góðar vonir um að snúa blaðinu við á heimavelli,“ sagði Felix Magath, þjálfari Bayern. „Við áttum í miklum vandræðum í okkar varnar- leik, sem vanalega er mjög góður, og við réðum aldrei við Drogba. Ég vona að Makaay, Pizarro og Demichelis geti spilað með okkur næsta þriðju- dag, þá er ég bjartsýnn á góð úrslit,“ sagði Magath. Sex mörk á Stamford EIÐUR Smári Guðjohnsen og félagar í Chelsea eiga góða möguleika á að komast í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir sigur á Bay- ern München, 4:2, í bráðfjörugum leik á Stamford Bridge í London í gærkvöld. Þeir voru nærri því að fara með þriggja marka forskot til Þýskalands því Michael Ballack náði að skora síðasta mark leiksins fyrir Bayern úr vítaspyrnu þegar þrjár mínútur voru komnar fram yf- ir venjulegan leiktíma. Liðin mætast aftur á Ólympíuleikvanginum í München næsta þriðjudagskvöld. „ÞAÐ var einkennilegt að vera ekki með knattspyrnustjórann í búningsklefanum eða á hlið- arlínunni og ég hef aldrei upp- lifað það áður. Það var mjög sérstakt að sitja í klefanum í hálfleik en við vorum vel und- irbúnir og vissum við hverju var að búast. Við erum ein stór liðsheild og stöndum saman og við fórum bara inn á völlinn og spiluðum okkar leik,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, við fréttamann Reuters eftir leik Chelsea gegn Bayern München í gærkvöld. „Aldrei upplifað þetta áður“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.